þriðjudagur, mars 27, 2007

Mig langar bara að .....

byrja á að benda á þessa grein sem er að finna á visir.is í dag:



Svo langar mig að benda á að karlmenn eru ekki þeir einu sem missa af svefni þegar þeir deila rúminu með e-m. Kvenmenn gera það líka. Fyrir mína parta á ég því miður frekar erfitt að sofa við hliðin á öðru fólki, má þar benda á að ég henti móður minni úr rúminu mínu eftir aðeins eina helgi, þá gat ég hreinlega ekki meir. Það liggur við að ég styðji sitthvort svefnherbergið fyrir pör og hjón. Þó svo auðvitað að það sé voða notalegt að kúra með e-m upp í rúmi þá sefur maður miklu betur einn! Þá er enginn að stela af manni sænginni, enginn að hrjóta, enginn að gnísta tönnum ( takið það til sín sem eigið), enginn að fara inn á mitt pláss í rúminu.. já ok .. ég er frekar plássfrek þegar kemur að rúminu mínu... ekki það að ég taki allt plássið heldur það að ég á minn helming og þú átt þinn helming! mér þykir það ansi góð regla!

My bed, My side! Your bed, your side! My bed, your side (stay there)! Your bed, my side (I will stay there)!

Clara... sem sefur ein.. laaaaangbest!

Atvinnuleitin..


Þessa dagana er maður á fullu að senda út ferilskránna sína þess á milli sem maður er að klára verkefni og undirbúa sig fyrir prófin.

Maður er búinn að vera á fullu að gera þessa rosa finu ferilskrá, sumir láta taka mynd af sér til að geta sýnt sína bestu hlið, og láta sig líta sem best út á blaði. Maður verður svo stoltur af ferilskránni sem maður hefur eytt tíma í að gera fallega, fágaða og heillandi.
Svo fer maður á stúfana á netinu og leitar sér heimilda um mannauðsdeildir og -stjóra fyrirtækja sem vekja hjá manni áhuga, maður verðu spenntur þegar maður finnur tölvupóstfangið hjá þeim og sendir á þá með von í hjarta að ferilskráin muni heilla þá upp úr skónnum..

Svo verður maður enn spenntari þegar maður tölvupóst tilbaka, "jeij, kannski fæ ég tækifæri þarna, úúú mér líst vel á þetta"...
svo opnar maður póstinn og í því stendur "Vinsamlegast fyllið út umsóknina á netinu svo að allar upplýsingar komist rétt til skila."

Ég hélt að ég væri búin að því..? Ég var búin að gera þessa rosa fínu ferilskrá, allar upplýsingarnar um mig eru þarna.. nema kannski aukavinnan sem ég tel ekki til styrkleika í starfinu sem ég er að óska eftir. Það þarf bara að prenta hana út og leggja í búnkann með öllum hinum útfylltu umsóknunum. Ég er svekkt.. mér finnst þetta asnalegt, ég nenni ekki að vera að fara á allar heimasíðurnar að setja inn sömu upplýsingarnar sem eru á ferilskránni minn. Ég eyddi fullt af tíma í að búa hana til, það er lagt áhersla á að hafa fína ferilskrá og síðan er ekki einu sinni tekið mark á henni!
Hvaða rugl er það!?


Anywhoo.. ég heyrði rosalega útgáfu af Crazy í síðustu viku, It rocked my world!!
Ég bið tónlistarmanninn Togga um að vinsamlegast hlóðrita þessa útgáfu eða gefa hana út á myndbandi, því ég veit að það var kamera þarna .. I gotta have it!! sama hvernig .. I gotta have it!

þriðjudagur, mars 20, 2007

Kvöldin

Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að fara í göngutúra.. það er e-ð svo friðsælt, róandi og upplífgandi. Að rölta í fersku loftinu, kannski smá kulda, í myrkrinu með góða tónlist í eyrunum og aðeins með beinan stíg fyrir framan sig.
Eftir að hafa búið í 105 og 101 síðustu ár hef ég gengið mikið um íbúðargöturnar sem mér finnst bara æðislegt.. að rölta og svona líta inn um gluggana á leiðinni. Ég er i enginn Peeping-Tom.. en þið vitið maður rennir augunum yfir húsin í myrkrinu og auðvitað stoppar litið í 1-2 sekundur ... og í þessar 2 sekúndur kemur alltaf e-r smá saga upp í kollinn á mér... um hvað fólk er að gera, hvað þau voru að gera eða eru að fara gera. Hvernig manneskjur þetta eru.
Og þá kemur oft upp smá löngun í manni að hafa möguleikann að geta lesið eða heyrt hvað fólk er að hugsa þegar það er heima hjá sér í kvöldkyrrðinni.. hlustandi á tónlist, horfandi á sjónvarpið eða hvað eina.

Á leiðinni í H-skólann geng ég framhjá nokkrum fjölbýlishúsum og þar er í einni blokkinni kona sem situr við skrifborð á kvöldin þegar ég rölti heim og hef ég oft verið að spá í hvað hún er að gera og um daginn fékk ég smá innsýn í hvað hún bedrífast þarna á kvöldin, hún lyfti upp pilsi sem hún var að sauma og það kom yfir mig svona smá stolt fyrir hennar hönd, ég samgladdist henni alveg rosalega á góðu verki.

Í gærkvöldi tók ég smá rúnt á leið í sundhöllina í gegnum eitt af mínum uppáhaldshverfum að rölta í og það eru göturnar milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs. Þetta eru litíl hús, litlar íbúðir og göturnar eru pínulitlar.. þetta er næstum eins og að koma inn í nýjan heim að rölta þarna í einstefnu götunum með garðana og trén og kettina hlaupandi yfir göturnar... þetta er allt annað umhverfi og andi en td. Í Þingholtunum, sem ég fíla alveg í tætlur líka, minnir mig pínu á Köben að rölta í 101 nema að húsin í Köben eru mun hærri og dimmari.

Á svona kvöldum sakna ég voða mikið að geta rölt í kringum vötnin (söerne), í gegnum Fælledparken, niður í miðbæ og upp Nörrebro og aftur til tilbaka heim að Österbro.... það er svo notalegt að vera úti og hreyfa sig...

þriðjudagur, mars 13, 2007

14. mars eða 3.14..

Nú hefur sá dagur runnið upp sem bna-menn skrifa 3.14, sem hann Jón Örn svo réttilega og skemmtilega benti á vill svo skemmtilega til að er talan PÍ --=> π

Ekki nóg með að þetta sé π-dagurinn þá er þetta einnig afmælisdagur snillingsins Alberts Einsteins.... Verkfræðingur fjölskyldunnar móðurbróðir minn á einnig sama afmælisdag..... 14. mars er einnig frægur fyrir aðra daga sjá hér....

Fyrir utan þessa merku menn og þessa merkilegu tölu og fleiri atriði, sjá hér, þá fæddist ég þennan dag líka fyrir aðeins 25(+1) ári síðan... í tilefni dagsins þá er ég að spá í að bjóða í smá “selebreysjón” um helgina... partýnefndin er komin á gott skrið með hugmyndir og önnur herlegheit og allt er í óðaönn að verða hin glæsilegasta samkoma góðs fólks í kringum mig.... það er víst komið að skuldadögum þar sem mér tókst svo lúmskulega að komast hjá veislu á síðasta ári og verð ég að bæta fólkinu mínu það upp .... fliss
og tel ég mig hreinlega bara lukkulega að fá að deila þessum degi með þeim stórmerku uppgvötvunum... og þeim stórmerku mönnum og konum....

fimmtudagur, mars 08, 2007

Ég var búin að skrifa eitt heljarinnar blogg í gær... en svo varð bara ekkert úr því ... svekkelsi.... snöft.. en ég set það bara inn í næstu viku þegar verður loksins af því ....

Marsmánuður er frekar busy hjá mér með skólavinnu þó er komandi helgi uppbókuð og ég á eftir að gera upp við mig hvort ég eigi að fullbóka helgina eftir líka.... en ég er laangspenntust fyrir atburðum komandi helgar!!

Numero uno... er árshátið HR .... Föngulegur hópur ætlar að mæta, kæta og skemmta sér við tóna Baggalúts, skífuþeytings Óla Palla og grín Þorsteins Guðmundsonarl!!! Dressið er komið og nú vantar aðeins að toppa lúkkið með rétta fylgihluti!
Því miður verður þetta síðasta, já allra síðasta árshátíð árgangs'04 þannig að við þurfum að fjölmenna og sýna að 3.árið er laaangbest í djamminu!!
meðfylgjandi er mynd er af mér frá síðustu árshátíð ... það var mjööög skemmtilegt kvöld! Fann ekki hinar myndirnar.. :S


Numero dos.. vinahópurinn pantaði skemmtilegt kvöld og skemmtilegt mun það verða! Miss Pink and sys hafa planað heljarinnar skemmtikvöld með tilheyrandi látum, skreytingum og fjöri eins og þeim einum er lagið... ég sé framm á að dansa og syngja við Pop! Goes my heart! og fleiri eightís lög.. hehehe og líklega Queen á japönsku.... sérstaklega þar sem ég má ekki spila mína tónlist.. hnuff!
Það var sett þema, sól og sumar og kokteilar þannig að við verðum stórglæsileg í sumaroutfittum með búddahglös í höndum... snilld!
Það verður koktailbar!!! ..my faverit thing to do.... blanda drykki ;) ég ætla að vera með glæsilegast glasið .. það verður á hreinu!!

laugardagur, mars 03, 2007

Merkilegt!!



Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri þegar ég fer að versla er að velja mér tannbursta... ég get staðið og pælt í týpu, gerð og áferð og lit alveg endalaust.. og finnst það alveg ótrúlega skemmtilegt...... það er nú meira hvað maður getur dúllað sér endalaust þegar maður velur tannbursta enda er þetta e-ð sem skiptir manni heil miklu máli.....

Svo mætti múttan með eina litla 3 ára frænku mína í heimsókn í morgun... . hún vissi bara ekkert hvað hún átti að gera með litlu stelpunni .. þannig að við skelltum okkur í Ikea... Alveg uppáhalds staðurinn minn þegar ég var lítil og er enn í dag.. maður getur leikið sér endalaust þar... prófað rúm og skápa og allt litla dótið ... þetta er alveg drauma heimur þarna inni .. enda finnur maður sér alltaf e-ð við hæfi .. jeij IKEA! .. hehehe...

Jæja.... stúlku kindin viet ekki alveg hvað hún á að gera af sér í kvöld...... partý eða vera bara heima í góðu tjilli með kertaljós og góða bók...
Ætla að láta það ráðast síðar ... tjillin at the moment and lovin it!

Kv.
Clara