þriðjudagur, júní 20, 2006

fyndið atvik og klúður ástarlífsins

Við Fjóla skelltum okkur út á föstudaginn í leit að stað sem heitir Luðvíksen....
þessi staður átti víst að rækta alla þessa fallegu karlmenn sem við sáum allastaðar þarna úti....

Því miður fundum við hann ekki ... og þar sem svo langt var liðið á kvöldið þá duttum við inn á annan stað (btw. Halldóra.. you would have loved this one) röltum inn, fengum okkur drykk... dönsuðum aðeins og fórum svo upp... ný komnar upp síðust tröppuna gengur gaur upp að okkur og býður okkur að setjast með sér og vinum sínum .. .við þáðum.. enda ekki mikið um önnur sæti að ræða....
Þeir voru allir saman í hljómsveit DSB Danske Sumo Brödre.... fínir strákar... einn hafði búið á Íslandi og well.. that was all....

Þeir hétu Thomas, Thomas og Tommy... heheheheh...

Svo þegar kvöldinu var að ljúka... þá stöndum við aðeins fyrir utan (þeas. Fjóla og ég) og gaur kemur upp að mér og spyr mig um lag með Frank Sinatra... Ok.. hér kemur smá upprifjun: ég er ss. búin að vera með þessar rosalegu staðhæfingar ef að e-r gaur syngur fyrir e-ð með Frankie boy, Dean Martin, Sammy Davies eða e-a af þessum gaurum... og þá er ég að tala um ekki "My Way" eða "NY, NY" þá mætti hann eiga mig....
gaurinn gengur upp að mér... byrjar að syngja... og hvað geri ég?... same as i do every time a guy walks up to me.... I send him away!..... Hvað er að mér?!?!?!

Var guð að bænheyra mig með drauma mína? gaurinn btw. hávaxinn, myndarlegur og augljóslega smekkmaður! var þetta mitt eina tækifæri?

það kemur bara í ljós...

Btw. Hann hét Thomas..

kv. Clara
bloggóða

2 vikur í sól... 2 dagar í rigningu

það er búið að vera alveg rosalega gaman úti .... ég er búin að vera í iðnaðarmannahlutverkinu, rafvirki, smiðurn, málari og eiginlega bara alt-muligmand..
svo auðvitað túristi þess á milli ..

Og það er nú aldeilis búið að vera fjörið ..... það er búið að vera tjútt, verslað, sólað sig, unnið og haft ótrúlega gaman :D
Svo er auðvitað svo margt skemmtilegt búið að gerast... ég skipti út vinkonum á vikufresti .. e-ð sem gerist ekki oft.. en svaka fyndið ...
Svo má ekki gleyma því að hitinn var bara hækkandi og fór upp í 30° í síðustu viku .. sem þýddi auðvitað 33° inní miðborg..... steikjandi hiti.. enda fórum við Halldóra skvísa líka í sólbað útí garði ... sem var ÆÐI!!

Fór á tónleika með Sugarbabes.. þessi ljóshærða er definetly heitust... rourrr... ;)
það var drukkið bjór eins og dönskum iðnaðarmönnum sæmir.... :p

það var farið í Kanoferð, það var grillað, það var gengið heim í sólarupprás.... words could not describe the beauty... .

Það var kynnst fólki og nýju fólki, sumir hözzluðu.. aðrir ekki...
það var fengið fullt af æðislegu fólki í heimsókn... það var farið í heimsókn..

það var með einu orði ... gaman ..

17. Júní var tekin heldur rólegar... við höfðum tjúttað til 5 kvöldið áður (fórum seint út því Fjóla lenti svo seint) og því miður sofið aðeins lengur en við ætluðum.. en við tókum vel á því í stofunni og afrakstruinn er æðislegur....

svo var bara pantað sushi og sest útí garð að njóta dagsins.. og það var yndislegt!!

fyrir utan kannski þjónustu Icelandair... ég held að það hafi bara einu sinni ekki verið seinkun á flugi.. og það þegar fyrsta holl of vinkonum fóru heim.... flugið út var seinkað um 2,5 tíma.. Halldóru flug var seinkað um 4 tíma..
og fellt niður á heimleiðinni... þannig að hún flaug heim 6 tímum seinna :S:S ekki kúl..
svo þegar við Fjóla áttum flug heim .. var seinkun upp á 3 tíma.... sem reyndar var tekið fagnandi .. því við náðum að vera lengur í sólinni ... en bölvað daginn eftir í vinnunni .. því maður var exhausted.... enda ekki komin upp í rum fyrr en 3-3.30... geisp.. og komin á fætur fyrir 7 daginn eftir.... geisp..

En maður er kominn heim... rúmið mitt, fólkið mitt, loftið mitt..... mmmm.. nice..
nú er bara að fara koma sér að hitta liðið...

Nágranninn var að bjóða mér með í að hjóla Laugaveginn um helgina og ég væri svoooo til í það ef ég væri ekki með önnur plön.... það hefði verið snilld að hjóla alla nóttina og lenda svo í þórsmörk... leggja sig aðeins og svo alvöru útileigu stemmningu.. veivievie... geri það bara síðar ;)

annars er það Esjan á morgun vonandi ... og ég er að spá í að plana smá sumó ferð bráðum... ég held að það sé kominn tími til.. hvað finnst ykkur?

kv.
Clara.... @Marel í sumar.... geðveikt kúl ;)

laugardagur, júní 17, 2006

Clara enn i Köben .. hihih

Já .. ég átti víst að fljúga heim í gærkvöldi..... en talk about change of plans!!1

sko.. ég átti að vera samferða Halldóru babylicious heim.... en mér var boðið að vera áfram fram að sunnudag...
þvílík snilld hugsaði ég með mér.. nokkrir dagar áfram í sólinni og tjillinu og fara svo heim að vinna...
en hvða skyldi nú Fjóla segja... við vorum með fullskipaða helgi.. allt planlagt.. enda var skvísan ekkert smá hissa á minni....
Fjóla bara... snillingur eins og henni einni er lagið .. skellti sér bara í heimsókn...

þannig the dynamic duo is conquering a new world.. muahahhahahah

búinn að vera magnaður dagur.. og kvöldið verður enn betra..

meiri, betri og ítarlegri sögur munu koma eftir helgi.. þegar ég lendi aftur á brrrrr-landi...

kv.
Clara-licious... og Fjóla-licous.. í Köben .... ligga ligga lái.. og hí á þig...muahahhahah

miðvikudagur, júní 07, 2006

Köben.. sunny, warm and wonderful

það er sko búið að vera fjör síðan við mættum hingað stelpurnar....
ok ... til að byrja á byrjuninni lögðum við af stað á flugvöllin um eftirmiðdaginn á laugardaginn...
mætum upp eftir í þessa rosalegu röð.... komumst að því að það er seinkun á flugvélinni um 1,5 tíma... og þurftum að bíða í tjekkinninu í klst með 4 grátandi þreytt lítil börn öll yngri en 3 ára..
ég vorkenndi foreldrunum ekkert smá mikið ...
en fínt... áttum rosalega gott flug, Íris Ósk svaf alla leiðina okkur Önnu til mikillar mæðu þar sem við fengum sama sem ekkert svæði fyrir okkur.. en fínt...

við lentum ... skiptum um föt og gerðum það íslenska sem er aðeins hægt að gera ... duttum í það í eldhúsinu áður en við skelltum okkur á Park til að hitta Katy babylicous!!....
Þvílíkt snilldar staður... stóraropnar svalir og læti... bara stemmning!
við stelpurnar vorum vel hressar.. sumar duglegri í daðrinu en aðrir, aðrar að dansa af sér bossan og ein edrú.... mauhaha ...
ýttum vinkonu okkar á 1 gaur og sendum þau á dansgólfið ..... og viti menn .. . hún kemur hlaupandi tilbaka .... "hann er íslendingur""... !!!! hahhahahhahahhahahha

Nú þessi félagi er búinn að ættleiða okkur algjörlega... sína mér aðrar hliðar af köben sem ég hafði gleymt og aðrar sem ég hafði sldrei kynnst og hefur fengið vinkonur mínar til að falla algjörlega fyrir land og þjóð!!
í gær fórum við í kanóferð í Lyngby .... grilluðum og fórum svo til baka aftur.... létum okkur fljóta á bátnum á meðan sólin fór niður.. hversu magnað er það!!!!

í kvöld er smá vinna fyrir Clöru og svo pizza, rauðvín og líklega tjútt... Eva Rós vinkona mín var að koma og hún elska rautt, Fjóla... you would LOVE her ! :)

svo er bara Halldóra babylotion að mæta á staðinn á morgun, svo er út að borða og major ferð í Tivolí aað sjá Sugarbabes á fredag .... ætlum mörg saman .. þannig að það verðua alveg brjálað gaman!!!
svo er nýji félaginn búinn að bjóða okkur Halldóru í Grille að bjrál partý á söndag.....
btw drengz býr í fáránlega flottir íbúð á frábærum stað!!! SNiiillllD!

Svo er planið Belle & Sebastian .. veivievie.. gerist ekki betra!!!
en það eru bara 9 dagar eftir.... og ég ætla að nýta þá til fullnustu....... !!!

Love you all ....

Clara