sunnudagur, desember 24, 2006

Jolin eru að koma..


Við systkynin erum heima hjá ömmu.. búin að fara með alla pakka og erum að hjálpa til við matinn.... Jeij það er kalkúnn :D:D

Tréð er ótrúlega fallegt og allir pakkarnir bíða spenntir undir því...

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla! njótið kvöldsins , fjölskyldur ykkar og vini...

Við Tandri ætlum að spila öll kvöld þessi jól.. það verður gaman!

Mig langar að benda á þetta lag, endilega náið ykkur í og njótið

O holy night með band frá New Orleans

og einnig þetta

DMB með Christmas Songtmas+Song

þriðjudagur, desember 12, 2006

Jolafri..

Ég er komin í jólafrí .. og í fyrsta skipti síðan ég var lítil lítil hef ég ekkert að gera... það er furðulegt...
það er alveg kominn 3 dagurinn í fríi... helgi ekki meðtalinn og ég er að deyja...
hvernig fara iðjuleysingjar að því að gera ekkert....
maður getur svo sem fundið sér e-ð til að stytta sér stundir... en það er skammgóður vermir...

Ég er td. ekki að fara til útlanda yfir jólin, ég er ekki að fá fólk í heimsókn yfir jólin, ég er ekki með neina sérstaka vinnu yfir jólin... *En ég er svo sniðug að finna mér e-ð að gera ... ég gæti til dæmis sett up stefnumótasíðu fyrir háskólafólk... (boring).. ég gæti örugglega fundið mér vinnu í e-u skítapleisi fyrir engin laun.... kannski ég gerist einkaspæjari yfir jólin og hjálpi fólki í samböndum að halda auga með makann... (mean).... any ideas?!.. ég gæti lagað bloggsíðuna mína og sett inn linka.. og kannski eytt smá tíma í að læra á hana... og læra undir sjúkraprófið mitt... það væri líka mjög sniðugt.
ég redda mér e-u að gera... það leynist allatf e-ð undir hverjum steini....

í kvöld er próflokadjamm hjá Hr... oh boy ... síðasta djamm hjá nokkrum kærum og góðum vinum sem síðan hverfa á sporbraut kringum jörðina í lengri eða styttri tíma... hvað á ég að gera á meðan... snöft...!

Ég er núna með gólftuskuna í heimsókn.... tuskan er actually soldið mikið krútt... fór með hana á kaffihús i dag.. og hún sofnaði bara á jakkanum mínum alveg rosalega þæg og góð......
Ég er enn með feita ævintýraþörf... kannski ég skelli mér í bústað um/eftir helgina... Iv'e got the time and öhh... the time... kannski ég geti platað e-a vini mína með mér....

ú .. kannski ég gæti fengið að hjálpa ömmu með að baka ... . það væri gaman ... úú .. kannski mömmukossa og sörur... ég vona að hún sé ekki búin að baka sörurnar...

mér leiðist... sést það nokkur? ;)

ætla að fara fá mér bjór... eins og félagi sagði: "bjór er góður! Bjór!"
bróðir minn er tuborgjólasveinn.... hann kallar sig systur mína á djamminu... hann er jólasveinn!

C.V.
Caotic Verification

fimmtudagur, desember 07, 2006

ég a næstum þvi lag ;)

bara vitlaus fyrsti stafur.... og thank cod að ég sé ekki svona mikill stalker ;)

Klara, Klara

Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Undarlegt það ýmsum þótti er þú komst í réttirnar,
að þú skyldi alltaf stöðugt elta mig á röndum þar.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Undir messu á mig jafnan ákaflega glápir þú.
Sumir telja að það eigi ekkert skylt við kristna trú.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Ef ég sting þig af á böllum, alltaf kanntu ráð við því,
þú í snatri þýtur til mín þegar kemur dömufrí.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !

Engin leið er mér að sofna, er ég heyri sönginn þinn
hljóma fagurt fram á nætur fyrir utan gluggann minn.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !

Listræn mjög og lagin ertu, leikur allt í höndum þér
þetta sýna sokkaplöggin, sem þú prónar handa mér.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Kökur þær sem frá þér fæ ég fjarskalega gómsætar
hjarta mínu alltaf ylja einkum heitu kleinurnar.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Brátt mun okkar brúðkaup standa brátt mun ég þér sofa hjá
Eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman þá.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !

Lag og texti: Erlent lag / Jónas Árnason

þriðjudagur, desember 05, 2006

Ævintyri

það þurfa allir á ævintýrum að halda, *something to put the spark into ones life*
hversdagsleikinn verður svo ekki grár.. frekar bara einsleitur... sömu venjurnar dag eftir dag, það vantar fjölbreytileikann..

ég var búin að segja við sjálfa mig að gera e-ð nýtt á hverjum degi, taka af skarið og taka áhættu ...
af hverju gerði ég það ekki... hvað varð af af neistanum sem glóði eins og eldkúla hér áður fyrr....

hún er ekki farin ... bara orðin að litlu ljósi sem bíður eftir að láta kynda undir sér...
ég er sko aldeilis farin að kynda eldinn hjá mér...
ég er aðeins búin að trassa í próflestrinum og leita eftir nýjum ævintýrum og á nýjum vígstöðum...
ég er að nálgast einu af takmörkum mínum... þarf aðeins að klára það sem ég er í núna til að geta farið á næsta level...
það er alveg að fara koma að því .... *I have a sword* sagði maður ... hann sá glitta í framtíðina sína... af hverju get ég ekki séð framtíðina mína.... ég þarf á smá meiri eldivið á eldinn.. uppörvun til að ná næsta takmarki...

Ég gæti audda alltaf farið í heimsókn til ömmu minnar á kanarí yfir jólin ... það myndi allavega hlaða batterín vel... en ég gæti líka gert það eftir áramót.... það er orðið of langt síðan ég fór e-t ... ég þarf að fara e-t ... ég þarf að komast í burtu... bara smá vegis.... aðeins að stokka upp í tilveruna... sjá nýja hlið á borginni, sjálfri mér....
ég þarf að ögra mig... Einhverjar tillögur? allar eru vel þegnar!!

C.V. - í ævintýraleit