þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Áriðandi malefni!!!

Í annað skiptið í mánuðinum kallar blóðbankinn á hjálp landsmanna, það vantar blóð í bankann...

Ég hef í gegnum tíðina verið virkur blóðgjafi, alltaf farið þegar kallað hefur verið í mig og mér finnst þetta nauðsynlegt.
Ég get ekki sagt af hverju ég byrjaði þessu, en ég hef dregið móður mína og bróður í þetta og við systkyni erum dugleg að fara reglulega.

Þar sem ég hef alltaf verið dugleg að fara hef ég aldrei spáð neitt mikið í því hvert blóðið mitt fer.. vonast alltaf til að það sé að bjarga e-m og ekki að renna út í kælinum.
Um daginn lenti ég á manneskju sem þurfti á blóðgjöf að halda aðra hverja viku í 6 mánuði eftir barnsburð, ef hún hefði ekki fengið blóð þá hefði hún líklega ekki verið hér. Að heyra frásögn hennar styrkti mig í það að halda áfram að gefa.

Núna má ég hins vegar ekki gefa blóð og því langar mig að biðja þig! góði lesandi að fara niður í blóðbanka og gefa blóð fyrir mig... þau taka vel á móti þér og þau passa upp á þig allan tímann sem þú ert þarna...

ef þú ert heilsuhraust/ur, við góða heilsu og langar að gera e-ð fyrir náungann ... þá mæli ég með því að gera þetta.

Þó svo að þú fáir ekki beinar þakkir geturðu verið viss um að þú sért að bjarga einhverjum...

áður var þörf en núna nauðsyn!

Blóðbankinn kallar á þig

C.V.

mánudagur, nóvember 20, 2006

Late Halloween partei!




Já það var heldur betur haldið upp á Halloween um helgina.. kannski 3 vikum of seint.. en soooooo worth it!!! og ég hef ekki séð svona flotta búninga og glæsilegt fólk í lengri tíma!!! bara OMG REDRUM og læti!!!
aftakan á baðinu var sjúklega flott.. og maður verður að bæta því við að snjórinn toppaði bara allt saman!!! það var ógó gaman að fá snjóinn!!! :D .... jeij!!! ég er svo mikið barn... !!!!

En já eftirtaldir búningar voru í partíinu.... Napoleon Dynamite og Deb, Ell mountain snake úr Kill Bill, Alice Cooper, BjarnarBófi, nornir og rauðhetta.... tótally tótally awesome!!

Ég var rauðhetta... ótrúlega fín og saklaus... ég var með körfu og nýbökuð möffins.... það var nú heldur betur skemmtilegt.. ;)
Það er eins gott að þetta verði endurtekið að ári liðnu!!! bara awesome!!
ég þarf augljóslega fara byrja safna í búningaskápinn minn .... komin með 2 ... nú vantar mér bara fleiri...
Helgi ég er enn að bíða eftir superhero partíinu svo ég geti komið sem... well.... það mun bara koma í ljós ;)

JEIJ snjór.. eigum við að ræða þetta... hversu awesome er það að loksins er komin snjór í reykjavík .. og ekki þessi leiðinlegi sem að hverfur strax daginn eftir.. ég vona að þessi verði í smá tíma.. þá kemst maður kannski upp á bláfjöll bráðlega :D

rúm vika í að próf byrji ... 3 ivkur þar til þeim lýkur aftur.. nú þarf að fara taka sig ...

talið við mig eftir 7. ;)

C.V.

mánudagur, nóvember 13, 2006

brennt barn forðast eldinn..... eða svo er sagt...

Maður ætti að læra af reynslunni, er það ekki?.. er það ekki það sem þessi setning á að kenna manni....

en af hverju lærir maður aldrei af reynslunni? hvernig tekst manni að blindast fyrir raunsæji þegar maður ætti að vita betur...
verður löngunin um drauminn svo yfirþyrmandi að hann dregur úr skynseminni?

maður spyr sig.... af hverju forðast maður ekki eldinn þegar maður veit svo miklu betur...

Annað sem ég hef líkið verið að spekúlera er af hverju gerir maður ekki það sem maður sjálfur segir.....
maður kemur með allar þessar yfirlýsingar og þykist vita svo miklu betur en allir aðrir.... af hverju gerir maður ekkert í því sjálfur? Ég reyni sjálf að lifa eftir mínum orðum.. en ég á mínar gryfjur sem ég dansa á brúninni í kringum... stundum dettur maður oní .. stundum labbar maður í burtu.... maður reynir að halda höfðinu uppi no matter what.. ..
Maður vill ekki láta brjóta sig niður .. og alls ekki augljóslega !!

Erlendur félagi minn nefndi við mig um daginn að Íslendingar ganga allir með höfuðið reist hátt.. sama hvernig vindar og sama hvernig skapi þeir eru í .... það er nokkuð til í það ... Við höldum höfðinu alltaf uppi sama hvað bjátar á.. mér finnst gott að vita það .. mér líður vel að vita að við erum stolt fólk, að ég sé stolt af mér og mínum. Fyndið samt að þurfa heyra þetta frá útlendingi, vinur minn, en samt sem áður erlendur maður.. þeir taka augljóslega betur eftir þessu en aðrir.

Haldið höfðinu hátt og verið stolt.
Þið hafið allt að bera og alla getu til þess að ná þangað sem þið viljið fara.

C.V.

miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Tonlist og strakar

tónlist getur verið svo dáleiðandi ... það er alveg yndislegt... yndislegustu stundirnar mínar er ég ein heima (it actually happens) að hlusta og kynnast tónlist nýrri sem gamallri ....
það að upplifa sig í tónlistinni er svo yndislegt.. ég mun alltaf sjá eftir því að hafa hætt að æfa mig á píanó og fiðlu... og ég mun alltaf sjá eftir því nema ég geri e-ð að því .. það er nefnilega aldrei of seint .. er það nokkuð?

Akkúrat núna eru á playlistanum mínum eftirfarandi hljómsveitir og þær eru spilaðar aftur og aftur og aftur.. ég bara fæ e-ð high á því að hlusta á þær

Absynth minded
José Gonzales
Snow Patrol
Starssailor
Toggi
The Stokes
Ray Lamontagne
Elbow
Brazilian Girls
OK Go
anthony and the Johnsons
og safn diskur sem heitir cosmosonica sem er bara æði!!
Svo eru alltaf swingerarnir mínir.. get ekki farið dag án þeirra
Frankie
Deanie
Sammy
og Micheal... mig langar bara að dansa og drekka martinis í gorgeous kjólum með gorgeous greiðslur með síða hanska og læti þegar ég hlusta á þá... það er alveg mitt tímabil... grrr... ;)

Bróðir minn kom með komment til mín um daginn.. hann hafði haft samband við gamla vinkonu sína... bara svona hvað er að frétta? og vinkonan vildi bara alls ekki tala við hann .. af því að hann talaði/ er vinur stráks sem hún var skotin í .. ef þið fylgið mig, OK, annars bara holler at me!
hann spyr .. af hverju láta stelpur svona?

ég svaraði nú bara hreint og beint.. það er augljóst að stúlkukindin hafi verið hrifin af vini þínum og hún sé særð af honum .. og það að tala við þig særir hana...
strákar eiga víst e-ð erfitt með að skilja þetta.... allavega brósi .. sem ég nú bara skil ekki .. hann er nú einu sinni alinn upp af 2 skvísum... lol.. við vorum kannski ekki þær auðveldustu í sambúð .. oh boy ... ;).....................ég vona að ég sé að bæta upp fyrir það núna :D Þú ert frábær strákur..

Mér finnst nauðsynlegt að eiga vini, sumir vinir eru eins og fjölskylda og fylgja mann alla ævi meðan aðrir koma og fara. Það kemur líka fyrir að maður vaxi upp úr vinum sínum ... en ef þetta eru raunverulegir vinir þá endast þeir alla ævi.
Ég lifi því mjög mikið eftir þessu móttói " boys come and go, but friends stay forever" ... og hversu satt er það ?! kærastar/kærustur koma og fara í flestum tilvikum en það eru vinirnir sem eru alltaf til staðar....

Þess vegna má maður aldrei gleyma vinum sínum þótt að maður kynnist e-m spennandi .... því vinir eru hluti af manni sjálfum .... mér finnst vinir mínir einkenna mig.... enda eru þetta allt frábærar manneskjur :)

ég skammast mín alveg þvílíkt í augnablikinu. ... var í bónus áðan.. sá stelpu sem ég kannast við ... vandamálið er að ég veiet að ég þekki hana.. .ég bara mundi ekkert um hana.. nema að ég þekki hana.. ég veit ekki hvaðan, hvað hún heitir eða neitt.. hún alveg heilsaði mér og læti .. og ég bara brosti sætt ;)..... ég þarf virkilega að fara virkja minnið meira... :$
og annað ..... ppl! þið verðið að pikka í mig ef þið ætlið að heilsa mér og sjáið að ég er með iPod í eyrum.... í 85% tilvika tek ég ekki eftir NEINU!!

búin að lenda í þessu 3var bara í þessari viku og 2var í síðustu viku .... bara so sorry... ég er bara í mínum eigin litla heimi ....

Clara Starsailor.... going to the end of the universe... or just the castle in the sky ;)