laugardagur, desember 29, 2007

Gleðilegt nýtt ár!

Ég óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og vona að þið hafið notið þessarar stuttu stundar sem er senn að klárast!

Nýtt ár að ganga í garð með nýjum ævintýrum og áskorunum. Það sem árið ber í skauti sér fyrir mig er útskrift úr HR, finna mér skemmtilega og krefjandi vinnu, leita mér að nýju húsnæði um mitt ár, fara til Kína að heimsækja A.K., fara til Miami að hitta L.B. og þar fyrir utan að setja mér fleiri og skemmtilegri markmið!

Svona til að krydda aðeins tilveruna ákvað ég að slá til og fríska aðeins upp á útlitið mitt.... og hér er afraksturinn

Fannst kominn tími á að fylla aðeins í varirnar ;)

En svona fyrir alvöru


Gleðilegt nýtt ár allir

C.V.

laugardagur, nóvember 03, 2007

Afsakið...

Bloggleysið ... ég er upptekin!


Heyrumst eftir 14.des.
nema ég finni tíma aflögu...
getið hins vegar séð hvernig gengur á tónlistinni sem ég hlusta á ... mæli eindregið með LAST.FM

k&k...
Clara skólastelpa...

laugardagur, október 27, 2007

fimmtudagur, október 18, 2007

Airwaves Day 1

Alright just came back..

og what i saw tonight this is the following ....
B. Sig..... Started well but go boring and actually loud after a few songs.
Elíza .... looked like Anna Nichole with 3 old perverts behind her and she was cying for help (sorry, not that interesting)
Smooch, a great band, 3 sister between the age of 11 and 15 they really rocked it!!
Soundspell.... sorry en þett hvorki hélt athygli minni né salsins, haldið ykkur við Umtbs... lookar betur og soundar betur..
Barinn var og þéttur, loftlaus og uninteresting, neðrihæðin líka, komu góðar byrjanir en þær hurfu út um veður og vind þegar vantaði taktinn í fyrstu 3 versunum... á frábæru lagi!
Grand um 23 leytið var of þétt setið og of loud til að maður gat notið þess... ef það var e-ð að njóta...

jæja..
þar til á morgun ..
C.V.

Þið afsakið bilingual dæmið ... skrifaði bara eins og ég hugsaði .. ;)

mánudagur, október 01, 2007

Út og inn...

Stutt ferð til Hollands, nánar tiltekið Utrecht er nú hér með lokið tímabundið.
Hún tókst svona rosalega vel. Náði að fá einn með í Airwaves liðið mitt :P

Það var drukkið mikið te, myntute og mikið af bjór. Rosalega er bjórinn góður þarna úti!

Nineties partýið var awesome! Eftir marga marga bjóra í viðbót.
Ég vil enn frekar að við getum keypt léttvín út í matvöruverslununum og það fyrir minni pening. fáránlegt að borga 3-4x verð hérna miðað við úti.

Anyways.. stutt blogg....
Góður matur, heimatilbúinn, mjög góður bjór og vín ;)
tónlist ..mmmm.....
Amsterdam, hjól, markaðir og fílingur. ... held að það gerist ekki mikið betra en það ;)

Sjá nokkrar myndir:

Clara og Síki með bát...


Clara og Wouter... Takið eftir svölu málverkunum fyrir aftan..


Myndirnar í betra ljósi... töff ekki satt!


Anita Doth frá 2 Unlimited... það var alveg hrikalega gaman!
Vá hvað það er mikið af vondri tónlist á 10 áratugnum!


Sumir fengu áritaðan CD.. hahaha

miðvikudagur, september 26, 2007

90's Party a föstudaginn...

Allright.. ég fer og geri smá könnun um hvert ég er að fara, hvað ég á að sjá og gera. Svona smá rannsóknarvinna svo maður sé ekki alveg týndur og tröllum gefinn þegar maður kemur á áfangastað!


Allavega.. ég er að fara í 90'2 partý á föstudaginn.. ég var svolítið efins og fer að tjékka á þessu... nei haldiði ekki að Dj-inn sé ekki bara gellan úr 2 Unlimited!!




Töff, Töff in the Stöff!
CV. ... ninetiesgleði!

mánudagur, september 24, 2007

20 Svör...

20 Answers.

1. What cheese would you be (yeah, cheese)?
Geitaostur.... annars finnst mér þessi samlíking við osta ekki alveg hæfa, kemur ekki vel út fyrir konur. Frekar hefði ég stuðst við áfengi!

2. What is your favourite drink?
Let's be honest.. ég er eins rauðvínslegin og hægt getur orðið.

3. Cost of living this month?
Managable... miðað við 2 utanlandsferðir á mánuði :P

4. Favourite cusine?
Sushi, tapas, mexican, allt sem er svona sterkt.

5. Where will you be travelling to this year?
Utrecht, Holland.

5a. Why that place?
Recruitment ferð fyrir komandi Airwaves hátíðþ

6. Underwear Yes/No?
Staður og stund og við hvert tækifæri.

7. How many days without any alcohol the past two weeks?
Alls ekki, bara vatn, ég lofa.

8. The song you are embarrassed to admit you actually like?
Ég er búin að hugsa mikið, mikið um þetta og renna gegnum itunes-ið hjá mér. Búin að komast að því að ég fíla allt sem er það inni. En ég átti mikið af guilty-pleasures áður en því var öllu eytt. Skulum samt segja að "back for good" með Take that sé samt svona á gráu svæði.

9. You read? If Yes, what book are you reading? If No, learn how to.
OPTIONS, FUTURES, AND OTHER DERIVATIVES
Höfundur: HULL, JOHN C. skólabók er það eina sem fær að komast að þessa stundina.

10. One line you use to justify it all?
If at first you don't succeed, try try again.

11. Give us an example of that line and how you use it.
Er það ekki ástæðan fyrir öllum skotum?

12. You ever made friends with someone on MySpace/Facebook and then
met them in real life?
ég hef kynnst fólki betur gegnum myspace eða facebook sem ég hef kannski aðeins hitt einu sinni í persónu. Komið mér skemmtilega á óvart.

13. What’s your take on the recent floods in Africa and the response
of the international community?
Því miður er ég ekki vel að mér í þessum málum. Sá lítið af þessu í fréttum. En miðað við fyrri reynslu hefði mátt fjalla meira um þetta og aljþjóðlega samfélagið hefði mátt gera meira eða bara e-ð í þessu.They never do enough. All talk and no action.

14. What do you think of the city of NY refusing president Ahmadinejad
to lay a wreath at Ground Zero?
Hefði það gert illt verra? Var það hann sem setti saman hryðjuverkasveitina sem tók niður turnana? maður bara spyr sig!

15. What is your opinion of the situation in Burma/Myanmar?
Monk Power! Pray their asses away!

16. What is your opinion of this strange twist in this questionaire?
Góð tilbreyting á stöðluðum spruningakönnunartímum.

17. A Hugh Grant, a William Grant, or a Cary Grant?
Cary Grant, við höfum sama smekk. And he looks so Damn Fine!

18. You believe in astrology?
Let's face it, stjörnuspár halda mig á jörðnni.

19. The all-time worst movie you have ever seen?
Ég reyni ekki að eyða mínu fínu heilasellum í slæmar bíómyndir. Frekar nota ég þær í að geyma verðugar minningar eins og að ..... well... þú mátt fylla inn í hérna.

20. Can you have just one drink?
já já, drekk einn í einu.

Now, you go ahead and just fill it out for yourself, won´t you?

Fin setning...

Marc fann þessa línu í snjóbrettablaði .. ég bara varð að deila henni með ykkur...

"For someone who is curious about the Iceland experience, we can suggest this: to get the true sensation, grab your weather report and your coffee, and sit in the freezer while burning a hundred dollar bill..."

Vitnað í heimild af spjallforriti: Marc, Þýskalandi, 24. Sept. 2007

CV.

Ferðalög...


Jessör..
Þegar vinir manns eru farnir að fara í viðskiptaferðir hingað og þangað um heiminn þá er maður sko aldeilis farinn að átta sig á því að aldurinn er að færast yfirmann.. kannski ekki beint aldurinn meira einskonar þroski. Maður er ekki lengur ungur og áhyggjulaus, skuldlaus og ábyrgðarlaus, heldur er maður kominn með verðugt verkefni sem maður þarf að fylgja eftir og gera það vel. Eða well... fólkið i kringum mig.. ég fæ að leika mér aðeins lengur ;)

Fjólan er farin á ráðstefnu til Kansas, USA af öllum stöðum, Saló skvísan er með annan fótinn í London.
Ég hins vegar er að fara "vettvangsferð" til Utrecht í Hollandi... geegt spennt ;)

Hins vegar fæ ég að fara á skósýningu á sunnudeginum... það gerir mig hins vegar gífurlega spennta! Ég hef auðvitað farið á þær margar þegar ég var yngri en núna fæ ég að fara sem fullorðin.. kannski ekki í vinnuleiðangri en fæ að vera með .. geegt gaman ;)

Well, ég væri alveg til í að vinna við svoleiðis.. fara á skó sýningar.. plana skótískuna aðeins..
miðað við hvernig hún er hérna stundum þá veitti henni ekki af smá hjálp!

En já .. ég er orðin svona þvílíkt spennt að kanna þessar slóðir...


Hvað er það samt að vera með innflutninspartý og kveðjupartý og meistaravarnarpartý einu helgina sem ég er erlendis?!?!
Gott fólk .. það á að tjékka dagskránna hjá mér fyrst af öllu áður en farið er í það bjóða fólki.... sem betur fer var meistarapartýinu frestað! Sko í kokteilum verður ekki skálað án Clöru!

Hins vegar þið hin! þið missið bara af mér ....

sunnudagur, september 23, 2007

Það er ...

fátt betra en góður kaffibolli.Það er líka fátt verra en þegar maður fær vont kaffi. Þá meina ég brennt kaffi, það verður beiskt. Mjókin er röng og það bragðbætta finnst ekki. Það er svekkjandi!

Ég drekk ekki oft kaffi en þegar ég skelli mér á bolla þá vil ég hafa hann góðann.. snöft..
núna þarf ég að fara byrja kvarta yfir vondum bollum... á maður ekki líka að fá það sem maður borgar fyrir?

CV.

þriðjudagur, september 11, 2007

Sma pæling

Sú pæling kom upp í kollinn á mér eftir að hafa setið í gars tíma og lesið bloggið hennar dýrunnar um Bad Boys.

Eru dökkhærðir strákar vinsælari heldur en, say, ljóshærðir strákar, af því að þeir eru oftast aðalgaurarnir í toppbíómyndum?
Hún nefnir þarna Tony og Danny og ég fer svona að renna yfir listann í kollinum af sætum strákum í bíómyndum og hverjir eru svona aðalgaurarnir í Hollywood og í sportinu
og staðan sem kemur upp er þessi:

DÖKKHÆRÐIR:
Young John Travolta
Keanu Reeves
Jake Gyllenhaal
George Clooney
Chris Reeves (young)
Colin Farrell
Johnny Depp
Tobey Maguire
Josh Hartnett
Joaquin Phoenix
Clive Owen
Zach Braff
Robert DeNiro
Ben Affleck
Matt Damon
Mel Gibson
Ralph Fiennes
John Cusack

LJÓSHÆRÐIR:
Ryan Gosling
Brad Pitt
Ryan Reynolds
Heath Ledger
Daniel Craig
River Phoenix
Russell Crowe
Leonardo DiCaprio
David Beckham
Kevin Bacon

RAUÐHÆRÐIR:
Robert Redford
Conan O'Brien(talkshow)
Kenneth Brannagh

And the list goes on and on....... you get the point!


Það er engin furða að maður hálf eigi von á að og vilji finna sér einn bad boy sem er dökkhærður en algjört lamb í alvörunni .. þeir eru hins vegar vandfundir og oftar en ekki úlfur í sauðsgæru. (Gildir um alla háraliti og eftir smekk fólks) :p
Aðalleikarar í flest öllum bíómyndum eru oftast nær dökkhærðir sjarmörar! Oft koma þó ljóshærðir inn, þá sem óþægirstrákar líka. En rauðhærðu strákarnir eru oftar en ekki alltaf annað hvort hrekkjusvín eða nördar... sjá Napoleon Dynamite!

Mér finnst þetta vera svolítið óréttlátt!
Ekki bara gagnvart háralitnum því ekki tel ég svörtu, latin eða asíubúana með. Heldur gagnvart rauðhærðum ;)

En samsvarar þetta ekki bara hlutföllunum í heiminum.

eru ekki yfir 60-70% af mannfólkinu dökkhært?
Eru ekki um 20-30% ljóshært?
Og eru ekki 3-10% rauðhærð?

hmm..... hvað finnst ykkur?
Clara

sunnudagur, september 09, 2007

Stuð að eilifu...

Köben var æði!
Eyddi föstudeginum hjólandi um í rigningunni meðframm vötnin, allar hliðargöturnar við strikið, fékk alveg fílinginn að vera í Köben, sakna hennar pínu.

Systir mín kom og heilsaði upp á mig.... hún er ða verða algjör skvísa... öss....
Verslaði nú ekkert af viti þarna úti og tjúttaði alls ekkert.. merkilegt nokk!

Á föstudaginn fórum við út að borða til að halda upp á 85 ára afmæli afa Jóns.
Við buðum þau hjónin á Vox, Nordica og fengum þessa fínu þjónustu og rosalegan mat... mmm...

Ekki var það neitt verra heldur þegar spænska landsliðið flautaði á eftir mér.... heheh

Svo vildi svo heppilega til að ég þekkti nokkra sem voru á leið á ball á Nordica þetta sama kvöld. Þannig þegar gömlu hjónin voru farin heim enduðu við systkynin og móðir á smá tjútti með þeim....
það var nú meira stuðð! Elvis var alveg að gera það .. heheh

Fór svo í gær á Chris Cornell í höllinni .... mikið rosalega var hann góður!!! Það mátti varla tala við mig hann var svo góður.. og ekki bara hann heldur öll hljómsveitin... sólóarnir sem þeir tóku voru snilld.. !

Þeir mega eiga það að ég hef aldrei séð neina hljómsveit eða tónlistarmenn jafn duglega í að sinna aðdáendum sínum.. þeir hentu út fullt af dóti af sviðinu, Chris var á fullu að árta hausa og boli, tók myndavélarnar af áhorfendum í allra fremstu röð tók fullt af myndum og skilaði aftur.
Væri alveg ti í að á tónleika ferðalagi með þessum gaurum... heheh

Eftir brjálaðan tiltektardag ligg ég upp í rúmi að horfa á Mexikanska mynd með Gael García Bernal... hún virðist lofa góðu.

Næstu helgi er það svo Franz Ferdinand á Organ... schnellld!

Roger
Over and Out

Clara

fimmtudagur, ágúst 30, 2007

Lent i Köben..

Þá er ég komin, sit inni í eldhúsi, þessu fína eldhúsi btw.
Fjóla, stofan er rosalega flott.. it makes us proud!
Eldhúsið er líka til fyrirmyndar. Ég skal taka myndir og skell upp.

Sit núna með rauðvínsglas og hef það voða notalegt.

ætla láta danska fólkið vita að ég sé komin ...

til lördag söde.
Clara

núna eru 16 hits á síðuna, og ég veit aðeins hverjir 6 eru...
people make notice of yourself.

mánudagur, ágúst 27, 2007

fall er faraheill..

eftir þessa nýliðnu helgi er ég alveg blá og marin, með skurð á hnénu og með e-s konar áreynsluverk á hægri hné...
when it rains it pores... ! það er sko á hreinu!

ég er með massífan marbletta á vinstri fæti eftir að e-r steig á fótinn minn á föstudagskvöldið, ég er með massífan marblett sem er bara að stækka á hægri hliðinni eftir að e-m fannst ég þurfa komast nær barborðinu.

samt skemmtilegast frá að segja er að í gær skellti ég mér á hjólaskauta með dönsku hjúkkunni enda við tvær vanar frá köben ... been doin it for eons and eons.. skelltum okkur báðar í bauerskautana okkar og rúlluðum af stað...4 mín in to our trip hvað gerist annað en ég er að taka smá snúning og er að reyna fara renna mér beint út úr honum í halla... ! hvað gerist annað en að ég dett og ríf síðustu gallabuxurnurnar mínar... fæ skurð á hnéð :( og smá blóð...

öss.. maður lætur ekki svona aftra sér.. enda með einkahjúkku með í för.. við rennum áfram út að ægissíðu og tilbaka og förum svo upp á barnaspítala þar sem ég er dekruð af 2 sætum hjúkkum fæ plástur og ís og súkkulaði sósu.... mmm... gott að eiga góðar hjúkkur ;) og sætar þar að auki... verst að ég gat ekki komið lækninn inn í þetta.. !!

svo í morgun gerði ég góðverk mánaðarins.. fór og gaf blóð...
venjulega er ekkert mál en í dag þurfti næstum að skipta um sárabindi eftir á.. öss!!! ekki nógu kúl....

nógu gore-y upplýsingar fyrir ykkur? ;)

hætt í bili..

Clara á leið til Köben á fimmtudaginn ;) ..
Clara sem er með steraboostaðaferðflugu í sér ;P

fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Akureyri Kaupmannahöfn

Ég lýsti því yfir í gær við fjölskylduna mína að ævintýraþráin væri farin að gera allverulega vart við sig og að ég væri mikið að íhuga að láta verða af því að hverfa á vit ævintýranna á ókönnuðum slóðum, fyrir mig allavega vega.

Sat heillengi og ræddi þetta við múttuna og brósa... og tilkynnti að köben væri nú ekki ofarlega á listanum yfir óskastaði til að fara í ævintýraferð á. Þá kom brósi með góðan punkt, Hey Köben er eins og Akureyri... nema hvað það er meira ferðalag að fara til Akureyrar... þeir eru með franskar á öllu hjá sér!!

Það er reyndar satt hjá honum...
mér finnst meira spennandi að fara til Akureyrar en Köben... enda búin að vera annan fótinn þar for eons and eons and eons more!

Annars er nýtt í fréttum...
Ég keypti mér flugmiða til meginlandins í gær... er að fara á algjörlega ótroðnar slóðir fyrir mig... og þetta er gert í skiptum fyrir að fá góðan "partner in crime" yfir airwaves hátíðina!
vá hvað ég hlakka til að fara út... hef ekki farið í flugvél síðan 18. júní 2006.. sem jafngildir rúmum 14 mánuðum of no travel!!! þetta hefur aldrei, ALDREI komið fyrir mig áður!

eins gott að ég fljúgi nóg á komandi árum til að bæta mér þetta upp!

Hugleiðing dagsins:
Eru bakteríudrepandi efni í ískápum málið?

kv.
Clara...

about to tip toe through the tulips...

miðvikudagur, ágúst 22, 2007

Ækia

Fjölskyldan mín og ég erum miklir aðdáendur Ikea, mamma segir að það sé vegna þess að ég liggur við ólst upp í ikea í Svíþjóð og jú af því að bróðir minn litli er núa líka "made in Sweden"... aaaw.. litli sæti Svíinn minn. :-Þ
Fyrir utan það hef ég farið í all nokkrar ikea verslanir út um allan heim! Skylda segir mamma mín!

Ikea er, má ekki gleymast, góð uppspretta hugmynda fyrir innbúið og þar fyrir utan frábær leikstaður fyrir börnin og góður staður til að fara á deit á.... ;) þúst hversu oft fær maður tækifæri til að prófa rúm og dót og leika sér nema þegar maður er að prófa fullt af hlutum eins og í IKEA!

Mamma er samt búin að gera merkar uppgvötvarnir í Ikea nýlega, í fyrsta lagi er svo hentugt að kaupa kassa inn í skápana mína til að taka til í óreiðunni... núna líta skáparnir hjá mér út eins og í bækling hjá ikea.. smart ekki satt ;)
Ekki má gleyma veitingastaðnum... sem býður upp á sænskar kjötbollur með sultu og kartöflum, en ekki kartöflumús eins og í Svíþjóð. Og bara góðan mat á þessu fina fína verði.. frá aðeins 290 kr. ... geri aðrir betur! ;)
Það er meira að segja hægt að fá nokkuð fínt rauðvín með matnum... össs... klassi!

í Ikea er gott og gaman að vera.... og ódýrt þar að auki ;)

Mér fannst samt skemmtilegast þegar ég fór til San Diego í Kaliforníu og við mæðgurnar vorum á fulllu að leita eftir húsgögnum í litlu íbúðina hennar þar.... mamma hafði farið í Ikea og ekkert fundið. Svo mæti ég og við kíktum í Ikea, enda skylda, og heldurðu að daman hafi ekki fundið borð og stóla, lampa, gestarúm og nær allt í eldhúsið sem hún þurfti..
og ekki nóg með það... þá fundum við líka í matahlutanum, kavíar og kex og nammi sem ég hef ekki séð síðan ég var 6 ára og við fluttum frá Sverige!!
Hrikalega gaman.... núna er samt efst á óskalistanum að komast í boltalandið og leika sér þar aðeins... enda algjör snilld!

Vinkona mín er að vinna þarna... kannski ég geti plöggað e-ð!!

kv.
Clara... a child at heart ;)

þriðjudagur, ágúst 21, 2007

The spp.pp.p.p.pinster...

já ég er búin að ákveða það að verða einbúi, piparmey eða Spinster á ensku.
Ég ætla að eiga 2-3 ketti amk 1 kjölturakka og svo fullt búr af gullfiskum sem munu flestir heita Gulli.

ég ætla mér að búa ein í íbúð með skrítnar dúkkur og furðuverur hangandi í glugganum hjá mér og úti í garði og börn verða hrædd við að koma nálægt mig.

ég ætla að vera eins og konan í little britain með þvaglekann!

ég ætla að búa ein!!!

Kv.
CV.

það getur verið erfitt að búa með móður sinni í studíó íbúð.

föstudagur, ágúst 10, 2007

dancing with the devil...

það versta við að vinna hérna er að maður er fastur í freistingunum ...
freistingarnar eru allastaðar í kringum mann... úff það er erfitt...

ég er hins vegar mjög vel sett heima hjá mér enda þarf ég ekki mikið, hátalara, airport og góða tölvu ( sem er þó aðeins farin að láta vita að hún sé ekki nógu kúl.. enda ekki intel vædd og aðeins G4)

Bróðir minn dansar hérna í kringum mig þar sem upp kom að ég væri kannski að spá í að upgrade tölvuna hjá mér...
hann hljóp inn í búð og kom til baka með þetta....


svo á auðvitað að sérmerkja þetta Clöru svo það fari nú alls ekki milli mála hver eigi tölvuna ....
En þá kemur upp spurningin....
rautt eða grænt á svart ...... eða grænt á hvítt?

hjálp...
CV.

forvitni...

síðan mín fær um 15 heimsóknir á dag..
en nú er ég bara orðin of forvitin að fá að vita hverjir það eru sem líta hér við ...

endilega kommentið, annars er ég ekki frá því að ég takmarki aðgang að síðunni minni ...

átti annars alveg frekar góða verslunarmannahelgi...
sushi og frábær félagsskapur fredag, takk Fjóla!
Laugarvatn og svo lestur lördag .... takk Harry Potter
og svo partý og tjútt langt frameftir morgun söndag, thx guys ;)

mig er farið að langa smá til útlanda... vill e-r fara í smá ævintýri?

CV.
kl. er 9.23 og ég er enn uppí rúmi á föstudegi .....mmmmm ...

fimmtudagur, júlí 26, 2007

kvöl og pina

E-n tíman á árunum 1989-91 fengum við brósi tölvu í jólagjöf...
Fyrsta leikjatölvan sem við eignuðumst og þvílíka hamingjan (og "hamingjan") sem við áttum með þeirri tölvu..
Þessi tölva var Sega Master System


Við fengum kassa með 12 leikjum og ég get svo svarið það, það var leikið. Sumir unnu, sumir töpuðu, stundum var það réttlátt .. stundum ekki ... stundum var það blóðugt.. en hey ..Kid's R Kid's .. og maður leyfir litla bró ekki komast upp með allt!

Anyway.. .!
Fyrsti leikurinn sem við spiluðum og kláruðum strax á fyrsta kvöldinu var RAMPAGE. Þessi snilldar leikur var hvað oftast spilaður af okkur enda algjör snilld!

Í dag fékk ég að sjá þetta myndband. Þessi Kvikmynd sem verið er að teasa kemur út 18.01.2008, en það sem er áhugaverðast er að það er orðómur í gangi að þetta sé Rampage bíómyndin!!

úff.. nú fór sko firðingur um mann... jeij ..
næstum sami fiðringur og fór um mann þegar maður sá fyrsta teaserinn af 300 eða Transformers eða tilhugsunin um Thundercats... oh boy oh boy! já minns er smá spenntur.. ákvað að pína ykkur líka í leiðinni.. þeas. ykkur sem eruð svona nördar eins og ég.. lol

CV.
Njörður.

sunnudagur, júlí 22, 2007

Friday BBQ

Við Fjóla héldum smá matarboð á föstudaginn..

við gleymdum hins vegar að taka myndir af matnum .. en það náðust 2 af mér að grilla.. heheh
njótið.. og believe me maturinn var fantastic.. .


villtur lax, fylltar kjúllabringur, lambalundir, eggaldinn og sætar kartöflur á grillið og fylltir sveppir og tómatar og svo aðeins eðalvín með!

mánudagur, júlí 09, 2007

í goðu yfirlæti...

Heima hjá Fjólu er alltaf gott að vera...

þar er tekið á móti manni brosi og hlýju.... maður fær góðan mat og þrusu gott rauðvín svona rétt fyrir svefninn...
Ekki nóg með það þá er hún besti félagskapurinn og bara í næsta húsi....

Eins og í kvöld... þá fékk maður þrusugóða spelt pizzu og frábært rauðvín... og ennbetri félagsskap!!


-**-**-**-**-**-**-

.... en að e-u öðru..

ég er búin að vera með á dagskránni smá me-time... en hef bara enn ekki komist í það.
búin að ætla að skella mér í sund, lesa bækur, hlusta á tónlist og bara vera til... en e-a hluta vegna þá hefur það bara ekki ekki tekist...
Aftur á móti þá var endalaust skemmtilegt sleep-overpartý hjá mér um helgina... ég fór út að borða á Organic Fish & Chip (góður matur, endalaust góður matur)
kynntist spinning kennaranum hennar mömmu og konunni hans.. Dansaði og dansaði í nýja kjólnum mínum ;)
átti die hard maraþon með snillingum, boðin í snilldar grill og fór á landsleiknördanna þar sem að hann bróðir minn ljúflingurinn spilaði og sigraði svíana 7-0...... eins og einn félaginn sagði... við fengum uppreisn æru. *fliss*

en núna ætla ég að fara koma mér heim.... enda sit ég enn uppí sófa hjá Fjólunni og læt ljúfa tóna Ray Lamontagne flæða yfir mig.

ætla heim og njóta þess að vera til ...

þar til síðar SugahPillows
C.V.

miðvikudagur, júlí 04, 2007

iPhone....

Hype-ið sem er komið upp í kringum þennan síma ætla ég hér með að staðhæfa að sé alveg réttlátt.
It's groundbreaking and beautiful!

En nóg af því að heyra þetta frá BNA... ég fékk að handleika iPhone í gær... og ég get svo svarið það ... !! AMK. í Evrópu ... spenningurinn magnast ennþá meir til að fá hann til að virka hér á landi........ég tími varla að borga súperupphæðir fyrir útlandasímkostnað!..


en aftur að símanum ... hann er alveg eins og myndböndin sýna.. and then sum!.. hann er bara geðveikur!!!
Snertiskjárinn virkar svo auðveldlega, hann tengist þráðlaust þegar hann er í wifi umhverfi, allt breytist hratt með .. hægir ekkert á sér né frýs... it's gorgeous... gorgeous!!

ætla halda áfram að vinna..

kv.
C.V. súperástfangin af iPhone!

þriðjudagur, júní 26, 2007

Juni update

það er nú meira fjörið sem er búið að vera í þessum mánuði og sumarið rétt að láta sjá sig núna ;)

Þið afsakið þetta verður tjútt blogg ;)

Það eru búnar að vera 2 útskriftarhelgar, 30 afmæli, útlendingadjamm og grill í massavís!
HR útskriftardagurinn samanstóð af 5 glæsilegum veislum hjá yndislegu fólki og massa tjútti!

svo kom 17. júní, fleiri veislur og útlendingadjamm... af hverju þarf maður stundum að toppa djömmin þegar útlendingar koma með .. ég er að spá í að afboða mig í allar útlendingaveislur vegna heilsuveilar.. ég mun ekki halda út sumarið með þessu áframhaldi!
Svo núna síðustu helgi .. úff púff.. geri aðrir betur!
byrjaði á fimmtudaginn þegar Marc, buddyinn minn Þýskalandi kom aftur, grill og bjór með brósa og múttu. Svo M16 staffapartý ... tótally awesome!! enda með sigursælan hóp... Victory tastes so sweet ;) hehe
Svo byrjun á 30 ára afmælis tjútti sem eiginlega endaði í smá þreytu á sunnudeginum...

Allavega á laugardeginum brann ég.. ái.. og á sunnudagskvöld, eftir lítinn svefn mikið sukk og harðsperrur eftir M16 tókum við okkur til og röltum upp Esjuna og alla leið upp á topp! Esjan hefur nú verið merkt... næs þetta! The Beast has been tamed... Commanded and Conquered ;) ..lol...



bestu sumarkveðjur
Clara.... my milkshake

fimmtudagur, júní 07, 2007

back from suburbia

Suburbia er alveg næs, gott útsýni, ró og næði, mikið pláss, en það er e-ð við að vera í grónu hverfi, þar sem að trén rísa hátt yfir mann þegar maður röltir um bæinn... ilmurinn í loftinu býður manni heim og í kaffi!

mmmm.... skjótast á milli húsa í náttfötunum eða inniskónum, a little night-cap á veröndinni með nágrannanum.. .mmmm... verst að allir góðu nágrannarnir flytja eftir sumarið .. snöft.. hvað geri ég þá!!

Allar helgar í Júní eru nær fullbókaðar og ég er ekki frá því að nær allar helgar í Júlí og Ágúst séu það líka....gaman gaman! voðalega er maður e-ð vinsæll ;)

Mig langar svolítið að fara á Laugarvatn á sjóketti þar og svo grilla og liggja í sólabði, miðað við hvað amma og afi eru ánægð þar þá held ég að við vinahópurinn getum alveg sætt okkur við þann stað! Fyllibyttan í sumar!

C.V.
að reyna finnu besta lausn á dagskrá og staðsetningar útskriftaveislna á laugardagskvöldinu!

miðvikudagur, maí 30, 2007

Long time no see!

Það er það komið á hreint!
Ég er búin að vera ALLT OF LENGI OG LANGT í burtu!!!

Ég er að missa af ÖLLU!! Fjóla er að gera drastíska hluti og ég missa af allri spennunni og slúðrinu! Það eru allir að gera e-ð ógó spennandi og ég fæ ekki að vera með af því ég er uppí 113!!! eins gott að amma fari að drífa sig heim aftur svo allt geti orðið eðlilegt aftur, jafnvægi þarf að nást!

Annars er gólftuskan orðin að bómullarhnoðra aftur, nú lít ég út eins og algjört snobb! Rúntandi um á Volvo á einkanr. með hvítan hnoðra í fanginu. úff.. i am way to young to be that grown up!!

Fór á 28 Weeks Later í gær.. snilld! mæli með henni, hún er blóðugri en 28 Days Later .. me like it!

Sá Blades of Gloryum daginn... snilld! frétti svo að það væri að koma önnur mynd sem heitir Balls of Fury!! awesome!

með mínum uppáhaldsleikara of all time Christopher Walken!! hann er bara uppáhald, þvílíkt scary með svalan húmor! the Dude Rocks!

Ætla að fara vera menningarleg með móður minni ;)

C.V.

fimmtudagur, maí 24, 2007

Technifreaks ;)

Þeir sem þekkja til okkur systkyna vita það að við erum frekar hrifin af tækjum og tækniundrum... helst þá svona flashy dót sem er fjölhæft, fallegt, nýstárlegt og töff.. !

Ég ógó ánægð með græju settupið mitt heima... allt þráðlaust og fallegt.. love it!

Brósi var að fá sér nýjan síma og ég verð að viðurkenna hann er frekar flottur, þó svo að ég muni ekki skipta um lið og fara yfir í SE þá mun ég ekki neita því að síminn er flottur!
Hann er með myndavél báðum megin svo hægt er að halda videoconference calls og alls konar.. !! og þetta er bara tempsíminn þar til vinnusíminn kemur í haust.. og við vitum öll hvaða sími það verður!!

það er nú aldeilis!! og ég sem var svo ótrúlega ánægð með símann minn .. ;) ég er það enn.. hann er amk með betri myndavél en brósa síma..

C.V.

bíð spennt eftir Transformers!

angan af blomum

að sitja hér við stofuborðið hennar ömmu að læra er alveg yndislegt þegar að blómaanganin berst að vitum mér..

Fersk blóm eru nauðsyn á hverju einasta heimili!

Verst að þau skuli vera svona dýr hér á landi..... þá er nú gott að eiga ömmu sem kemur reglulega með blóm til manns frá beðmálsstöðum :p

C.V.
á viti ævintýranna í heimi fjármálamarkaðar... eða bara Hvergilandi

mánudagur, maí 21, 2007

I sjukraproflestri..

Jebb.. það var eins gott veðrið var viðeigandi í dag... ekki eins og síðasta vika hefði nú verið slæm!

Þar sem maður situr og er að spá í þjóðhagfræði og viðskiptalögfræði á hugurinn aðeins til að reika.. ekkert langt en svona smá.

Í dag er ég búin að vera td. á ströndinni á Aruba og á ströndinni í Barbados með hanastél mér í hönd (e. Cocktail).
Ég er líka búin að vera spá mikið í hvaða mynd væri viðeigandi fyrir msnið.. þar sem ég finn enga af mér með kennaragleraugun fínu sem ég átti einu sinni ... hmm...
Fór svo að spá í hvort ég væri ennþá jafn kennaraleg eða fullorðinsleg með þau núna eins og ég var þá...

Svo fór hugurinn í það að taka myndir, ef ég ætti nú myndavél þá gæti ég sko tekið alvöru study mynd af mér.. ef ég ætti nú myndavél myndi ég vera dugleg að taka myndir af öllum samkomum með vinum mínum, ef ég ætti myndavél ætti ég líklega fleiri myndir af mér með fólkinu mínu. Held að ég taki út myndavéla skammtinn fyrir alla þegar ég loks fæ lánað myndavél :p

Ég sit í lesstofunni og peran fyrir ofan mig er biluð, hún blikkar og blikkar, mér líður eins og ég sé í vondri austantjalds lærdómsaðstöðu.. Hvaðan kom þetta eiginlega?!

Fékk líka að vita í dag að amma er farin til Ítalíu sem þýðir að ég verð ennþá lengur í suburbia.. sem er alveg fínt, þó svo að mér er farið að leiðast að vera svona langt í burtu frá vinum mínum ...

Ég er farin að fíla mig á stóra Volvonum... og ég skammast mín fyrir það! Er það ekki once you go "Big" you never go back ;) eða þúst þarna dæmið .. bílar! En það kostar líka.... Volvo með mínímum akstri.. eða fram og tilbaka 103-113 er að eyða um 6 þús á viku..... sem gerir 24 þús á 4 vikum!! held að það segi allt sem segja þarf!! Yaris er definetly málið!!!

Ég hef komist að því áður en að ég sé byrjuð að nota það, þá þoli ég ekki bensíndælulykilinn frá AO. Það er einum of mikið mál að fá einn lykil til að virka! ...

Ég er að spá í að fara á tónleika í köben í sumar... 3 tónleikar raðast svo fullkomlega á þá daga sem ég er úti.... fyrst Justin Timberlake 23. júní við hliðin á þar sem ég bý, svo Damien Rice 25. júní og að lokum Pearl Jam 26. júní.

Ég viðurkenni það fúslega að ég þekki ekki mikið til PJ, hef alveg hlustað á lögin þeirra og syng alveg með þegar þau koma, kannski ég finni fyrir e-u á tónleikunum með þeim...
En JT er audda bara entertainer af Gvuðs náð! sem maður verður að sjá er það ekki ;) og DR er auðvitað bara snillingur!!..

Danski vinur minn fór í gær og tók góða veðrið með sér, hann kom í 3. skiptið til landsins og fór í fyrsta skiptið út að tjútta með íslendingum ... og ég er ekki frá því að hann hafi bara fílað vel! Ég skildi greyið eftir með vinum mínum á laugardeginum og stelpurnar voru allar æstar í hann.. heheh .. ég á flotta vini ;)

Hann sagði að íslendingar lifa fyrir tónlistina, þeir eru óhræddir við að syngja með hvort sem þeir kunna textan eða ekki. Það er bara alltaf sungið með!! Það er allt annað á borðinu í DK, þar skiptir sko múvið á dansgólfinu miklu miklu meira máli .. össs!!

Ég fékk hrós.. ég tala víst dönskuna með Hellerup hreim, sem er víst svolítið posh danska ;) ekki slæmt þetta! Danski vinurinn opnaði líka fyrir e-a flóðgátt sem var stífluð í dönskunni minni og núna er ég meira að segja farin að hugsa aftur á dönsku .. það er e-ð sem hefur ekki gerst lengi! gaman gaman!

ætla að halda áfram að læra...
Fjóla á eftir að skamma mig fyrir að hafa bloggað!.... ooooh .. ég missti af kaffitár... snöft..

C.V. .... still mentally on Aruba!

miðvikudagur, maí 16, 2007

svefneysi..

Ef það er eitt sem ég þoli alveg alls alls ekki þegar ég er að reyna sofna þá er það tifið í klukku...
Það er e-ð sem fer í mig við þetta reglulega tif.. sem bara heldur fyrir mér vöku og ómar í kollinum á mér.. svona soldið eins og hjá Captain Hook!
Ég get alls alls ekki bara legið og sofnað út frá þannig hljóð, hins vegar ef það væri óreglulegt eða rigning... þá myndi ég lognast út af á skotstundu!

E-a hluta vegna er amma með 2 klukkur í gestaherberginu.. eina á sitthvoru náttborðinu.... ég setti háværari klukkuna inn í skáp í gærkvöldi .. og núna áðan myrti ég hina! ... 30 mín seinna og ég er enn dauðþreytt í öllum líkamanum en get ekki sofnað .. !!
Ef þetta er nýtt svefnleysis tímabil þá ætla ég að biðja um svefnpillu! og það strax!

Geisp og ég verð vakin kl. 7.15 í fyrramálið tli að fara niður í skóla að læra... .. geisp.. i need my sleep!
fyrir utan það .. gólftuskan heyrir í draugum og bregður mér á 30-57 mín fresti með háværu gelti ... ! ekki kúl! ég er að spá í að henda henni út!

C.V.

þriðjudagur, maí 15, 2007

sundið ...

Skellti mér í sund rétt fyrir lokun ... yndislegt alveg hreint..

þið kannist við það, eða hafið séð það þegar strákar fara í sund og loftið festist allt í buxunum hjá þeim..
þeir setjast niður allt bara blæs upp.. soldið fyndið ... let's face it.. it really is!

Allavega.. þá lenti ég í svipuðu dæmi hér í kvöld... fór í nýja nuddtækið í lauginni ... mmm.. yndislegt alveg..
Svo allt í einu tók ég eftir því kallarnir í pottinum eru lúmskt að stara á mig... ég lít niður.. og haldiði ekki að brjóstin á mér höfðu stækkað upp í Dolly.. ég hélt nú ekki að það væri hægt að stækka meira!...Ég svoleiðis sprakk úr hlátri og setist niður þannig að loftið allt fór úr... og gaurarnir í pottinum urðu hálf skömmustulegir!! .. LOL .. prufa að gera þetta næst þegar sætur strákur er í pottinum ... LOL..

Annars er tími minn senn kominn á enda aftur í Suburbia.. og hann er allavega kominn á enda í kvöld... rúmið kallar heiftarlega á mig!
Á morgun verður Grill og Gleði með The GANG! og ég hlakka óendanlega mikið til.. !! jeij!

Hasta maniana, carinios!

miðvikudagur, maí 09, 2007

Eiki Hauks..

krípar mig út á forsíðu mbl.is ... hann blikkar mann þegar honum hentar, þetta þykir mér alls ekki þægilegt, sérstaklega ef maður er að lesa grein sem er þarna í kringum hann ... úff... hrollur.

Séra Al Green er með tónleika 28. júni og 6. júlí í London í sumar, ef ég skyldi nú skella mér þangað gæti ég líka náð Justin Timberlake, Bright Eyes, The Good the bad and the Queen, The Who, Gypsi Kings, Lou Reed og Joe Cocker.

Sérann er líka í 7. ágúst Madison Square Garden í NY og þá gæti ég farið The Police, Michael Bublé, The Black Crowes, Kelly Clarkson, Kenny Rogers, BB: King með Ettu James og Al Green, Weird Al Yankowich og kannski í lengst aðeins til að sjá Dave Matthews Band.
Af hverju býr maður ekki í london, þar eru samgöngurnar svo auðveldar á milli landa og ódýrar oft á tíðum!!

Við Dóra Rokk settum reglu fyrir síðasta sumar sem hljóðaði þannig að ef það var sól, þá var grillað, held að við höfum ekki klikkað eitt skipti á því! Enda erum við ekki að tala um marga daga.. lol.
Þessa reglu settum við aftur fyrir þetta sumar og hún byrjar á morgun, hvort sem verður sól eða ekki, því það er víst forkeppnin í Eurovision, sem er víst eins og upphitunarballið á þjóðhátíð í eyjum, byrjar vel ;)

Annars hef ég enn lítið sem ekkert að segja, en jú, takið frá 26. maí (átti það víst að vera). more details will follow.

C. V. ... á leið í bakaríið?

þriðjudagur, maí 08, 2007

fann mynd

Fann þessa mynd af okkur systkynunum frá því á menningarnótt í fyrra..
sexy Bastards aren't we ;)


Nú vantar mér bara eina af okkur öllum saman í einu... man ekki einu sinni hvenær við vorum öll þrjú saman í sama landinu :o

kannski við photoshoppum bara eina saman ;)
C.V.

mánudagur, maí 07, 2007

Mai..

7. dagur maí mánaðar er kominn..

Hann hefur enga þýðingu aðra en fyrir þær sakir að vera mánudagur og mánudagurinn eftir eitt skemmtilegasta brúðkaup sem ég hef farið í og fyrir að vera fyrsti mánudagurinn þar sem hægt er að vera almennilega sumarklæddur.... já ég er búin að vera spá mjög mikið í þetta.

Takk Sóley og Freyr fyrir yndislegt brúðkaup og æðislega veislu. Þið eigið mikið af góðu fólki í kringum ykkur sem þykir mjög vænt um ykkur.

Að ofhugsa kallast á ensku overthinking en á fræðilegumáli heitir það Casual Analysis Paralysis
Ég á það heldur betur til að ofhugsa hlutinu, meira að segja áður en ég geri hlutina, og oftar en ekki kemst ég að þeirri niðurstöðu að afköstin verði ekki þau bestu og því væri betra að sleppa þeim heldur en að gera ekki sitt besta. Nú veit ég vandamálið og nú mun ég laga það.
Ég tel mig samt vera manneskja sem goes with the flow og læt bara rætast úr þessu. ... mótsagnakennt?

Um leið og andinn kemur mun ég deila því með ykkur..
C.V.

laugardagur, apríl 14, 2007

Önnin buin...

Pizza og bjór í kvöld?

C.V.

mánudagur, apríl 09, 2007

Varið ykkur.. Clara er að tala..

Það á ekki að hleypa mér út meðal fólks... allavega ætti að setja svona síur á hvað kemur út úr mér... og e-r ætti að vera með approve og cancel takka hjá sér..

Ég get svo svarið það!! Ég er alveg einkar góð í að koma orðunum vitlaust út úr mér ....

Það á að halda mig í beisli og aðeins að hleypa mér út með sérhæfðu fólki og aðeins að leyfa mér að tala við fólk sem veit um þetta vandamál mitt!


Ef til vill er þetta bara orsök þess að vera heima og læra og hitta varla annað fólk nema samnemendur þar sme maður talar lítið um annað en námið, og er með klúr komment hægri vinstri!

Clara kjánaprik...
sem var samt soldið sæt í gærkvöldi.. with a foot in her mouth.. þá meina ég ekki bókstaflega!

myndirnar hennar Fjólu frá Páskamáltíð Munaðarleysingjanna;)

miðvikudagur, apríl 04, 2007

eruði tilbuin?

Setning sem ég hélt að ég myndi aldrei segja datt út úr mér í dag....

Rakel bjallaði á mig til að koma í ræktina og auðvitað ákvað að skella mér ... um leið og ég væri búin að fara með hundinn í hundaSPA- ið!!! ... Þegar Rakel kom upp til að ná andanum aftur, spurði hún hvort ekki væri allt í lagi með mig.. ..

I'm living the high life... flutt á flottan stað í Grafaholtinu með geðveiku útsýni yfir Rvk, G.voginn, Esjuna og já meira. Er með kjölturakka sem heitir Coco Chanel, hvít og fín (sérstaklega núna eftir Spa-ið) og krúsa um á alvöru bíl... Volvo á einkanúmeri.. og ekki bara hvaða númeri sem er heldur mínu eigin nafni ;)
Það er ekki öll lukkan eins ... það verð ég nú að segja!

Það er aldeilis gott að hafa tíma aflögu til að geta passað upp á gersemarnar hennar ömmu ;)

Annað í fréttum, prófin mín ljúka í næstu viku en þar er ég víst ekki svo heppin... en hamingjuna má sjá í að ljúka á laugardegi kl. 12 þá má búast við að ég muni tapa mér í vitleysu... Fjóla, ræktin, sund og svo smá rauðvín? ;)

Farin aftur að læra... svo ég geti skellt mér á Silvíu Nótt, Trabant og Gullfoss & Geysi í kvöld!

C.V. ekki ferilskrá

þriðjudagur, mars 27, 2007

Mig langar bara að .....

byrja á að benda á þessa grein sem er að finna á visir.is í dag:



Svo langar mig að benda á að karlmenn eru ekki þeir einu sem missa af svefni þegar þeir deila rúminu með e-m. Kvenmenn gera það líka. Fyrir mína parta á ég því miður frekar erfitt að sofa við hliðin á öðru fólki, má þar benda á að ég henti móður minni úr rúminu mínu eftir aðeins eina helgi, þá gat ég hreinlega ekki meir. Það liggur við að ég styðji sitthvort svefnherbergið fyrir pör og hjón. Þó svo auðvitað að það sé voða notalegt að kúra með e-m upp í rúmi þá sefur maður miklu betur einn! Þá er enginn að stela af manni sænginni, enginn að hrjóta, enginn að gnísta tönnum ( takið það til sín sem eigið), enginn að fara inn á mitt pláss í rúminu.. já ok .. ég er frekar plássfrek þegar kemur að rúminu mínu... ekki það að ég taki allt plássið heldur það að ég á minn helming og þú átt þinn helming! mér þykir það ansi góð regla!

My bed, My side! Your bed, your side! My bed, your side (stay there)! Your bed, my side (I will stay there)!

Clara... sem sefur ein.. laaaaangbest!

Atvinnuleitin..


Þessa dagana er maður á fullu að senda út ferilskránna sína þess á milli sem maður er að klára verkefni og undirbúa sig fyrir prófin.

Maður er búinn að vera á fullu að gera þessa rosa finu ferilskrá, sumir láta taka mynd af sér til að geta sýnt sína bestu hlið, og láta sig líta sem best út á blaði. Maður verður svo stoltur af ferilskránni sem maður hefur eytt tíma í að gera fallega, fágaða og heillandi.
Svo fer maður á stúfana á netinu og leitar sér heimilda um mannauðsdeildir og -stjóra fyrirtækja sem vekja hjá manni áhuga, maður verðu spenntur þegar maður finnur tölvupóstfangið hjá þeim og sendir á þá með von í hjarta að ferilskráin muni heilla þá upp úr skónnum..

Svo verður maður enn spenntari þegar maður tölvupóst tilbaka, "jeij, kannski fæ ég tækifæri þarna, úúú mér líst vel á þetta"...
svo opnar maður póstinn og í því stendur "Vinsamlegast fyllið út umsóknina á netinu svo að allar upplýsingar komist rétt til skila."

Ég hélt að ég væri búin að því..? Ég var búin að gera þessa rosa fínu ferilskrá, allar upplýsingarnar um mig eru þarna.. nema kannski aukavinnan sem ég tel ekki til styrkleika í starfinu sem ég er að óska eftir. Það þarf bara að prenta hana út og leggja í búnkann með öllum hinum útfylltu umsóknunum. Ég er svekkt.. mér finnst þetta asnalegt, ég nenni ekki að vera að fara á allar heimasíðurnar að setja inn sömu upplýsingarnar sem eru á ferilskránni minn. Ég eyddi fullt af tíma í að búa hana til, það er lagt áhersla á að hafa fína ferilskrá og síðan er ekki einu sinni tekið mark á henni!
Hvaða rugl er það!?


Anywhoo.. ég heyrði rosalega útgáfu af Crazy í síðustu viku, It rocked my world!!
Ég bið tónlistarmanninn Togga um að vinsamlegast hlóðrita þessa útgáfu eða gefa hana út á myndbandi, því ég veit að það var kamera þarna .. I gotta have it!! sama hvernig .. I gotta have it!

þriðjudagur, mars 20, 2007

Kvöldin

Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að fara í göngutúra.. það er e-ð svo friðsælt, róandi og upplífgandi. Að rölta í fersku loftinu, kannski smá kulda, í myrkrinu með góða tónlist í eyrunum og aðeins með beinan stíg fyrir framan sig.
Eftir að hafa búið í 105 og 101 síðustu ár hef ég gengið mikið um íbúðargöturnar sem mér finnst bara æðislegt.. að rölta og svona líta inn um gluggana á leiðinni. Ég er i enginn Peeping-Tom.. en þið vitið maður rennir augunum yfir húsin í myrkrinu og auðvitað stoppar litið í 1-2 sekundur ... og í þessar 2 sekúndur kemur alltaf e-r smá saga upp í kollinn á mér... um hvað fólk er að gera, hvað þau voru að gera eða eru að fara gera. Hvernig manneskjur þetta eru.
Og þá kemur oft upp smá löngun í manni að hafa möguleikann að geta lesið eða heyrt hvað fólk er að hugsa þegar það er heima hjá sér í kvöldkyrrðinni.. hlustandi á tónlist, horfandi á sjónvarpið eða hvað eina.

Á leiðinni í H-skólann geng ég framhjá nokkrum fjölbýlishúsum og þar er í einni blokkinni kona sem situr við skrifborð á kvöldin þegar ég rölti heim og hef ég oft verið að spá í hvað hún er að gera og um daginn fékk ég smá innsýn í hvað hún bedrífast þarna á kvöldin, hún lyfti upp pilsi sem hún var að sauma og það kom yfir mig svona smá stolt fyrir hennar hönd, ég samgladdist henni alveg rosalega á góðu verki.

Í gærkvöldi tók ég smá rúnt á leið í sundhöllina í gegnum eitt af mínum uppáhaldshverfum að rölta í og það eru göturnar milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs. Þetta eru litíl hús, litlar íbúðir og göturnar eru pínulitlar.. þetta er næstum eins og að koma inn í nýjan heim að rölta þarna í einstefnu götunum með garðana og trén og kettina hlaupandi yfir göturnar... þetta er allt annað umhverfi og andi en td. Í Þingholtunum, sem ég fíla alveg í tætlur líka, minnir mig pínu á Köben að rölta í 101 nema að húsin í Köben eru mun hærri og dimmari.

Á svona kvöldum sakna ég voða mikið að geta rölt í kringum vötnin (söerne), í gegnum Fælledparken, niður í miðbæ og upp Nörrebro og aftur til tilbaka heim að Österbro.... það er svo notalegt að vera úti og hreyfa sig...

þriðjudagur, mars 13, 2007

14. mars eða 3.14..

Nú hefur sá dagur runnið upp sem bna-menn skrifa 3.14, sem hann Jón Örn svo réttilega og skemmtilega benti á vill svo skemmtilega til að er talan PÍ --=> π

Ekki nóg með að þetta sé π-dagurinn þá er þetta einnig afmælisdagur snillingsins Alberts Einsteins.... Verkfræðingur fjölskyldunnar móðurbróðir minn á einnig sama afmælisdag..... 14. mars er einnig frægur fyrir aðra daga sjá hér....

Fyrir utan þessa merku menn og þessa merkilegu tölu og fleiri atriði, sjá hér, þá fæddist ég þennan dag líka fyrir aðeins 25(+1) ári síðan... í tilefni dagsins þá er ég að spá í að bjóða í smá “selebreysjón” um helgina... partýnefndin er komin á gott skrið með hugmyndir og önnur herlegheit og allt er í óðaönn að verða hin glæsilegasta samkoma góðs fólks í kringum mig.... það er víst komið að skuldadögum þar sem mér tókst svo lúmskulega að komast hjá veislu á síðasta ári og verð ég að bæta fólkinu mínu það upp .... fliss
og tel ég mig hreinlega bara lukkulega að fá að deila þessum degi með þeim stórmerku uppgvötvunum... og þeim stórmerku mönnum og konum....

fimmtudagur, mars 08, 2007

Ég var búin að skrifa eitt heljarinnar blogg í gær... en svo varð bara ekkert úr því ... svekkelsi.... snöft.. en ég set það bara inn í næstu viku þegar verður loksins af því ....

Marsmánuður er frekar busy hjá mér með skólavinnu þó er komandi helgi uppbókuð og ég á eftir að gera upp við mig hvort ég eigi að fullbóka helgina eftir líka.... en ég er laangspenntust fyrir atburðum komandi helgar!!

Numero uno... er árshátið HR .... Föngulegur hópur ætlar að mæta, kæta og skemmta sér við tóna Baggalúts, skífuþeytings Óla Palla og grín Þorsteins Guðmundsonarl!!! Dressið er komið og nú vantar aðeins að toppa lúkkið með rétta fylgihluti!
Því miður verður þetta síðasta, já allra síðasta árshátíð árgangs'04 þannig að við þurfum að fjölmenna og sýna að 3.árið er laaangbest í djamminu!!
meðfylgjandi er mynd er af mér frá síðustu árshátíð ... það var mjööög skemmtilegt kvöld! Fann ekki hinar myndirnar.. :S


Numero dos.. vinahópurinn pantaði skemmtilegt kvöld og skemmtilegt mun það verða! Miss Pink and sys hafa planað heljarinnar skemmtikvöld með tilheyrandi látum, skreytingum og fjöri eins og þeim einum er lagið... ég sé framm á að dansa og syngja við Pop! Goes my heart! og fleiri eightís lög.. hehehe og líklega Queen á japönsku.... sérstaklega þar sem ég má ekki spila mína tónlist.. hnuff!
Það var sett þema, sól og sumar og kokteilar þannig að við verðum stórglæsileg í sumaroutfittum með búddahglös í höndum... snilld!
Það verður koktailbar!!! ..my faverit thing to do.... blanda drykki ;) ég ætla að vera með glæsilegast glasið .. það verður á hreinu!!

laugardagur, mars 03, 2007

Merkilegt!!



Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri þegar ég fer að versla er að velja mér tannbursta... ég get staðið og pælt í týpu, gerð og áferð og lit alveg endalaust.. og finnst það alveg ótrúlega skemmtilegt...... það er nú meira hvað maður getur dúllað sér endalaust þegar maður velur tannbursta enda er þetta e-ð sem skiptir manni heil miklu máli.....

Svo mætti múttan með eina litla 3 ára frænku mína í heimsókn í morgun... . hún vissi bara ekkert hvað hún átti að gera með litlu stelpunni .. þannig að við skelltum okkur í Ikea... Alveg uppáhalds staðurinn minn þegar ég var lítil og er enn í dag.. maður getur leikið sér endalaust þar... prófað rúm og skápa og allt litla dótið ... þetta er alveg drauma heimur þarna inni .. enda finnur maður sér alltaf e-ð við hæfi .. jeij IKEA! .. hehehe...

Jæja.... stúlku kindin viet ekki alveg hvað hún á að gera af sér í kvöld...... partý eða vera bara heima í góðu tjilli með kertaljós og góða bók...
Ætla að láta það ráðast síðar ... tjillin at the moment and lovin it!

Kv.
Clara

miðvikudagur, febrúar 28, 2007

nice..

Nýlega hefur mér var bent á ýmsar hljómsveitir, bækur og myndir sem ættu að vekja áhuga hjá mér og hef ég farið eftir því..
eftirtaldar myndir var mér bent á og ég mæli með:

The Prestige 4/5
Half Nelson 3,5/5
Pursuit of Happiness 4/5

Ég er byrjuð á og hef ekki klárað eftirtaldar bækur:

Ilmurinn, saga af morðingja
Milan Kundera bækurnar
og svo er ég með fullt af öðrum bókum á næturstandinum sem ég er komin á góða leið með..

Tónlist!! my favorit subject!!

Mér var bent á að hlusta á 3 volume 69 Love Songsdiskinn með The Magnetic fields..
og þvílíka eindæma snilldin.... diskurinn hljómar skemmtilega við fyrstu hlustun og svo fer maður að taka eftir textanum og jii minn eini svona mikið að svörtum húmor á 3 diska plötu .. algjör snilld....


Smá umhugsunarefni ..
fyrst að leyfilegt er fyrir konur í Bna að giftast gæludýrunum sínum .. má ég þá ekki giftast Gulla mínum?
Eini maðurinn (ef hann er kk þeas.) sem ég ber engar væntingar til og ber engar til mín.. nema að ég hugsi um hann annað slagið ....afturámóti þykist hann stundum vera dauður þegar ég gef honum ekki nóg athygli...

mæspeisist endilega... þú líka Silla ;)

Heyriði þið sem kannist við !! Eigum við ekki að taka Fyllibyttuna upp aftur í sumar?!?!
Ég saknaði hennar svo rosalega síðasta sumar og mér finnst að við eigum að gera hana núna...!!! endilega kommentið á þetta fólk!!

kv.
Clara

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Sma mont i gangi ;)


Var að klára miðannaprófin mín og ég verð að segja að Hr. Albert Einstein yrði nú mjög ánægður með að eiga sama afmælisdag og ég ;);)

Ég rúllaði upp fjármál 2 prófinu.. og ég sé alveg framm á einkunn í hærri kantinum! ... awesome!! finnst ég ógó klár núna... þannig watch out ppl.. miss smarty-pants is on the loose!

Annars held ég að prófin hafi bara farið vel, sem og verkefnavinnan líka. Ætla að reyna að klára næsta skilaverkefni um helgina svo ég geti gert e-ð miklu skemmtilegra í næstu viku ..

Annars er afskaplega lítið annað að gerast hjá mér... jú ég er nú heldur betur búin að myspace-ast... jii minn eini ... þvílíkur tímaþjófur!!! Búin að finna gamla kunningja og fleiri góða ... bara fyndið!!

Þannig endilega addið mig á myspace.. ég er að safna vinum ;)

myspace.com/claravw

best regards
Clara

mánudagur, febrúar 19, 2007

Music and Lyrics

Ég bara varð!!..

þar sem að ég kann ekki og ég gat ekki sett youtube myndbandið hingað inn .. þá set ég bara linkinn á það í staðinn ... þetta er bara fyndnast í heimi!!!

Pop! Goes my heart með Pop!

þetta er bara oooof fyndið til þess að geyma ... þannig njótið vel...

C.V.

sunnudagur, febrúar 18, 2007

Klamvikan ogurlega!!

Mér finnst þessi umræða alveg langskemmtilegust af öllu sem er í fréttunum þessa dagana. Sérstaklega fannst mér fyndið þegar ég las grein í fréttablaðinu þar sem stóð að núna væri sko komið að strákunum, stelpurnar hafa fengið að leika sér þegar herskipin hafa lagst að höfn og núna ættu þeir að fá að sleppa sér aðeins... .....

Einhverra hluta vegna hef ég á tilfinningunni að strákarnir eigi eftir að verða fyrir e-m vonbrigðum.
Ég nefnilega held að það verði ekkert mikið af grönnum, brjóstastórum stjörnum sem munu vera tilbúnar að leggjast með litlu sætu íslensku strákunum, þegar þær geta sofið hjá öllum þessum gömlu refum með alla peningana sem geta gert þær frægar í klámiðnaðnum.... enda er það víst draumur þeirra að verða næsta Jenna eða Rocko eða Ron.. hver veit... þær eiga alla vega framtíðina fyrir sér... hehehe ..

Ég óska öllum sem koma að þessari helgi góðs gengis. Ég vona að efnahagurinn á Íslandi hafi gott af þessu og að strákarnir okkar geti gert hosur sínar grænar fyrir dömunum sem verða hérna þessa komandi viku. ;)

Hmm... þetta gefur mér kannski hugmynd fyrir afmælispartýið mitt... nice!

kv.
C.V.

föstudagur, febrúar 16, 2007

Koreskar kultmyndir


Ég er alveg dottin inn í kóresku myndirnar... ég er með Vengance seríuna og byrjaði á henni í gær.
Vengance serían inniheldur 3 myndir
Sympathy for Mr. Vengance
Old Boy
Sympathy for Lady Vengance

Það sem þessar myndir eiga sameiginlegt fyrir utan flotta sögu, vel tekin og gory atriði ... þá tekur hún heldur betur á siðferðiskenndinni hjá manni... maður situr uppi með spurningunamerkið.... hvað myndi maður sjálfur gera í þessari stöðu.
Ég horfði á fyrstu í gær, Sympathy for Mr. Vengance... og hún er alveg vel rosaleg!

Ég fór á Old Boy í bíó ... við fórum 7 saman í bíó .. en .. hehe .. hluti af hópnum höndlaði ekki myndina og fór í hléi!!..
Við brósi og ég man ekki hver sátum út myndina og fíluðum hana vel.. enda er hún alveg vel sýrð!! en ótrúlega flott!!

Ég tek ofan fyrir kóreskum og asískum myndum.. enda eru þær brjálæðislega flottar!! Mér var bent á Hard Boiled og The Killers sem ég er núna á höttunum eftir á DVD formi! þar sem ég er ekki með VHS... nema audda e-r bjóði mér í vidjó... *fliss* ;)



Annars verð ég bara að nefna diskinn sem er að trylla tilveruna hjá mér þessa dagana.. og ég er svo ánægð að ég sé ekki ein að tapa mér í þessum!
Nýjasti diskurinn frá Arcade Fire Neon Bible er nýlega kominn út... er bara must have eign of the YEAR! Get it and enjoy!!

C.V.

þriðjudagur, febrúar 13, 2007

Clara i Kina!!

það liggur við að maður sé kominn til Kína!! það er búið að loka á næstum allt netlega séð innan skólans... maður kemst ekki á netsíður vina sinna, maður getur ekki googlað efni til að vinna verkefni, það er ekki hægt að skoða síður sér til afþreyingar og til að stytta manni stundir. Sem þýðir ekkert Pron, ekkert niðurhal, engin skemmtun!!!

Það er ekki einu sinni hægt að vinna verkefni í skólanum lengur því netið hefur verið læst á ákveðnar síður!!!
og vitiði hver skýringin er.... þetta eru vírusvarnir skólans!

Ekki er búið að setja síur á netið í HÍ eða Bifröst!! af hverju bara hjá okkurr!!!

Ekki er ég á fullu í proninu, og auðvitað að er frábært að það sé búið að loka á niðurhal myndefnis svo sem kvikmyndir og sjónvarpsþætti! maður á auðvitað ekki að brjóta lögin! ;)

En kom on!! HR stærir sig af því hversu opinn hann er bæði fyrir alla og nemendur, engin takmörk!! en það er samt verið að takmarka mann alveg all verulega þegar maður getur ekki unnið verkefnin sín í skólanum vegna sía!!

Ég segi Tökum Hömlurnar af HR!!! Hindranir Takmarka Nám!!

jii minn eini!!


ég er búin að vera á þvílíkri draumferð síðastliðnar nætur!

Td. í morgun þá dreymdi ég að ég væri á ströndinni að horfa á sólarupprásina.... fann fyrir kossum geislanna á húðinni og hitann sem henni fylgir... .. og ekki nóg með það þá er birtan úti alveg í samræmi við það... ég hélt að það væri komið sumar þegar endurskinið frá kirkjunni varpaðist inn til mín...!...
núna langar mig bara á ströndina, eða bara e-t þar sem hægt er að njóta sólarupprásarinnar með hita allan daginn!

hmm... hvað segiði um ferð e-t í sumar stelpur.. bara svona fun ferð!! e-t spennandi .. eins og miðju spánar? eða

en já .. kannski er Jude-arinn kominn tað heimsækja mig!!... girls hands OFF he´s mine ;)... lol....

nei annars er hann ekki í minni kantinum?... það gengur víst ekki alveg....
Er að hlusta á þennan geðveika disk.. raddirnar, orgelið, fiðlurnar ég fæ þvílikan fiðring innan í mér þegar ég hlusta á hann... það fer allt á fullt!!!

Neon Bible með The Arcade Fire!!
þið verðið bara að fá ykkur hann!!!

kv.
Clara

fimmtudagur, febrúar 08, 2007

Frabært!


Ég átti alveg frábæra kvöldstund hér í vikunni. Ekki frá því að þetta hafi verið bara besta deit sem ég hef farið á lengi!

Það var náð í mig um kl. 19, fórum að borða rómantíska máltíð á Hereford Steakhouse, við kertaljós og rólega tónlist, það var spjallað og spjallað og hlegið. Svo voru samræðurnar færðar út í bíl þar sem við rúntuðum aðeins um bæinn við töfrandi tónlist í útvarpinu og þar sem samræðurnar urðu innilegri, svo til að toppa allt var fengið sér smá ís til að kæla sig aðeins niður.

Ég er ekki frá því að aðilinn hefði verið annsi heppinn á fyrsta deiti hefði verið bætt rauðvínsflaska við líka ;)
Það besta við þetta er að ég veit að ég mun hitta aðilann aftur og aftur... enda alveg yndisleg manneskja.

Verst að þú skulir ekki vera strákur... við hefðum orðið fullkomið par ;)
Takk fyrir æðislegt kvöld, Lilja! ;)

kv.
C.V.

mánudagur, febrúar 05, 2007

Endalaus heppni!


Ég er þessi endalaust heppna týpa...

í morgun kl. 6 var hringt á dyrabjölluna hjá mér og fyrir utan stóð þessi afar risky týpa... með hettuna uppi og ég ætla ekki að neita að ég hafi orðið pínu hrædd..

hann : "heyrðu má ég hringja hjá þér? það er e-ð að gerast hérna úti, maar!"
ég : "bíddu, ha, hvað meinarðu?"
Hann: "heyrirðu ekki byssuhljóðin, heyrirðu ekki?"

svo var hann alltaf að kikja í kringum sig... ég tók enga sénsa og lokaði bara, sagði honum að ég gæti ekki verið að þessu eins og er. ....

stóð samt og hlustaði þegar hann fór og heyrðu hann segja "þetta er hún, hún er þarna ennþá"...
já ónotatilfinningin er sko aldeilis búin að vera skríða upp í mér í dag...

Af öllum íbúðunum í húsi, af öllum bjöllunum valdi hann mína... var e-ð undirliggjandi mótív?
hvað er að gerast? ég þekki þennan náunga ekki neitt og hann var alls ekki einn, e-r stóð handan við hornið svo ég sæi hann ekki ..... úff ennþá meira krípí!

svo hjálpar mamma því miður ekki með horror sögurnar og hvað ef?
úff.. á svona stundum vantar mann varðhund!
amk. svona alert takk inn til nágrannans... ;)

C.V.

sunnudagur, janúar 21, 2007

miklar pælingar i gangi!


ég fór á viðskiptaþing í síðustu viku þar sem Maggi Scheving var að tala við okkur...
og hann sagði margt sem hitti svona rosa vel í mig og margt sem situr svo fast að ég kemst varla yfir!

td. fór hann út í af hverju strákar ná samningum svona auðveldlega og af hverju þeir ná svona langt...

td. er þeim kennt skák, þeir eru í strategy leikjum og keppnis íþróttum þar sem keppnis andinn í þeim er alinn upp á meðan stelpurnar... já stelpurnar eru í snúsnú og parís þar sem allir vinna og allir eru jafnir... jibbí fuckin jei!

Satt?

og annað.... á bakvið karlmann er alltaf e-r kona, móðir eða kærasta, eiginkona sem styðja þá í einu og öllu og sjá um allt annað... satt? algjörlega!!

aðalástæðan fyrir því að þeir ná langt er af því að þeir hafa e-n á bakvið sig sem sjá um heimilið og og styðja þá þannig að þeir geti einbeitt sér að sínum markmiðum...
Þeir setja sér markmið og konan styður hans ákvörðun og gerir allt til þess að auðvelda fyrir hann lífið...

Satt?

Annað sem hann sagði ... konur ná ekki langt í starfi því að þær vilja alltaf hafa jafnvægi á heimili og vinnu, joggla bæði og láta það ganga upp... en virkar það? er hægt að ná frama og sjá um heimili?

M.S. sagði að til að ná frama sem kona þá yrði maður að fórna e-u .. það væri ekki hægt að ná bæði og alls ekki í einu.
jújú það væri alltaf hægt að eignast börnin en þá þyrfti e-r að vera heima með þau, amma, au-pair eða pabbinn.... mamma myndi ekki geta náð framanum og hugsað um heimilið og börnin. Imposible!

Þetta festist alveg rosalega í mér... og ég hef lítið annað hugsað um....

Strákar ná öllum sínum takmörkum af því að kærastan, konan gerir allt annað auðveldara fyrir þá...
þeim langar í nám og stelpan styður þá, fínt ekkert mál, þeim langar erlendis í nám... og stelpan styður þá og fer með .. jújú þær fara í nám svona til að hafa e-ð að gera... en þær eru að setja sín markmið á hold til þess að styðja og elta kærastann..

af hverju eru kvenmenn svona veiklyndar, af hverju eru þær tilbúnar að fórna sínum draumum til að elta strák?
af hverju fá strákarnir að ná að uppfylla sína drauma og stelpurnar sætta sig við að vera kona mannsins, móðir barna hans, en ekki manneskjan sem hún vildi vera..... kannski er það bara nóg fyrir þær....


Vá hvað það er ekki nóg fyrir mig!
ég ákvað það þegar ég var ung að ég myndi ekki fórna mínum draumum og markmiðum fyrir e-n annan...

Kannski hefði ég átt að fæðast sem strákur! það er augljóst að ég myndi allavega hafa fleiri góð spil á minni hendi en ég hef núna! Ég verð bara að spila þeim rétt út, þau spil sem ég hef.

C.V.

ps.
ég ræddi aðeins við Mr. Helgason og fékk það í mig að nokkrir vinir hans eru að elta konurnar sínar í frekara nám, sem er alveg frábæert.. en þetta eru auðvitað ekki algilt.
ég hef séð allnokkrar kunningjakonur mínar bara hverfa fyrir aftan manninn sinn...
mér finnst kominn tími á meiri breytingu!

Þó svo að það sé alltaf verið að segja manni að konan eigi að vera heima.. það var nú bara í grey's um daginn, þá var mamman svo mikil framakona og með au pair heima og barnið slasaðist og au pairið rekið en barnið vildi bara au pairið af því að mamman var aldrei heima... oh búhú! segi ég nú bara...

sunnudagur, janúar 14, 2007

Afmælis helgi!!

Fyrsta Vísó á fredag svo söplæs ammæli .. geðveikt gaman!!!! og maður gleymir alltaf e-u í fyrsta vísó annarinnar...
1. og mikilvægasta reglan er að borða e-ð áður en maður fer í vísó!!! ... very important.

Afmæli á REX á laugardaginn .. svaka fjör... og þvílik stemmning! og dansað allt kvöldið... á domo og vegamótum og það eru alveg harðsperrur í lærunum í dag ;) awesome!

Múttan er komin til landsins og það er voða gaman að fá hana heim .. ég var alveg búin að sakna hennar ..... hún gistir hjá mér þessa dagana..... sem er alveg á báðum áttum... en þröngt mega sáttir búa .. er það ekki .. hehehe..

ég hef verið að spá í einu síðan ég fór á ball með sálinni á nasa fyrir jólin .... mér fannst að íslenskt fólk á böllum og á skemmtistöðum væru ó svo oft alveg rosalega dónalegt.... þeir ryðjast framm fyrir mann á bari, í tröppum og í röðum... það er alveg munur á þessa almennu kurteisi sem er alls ráðandi allstaðar annarstaðar en í skandinavíu ... þá sérstaklega hér á landi ....

úff.. mig langar að fara aftur til útlanda. ég er að spá í að kikja til ömmu á kanarí e-n tímann bráðlega ... just for sem recharging.

skóli kl. 13 á morgun .. .niice!
ætla í sund í fyrramálið ... og líklega í ræktina... nice!

C.V. kveður að sinni .....

sunnudagur, janúar 07, 2007

nytt ar nyir möguleikar endalaust fjör!

Já árið byrjar með stæl..
og satt að segja held ég að þetta komandi ár verði enn skemmtilegra enn það síðasta... þó svo að erfitt mun vera að toppa síðastliðin ár.. það er bara búið að vera svo gaman!!

En það er að myndast plön fyrir 2007 .... og ég er ekki frá því að þetta ár toppi allt saman!

ég mun fara í útskriftarferð, ég mun útskrifast, ég mun vonandi ferðast e-ð meira... kannski profa e-ð nýtt ... og e-ð ennþá meira nýtt.. það er bara aldrei að vita hvað gerist... jeij .. ég elska óvissuna.. hún er spennandi....

Ég er með stillt á sirkus Queen live @ Wembley!!
að horfa að þessa guara... þeir eru að fíla sig svo í botn!! þetta hlýtur að hafa verið algjör draumaferð fyrir þá þegar það loksins komst á skrið.... ég gæti alveg vel trúað því að þetta sé eitt það skemmtilegasta sem maður getur gert...og upplifa þetta með sínum bestum vinum.... sem maður hefur með sér ígegnum þykkt og þunnt!! must be AWESOME!

mig langar allavega í þessa adidas skó sem þeir eru í .. ógo töff maður!

stelpan situr heima í svo fínum kjól.... bara vantar tilefnið .... þarf að finna tilefni .. ætli það verði ekki bara það næsta sem kemur upp .. ég held það nú bara.... það er svo gaman að dressa sig upp ;)

ég er allavega að njóta mín ... eina sem vantar er heitt bað ... og eða heitan líkama undir sæng... any voluntere's? ;)

ætla allavega að fara njóta Freddie boy og félaga...

latz ppl

C.V.

þriðjudagur, janúar 02, 2007

Gleðilegt nytt ar ppl!

sökum þess að síðan sem liggur yfir þessari er alltaf biluð þessa dagana getiði líklega ekki lesið bloggið mitt.. fliss ;)
ég þarf að láta kikja á það ... og kannski líka læra hvernig hún virkar.

Annars er búið aðvera alveg geggjað gaman, fórum upp í bústað gamlársdag við vorum 12 sem fórum 10 sem gistum .. og þetta var alveg brjálað gaman og alveg frá því að við mættum ....

við vorum með þvílíka dagskrá... klára að undirbúa matinn, skreyta allt fyrir ammælið og kvöldið og svo taka sig til ...
en þetta tókst allt saman og heppnaðist alveg með einsdæmum vel!!! það er alveg líklegt að þetta verði endurtekið aftur á næsta ári!!

ég kom út með mesta peningana.. lol.... 4 af 5 ávísunum skrifaðar.. lol.... ég komst af mörgum leyndarmálum.... lol ......oh boy ... ég þarf að fá myndir og setja inn .. því þetta var algjör snilld!!

núna sit ég heima að undirbúa mig fyrir prófin i lok vikunnar... merkilegt hvað tíminn er fljótur að líða... en samt ekki ...

Hlakka til að fá smá pásu áður en skólinn byrjar... spá í að taka mér smá tíma í að lesa bækur og kannski fara í sund... mmm.... sund og heiti pottur.... mmmm ...

jæja.. ég er á leið upp í skóla að læra.... það verður gaman...
alltaf gaman að vera upp í skóla.... alltaf fjör þar...

ég hef ekkert að segja...obviously .....
þannig að ég kveð ... ekki með látum....
C.V.W.