sunnudagur, desember 24, 2006

Jolin eru að koma..


Við systkynin erum heima hjá ömmu.. búin að fara með alla pakka og erum að hjálpa til við matinn.... Jeij það er kalkúnn :D:D

Tréð er ótrúlega fallegt og allir pakkarnir bíða spenntir undir því...

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla! njótið kvöldsins , fjölskyldur ykkar og vini...

Við Tandri ætlum að spila öll kvöld þessi jól.. það verður gaman!

Mig langar að benda á þetta lag, endilega náið ykkur í og njótið

O holy night með band frá New Orleans

og einnig þetta

DMB með Christmas Songtmas+Song

þriðjudagur, desember 12, 2006

Jolafri..

Ég er komin í jólafrí .. og í fyrsta skipti síðan ég var lítil lítil hef ég ekkert að gera... það er furðulegt...
það er alveg kominn 3 dagurinn í fríi... helgi ekki meðtalinn og ég er að deyja...
hvernig fara iðjuleysingjar að því að gera ekkert....
maður getur svo sem fundið sér e-ð til að stytta sér stundir... en það er skammgóður vermir...

Ég er td. ekki að fara til útlanda yfir jólin, ég er ekki að fá fólk í heimsókn yfir jólin, ég er ekki með neina sérstaka vinnu yfir jólin... *En ég er svo sniðug að finna mér e-ð að gera ... ég gæti til dæmis sett up stefnumótasíðu fyrir háskólafólk... (boring).. ég gæti örugglega fundið mér vinnu í e-u skítapleisi fyrir engin laun.... kannski ég gerist einkaspæjari yfir jólin og hjálpi fólki í samböndum að halda auga með makann... (mean).... any ideas?!.. ég gæti lagað bloggsíðuna mína og sett inn linka.. og kannski eytt smá tíma í að læra á hana... og læra undir sjúkraprófið mitt... það væri líka mjög sniðugt.
ég redda mér e-u að gera... það leynist allatf e-ð undir hverjum steini....

í kvöld er próflokadjamm hjá Hr... oh boy ... síðasta djamm hjá nokkrum kærum og góðum vinum sem síðan hverfa á sporbraut kringum jörðina í lengri eða styttri tíma... hvað á ég að gera á meðan... snöft...!

Ég er núna með gólftuskuna í heimsókn.... tuskan er actually soldið mikið krútt... fór með hana á kaffihús i dag.. og hún sofnaði bara á jakkanum mínum alveg rosalega þæg og góð......
Ég er enn með feita ævintýraþörf... kannski ég skelli mér í bústað um/eftir helgina... Iv'e got the time and öhh... the time... kannski ég geti platað e-a vini mína með mér....

ú .. kannski ég gæti fengið að hjálpa ömmu með að baka ... . það væri gaman ... úú .. kannski mömmukossa og sörur... ég vona að hún sé ekki búin að baka sörurnar...

mér leiðist... sést það nokkur? ;)

ætla að fara fá mér bjór... eins og félagi sagði: "bjór er góður! Bjór!"
bróðir minn er tuborgjólasveinn.... hann kallar sig systur mína á djamminu... hann er jólasveinn!

C.V.
Caotic Verification

fimmtudagur, desember 07, 2006

ég a næstum þvi lag ;)

bara vitlaus fyrsti stafur.... og thank cod að ég sé ekki svona mikill stalker ;)

Klara, Klara

Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Undarlegt það ýmsum þótti er þú komst í réttirnar,
að þú skyldi alltaf stöðugt elta mig á röndum þar.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Undir messu á mig jafnan ákaflega glápir þú.
Sumir telja að það eigi ekkert skylt við kristna trú.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Ef ég sting þig af á böllum, alltaf kanntu ráð við því,
þú í snatri þýtur til mín þegar kemur dömufrí.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !

Engin leið er mér að sofna, er ég heyri sönginn þinn
hljóma fagurt fram á nætur fyrir utan gluggann minn.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !

Listræn mjög og lagin ertu, leikur allt í höndum þér
þetta sýna sokkaplöggin, sem þú prónar handa mér.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Kökur þær sem frá þér fæ ég fjarskalega gómsætar
hjarta mínu alltaf ylja einkum heitu kleinurnar.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Brátt mun okkar brúðkaup standa brátt mun ég þér sofa hjá
Eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman þá.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !

Lag og texti: Erlent lag / Jónas Árnason

þriðjudagur, desember 05, 2006

Ævintyri

það þurfa allir á ævintýrum að halda, *something to put the spark into ones life*
hversdagsleikinn verður svo ekki grár.. frekar bara einsleitur... sömu venjurnar dag eftir dag, það vantar fjölbreytileikann..

ég var búin að segja við sjálfa mig að gera e-ð nýtt á hverjum degi, taka af skarið og taka áhættu ...
af hverju gerði ég það ekki... hvað varð af af neistanum sem glóði eins og eldkúla hér áður fyrr....

hún er ekki farin ... bara orðin að litlu ljósi sem bíður eftir að láta kynda undir sér...
ég er sko aldeilis farin að kynda eldinn hjá mér...
ég er aðeins búin að trassa í próflestrinum og leita eftir nýjum ævintýrum og á nýjum vígstöðum...
ég er að nálgast einu af takmörkum mínum... þarf aðeins að klára það sem ég er í núna til að geta farið á næsta level...
það er alveg að fara koma að því .... *I have a sword* sagði maður ... hann sá glitta í framtíðina sína... af hverju get ég ekki séð framtíðina mína.... ég þarf á smá meiri eldivið á eldinn.. uppörvun til að ná næsta takmarki...

Ég gæti audda alltaf farið í heimsókn til ömmu minnar á kanarí yfir jólin ... það myndi allavega hlaða batterín vel... en ég gæti líka gert það eftir áramót.... það er orðið of langt síðan ég fór e-t ... ég þarf að fara e-t ... ég þarf að komast í burtu... bara smá vegis.... aðeins að stokka upp í tilveruna... sjá nýja hlið á borginni, sjálfri mér....
ég þarf að ögra mig... Einhverjar tillögur? allar eru vel þegnar!!

C.V. - í ævintýraleit

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Áriðandi malefni!!!

Í annað skiptið í mánuðinum kallar blóðbankinn á hjálp landsmanna, það vantar blóð í bankann...

Ég hef í gegnum tíðina verið virkur blóðgjafi, alltaf farið þegar kallað hefur verið í mig og mér finnst þetta nauðsynlegt.
Ég get ekki sagt af hverju ég byrjaði þessu, en ég hef dregið móður mína og bróður í þetta og við systkyni erum dugleg að fara reglulega.

Þar sem ég hef alltaf verið dugleg að fara hef ég aldrei spáð neitt mikið í því hvert blóðið mitt fer.. vonast alltaf til að það sé að bjarga e-m og ekki að renna út í kælinum.
Um daginn lenti ég á manneskju sem þurfti á blóðgjöf að halda aðra hverja viku í 6 mánuði eftir barnsburð, ef hún hefði ekki fengið blóð þá hefði hún líklega ekki verið hér. Að heyra frásögn hennar styrkti mig í það að halda áfram að gefa.

Núna má ég hins vegar ekki gefa blóð og því langar mig að biðja þig! góði lesandi að fara niður í blóðbanka og gefa blóð fyrir mig... þau taka vel á móti þér og þau passa upp á þig allan tímann sem þú ert þarna...

ef þú ert heilsuhraust/ur, við góða heilsu og langar að gera e-ð fyrir náungann ... þá mæli ég með því að gera þetta.

Þó svo að þú fáir ekki beinar þakkir geturðu verið viss um að þú sért að bjarga einhverjum...

áður var þörf en núna nauðsyn!

Blóðbankinn kallar á þig

C.V.

mánudagur, nóvember 20, 2006

Late Halloween partei!




Já það var heldur betur haldið upp á Halloween um helgina.. kannski 3 vikum of seint.. en soooooo worth it!!! og ég hef ekki séð svona flotta búninga og glæsilegt fólk í lengri tíma!!! bara OMG REDRUM og læti!!!
aftakan á baðinu var sjúklega flott.. og maður verður að bæta því við að snjórinn toppaði bara allt saman!!! það var ógó gaman að fá snjóinn!!! :D .... jeij!!! ég er svo mikið barn... !!!!

En já eftirtaldir búningar voru í partíinu.... Napoleon Dynamite og Deb, Ell mountain snake úr Kill Bill, Alice Cooper, BjarnarBófi, nornir og rauðhetta.... tótally tótally awesome!!

Ég var rauðhetta... ótrúlega fín og saklaus... ég var með körfu og nýbökuð möffins.... það var nú heldur betur skemmtilegt.. ;)
Það er eins gott að þetta verði endurtekið að ári liðnu!!! bara awesome!!
ég þarf augljóslega fara byrja safna í búningaskápinn minn .... komin með 2 ... nú vantar mér bara fleiri...
Helgi ég er enn að bíða eftir superhero partíinu svo ég geti komið sem... well.... það mun bara koma í ljós ;)

JEIJ snjór.. eigum við að ræða þetta... hversu awesome er það að loksins er komin snjór í reykjavík .. og ekki þessi leiðinlegi sem að hverfur strax daginn eftir.. ég vona að þessi verði í smá tíma.. þá kemst maður kannski upp á bláfjöll bráðlega :D

rúm vika í að próf byrji ... 3 ivkur þar til þeim lýkur aftur.. nú þarf að fara taka sig ...

talið við mig eftir 7. ;)

C.V.

mánudagur, nóvember 13, 2006

brennt barn forðast eldinn..... eða svo er sagt...

Maður ætti að læra af reynslunni, er það ekki?.. er það ekki það sem þessi setning á að kenna manni....

en af hverju lærir maður aldrei af reynslunni? hvernig tekst manni að blindast fyrir raunsæji þegar maður ætti að vita betur...
verður löngunin um drauminn svo yfirþyrmandi að hann dregur úr skynseminni?

maður spyr sig.... af hverju forðast maður ekki eldinn þegar maður veit svo miklu betur...

Annað sem ég hef líkið verið að spekúlera er af hverju gerir maður ekki það sem maður sjálfur segir.....
maður kemur með allar þessar yfirlýsingar og þykist vita svo miklu betur en allir aðrir.... af hverju gerir maður ekkert í því sjálfur? Ég reyni sjálf að lifa eftir mínum orðum.. en ég á mínar gryfjur sem ég dansa á brúninni í kringum... stundum dettur maður oní .. stundum labbar maður í burtu.... maður reynir að halda höfðinu uppi no matter what.. ..
Maður vill ekki láta brjóta sig niður .. og alls ekki augljóslega !!

Erlendur félagi minn nefndi við mig um daginn að Íslendingar ganga allir með höfuðið reist hátt.. sama hvernig vindar og sama hvernig skapi þeir eru í .... það er nokkuð til í það ... Við höldum höfðinu alltaf uppi sama hvað bjátar á.. mér finnst gott að vita það .. mér líður vel að vita að við erum stolt fólk, að ég sé stolt af mér og mínum. Fyndið samt að þurfa heyra þetta frá útlendingi, vinur minn, en samt sem áður erlendur maður.. þeir taka augljóslega betur eftir þessu en aðrir.

Haldið höfðinu hátt og verið stolt.
Þið hafið allt að bera og alla getu til þess að ná þangað sem þið viljið fara.

C.V.

miðvikudagur, nóvember 08, 2006

Tonlist og strakar

tónlist getur verið svo dáleiðandi ... það er alveg yndislegt... yndislegustu stundirnar mínar er ég ein heima (it actually happens) að hlusta og kynnast tónlist nýrri sem gamallri ....
það að upplifa sig í tónlistinni er svo yndislegt.. ég mun alltaf sjá eftir því að hafa hætt að æfa mig á píanó og fiðlu... og ég mun alltaf sjá eftir því nema ég geri e-ð að því .. það er nefnilega aldrei of seint .. er það nokkuð?

Akkúrat núna eru á playlistanum mínum eftirfarandi hljómsveitir og þær eru spilaðar aftur og aftur og aftur.. ég bara fæ e-ð high á því að hlusta á þær

Absynth minded
José Gonzales
Snow Patrol
Starssailor
Toggi
The Stokes
Ray Lamontagne
Elbow
Brazilian Girls
OK Go
anthony and the Johnsons
og safn diskur sem heitir cosmosonica sem er bara æði!!
Svo eru alltaf swingerarnir mínir.. get ekki farið dag án þeirra
Frankie
Deanie
Sammy
og Micheal... mig langar bara að dansa og drekka martinis í gorgeous kjólum með gorgeous greiðslur með síða hanska og læti þegar ég hlusta á þá... það er alveg mitt tímabil... grrr... ;)

Bróðir minn kom með komment til mín um daginn.. hann hafði haft samband við gamla vinkonu sína... bara svona hvað er að frétta? og vinkonan vildi bara alls ekki tala við hann .. af því að hann talaði/ er vinur stráks sem hún var skotin í .. ef þið fylgið mig, OK, annars bara holler at me!
hann spyr .. af hverju láta stelpur svona?

ég svaraði nú bara hreint og beint.. það er augljóst að stúlkukindin hafi verið hrifin af vini þínum og hún sé særð af honum .. og það að tala við þig særir hana...
strákar eiga víst e-ð erfitt með að skilja þetta.... allavega brósi .. sem ég nú bara skil ekki .. hann er nú einu sinni alinn upp af 2 skvísum... lol.. við vorum kannski ekki þær auðveldustu í sambúð .. oh boy ... ;).....................ég vona að ég sé að bæta upp fyrir það núna :D Þú ert frábær strákur..

Mér finnst nauðsynlegt að eiga vini, sumir vinir eru eins og fjölskylda og fylgja mann alla ævi meðan aðrir koma og fara. Það kemur líka fyrir að maður vaxi upp úr vinum sínum ... en ef þetta eru raunverulegir vinir þá endast þeir alla ævi.
Ég lifi því mjög mikið eftir þessu móttói " boys come and go, but friends stay forever" ... og hversu satt er það ?! kærastar/kærustur koma og fara í flestum tilvikum en það eru vinirnir sem eru alltaf til staðar....

Þess vegna má maður aldrei gleyma vinum sínum þótt að maður kynnist e-m spennandi .... því vinir eru hluti af manni sjálfum .... mér finnst vinir mínir einkenna mig.... enda eru þetta allt frábærar manneskjur :)

ég skammast mín alveg þvílíkt í augnablikinu. ... var í bónus áðan.. sá stelpu sem ég kannast við ... vandamálið er að ég veiet að ég þekki hana.. .ég bara mundi ekkert um hana.. nema að ég þekki hana.. ég veit ekki hvaðan, hvað hún heitir eða neitt.. hún alveg heilsaði mér og læti .. og ég bara brosti sætt ;)..... ég þarf virkilega að fara virkja minnið meira... :$
og annað ..... ppl! þið verðið að pikka í mig ef þið ætlið að heilsa mér og sjáið að ég er með iPod í eyrum.... í 85% tilvika tek ég ekki eftir NEINU!!

búin að lenda í þessu 3var bara í þessari viku og 2var í síðustu viku .... bara so sorry... ég er bara í mínum eigin litla heimi ....

Clara Starsailor.... going to the end of the universe... or just the castle in the sky ;)

þriðjudagur, október 24, 2006

princesses & tomboys

ég fygldi ungri dömu í skólann um daginn og vorum við að ræða ýmsa hluti saman.. svo sem stráka og kossaleiki og knús leiki...
þar sem hún er enn of ung (aðiens 6 ára) þá er þetta auðvitað tímabilið rétt áður en kossar og knús verða hótanir og ógeðsleg.. hehe

ég endaði á að ræða þetta við mömmu hennar og byrjaði aðeins að rifjast upp fyrir okkur hvernig þetta var þegar við vorum á þessum aldri.... vinkona mín auðvitað var litla sæta ljóshærða stelpan (we all know who she is, there is one in every class) og hún var einmitt í þessum kossaleikjum og 2 mín í helv. og hvað man maður ekki ....

þá fór ég að rifja þetta upp.... óh boy ... hvað ég var allt allt allt öðruvísi .... ok hún var litla ljóshærða sæta stelpan.... ég var freknótta rauðhærða dýrið sem var ein af strákunum....
ég var að veiða froska og engissprettur og eðlur.. og faldi þetta allt saman undir eða fyrir aftan rúmið mitt....
ég var í leikjum með strákunum að smíða og í boltanum ... ég man ekki hvað ... ég lék mér í bíló í sandkassanum og mér fannst He-Man miklu meira kúl heldur en bróður mínum...... ég ss. fékk að leika með kastalann og tígrisdýrið hans He-mans og með Skeletor og læti... btw She-ra fékk ekki að vera með!
já .. ég samt neita því ekki .... ég átti fullt af barbí dóti og mér fannst það líka ógeðslega skemmtilegt.. og ég á í geymslunni fullt af því enn þá .....

ég samt flakkaði vel á milli stelpnanna og strákanna... svo lengi sem stelpurnar voru ekki of stelpulegar..

vinkona mín .. hún var þessi prinsessa þið vitið ... alltaf í stelpuleikjunum ... hún lék með She-ra.... og var í kossaleikjunum ...
ég veit ekki alveg hvernig þessar stelpu stelpur eru ... en you catch my drift, right...

það er bara svo fyndið hvað þetta segir margt um mann í dag... munurinn á mér og vinkonu minni er alveg augljós... hún er svona meiri dama en ég, kvenleg og glæsileg með eindæmum.....

mér finnst ég vera soldið eins og sportíspice.... bara sætari ... og aðeins kvenlegri ;)
mér fannst þetta svo augljóst um daginn.. sé eftir því ða hafa ekki skrifað þettta þá ... þá var ég með þetta allt útpælt..

En já .. þetta var fyrsti hluti færslunnar...

næsti hlutinn verður skemmtilegri...

En staðan í dag er sú að sambönd kvk og kk hafa þróast í alveg nýja átt... að því að mér finnst.... mér finnst að konurnar/stelpurnar séu orðnar ákveðnari.. og strákarnir orðnir vægari.. minna ágegnir.. en það á auðvitað ekki um alla... en marga.... En eftir smá umhugsun um samræður sem ég átti við vini míni um daginn þá kom þetta upp....

Kvenfólk í dag eru margar hverjar orðnar mjög sjálfstæðar, ákveðnar og markmiðssettar... þær vita hvað þær vilja og fara oft eftir... þetta leiðir af sér auðvitað að margir karlmenn eru orðnir minna ákveðnir... ganga kannski minna eftir hlutunum sem þeir vilja .... og þá er ég ekki að meina á vinnumarkaðnum.... þar hafa þeir flestir há markmið og vilja ná langt...
mér finnst samt vera mjög mikil samræmi í því að karlmenn með markmið eru ákveðnari í ástarmálunum en karlmenn með minni markmið og eða ligeglad hugsunina.
Ég vil samt ekki categorizera fólk .. ég get alveg tengt þessa með háu markmiðin á vinnumarkaðnum með minni ákveðni á öðrum sviðum ... og öfugt.. það er aldrei hægt að staðhæfa þetta algjörlega.
eins með konurnar... sumar td myndu aldrei reyna við gaur að fyrra bragði... meðan aðrar taka alveg strákinn á þetta... þið vitið ... hafa gaman í smá stund og missa svo áhuga... well hey .. it's obvious it wasn't meant to be ;)

en svona í smá ps. frá síðustu færslu...
fólk er svo misjafnt.. það tekur stundum sumum manneskjum aðeins lengri tíma til að fatta hvað er rétt og hvað er ekki rétt fyrir það. Fólk er samt svo missjafnt .. þó svo að margir haldist enn innan ákveðins forms.
Það eru svo margir sem halda framhjá og hvers vegna gera þeir það?
Það eru líka margir sem eru kannski í sambandi en eiga svo í öðruvísi sambandi.. kannski ekki líkamlegu en andlegu við aðra persónu. hvernig skilgreinir maður það ... það er ekki líkamlegt framhjáhald en er það er andlegt framhjáhald?


jæja..
Clara ... the tomboy

miðvikudagur, október 11, 2006

Pælingar..... svolitið dypri pælingar

Sambönd... þá erum við að tala um dágóðan tíma.. þið eruð búin að kynnast.. vitið alveg hvernig hinn aðilinn virkar... á sá tími ekki að vera unaðslegur..... kannski fellur maður inn í rútínu .. kannski tekst manni að halda því fersku og spennandi .... en samt.. á maður ekki að vera hamingjusamur.... sjá sig eldast saman og unga út börnum og hvíta girðingin og hundinn .. þið vitið allan pakkann....

Það hefði ég haldið .. alla vega langar mig soldið í það ... ég er nú einu sinni stelpa... ég gæti auðvitað farið bara í nunnuklaustur eða hreinlega brynjað mig frá ástinni eins og hún Lóló í laugum gerir (skv. DV síðustu helgi) En where is the fun in that?!?! Life is supposed to be fun, fullt af skemmtilegum mómentum, andartökum og ævintýrum.... td. langar mig geðveikt að horfa á sólarupprásina af toppnum á Esjunni.... er e-r til? ég skal koma með smá heitan lögg... annars þurfum við bara að halda okkur saman til að halda hlýjunni ;) hihi...

Það er samt eitt sem er að valda mér miklu hugarangri og sem ég skil bara hreinlega ekki og það er af hverju fólk vill vera saman þegar það er óhamingjusamt... halda þau að þau séu í alvöru hamingjusöm?

mitt álit á samböndum er að sambönd eiga að bæta mann upp.. ss. gera báða aðila hamingjusama... að báðir aðilar blómstri og hafa gaman af að vera saman. ... að það sé ekkert sem að hindrar fólkið í að vera eins og það vill....
Það á að vera gaman saman, spennandi ... og maður á að vera frjáls en hamingjusamur saman... byggja sig upp saman að betri manneskjum... ekki brjóta mann niður eða gleyma sjálfum sér....

Af hverju haldast aðilar í sambandi þegar það er ekki hamingjusamt? .... eru það þægindi? uppgjöf? reynsluleysi? vani?

mér hefur skilst að fólk í óhamingjusömum samböndum haldist saman út af vana og þægindi.... út af foreldrum eða börnum.... halda áfram að vera saman óhamingjusöm ... út af öllum öðrum ástæðum en sjálfan sig.....

kynlíf?.. það er alveg hægt að stunda gott kynlíf með e-m öðrum en nákvæmlega þessum aðila... kannski meira að segja betra...
væntumþykja.... ég þori að veðja að það er e-r annar þarna úti sem gæti gert þig hamingjusamari en þú ert akkúrat núna... !

mér finnst voða gaman að vita að e-r hugsi til mín þarna úti.... mér finnst enn skemmtilegra þegar aðiliinn segir það við mig....
en mér finnst líka gaman að vera með e-m sem þykir vænt um mig ... og vill gera mig hamingjusama..... mér finnst hinsvegar alveg óréttlátt að vera með aðilanum ef tilfinningar mínar eru ekki eins... þá vantar bara e-ð upp á..... e-ð meira ... þó svo kannski við höfum voða gaman saman... og allt það .... en ég gæti ekki gert hinum aðilanum það .. því miður.... !

En síðan las ég e-r staðar um framhjáhöld... kvenmenn tengjast tilfinningalegum böndum þeim sem þær sofa hjá .. það bara gerast.. það að stunda kynlíf með e-m er svo persónulegt fyrir þeim.. ( í flestum tilvikum) ... strákar hins vegar... þegar þeir þrufa þá þurfa þeir..og það er alveg sama hvert þeir kikja inn.. svo lengi sem þeir fá að tappa af.... lol...
Þannig stelpur... þótt að kallinn haldi framhjá þá er það ekki honum að kenna.. annað hvort ert þú ekki að sinna manninum nógu vel .... eða hann er kynlífs fíkil....

*ég tek það framm ég las þetta e-r staðar... I don't believe it!* .... strákar jafnt sem stelpur vita alveg hvað þau eru að gera... og ef maður vill ekki freistast .. þá heldur maður sér frá syndinni .... þannig er það bara.....

Clara

mánudagur, október 09, 2006

og meira..?

ég sé að ég hef hitt e-a taug þarna í síðust færslu .. frábært... alltaf gaman að skapa smá umræðu....

en ok . . höldum áfram....
í sumar hefur bókin "he's just not that into you" verið mjöööööög svo vinsæl.... og þó að ég hafi ekki lesið hana.. reikna ég alveg vel með því að hún sé mjög skemmtileg... að því sem ég hef heyrt eru margar fyndar sögur þarna...

en talandi um að fría karlpeninginn frá ALLRi Ábyrgð!!!.... ok .... hittir e-n strák þið hafið mjög gaman ..kannski 1-2 kvöldstundir og svo bara heyrist ekkert í honum meira.... já alveg rétt... he's just not that into you.....i ...... nei í staðin er allt gott og blessað með það ...það er það bara alls ekki ..... stelpum jafnt sem strákum fíla ekki að vera dissuð... sérstakelga ef það var í alvörunni gaman.... Show some respect og segðu það við okkur...!! í alvöru .. við munum ekki fara að gráta.. við munum ekki verða hysterískar.. það er í alvörunni hægt að eiga alvarlegar samræður við kvenþjóðina án þess að við spilum inn á samviskubitið hjá strákunum....... og stelpur.... það er bara mean að spila inn á samviskubitið .... if it isn't meant to be.. then it isn't meant to be......

Mér fyndist það bara mjög þroskað ef ég væri að hitta e-n sem segði við mig... " veistu ég held að þetta sé ekki alveg að ganga, þetta samband hefur ekki það sem ég er að leita að !" ok harsh og já mér myndi líklega finnast þetta leiðinlegt... en ég myndi frekar meta hreinskilnina... frekar vita nákvmælega hvar ég stend heldur en að félaginn myndi bara gufa upp..... takið þetta til sín sem eigið það skilið!

Ég veit td. að félagi minn myndi frekar detta niður dauður en að segja við stelpu að hann bara væri ekki hrifinn af henni .... frekar skiptir hann um msn, síma, heimilisfang og nafn en að vera hreinskilin um svona .. merkilegt ha?

Come on!!! af hverju ekki að segja við dömuna.. hey.. þú ert þrælskemmtileg en mér finnst bara e-ð vanta upp á ... ég held að þetta gangi ekki...!

Af reynslu þá fíla ég betur hreinskilnina.... Strákar og stelpur .. það eru fleiri fiskar í sjónum .... og af hverju ekki bara hafa gaman af þvíað kynnast nýju fólki, nýjum aðstæðum og nýrri fræði ;) if you catch my drift.... ;):P

Ég hugsa þannig að ef ein hurð lokast opnast önnur.... og alltaf hafa gaman ;) ... ... if it's not meant to be .... you could at least have some FUN!

XXX
C

föstudagur, október 06, 2006

svona sma fyrir ykkur....

nokkrir félagar hafa kommentað hjá mér og nefnt við mig að textinn sem ég skrifaði um samskipti kynjana hafi haft smá sannleiks korn í sér. Auðvitað á þetta allt við rök að styðjast, því þetta gerist á hverjum degi.

Þegar maður kynnist e-m spennandi eða rekst á e-n þá stekkur maður ekki bara til að býður manneskjunni út eins og maður sér oft í hollívúdd myndum. Neeeei .. sko alls ekki .. hér á íslandi gilda allt aðrar reglur .. en það er auvðitað alveg löngu vitað.... enda sérlega fræg djammmenning hér á landi.

En af hverju er ekki stefnumenning,ég reyndar veit að það er e-r smá í gangi... en það lítil að maður heyrir varla af því ... þetta er allavega ekkerrt sex and the city dæmi þar sem við vinkonurnar sitjum og ræðum deiti vikunnar saman yfir brunch ...
Af hverju ekki stökkva til að breyta þessu aðeins til ... ég er allavega að spá í að fara gera það aðeins... taka mig til og kannski bjóða sætum strák upp á kaffibolla eða te.. og kynnast kannski aðeins betur... ekki bara þetta stanslausa "kannski hittumst við næstu helgi, á djamminu .. !!" so nineties-jú-nóv!!

Strákar .. hættið að vera svona feimnir..... Það er alveg hægt að brjóta niður ytri skelina og bjóða e-m út.. hvort sem maður þekkir manneskjuna eða ekki ... og það sakar ekki rabba saman aðeinsbara yfir kaffibolla .. til að sjá hvort það sé e-ð spennandi sem leynist þarna undir.. maður þarf ekki alltaf að prufukeyra áður en lengra er farið ... stundum er fólk í alvöru skemmtilegt utan rúmfræðinnar... sjáðu bara mig .. ég er æði .. og ekki stunda ég rúmfræði ... !! (skírlifi all the way!!)

og hvað er málið með 3 daga regluna!!! OMG erum við ekki alveg komin með nóg af henni ... "má ekki hafa samband of snemma, might seem too eager" .. "má ekki hafa samband of sein, virðist of áhugalaus"... sem er auðvitað mjög rétt...
en það er líka allt í lagi að hringja kannski daginn eftir ef viðkomandi aðlil veit að hinn viðkomandi aðilinn er ekkert að gera.... Um að gera bara að hringja... sýnir karakter! sýnir meiri áhuga!...enda erum við ekki feimnir unglingar lengur.. komin með smá reynslu á ýmsum sviðum... áherslur eru bryetta... maður er orðinn þroskaðri ... ..... ... á sumum sviðum allavega ;)

Sms svo sem í lagi .. allt í lagi svona þegar maður er kannski að kynnast...
kannski er ég að verað pínu gömul... en e-a hluta vegna vil ég sjálf núna að e-r hringi í mig.. bara svona til að sýna meiri áhuga... Sms eru þó góð fyrir feimna.. en maður verður samt að byggja sig upp og kannski ef til vill hringja eitt símtal.. svona til að brjóta ísinn... gerir það alltaf auðveldara fyrir næsta símtal.. það fyrsta er alltaf erfiðast!!

æj .. ég veit ekkert hvað ég er baula hérna.... hugurinn er bara annar staðar þegar maður á að vera í prófum...

en ef ykkur líst vel á þetta.. kommentið endilega og ég skal kannski bæta við fleiri pælingar sem ég hef verið með...

en forvitnin hjá mér þessa dagana liggur í hverjir eru alltaf í heimsókn á síðunni minn .... :o

whoooo aaaaaare youuuuu.... sagt eins og margfættlan í lísu í undralandi... btw.. sá sem gerði myndina hefur verið þvílíkt steiktur!!! ég hló frá mér allt vit þegar ég á verkjó... hafði ekki séð fyndnari mynd lengi .... byrjaði svo að horfa á hana um daginn ... og omg!!! sýrutripp!!!

fimmtudagur, október 05, 2006

miðönn

jáabb.. þá er þessi önn hálfnuð ..og hvað þýðir það .. jú stöðupróf, miðannapróf eða hreinlega lærdómsmadness!!!
en það þýðir líka að próftaflan er birt...
að þessu sinni byrjar jólafríið mitt 7.desember.. jeij!!aftur á móti verður það alveg svakaleg törn.. sem þýðir það að ég hef sjövikur til að verða mér vel að í 4 fögum því þau lenda eiginlega öll í röð... og 2 erfiðustu prófin eru alveg í röð og ég fæ 1 dag til að undirbúa mig undir það fyrra.. oh boy ...

en það verður bara ógó fjör.. vúhúú !! ...
en já .. miðönn ... stöðupróf...
var í prófi í gær... var með kynningu í kvöld.. lokapróf á morgun og svo próf í viðskiptalögfræði á mánudaginn .. jeij ....
já þetta rokgengur allt saman ... life is fun....

ég er búin að skrifa 2 önnur blogg.... er með þau geymd... bæði um kk og kvk og sambönd.... mín skoðun.. svona eins og mín skoðum á Xfm 9,19 nema ekki um fótbolta... heldur um stráka og stelpur.. my opinion....

á maður að birta eða bara sleppa því .. good question .. hvað finnst ykkur?!?

Annars var KF NÖRD vs. FH í gær á Laugardalsvelli!!! og ég get ekki neitað því hvað ég er ótrúlega stolt af strákunum!!! öllum saman!! þið stóðuð ykkur eins og hetjur!!! þetta var alveg fáránlega flott! Sat auðvitað í VIP stúkunni .. í áhorfenda stúkunnu ... meðal tæplega 8.000 manns.... ertu ekki að grínast!!! það verður fátt sem mun geta toppað þetta hjá strákunum .. það er allavega á hreinu!!!!!

jæja... mín ætlar að halda áfram að læra... er að spá í að bjarga vinkonu minni á morgun... hún er smá rauðvínsinfestation á morgun .. þannig að það stefnir í smá útrýmingu á rauðvíni hjá henni ... langt síðan maður hefur verið í þeirri iðju ... þeas. stúta rauðvini .. lol!!

oh well... 10 krossa lokapróf á morgun ... hvernig mun það enda....

Lot's of love..... eins og þeir segja í bretlandi ...... mig langar að fara þangað ....

kv.
Clara

laugardagur, september 30, 2006

Almodovar og fleira

ég kom heim í gær tiltölulega snemma og byrjaði að horfa á bad education eftir pedro almodar. ég verð bara að taka það fram að maðurinn er snillingur þegar kemur að bíómyndum, þetta eru ekki einu sinni bíómyndir þetta er svo mikil list sem hann gerir. ekki nóg með að hann gerir fallegar myndir, þá eru sögurnar sem hann er að segja svo átakanlegar, raunverulegar og minnistæðar. ég hef séð flestar myndir hans og ég hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum. ég átti alla vega ekki til eitt orð í morgun þegar ég kláraði að horfa á myndina. hún er falleg, en samt ljót, hún er átakanleg en samt finnur maður mikið til með persónunum. maður lifir sig svo inn í þær það er alveg ótrúlegt.....

kannski er það bara ég sem er svona næm eða e-ð ;)

annað sem hefur verið að angra mig síðustu daga er af hverju er alltaf þessi munur á kynum. af hverju geta stelpur verið svona vondar og af hverju geta strákar verið svona miklar skræfur?

ég hef líka verið að spá í því af hverju akta strákar ekki það sem þeir hugsa, svona eins og stelpur. er það vegna þess að þeir hafa svona mikla stjórn á sjálfum sér og stelpur hafa hana ekki?
eins og stelpur eru líklegri til að hringja eða hafa samband þegar þær hugsa um e-n, ég veit að ég geri það oft. af hverju gera strákar það ekki? ef þeir hugsa um e-n og langar að hafa samband af hverju gera þeir það ekki?

hmm... maybe he's just not that into you... kannski er það meiri sjálfstjórn.... kannski er það lítið sjálfsöryggi og ótti við neitun....

þess vegna er ég svo ánægð með hann gulla minn... hann er alltaf til staðar þegar mig vantar hann, hann lætur mig alltaf vita hvað hann vill og hvernig hann hefur það . og hann er alltaf ánægður að sjá mig. og ef hann fær ekki athygli mína strax þá gerir hann margt til að fá hana... það er gott að geta treyst á gulla minn að vera alltaf til staðar. þó svo að hann hrekki mig stundum og gefur mér vægt hjartáfall... þá er ég nú búin að læra á brögðin hans.... gulli þú ert yndislegur... (ég veit að hann les þetta ekki en mig langar samt að varpa þetta á veraldarvefinn) ... af hverju geta ekki allir verið eins og gulli.... ? ... reyndar er það soldið silly því þá væri lífið ekki mjög spennandi .... maður myndi víst ekki muna eftir miklu ...
en kannski gerir það hlutina bara auðveldari....
en hver vill hafa hlutina auðvelda.... verður maður ekki að hafa fyrir því sem maður vill? ef það er þess virði það er að segja.

gulli er allaveg þess virði .. hann fær mig til að hlæja... svo dansar hann fyrir mig... það fer lítið fyrir honum og ekki kostar hann mikið í uppihaldi..... kannski allir karlmenn ættu að læra af honum gulla..hann er nú anni glúrinn.... þótt að hann sé fiskur... ;)

kv.
Clara

ps. að læra undir próf

miðvikudagur, september 27, 2006

blogg siður

ég er búin að vera reyna aðsetja inn svona colage af myndum af mér frá árinu 2004.... þar fór ég í gegnum allskonar breytingar... skemmtilegar ;) hihi

já samkvæmt henni Fjólu var ég hreinlega bara barn um vorið og varð svo ég eftir sumarið .. ekki slæmt þetta.. ;) .. heheh

en allavega.. fyrst að það virkaði ekki að setja það hérna inn þá varð ég víst að skella því á myndasíðuna....
skoðið allavega 2004 .... það var annsi skemmtilegt ár ;)

kv.
clara

Ps.
Nothing

laugardagur, september 16, 2006

increased interest

það hefur vakið hjá mér áhuga af hverju síðan mín fékk allt í einu aukna umferð. það hækkaði úr 8-9 notenduum upp í 16 notendur á síðast liðnum 3 dögum.
Fólk er víst svona spennt að heyra hvað er að gerast ;)

Svona short version, það gekk allt vel, ég bókstaflega minni manneskja en ég var!
Ég kann ekki vel við vekrjalyf, make my brain mush, og e-r töflur sem ég fékk made me giddy og ég flissaði þangað til þær hættu aðivrka... en er ég ekki hvort eð er alltaf flissandi ;)

Ég er svo ánægð að eiga svona góðar vinkonur, ég veit ekki vhar ég hefði verið hefði ég ekki haft ykkur.
En þetta er spennandi... ég er ekki alveg búin að venjast þessu.... en það hlýtur að koma..svona eins og með áhrif verkjalyfjanna ;)

jæja... þið vitið hvar ég er þið viljið finna mig...
ætla að fara gera e-ð annað en að hanga inni núna....

laterz...
Clara- brainmush

mánudagur, september 04, 2006

nyr dagur nytt blogg

Skólinn er ss. byrjaður..
ég hef minni tíma fyrir vini mína.. sérstaklega síðastliðnar 2 vikur en ég lofa að bæta þeim það upp reglulega á komandi mánuðum. Fjóla yndið mitt er flutt í næsta hús .. og við erum búnar að hafa það svoo gaman, í gær í góðviðrinu sátum við úti og sötruðum kaffi á tröppunum hennar ... í náttfötunum.. það var ÆÐI!

Svo erum við búnar að vera mega duglegar að grilla og vera neighborly... *fliss* bara gaman..
Fór í vísó í KB banka og var algjör skiptnemahækja eins og það heitir víst í Hr... enda eru skiptinemarnir alveg þrælskemmtilegir í ár ... þá sérstakelga buddyinn minn :D
Hann heitir Marc og er frá Þýskalandi.. ég er svoleiðis búin aðv era þeytast með hann um bæinn.. draga hann með mér í alvöru íslendinga partý og hver veit hvað .. lol
Hann átti svo stórafmæli um helgina.. og við héldum þessa fínu surprise veislu fyrir honum.. og hann fattaði ekkert :D:D ég er svona góð í að halda pókerfeisinu .. lol.. ég nebbla dróg hann á rúntinn, í ísbíltúr og gönguferð í nauthólsvíkinni .. og svo í grill með mér of Fjólu.. voða fyndið allt saman :)

Mig langar í bústaðarferð.. ég legg til að áður en of langt líður að við drífum okkur krakkar... bara svona yfir eina nótt og höfum gaman af.. grillum og förum í pottinn og spilum.. ég er ekkert búin að fara í ALLT sumar!!

Ég og Gulli höfum það annars fínt.. hann er allur að hressast úr þunglyndinu.. held að Fjóla og ÁI (Ásta Indía dóttir hennar) séu að hafa svona góð áhrif á hann.... *fliss*

Það eru svo ótrúlega mörg efni búin að koma upp síðastliðna daga sem mig hefur langað að blogga um... en núna stend ég bara á gati og man ekki eftir neinu.. hversu týpískt er nú það! ha... ?

Litla frænka mín, Andy, fór heim fyrir rúmri viku ... baby girl I miss you the most my little angel... baby sister you are the greatest!! and you know it! mwaa!..!! ...

ég komst inn í broskalla leikinn á msn.. fann nýtt forritt svo égget leikið með líka.. :D:D jeij.. en það er ekki eins samt sem áður... now why make it easy for the competition, huh?....lol

ég er búin að segja lol mjög mikið undanfarið ... og mun örugglega fara koma því inn í daglegan talsmáta einnig... svona eins og FANTABULOUS!!! nota gott fólk.. en ég á þetta orð...bara svo við erum örugg! ... lol

Fékk allt í einu fararhug í hjarta og huga.... langar allt í einu að stinga af í smá stund.. bara e-t ... á nýjan stað... langar að fara vit ævintýranna.... ekki hanga í skólanum allan tímann... en það má víst ekki gleyma að skólinn er alveg að fara verða búinn...

Fékk samt að heyra það að ég er algjörlega rótlaus... enda hef ég verið á svo miklu flakki alla mín tíð...engin furða... uff ... held að ég hafi verið of lengi á þessu landi núna... vantar að fara í smá frí ... bara í smá flugvéla ferð..
fór bara um jólin til múttu í Cali, svo til London í vor með skólanum svo til Köben að laga íbúðina...
Cali var eina svona fríið af öllu þessu ... í London var allt skipulagt dag frá degi, vísó og ferðir og allar skvísurnar að sjoppa, í Köben fékk ég varla að sjá sólina... og var á fullu að vinna frá snemma að morgni til seint að kvöldi .. í verkamannavinnu og að túristast með stelpunum...

núna væri ég til að fara bara eitthvert fyrir mig... og bara gera það sem mig langar til að gera... hvernig væri nú það... sounds wonderful!... ég myndi líklega byrja á því að sofa... og svo týnast á vit ævintýranna.. hvert sem vindurinn blæs mig....

já það er víst kominn smá fararhugur í mér.. eflaust vegna þess að ég veit að ég er ekki að fara neitt á næstunni ... allavega ekki á þessari önn nema e-r bjóði mér út.. lol.... aha.. sé það gerast...

jæja.. það stefnir allt í allsherjar blogg hjá mér núna... í staðinn fyrir öll þessi míní blogg sem hafa veirð undanfarið... eitt klapp fyrir mig.... KLAPP...

Nína Kr. er farin til Köben í amk. 1 ár... það er nú meiri vandræðin sem maður er búinn að koma sér í .. hvert á ég núna að fara í klippingu... hmm.... ;) Nína er nebbla laaaaangbest... !


Já það má víst ekki gleyma brósa.... úff... maðurinn er KF Nörd... oh boy.. ekki það að hann var pínu nörd fyrir en
kom on .... ég er samt fengnust að hann fór í klippingu .. sjáiði manninn.. þetta er hræðilegt útlit á honum!!
En fylgist með drengnum.. og drengjunum ... þeir eru allir svo mikil yndi þessi strákar... :)

Ég er ástfangin af tvennu þessa dagana.... annar er Ray Lamontagne... hann söng rólega útgáfuna af Crazy ... en allt með hann er bara fantabulous... ! ég kemst bara ekki yfir það !!!

og ég er ástfangin af chasing cars með Snow patrol... hér er textinn

We'll do it all
Everything
On our own

We don't need
Anything
Or anyone

If I lay here
If I just lay here
Would you lie with me and just forget the world?

I don't quite know
How to say
How I feel

Those three words
Are said too much
They're not enough

If I lay here
If I just lay here
Would you lie with me and just forget the world?

Forget what we're told
Before we get too old
Show me a garden that's bursting into life

Let's waste time
Chasing cars
Around our heads

I need your grace
To remind me
To find my own

If I lay here
If I just lay here
Would you lie with me and just forget the world?

Forget what we're told
Before we get too old
Show me a garden that's bursting into life

All that I am
All that I ever was
Is here in your perfect eyes, they're all I can see

I don't know where
Confused about how as well
Just know that these things will never change for us at all

If I lay here
If I just lay here
Would you lie with me and just forget the world?

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Update..

Háskólinn byrjaður
Vala Húnbo eignaðist fallegan dreng.. TIL HAMINGJU!
Menningarnótt kom og fór...
Afmæli Halldóru var AWESOME að vanda!
Enda vorum við svoooo endalaust glæsilegar!!!

Annars er lítið að frétta.... ég er líklega að fara skella mér norður um helgina í skírn.. fæ far með yndislegri skvísu.. þarf hins vegar að redda fari tilbaka aftur.. now this will be more interesting...
svo var verið að bjóða mér í partý á Sunnudegi .. af öllu dögum .. já sunnudagur.. Amin er víst að kveðja land aftur .. og honum finnst laaaangbest að djamma á sunnudögum.. því hann er allatf að vinna um helgar..

Skiptinema Buddyinn minn er æði! ...

Það er kalt úti!

Ég ætla að vera mjöög dugleg að læra í vetur...

Ævintýrið heldur áframm með nafnlausa aðdáanda minn... frábært ;)

tíminn er búinn .. ég er farin heim ...

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Litlu stundirnar..

Siðastliðna daga hef ég verið með Andy, frænku minni, og við höfum verið að gera margt sem ég hafði hreinlega gleymt að gera...
við td. fórum í göngutúr rétt um miðnætti niður að fjörunni dáðumst að rökkrinu sem var að falla yfir okkur, fórum á eldgamlan róluvöll og róluðum heillengi og lögðumst svo í grasið til að njóta stjarnanna... mmm....
svo fórum við upp á klambratún og horfðum og þetta gífurlega tungl rísa upp yfir trén og húsin .... það er alveg ótrúlegt hvað umhverfi okkar er fallegt... og þegar félagsskapurinn er svona góður gerist það varla betra!! I love you sweety!!

í gærkvöld .. klifum við fjall, drukkum rauðvín og borðuðum morgunmat... ehm ... mjög snemma... eða mjög seint ;) fer eftir því hvrnig maður lítur á það ;) and not in that order... life is wonderful!!

Þótt að smá mótvindur komi lætur maður hann ekki fella sig.... þá gerir maður bara eins og bangsímon .. hurumph og stígur upp aftur og heldur áfram. ..

njótið litlu augnablikana.... þau eru þau dýrmætustu sem maður fær

Clara Víf

þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Verslunarmannahelgin 2006

oh my oh my ...

Eigum við að ræða næstum bestu verslunarmannahelgi sem ég hef átt?!?
við erum að tala bestu stelpurnar, mesta fjörið, náttfatapartý, kokteils, stelpudjamm, sveitaball í höfuðborginni....
Endalaust daður ;) og brekkusöngur...

það gerist ekki betra en það!

Maður veit ekki hvort maður á að segja frá því en við stelpurnar lágum og kúrðum til kl. 18 á sunnudeginum og það var svoooo notalegt!

Svo ball um kvöldið með allt gamla fólkið .... awesome bebe!

spjall.. eftirparty... meira spjall.... kúr með litlu frænku.....
hazar á bíl... og meiri hazar....

það er svo gott og gaman að vera til!

ég er ekki frá því að maður geri þetta oftar!

annars er fullt að segja frá og ef ykkur langar að vita meira you know where to find me... bebe.....

skál fyrir mér.. því ég er frábær ;)

Clara

miðvikudagur, júlí 26, 2006

Fiðrildi að ná fótfestu?

eins og sumir vita hef ég verið mjög mikill "flakkari" í gegnum tíðina, flutt mikið milli foreldra minni í sitt hvoru landinu einnig flutt mikið milli húsnæða hérna.. sérstaklega eftir að ég flutti heim aftur 2002.

Eftir að ég byrjaði í Hr, hef ég reyndar náð meiri fótfestu í lífinu, margar breytingar hafa átt sér stað og allar til hins betra að því er mér finnst :)

Eitt af því sem að mér finnst best, fyrir utan allt þetta frábæra fólk sem ég er búin að kynnast, er íbúðin sem ég fékk hjá BN. Þar er ég núna búin að vera síðan um mið júní 2005 sem þýðir að ég er búin að búa á sama staðnum í meira en 1 ár!! eitthvað sem hefur ekki gerst síðan ég var 13-14 ára...

Og satt að segja.... líkar mér það mjög vel. Ég kann mjög vel við það að hafa allt dótið mitt uppi og í kringum mig. Ég kann vel við það að vita að ég þurfi ekki að fara leita mér að nýju húsnæði og fara flytja bráðlega aftur. Þótt ég viti að ég þurfi að flytja þegar ég lýk námi þá veit ég líka að það er ekki strax... T.G.!

Svo er líka spurningin hvort ég fari erlendis í áframhaldandi nám eða verði áfram hérna, þá þarf ég ekki að flytja burt úr litla kotinu mínu strax :) En það kemur bara allt í ljós á næsta ári...

Ég hlakka mikið til því eftir mánuð því þá flytur hún Fjóla yndið mitt inn í húsið við hliðin á, og þá fjölgar nú aldeilis frábærum nágrönnum.
þá fæ ég e-n til að njóta með mér góðu kvöldin úti á veröndinn minni ... með tebolla eða góðu rauðvíni... mmmmmm....

Með bestu farsældar kveðjur og með sumar í hjarta
Lifið heil og lengi vinir mínir!
Clara V.

To whom it might concern:(þú veist hver þú ert, ekki þú Jón Örn) Annars verð ég að segja að ég var ánægð að rekast á þig. Pleasant surprise, þegar litið er tilbaka og spjallið var gott.

laugardagur, júlí 22, 2006

Geðsjúklingar og skandale!

Föstudagskvöldið 21. Júlí um 1.30 var töskunni minni stolið inni á REX í fm-partýi eftir Pirates of the Carabien. Í töskunni minni voru lyklarnir mínir, kort og síminn ásamt smádót eins og glossar.

Ég stóð við hliðin á töskunni þegar hún var tekin þannig að þetta er mjög einkennilegt. Það sem er verra er þó að viðkomandi aðili sem tók töskuna ákvað að senda karlkyninu í símanum mínum frekar ósmekkleg og dónaleg sms.
Því miður hef ég ekki náð á flesta aðilana þar sem ég er enn símalaus og verð það þangað til í kvöld og auðvitað er ég ekki með numerin hjá neinum.
Þannig að ég á líklega von á ljótum skilaboðum á eftir.

Ég vona að þið þekkið mig betur en að senda svona sms og hvað þá um miðja nótt þótt það sé helgi. Ef manneskjan hringdi í ykkur vona ég að e-r hafi komist að því hver þetta er.

Mér þykir fyrir þessu en ég vona enn og aftur að þið þekkið mig betur en þetta.

annars sendið mér endilega símanr. ykkar því mig vantar öll nr aftur.

Eigið góða helgi og verið góð við hvort annað, það er óþarfi að vera leiðinlegur við aðra.
What goes around comes around.

Clara

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Insomnia..

Goood morning everyone...

Clara the insomniac er mætt aftur á sviðið... ég hef lítið sofið síðastliðnar nætur.. ástæður gætu verið eftirfarandi

a. ískápurinn er bilaður og in need of defrosting, vonandi að það sé nóg.
b. það er enn of bjart úti.
c. nágranninn með hælana sem er alltaf á vappi inni hjá sér
d. frænka mín lést á föstdaginn og ég er ekki enn alveg búin að ná tökin á því að höndla dauðann.
e. feng Sui er í rugli heima hjá mér því ég hef ekki nennt að taka til.
f. ég er ooof spennt að fá frænkur mínar heim á laugardaginn :D:D
g. mér hreinlega leiðist að sofa, og hvað þá sofa ein, maður getur sofið þegar maður verður gamall.
h. leit mín að svörum við spurningum lífsins halda mér vakandi.

ég gæti ef til vill fundið e-r fleiri ástæður.. en þar sem ég er í vinnunni núna nenni ég ekki að spá of mikið í hlutunum.
ég er búin að vera þessi morgunhressa manneskja.. vöknuð kl. 6 og mætt í vinnuna svona gífurlega snemma.... enda ekkert annað í boði þegar maður tekur almennings samgöngur upp í hafnarfjörð ... en það er mjög fínt.. ég næ morgunsólinni og sef ekki morgunin frá mér.... sem er alveg yndislegt!

Tók mig til í gær eftir heimsókn frá ömmu og tók sko til heima hjá mér... tók meira að segja til allstaðar í íbúðinni, í skápum og skúffum, nema inní geymslu því ég er með fullt af fötum sem ég ætla að gefa í rauða krossinn...
tók meira að segja til í bókhaldinu mínu, ég er nebbla þessi manneskja sem hendir alltaf reikningsyfirlitum og öllum "offical"pósti beint ofan í skúffu þannig að í gær ákvað ég nóg komið og tók bæði bókhaldið mitt og mömmu í gegn... ánægð með mig :D

Það er kominn tími á breytingar, sérstaklega þar sem ég er búin að vera í ræktinni núna í 9 mánuði og ok ég er að byggja umm svaka vöðvamassa en samt léttist ég ekki ... þannig nú er það bara harkan sex... núna er það bara strict diet og ekkert auka rugl. Reyndar veit ég að ég mun fá að heyra nokkur ókvæðisorð frá sumum félögum með sumar ákvarðanir en ef maður vill sjá árangur þá verður maður líka að vinna fyrir því .. með blóð, svita og tár.

Svo langar mig að nota tækifærið og óska Völu Húnbó til hamingju með 15 merkur strákinn sem hún eignaðist sunnudaginn 16. júli!
Innilega til hamingju skvísan mín! ég vonast til að sjá þig sem fyrst :D

Svo legg ég til að fólk commenti með hugmyndir um hvað maður á að gera um verslunarmanna helgina... stemmningin er svona frekar róleg en ég er alveg opin fyrir öllu :D

Commenta fólk!!!

Claran kveður.. ætla að eyða deginum í sundi... þannig allir eru velkomnir.. ég verð á bakkanum e-r staðar... nema ég endi á að sitja fyrir utan hjá mér að njóta dagsins!!

Gleðilega Sól, gott fólk!

þriðjudagur, júní 20, 2006

fyndið atvik og klúður ástarlífsins

Við Fjóla skelltum okkur út á föstudaginn í leit að stað sem heitir Luðvíksen....
þessi staður átti víst að rækta alla þessa fallegu karlmenn sem við sáum allastaðar þarna úti....

Því miður fundum við hann ekki ... og þar sem svo langt var liðið á kvöldið þá duttum við inn á annan stað (btw. Halldóra.. you would have loved this one) röltum inn, fengum okkur drykk... dönsuðum aðeins og fórum svo upp... ný komnar upp síðust tröppuna gengur gaur upp að okkur og býður okkur að setjast með sér og vinum sínum .. .við þáðum.. enda ekki mikið um önnur sæti að ræða....
Þeir voru allir saman í hljómsveit DSB Danske Sumo Brödre.... fínir strákar... einn hafði búið á Íslandi og well.. that was all....

Þeir hétu Thomas, Thomas og Tommy... heheheheh...

Svo þegar kvöldinu var að ljúka... þá stöndum við aðeins fyrir utan (þeas. Fjóla og ég) og gaur kemur upp að mér og spyr mig um lag með Frank Sinatra... Ok.. hér kemur smá upprifjun: ég er ss. búin að vera með þessar rosalegu staðhæfingar ef að e-r gaur syngur fyrir e-ð með Frankie boy, Dean Martin, Sammy Davies eða e-a af þessum gaurum... og þá er ég að tala um ekki "My Way" eða "NY, NY" þá mætti hann eiga mig....
gaurinn gengur upp að mér... byrjar að syngja... og hvað geri ég?... same as i do every time a guy walks up to me.... I send him away!..... Hvað er að mér?!?!?!

Var guð að bænheyra mig með drauma mína? gaurinn btw. hávaxinn, myndarlegur og augljóslega smekkmaður! var þetta mitt eina tækifæri?

það kemur bara í ljós...

Btw. Hann hét Thomas..

kv. Clara
bloggóða

2 vikur í sól... 2 dagar í rigningu

það er búið að vera alveg rosalega gaman úti .... ég er búin að vera í iðnaðarmannahlutverkinu, rafvirki, smiðurn, málari og eiginlega bara alt-muligmand..
svo auðvitað túristi þess á milli ..

Og það er nú aldeilis búið að vera fjörið ..... það er búið að vera tjútt, verslað, sólað sig, unnið og haft ótrúlega gaman :D
Svo er auðvitað svo margt skemmtilegt búið að gerast... ég skipti út vinkonum á vikufresti .. e-ð sem gerist ekki oft.. en svaka fyndið ...
Svo má ekki gleyma því að hitinn var bara hækkandi og fór upp í 30° í síðustu viku .. sem þýddi auðvitað 33° inní miðborg..... steikjandi hiti.. enda fórum við Halldóra skvísa líka í sólbað útí garði ... sem var ÆÐI!!

Fór á tónleika með Sugarbabes.. þessi ljóshærða er definetly heitust... rourrr... ;)
það var drukkið bjór eins og dönskum iðnaðarmönnum sæmir.... :p

það var farið í Kanoferð, það var grillað, það var gengið heim í sólarupprás.... words could not describe the beauty... .

Það var kynnst fólki og nýju fólki, sumir hözzluðu.. aðrir ekki...
það var fengið fullt af æðislegu fólki í heimsókn... það var farið í heimsókn..

það var með einu orði ... gaman ..

17. Júní var tekin heldur rólegar... við höfðum tjúttað til 5 kvöldið áður (fórum seint út því Fjóla lenti svo seint) og því miður sofið aðeins lengur en við ætluðum.. en við tókum vel á því í stofunni og afrakstruinn er æðislegur....

svo var bara pantað sushi og sest útí garð að njóta dagsins.. og það var yndislegt!!

fyrir utan kannski þjónustu Icelandair... ég held að það hafi bara einu sinni ekki verið seinkun á flugi.. og það þegar fyrsta holl of vinkonum fóru heim.... flugið út var seinkað um 2,5 tíma.. Halldóru flug var seinkað um 4 tíma..
og fellt niður á heimleiðinni... þannig að hún flaug heim 6 tímum seinna :S:S ekki kúl..
svo þegar við Fjóla áttum flug heim .. var seinkun upp á 3 tíma.... sem reyndar var tekið fagnandi .. því við náðum að vera lengur í sólinni ... en bölvað daginn eftir í vinnunni .. því maður var exhausted.... enda ekki komin upp í rum fyrr en 3-3.30... geisp.. og komin á fætur fyrir 7 daginn eftir.... geisp..

En maður er kominn heim... rúmið mitt, fólkið mitt, loftið mitt..... mmmm.. nice..
nú er bara að fara koma sér að hitta liðið...

Nágranninn var að bjóða mér með í að hjóla Laugaveginn um helgina og ég væri svoooo til í það ef ég væri ekki með önnur plön.... það hefði verið snilld að hjóla alla nóttina og lenda svo í þórsmörk... leggja sig aðeins og svo alvöru útileigu stemmningu.. veivievie... geri það bara síðar ;)

annars er það Esjan á morgun vonandi ... og ég er að spá í að plana smá sumó ferð bráðum... ég held að það sé kominn tími til.. hvað finnst ykkur?

kv.
Clara.... @Marel í sumar.... geðveikt kúl ;)

laugardagur, júní 17, 2006

Clara enn i Köben .. hihih

Já .. ég átti víst að fljúga heim í gærkvöldi..... en talk about change of plans!!1

sko.. ég átti að vera samferða Halldóru babylicious heim.... en mér var boðið að vera áfram fram að sunnudag...
þvílík snilld hugsaði ég með mér.. nokkrir dagar áfram í sólinni og tjillinu og fara svo heim að vinna...
en hvða skyldi nú Fjóla segja... við vorum með fullskipaða helgi.. allt planlagt.. enda var skvísan ekkert smá hissa á minni....
Fjóla bara... snillingur eins og henni einni er lagið .. skellti sér bara í heimsókn...

þannig the dynamic duo is conquering a new world.. muahahhahahah

búinn að vera magnaður dagur.. og kvöldið verður enn betra..

meiri, betri og ítarlegri sögur munu koma eftir helgi.. þegar ég lendi aftur á brrrrr-landi...

kv.
Clara-licious... og Fjóla-licous.. í Köben .... ligga ligga lái.. og hí á þig...muahahhahah

miðvikudagur, júní 07, 2006

Köben.. sunny, warm and wonderful

það er sko búið að vera fjör síðan við mættum hingað stelpurnar....
ok ... til að byrja á byrjuninni lögðum við af stað á flugvöllin um eftirmiðdaginn á laugardaginn...
mætum upp eftir í þessa rosalegu röð.... komumst að því að það er seinkun á flugvélinni um 1,5 tíma... og þurftum að bíða í tjekkinninu í klst með 4 grátandi þreytt lítil börn öll yngri en 3 ára..
ég vorkenndi foreldrunum ekkert smá mikið ...
en fínt... áttum rosalega gott flug, Íris Ósk svaf alla leiðina okkur Önnu til mikillar mæðu þar sem við fengum sama sem ekkert svæði fyrir okkur.. en fínt...

við lentum ... skiptum um föt og gerðum það íslenska sem er aðeins hægt að gera ... duttum í það í eldhúsinu áður en við skelltum okkur á Park til að hitta Katy babylicous!!....
Þvílíkt snilldar staður... stóraropnar svalir og læti... bara stemmning!
við stelpurnar vorum vel hressar.. sumar duglegri í daðrinu en aðrir, aðrar að dansa af sér bossan og ein edrú.... mauhaha ...
ýttum vinkonu okkar á 1 gaur og sendum þau á dansgólfið ..... og viti menn .. . hún kemur hlaupandi tilbaka .... "hann er íslendingur""... !!!! hahhahahhahahhahahha

Nú þessi félagi er búinn að ættleiða okkur algjörlega... sína mér aðrar hliðar af köben sem ég hafði gleymt og aðrar sem ég hafði sldrei kynnst og hefur fengið vinkonur mínar til að falla algjörlega fyrir land og þjóð!!
í gær fórum við í kanóferð í Lyngby .... grilluðum og fórum svo til baka aftur.... létum okkur fljóta á bátnum á meðan sólin fór niður.. hversu magnað er það!!!!

í kvöld er smá vinna fyrir Clöru og svo pizza, rauðvín og líklega tjútt... Eva Rós vinkona mín var að koma og hún elska rautt, Fjóla... you would LOVE her ! :)

svo er bara Halldóra babylotion að mæta á staðinn á morgun, svo er út að borða og major ferð í Tivolí aað sjá Sugarbabes á fredag .... ætlum mörg saman .. þannig að það verðua alveg brjálað gaman!!!
svo er nýji félaginn búinn að bjóða okkur Halldóru í Grille að bjrál partý á söndag.....
btw drengz býr í fáránlega flottir íbúð á frábærum stað!!! SNiiillllD!

Svo er planið Belle & Sebastian .. veivievie.. gerist ekki betra!!!
en það eru bara 9 dagar eftir.... og ég ætla að nýta þá til fullnustu....... !!!

Love you all ....

Clara

miðvikudagur, maí 10, 2006

Mai update

Sumarönnin er hafin og fyrsti áfanginn er hálfnaður....
tíminn bara flýgur áfram... við vinahóparnir erum búin að vera plana sumarið og stefnir á útileigur og sumarbústaðaferðir eins oft og mögulegt... mikið rosalega hlakka ég til!!!!!

Svo er ég að fara til Köben í 2 vikur í júní ... það verður nú gaman, er að fara hjálpa til við að laga íbúðina okkar.
2 elstu vinkonur mínar ætla að vera samferða mér út.... og svo kemur my boobiesystir og hún verður samferða mér heim... ég er bara svo heppin að eiga góða að!!!

Svo hittir maður auðvitað fullt af snillingum þarna úti..... eins og Katý áður en hún fer heim og sov Evu Rós sem er þá að koma frá Argentínu !!!
svo nær maður auðvitað að vera komin heim fyrir 17. Júní... þannig á maður að halda partý þá?!? ... endilega látið mig vita hvað ykkur finnst....

annars er ekkert að frétta af mér... ræktin gengur vel.... skólinn gengur vel.... lífið gengur vel... hvað þarf maður meira.. ;)

oh boy hvað ég nenni ekki að blogga... þannig later ppl
Clara Out

föstudagur, apríl 21, 2006

Status Report

Gleðilega páska og Gleðilegt sumar...

Prófin eru búin, kláraði þau 11. apríl .. svo nice að geta farið beint í páskafrí og þrufa ekkert að læra eða hugsa... enda fór ég upp í bústað til ömmu og Sigga á Laugarvatni og var þar í góðu yfirlæti frá miðvikudegi fram á laugardag.... svoooo nice.... bara góður matur, gott að drekka, heiti pottur og stafgöngutúrar... mjöög nice..

svo héldum við Fjóla skvísa smá matarboð á páskadag fyrir aðra munaðarleysingja .. aka. Fjólu og bróður hennar, Begoniu spænskukennara og mig... maturinn var alveg sjúklega góður!!! fengum þvílík hrós fyrir matinn og allt... enda engir vitleysingar þar á ferð, ha Fjóla... við erum bara snillingar í eldhúsinu!!! nú er það bara að mastera Alioliíð .. og þá munum við sigra heiminn ;)

Við Fjóla vorum heldur betur duglegar á djamminu á sunnudaginn .. enda endaði matarboðið í svakapartýi með bara snillingum!!! ég þakka bara fyrir mig!!! þið eruð ÆÐI!!!
Svo var dansað af sér rassinn laaaaangt fram eftir nóttu... bara snilli...

annars er lítið að frétta af mér... nú er skólinn 8-4 búinn.. en það er 1 verkefni sem þarf að klárast fyrir 8 maí .. og nú er bar að spýta í lófana og fá 9,5 í þeim áfanga ;)

Reyndar er maður ekki kominn með sumarvinnuna ennþá ... en samkvæmt öllum merkjum ætti það að fara gerast bráðlega... það verður svo gaman að fara gera e-ð skemmtilegt...

Annars gengur keppnin vel... ég er alveg búin að virkja alla vini mína til að fara með mér í ræktina.. og ef e-r hringir þá er ég ALLTAF til ;)... enda þýðir ekkert annað en að sigra...er það ekki annars Helgi .. heheh

jæja.. one more relaxing weekend... svo er það bara full throttle on!!

Annars er ég búin að finna tónlistarhátíð sumarsins.. sem ég bara VERÐ að fara á!!! miklu betra line up en hróaskelda.... ERTU EKKI AÐ GRÍNAST!?!?!?! allar mínar uppáhalds og meira til!!!! þið verðið bara að commenta til að komast að því hvaða hátíð þetta er.....

ps. eins og þið sjáið er búið að breyta uppsetnignu síðunnar og það þarf að klikka inn á færsluna á nafninu efst..oftast rauð til að skoða comment og commenta :)

svo vil ég fá fleiri comment... það er fullt af fólki að kikja hérna inn... látið vita af ykkur...

later babycakes
Clara

sunnudagur, apríl 02, 2006

ég hef ekkert betra að gera í próflestrinum...

Ég hef...
(x) reykt sígarettu
(x) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n-
(x) lent í slagsmálum - þjóðhátið í eyjum 2005!?! eru allir ekki vinir þá?
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum -
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
(x) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
(x) horft á einhvern deyja
(x) farið til Canada (telst millilending með?)
(x) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
(x) borðað sushi
(x) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
(x) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n – já lífið er einn stór misskilningur
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu-
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
( ) skrifað bréf til jólasveinsins
(x) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk - ekki enn!
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig - nei og er ekki kominn tími til?!?


Fjögur störf sem ég hef starfað yfir ævina:
1. Afgreiðslustörf
2. Stuðningsfulltrúi
3. Símadama/símasala
4. Aðstoðarmanneskja á hárgreiðslustofu

Fjórar myndir sem ég get horft á aftur og aftur:
1. Grosse Point Blank
2. Singin in the Rain
3. Who framed Roger Rabbitt?
4.

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
1. Reykjavík, Ísland
2. Karlstad, Svíþjóð
3. Köben, Danmörk
4. Petaluma, California

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla að hrofa á (ekki í sérstakri röð):
1. C.S.I Las Vegas, hitt er rusl
2. Prison Break
3. Spooks
4. svo man ég eiginlega ekkert fleira spennandi

Fjórir staðir sem ég hef farið í frí:
1. Spánar
2. Mexico
3. London
4. New York, San Diego, Los Angeles, San Fransisco

Fjórar heimasíður sem ég heimsæki daglega
1. Mbl.is
2. ru.is
3. póstinn minn.. alla 4
4. bloggrúnturinn

Fjórar uppáhalds matartegundir:
1. Sushi
2. Thailenskur
3. Burritos
4. Grænmetis

Fjórir geisladiskar sem ég get ekki verið án:
1. allt með Frank Sinatra, Dean Martin, Sammy Davis Jr. og félögum
2. The Strokes
3. Interpol
4. Anthony and the Johnsons

Fjórir staðir sem ég myndi frekar vilja vera á:
1. New York
2. London
3. Barcelona
4. Japan
5. e-r staðar í sólinni!

ég klukka engan .. af því að þetta er gamalt og ég hef EKKERT betra að gera...

Lots of Love!
Miss Clara í próflestri

mánudagur, mars 27, 2006

London prof og ekkert fleira

London var æði! ég þarf ekkert að fara neitt meira út í það ....
Félagarnir voru bara snilld og ég kynntist nýjum hliðum á þeim sem ég þekkti minna!
Ég segi bara takk fyrir mig elskurnar þið voruð snilld!

Svo gisti ég hjá vini mínum þarna úti .. sem ég hef btw ekki séð í 2 ár!!.... Geðviekt gaman að hitta hann aftur....
Svo hitti ég hann Hólmar félaga þarna úti .. .hann var á leið á fótboltaleik með Kidda félaga sínum ... því líkt fyndið að rekast á þá.. þó að ég hefi fairð hálfa London á enda til að hitta þá félga.a.. hahha ..

En ég verslaði örugglega minnst af öllum þarna úti ..... sama og ekkert.. en það er sko í lagi... endurnýjaði fataskápinn um jólin .. þannig stelpan er enn í góðum málum!

Annars eru prófn að byrja í næstu viku og allt verður búið eftir 2 vikur ... fyrir páska.. spáið í næslegheitum!!...
Ég er í littu stuði til að blogga... en ég skelli inn myndum um leið og ég fæ mína tölvu aftur í hendur.... Fred Darling I miss you!!

Annars vil ég þakka fyrir snilldar helgi!!..

Langt síðan ég hef verið að djamma heim hjá mér til 6 um morgun með snilldar manneskjum og svo var tekinn leti dagur með sund og kósýheit í gær.. Thanx girl! þetta var bara hrein snilld!!

jæja.. stelpan er að reyna ná smá forskoti á prófin .. ætlar að vera dugleg að læra í kvöld og næstu daga..
svo er ég líka að byrja í e-i fitness keppni við hann Helga félaga minn... úff... en verðlaunin eru að góðu nótunum.. ætla mér definetly að sigra í þeirr keppni ... og svo er ég búin að samþykkja að mæta í sund 5 morgna í viku úff... ætli ég haldi st við þetta.... ;)

well.. fjármálin bíða mín spennt...
Clara... árinu eldri and lovin it!!

þriðjudagur, mars 14, 2006

14. mars 2006 kl. 12.03

Update:

Árshátíð HR - MÖGNUÐ
Árshátíð 365 - Mögnuð!
Kaffiboð fyrir fjölskylduna! _ TJÉKK ... full íbúð af fallegasta fólkinu ...... Takk fyrir mig!! ég elska ykkur!
Klára verkefni - næstum tjékk
Eiga afmæli - ætla að eiga afmælisviku takk fyrir!
Pakka föt fyrir London - næstum tjekk ... á eftir að finna almennilega tösku ;)
Fara til London!! - Vei á morgun!!!

já .. well that's all folks!
Ætla að vera allt of busy í dag og allt of spennt til að muna neitt ...
þannig að minnið mig endilega á að gleyma engu takk fyrir!

Lot's of love...
Clara Víf Prinsessa næstu vikuna ;)

fimmtudagur, mars 09, 2006

miðvikudagur 8. mars 2006

Eftir nákvæmlega viku verð ég ásamt fríðu föruneyti úr skólanum í London og spenningurinn er alveg magnaður!! En hamingjian hefst ekki þar.. nei í kvöld var klárað stórt verkefni í Markó 2 og á morgun verður gert vonandi meirihlutinn í öður skilaverkefni sem á skila í næstu viku þannig að maður létti aðeins á helgina... því núna um helgina er alveg brjálað plan!!
föstudagur árshátið HR .. svo verðu líklega tjill fyrripart laugardags svo beint í aðra árshátið hjá 365!! ég er alveg messt spennt fyrir hana.. og svo á sunnudeginum verður haldið upp á ammælið mitt með smá kaffiboð fyrir fjölskylduna... það veðrur voða gaman að fá hana alla heim til mín .... og þröngt mega sátti r sitja..... tæp 30 manns munu mæta og þar af um 10 börn... og ég er ekki þar með talin!! :O

Svo á ég stórafmæli á þriðjudaginn ... og ég er sko ekki að fara leynt með það !! ég held að næstum allir viti það núna!!! Er ég þá svona ánægð að vera orðin 20 ára eða hvað skyldi það vera? .. hehehe .....

nei nei .. núna er ég víst á hátindi líf míns... líkamlega séð... eftir þennan tímapunkt fer allt niður á við ... .. skulum samt vona að brjóstin haldist áfram í upright position ;)

svona all jokes aside.. þá er þetta bara spennandi kafli sem er að hefjast.. og mamma .. það er allt í lagi þó að ég eigi ekki kærasta..! Ég mun lifa af... í alvöru!!

Já .. árshátíðir, ammæli, London verkefna vinna.. hvað var það meira.. já .. það eru bara 3 vikru eftir af skólanum ... svo eru bra lokapróf og 1 stórt verkefni og ég er búin í skólanum... vá hvað þetta líður hratt!!!
og hvað á ég að gera af mér í sumar.. vonandi kemru það í ljós bráðlega....

annars gæti vel verið að ég fari bara til útlanda aftur .. eða bara verði heima .. svona einu sinni.... hvernig væri það?!?!

jæja.. bedtime.. ætla í ræktina í fyrramálið ...
Lots of love (eins og maður segir víst í London ;)

GN Clara
farin í partý til Óla (Lokbrá)

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Fritimi hvað?!

Núna er komið að miðannamadness....
1 miðannapróf á föstudaginn, 2 í næstu viku ásamt helling af hópavinnu... þannig að það verður ekki mikið um frítíma á næstunnu.. hrædd um að ég verði að afþakka boði í afmæli og fermingaveislur vilji ég standa mig vel ... snöft.. sorrymúsin mín :S en Tandri kemur með e-a flotta ammógjöf í staðinn :D

sit einmitt upp í skóla.. enda bara hádegi.. en ég verð hérí allan dag og langt fram eftir kvöldi.... verð hér alla vikuna...
ætla samt að taka mér smá frí á föstudaginn .. en ég læt ráðast þegar nær dregur...

Tilhamingju Silvía Nótt að vera komin áfram.... geðveikt outfittið sem hún var í.. ertu að grínast!!! ég er sko alveg að stefna að svona body á næstunni ;)

Svo er london vonandi að fara detta inn .. ég er svo ótrúlega spennt að fara þangað!! 5 dagar með snilldar fólki að skoða snilldar fyrirtæki og hafa snilldarlega gaman!!!

ég er í engu stuði til að skrifa.. þannig darlings.. later
Jessica Clara Rabbitt

mánudagur, febrúar 06, 2006

Goð helgi og London og kannski Japan

Já það var sko alveg heljarinnar helgi...... 365 partý á föstudaginn svo apple opnun á laugardaginn... AFSLÖPPUN á sunnudaginn og núna er það bara skóli, skóli, skóli!

Yndið hún Eva Dögg bauð mér í partý til sín á föstudaginn .. og það var bara ekki lítið gaman þar.... !! enda endalaust gaman að fá að tala dönskuna aftur.. þótt það hafi verið við e-a jótlendinga ;)
Svo fór allt liðið niður á Ara... þar sem grjónagrauturinn fór vel í liðið.. enda bara prýðisdrykkur..... engi bjórar voru helltir niður það kvöldið til allra hamingju .. miðað við síðustu helgi .. þar sem ófáir bjórar fengu að kyssa gólfið!

en snilldar lið og svaka stemming... skellti mér á dansgólfið á Hressó þar sem ég twistaði ófáa hringi... ætlaði síðan að fara heim í Devitos en rakst á nokkra hvíta hrafna... endalaust langt síðan maður hafði séð þá .. go hvað þa´spjallað við þá.. magnað kúl!

Laugardagur.. hópvinna.. og ég mun ekki neita því .. ég fékk að finna fyrir því að drekka mikið og lengi kvöldið áður.... en til allra hamingju eða ólukku var mér boðið í apple dæmið .. meira frítt booze.. kannski ekki alveg þörifn á því .. en gaman var það...
BTW Tandri .. mig langar í.... .!!! og ég sendi þér listann á meilið þitt :) :D :p

endaði í singstar með staffinu úr eplabúðinni .. snilldar lið!! og þvílik stemmning!! algjörir snillingar!!
en ég hins vegar ákvað að fara snemma heim ... eða um 2... þar sem já ... lítill svefn og of margir drykkir hafði einkennt síðasta sólarhringinn!!

Núna er stefnan í Fjármálum II að fara til London í Mars og éeg er alveg mest spennt!!.. Londonferðin er eina ástæðan fyrir því að ég er að taka þennan kúrs núna... Ætlaði mér hvort eð er að fara þangað í vor en þetta slær bara 2 flugur í einu höggi :) og það langbesta er að þetta er í kringum ammælið mitt.. svo það verður að vera ógó gaman !! reyndar fer það ekki á milli mála.. enda frábær hópur sem stendur að þessu!!! og sem mætir audda!!

Svo er málið með ammælið mitt.... núna er það stórafmæli ... ég er víst að skríða inn á þrítugsaldurinn (hann hefst við 25ára aldur) þannig úff úff.. verið góð við mig þann 14. mars.... ég er að verða gömul... ég fer brátt að fylgja eftir ykkur með göngugrind öskrandi "helvítis ungviði" ... sjáiði mig ekki fyrir ykkur.. hahahhaha

Annars var ég að spjalla við Japanfarann.. og freistaði mín annsi mikið..... mig langar að fara til Japans!!!! hann Helgi kallinn verður víst e-ð út sumarið í japan og treystir sér til að taka á móti öðru rauðhærðu dýri ..
En væri það dream come true að fara þangað !!! þeir japanir sem ég hef kynnst eru bara yndislegustu yndislegustu og þeir sem þekkja mig .. vita að ég er smá fan fyrir SUSHI!!! og prjónanna.. enda eru prjónarnir geðveikt flottir í hárið.. verst að ég er ekki með svo mikið hár til að rúlla upp í snúð lengur.. en það veðrur vonandi komið aftur í sumar...

Það sem éger reyndar búin að finna út að það er ekki svo dýrt að fljúga til Japan.... kostar svona milli 60 og 90 þús .. depending hvaðan og hvenærmaður flýgur..

væri ég til í að fara.. man oh man!!
ég segi þá bara eitt.. allir styrkir eru vel þegnir.. þú mátt senda mig til japans í rúmlega viku í sumar... leggið bara inn á reikning 0323-26-JAPAN... .

jæja.. held að það sé best að ég byrji á þessu verkefni .. því fyrr þá verk hafið er!! eins og máltakið segir..
Clara kveður
Over and out

fimmtudagur, janúar 26, 2006

international page

Welcome Holland!
How great is that.... mu friends from all over the world are tjekking up on me ;)
Let´s see if I can keep it up .. hihi

Maybe i should start blogging on spanish for you guys . ... how many would understand?

Nothing new from me right now... it´s thursday which means the longest schoolday of the week but on the other hand I get tomorrow off.. vei vie vei:P
So tonight I am thinking of joining the boys for a little night out which mainly consist of drinking beer, singing and laughing.... I just love doing all of those :P

My friend and my new friend from the north are coming to visit this weekend so I am very excited to see them :):)
Oh boy oh boy what will we do..

I´ve managed to loose the only keys to my apartmant and the funny thing is that they disapeared over night... I´m a little afraid that I might have forgotten either my keys in the door or locked the door.. either way it is very uncomfortable not knowing what happend to my keys...i even felt like i was in a Freddie Kruger movie last night.. cause I felt someone in my apartment but i could wake up to check it out... very uncomfortable.... shivers...
Thank god for good service from the student unioin.. they are fixing it right now... while I am still at school.. how good i feel about some guy changing the locks on my apartment when i´m not even home... very very strange... :/

Okok... what else.... yes... i guess from today i am a neutral CEO for a company my dad decided to put up today ... it will mainly do webpages and homepages for firms and persons.. so if you are intrested please contact me.. and i will see what i can do ..hihih....

well off to listen to my teacher... human resourcers is very interestning ( not meant cynicaly)

Lots of love guys
Clara

Ps. Please share you hugs..... everyone needs a hug now and then.... hugging makes the world a better place...! so share you hugs!!

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Vei vei vei

Uppáhaldsþátturinn er byrjaður aftur.... breski njósna þátturinn Spooks!! hann er alveg ótrúlega spennandi þáttur... fyrir utan það að ég eeeeelska að hlusta á þennan hreim... breskur, skoskur og írskur hreimur er alveg to die for ;)

vonandi fæ ég einhver tækifæri í framtíðinni til að eyða tíma þar... það er auðvitað draumur að fá að kynnast landi og þjóð muun betur!! Er einmitt svona með það í planinu að skreppa þangað í vor... en ef ekki þangað þá til Köben og fara á tónleika með elskunni henni Katy og hitta nokkrar yndislegar manneskjur sem ég hef ekki séð í langan tíma!! Svo flaug glæný staðsetning upp í hugann á mér... ég var að fatta það að ég er ekki búin að fara til Kanarí í rúm 4 ár... mér fannst nú bara kominn tími til að laga það ... ef tækifæri gefst ... skrepp ég kannski í mat til ömmu sætu! :)

Annars er stelpan búin að vera einum of dugleg á djamminu eftir heimkomun.... er að spá í að slaka á eftir næstu helgi .. heheh ... enda eru rétt rúmir 2 mánaðir eftir af skólanum ... spáið í því ... svo eftir það er það bara 1 stórt verkefni, vörn og svo spennó spennó sumar..
ég er að spá í að hafa það bara gaman í sumar... ég ætla að leika mér í allt sumar.. kannski maður skreppi aftur til Usa að heilsa upp á múttuna og fjölskylduna... það væri auðvitað alveg magnað!!!

Það er líka svaka spenna í gangi ... Menningarferð norður um næstu helgi!! VeiVeiVei... ég fæ að gista hjá Völu sem ég hef ekki séð síðan hún flutti norður og fullt af nýju fólki þar sem HÍ, HA, HR og Bifröst verða með e-ð þing og ball.. ég er nú bara voða spennt ég ætla sko ekki að neita því :D

Annars var ég búin að skirfa alveg heilt annað blogg um svefnleysi sem ég er byrjuð að þjást af núna.... mamma heldur að það sé of mikil orka sem er að halda fyrir mér vöku .... ég þarf augljóslega að drífa mig í ræktina aftur... er víst ekkert búin að fara síðan fyrir helgi.... ég er hins vegar búin að vera afkastasöm á nóttinni .. lesa nokkra kafla og þrífa íbúðina mína.. spjalla á msn... það alveg stórmerkilegt hvað maður getur gert mikið á nóttunni þegar maður hefur allan þenna tíma :Þ

Já annars er nú ekkert mikið að ske... er komin með mín skammtíma og langtímamarkmið á hreint.. veit alveg hvar ég sé mig eftir 1 mánuð, 2 mánuði, 3 mánuði, 6 mán, og 12 mán... gaman að planleggja sig svona.. :D þá veit maður sko alveg hvar maður vill vera... hihihi

jæja elskurnar... ég hef alveg nokkra tíma í viðbót svo ég er að spá í að klára lesa fyrir tímana sem eftir eru í vikunni ...
later gators
Clara V.

föstudagur, janúar 13, 2006

undur og stormerki

já hvað haldiði 2 blogg á einni viku .... ég ætlaði sko ekki að blogga fyrr en í næstu viku ..
EEEnnn þar sem það er föstudagur.. og ég hef svo sem ekkert plan fyrr en eftir klst. þá ákvað ég að henda inn einni færslu!

fyrir utan að það er föstudagurinn 13.. úúú.. þá er SNJÓR úti.. sem gerir kvöldið erfitt..
ég er víst að fara staulast e-ð niðrí bæ.. og planið mitt í gær voru flottir hælar og pils... og núna stendur það eiginelga ekki svo mikið til boða.. nema audda ég vilji blautar og kaldar tær... brr.... býðst e-r til að hlýja þær upp?

stjörnuspáin fyrir mig daginn í dag á mjög vel við þessa byrjun á árinu:
FISKAR 19. febrúar - 20. mars
Gefðu kost á þér á framabrautinni,
sama hversu illa þér hefur gengið til þessa.
Nú er röðin komin að fisknum.
Spennandi daður kemur við sögu og
breytir áætlunum fisksins fyrir kvöldið hugsanlega.

Ég hlakka til ... þetta verður ævi spennandi kvöld... SATC kveðjupartý ... þema bleik! .. þannig að ég þarf að finna út úr því á eftir. Kannski maður veðri pólitískur um stund og kíki í þannig partý .... annars vonast ég til að hitta bara skemmtilegar og frábærar manneskjur í dag.. :) sem ég auðvitað efast ekki um að þið séuð!

hins vegar vil ég fá meiri komment á bloggið.... og kannski eina og eina kveðju í Gestabók.. það er að segja ef mér tekst að setja hana inn á eftir...! heheheh

ciao bellas....
eigið frábært töfranlegt og spennandi kvöld!
ástarkveðjur
Clara :p

þriðjudagur, janúar 10, 2006

Lelegur bloggari!

það var víst nefnt við mig um daginn að ég væri lélegur bloggari ... því ég hef ekki bloggað meira en eina færslu á viku á rúmlega mánuði ...
en já .. ég er komin heim... tók bara 2 heilar nætur í flug frá San Diego, Ca til Reykjavik, Ice.... ég og Tandri stoppuðum í heilan dag í Ny á milli ... lentum kl. 6 um morguninn og áttum svo flug kl. 8 heim.... littli bró svaf næstum allan tímann nema á leið heim frá NY .... ég hins vegar ... var glaðvakandi aaaaallan tímann .. reyndar fékk ég alveg 3 tíma svefn í ny... þannig mín mætti fersk heim ;)

Hamingja hamingja að vera komin heim.... rúmið mitt.. íbúðin mín ... þvotturinn ... jeij :D hehhe
er svona búin að vera dúlla mér að koma mér fyrir eftur.... ég þurfti auðvitað að fara í próf síðasta föstudag... var vakandi alveg 32 tíma frá 7 á fimmtudeginum til 1-2 á föstudeginumm..... svefn var vel þeginn þegar að honum kom... missti næstum því aftur af partý hjá jóhönnu... . hún hélt kveðjupartý á hinuheimilinu mínu ... þar sem mættu fullt af skemmtilegu fólki ...
furðulegt kvöld.. en rakst á marga æðislega manneskjur sem ég hef ekki séð í laaangan tíma!

Við hinar vinkonurnar vorum sov helvíti flottar á laugardeginum .. ég var búin að plana að vera heima og var emira að segja búin að fá nokkrar myndir sem ég ætlaði að horfa á... neinie.. viðvera mín var umbeðin og ég gat auðvitað ekki látið mig vanta!
enda var laugardagskvöldið svooo oooo skemmtilegt!!! endaði með Devitos og fyndnasta fólk sem ég þekki :)

En skólinn er byrjaður .. og ég er svoo spennt!!... get reyndar ekki ákvðeið mig hvort ég eigi að taka 5-6 fög í skólanum ... erfitt erfitt val! .... Svo erum við Rakel búnar að vera heví góðar í ræktinni ... og ætlum að vera það áfram..

bara 4 vikur í afslööpun og allt er farið til fjandanss! neinie .. segi svona.. núna verður sko tekið á því ...
Það er ekkert smá þægilegt að hafa e-n í skólanum til að fara með svona.. ótrúlega nice alltaf...

jæja.. ég er að spá í að fara byrja á þessum námsbókum mínum !!

hafið það sem best elskurnar..
þar til í næstu viku ;)
Clara Víf

sunnudagur, janúar 01, 2006

Happy New YEAR 2006

Já Gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir það gamla!!!

Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt ár.... þó svo að ég hafi flutt öööhhhmm... bara 3svar sinnum...
en það er skko margt búið að gerast á þessu liðna ári ... ég byrjaði að læra á snjóbrettii.... LOKSINS!! og ekki á verri stað en í fjöllunum í austurríki... Skólinn er búinn að vera frábær....
ég fór til Spánar í mánuð... ég kynntist fullt af æðislegu fólki....!!
ég varð pólitísk.... e-ð sem ég átti alls ekki von á að myndi gerast :o
ég átti í fullt fang með að halda aftur af ævintýrunum!!! ... ég ferðaðist fullt... og er enn að ferðast ;).......
ég fékk nýja vinnu og ég fann nokkra gamla vini og kunningja aftur... !!! Takk öll sömul þið eruð yndisleg!!!

fyrir nýja árið er ég ekki með mörg áramótaheiti..... reyndar bara 2... heheh.... annað er að fara í splitt (sem btw ég er alveg alveg að ná ) og hitt er leyndó... ;) one has to keep a little mystery for oneself.... otherwise it isn´t any fun!

smá recap á liðinni viku....
við skruppum til LA. í 1 dag... það var rosalega gaman! svo fórum við til Tijuana, Mexico ... í nokkra klukkutíma... það var fyndið!!! það eru ca. 3 lyfsalar á hverju götuhorni.... það var sick!! og 10-30% afsláttur á öllum lyfjum!!! mega fyndið!!!! Need Viagra.... 30% off right here!!! hahahhaha
ég var virkilega farin að hugsa um að redda mér smá ;) hahahha!!
Við fórum í Seaworld þurr.... en komum aftur .. rennandi blaut!! það var ekki hægt að finna þurra flík né blett áokkur!!!! en það var gaman.. og rosalega eru háhyrningar stór dýr... og rosalega klár.. eins voru höfrungarnir líka mjög svo klárir!!
Svo var planið að skreppa til SF yfir áramótin.. en ég hreinlega tímdi því ekki .... 9 tímar í bíl upp eftir og 9 til baka.. bara til að ná sólarhring... no way José!...
ég var mjög ánægð að fá að vera hér... með góa fjölskyldu... kynnast frábæru fólki og svo skríða upp í rúm að lúlla... ekkert bíl kjaftæði!!!

en nú styttist í hemferðina.... ég og brósi þurfum að fara á morgun héðan og við munum líklega lenda snemma um morguninn 4. janúar.. skulum rétt vona það .. því ég á að fara í próf eftir hádegi :o!!

Þannig last minute óskir eru beðnar um að vera sendar í gemsann minn í síðasta lagi á morgun!
því eftir það verð ég símalaus þar til ég kem heim aftur!!!

takk fyri árið allir og megið þið eiga jafn frábært ár og ég mun eiga og betra ef þið verðið heppin :D:D:D