þriðjudagur, október 24, 2006

princesses & tomboys

ég fygldi ungri dömu í skólann um daginn og vorum við að ræða ýmsa hluti saman.. svo sem stráka og kossaleiki og knús leiki...
þar sem hún er enn of ung (aðiens 6 ára) þá er þetta auðvitað tímabilið rétt áður en kossar og knús verða hótanir og ógeðsleg.. hehe

ég endaði á að ræða þetta við mömmu hennar og byrjaði aðeins að rifjast upp fyrir okkur hvernig þetta var þegar við vorum á þessum aldri.... vinkona mín auðvitað var litla sæta ljóshærða stelpan (we all know who she is, there is one in every class) og hún var einmitt í þessum kossaleikjum og 2 mín í helv. og hvað man maður ekki ....

þá fór ég að rifja þetta upp.... óh boy ... hvað ég var allt allt allt öðruvísi .... ok hún var litla ljóshærða sæta stelpan.... ég var freknótta rauðhærða dýrið sem var ein af strákunum....
ég var að veiða froska og engissprettur og eðlur.. og faldi þetta allt saman undir eða fyrir aftan rúmið mitt....
ég var í leikjum með strákunum að smíða og í boltanum ... ég man ekki hvað ... ég lék mér í bíló í sandkassanum og mér fannst He-Man miklu meira kúl heldur en bróður mínum...... ég ss. fékk að leika með kastalann og tígrisdýrið hans He-mans og með Skeletor og læti... btw She-ra fékk ekki að vera með!
já .. ég samt neita því ekki .... ég átti fullt af barbí dóti og mér fannst það líka ógeðslega skemmtilegt.. og ég á í geymslunni fullt af því enn þá .....

ég samt flakkaði vel á milli stelpnanna og strákanna... svo lengi sem stelpurnar voru ekki of stelpulegar..

vinkona mín .. hún var þessi prinsessa þið vitið ... alltaf í stelpuleikjunum ... hún lék með She-ra.... og var í kossaleikjunum ...
ég veit ekki alveg hvernig þessar stelpu stelpur eru ... en you catch my drift, right...

það er bara svo fyndið hvað þetta segir margt um mann í dag... munurinn á mér og vinkonu minni er alveg augljós... hún er svona meiri dama en ég, kvenleg og glæsileg með eindæmum.....

mér finnst ég vera soldið eins og sportíspice.... bara sætari ... og aðeins kvenlegri ;)
mér fannst þetta svo augljóst um daginn.. sé eftir því ða hafa ekki skrifað þettta þá ... þá var ég með þetta allt útpælt..

En já .. þetta var fyrsti hluti færslunnar...

næsti hlutinn verður skemmtilegri...

En staðan í dag er sú að sambönd kvk og kk hafa þróast í alveg nýja átt... að því að mér finnst.... mér finnst að konurnar/stelpurnar séu orðnar ákveðnari.. og strákarnir orðnir vægari.. minna ágegnir.. en það á auðvitað ekki um alla... en marga.... En eftir smá umhugsun um samræður sem ég átti við vini míni um daginn þá kom þetta upp....

Kvenfólk í dag eru margar hverjar orðnar mjög sjálfstæðar, ákveðnar og markmiðssettar... þær vita hvað þær vilja og fara oft eftir... þetta leiðir af sér auðvitað að margir karlmenn eru orðnir minna ákveðnir... ganga kannski minna eftir hlutunum sem þeir vilja .... og þá er ég ekki að meina á vinnumarkaðnum.... þar hafa þeir flestir há markmið og vilja ná langt...
mér finnst samt vera mjög mikil samræmi í því að karlmenn með markmið eru ákveðnari í ástarmálunum en karlmenn með minni markmið og eða ligeglad hugsunina.
Ég vil samt ekki categorizera fólk .. ég get alveg tengt þessa með háu markmiðin á vinnumarkaðnum með minni ákveðni á öðrum sviðum ... og öfugt.. það er aldrei hægt að staðhæfa þetta algjörlega.
eins með konurnar... sumar td myndu aldrei reyna við gaur að fyrra bragði... meðan aðrar taka alveg strákinn á þetta... þið vitið ... hafa gaman í smá stund og missa svo áhuga... well hey .. it's obvious it wasn't meant to be ;)

en svona í smá ps. frá síðustu færslu...
fólk er svo misjafnt.. það tekur stundum sumum manneskjum aðeins lengri tíma til að fatta hvað er rétt og hvað er ekki rétt fyrir það. Fólk er samt svo missjafnt .. þó svo að margir haldist enn innan ákveðins forms.
Það eru svo margir sem halda framhjá og hvers vegna gera þeir það?
Það eru líka margir sem eru kannski í sambandi en eiga svo í öðruvísi sambandi.. kannski ekki líkamlegu en andlegu við aðra persónu. hvernig skilgreinir maður það ... það er ekki líkamlegt framhjáhald en er það er andlegt framhjáhald?


jæja..
Clara ... the tomboy

miðvikudagur, október 11, 2006

Pælingar..... svolitið dypri pælingar

Sambönd... þá erum við að tala um dágóðan tíma.. þið eruð búin að kynnast.. vitið alveg hvernig hinn aðilinn virkar... á sá tími ekki að vera unaðslegur..... kannski fellur maður inn í rútínu .. kannski tekst manni að halda því fersku og spennandi .... en samt.. á maður ekki að vera hamingjusamur.... sjá sig eldast saman og unga út börnum og hvíta girðingin og hundinn .. þið vitið allan pakkann....

Það hefði ég haldið .. alla vega langar mig soldið í það ... ég er nú einu sinni stelpa... ég gæti auðvitað farið bara í nunnuklaustur eða hreinlega brynjað mig frá ástinni eins og hún Lóló í laugum gerir (skv. DV síðustu helgi) En where is the fun in that?!?! Life is supposed to be fun, fullt af skemmtilegum mómentum, andartökum og ævintýrum.... td. langar mig geðveikt að horfa á sólarupprásina af toppnum á Esjunni.... er e-r til? ég skal koma með smá heitan lögg... annars þurfum við bara að halda okkur saman til að halda hlýjunni ;) hihi...

Það er samt eitt sem er að valda mér miklu hugarangri og sem ég skil bara hreinlega ekki og það er af hverju fólk vill vera saman þegar það er óhamingjusamt... halda þau að þau séu í alvöru hamingjusöm?

mitt álit á samböndum er að sambönd eiga að bæta mann upp.. ss. gera báða aðila hamingjusama... að báðir aðilar blómstri og hafa gaman af að vera saman. ... að það sé ekkert sem að hindrar fólkið í að vera eins og það vill....
Það á að vera gaman saman, spennandi ... og maður á að vera frjáls en hamingjusamur saman... byggja sig upp saman að betri manneskjum... ekki brjóta mann niður eða gleyma sjálfum sér....

Af hverju haldast aðilar í sambandi þegar það er ekki hamingjusamt? .... eru það þægindi? uppgjöf? reynsluleysi? vani?

mér hefur skilst að fólk í óhamingjusömum samböndum haldist saman út af vana og þægindi.... út af foreldrum eða börnum.... halda áfram að vera saman óhamingjusöm ... út af öllum öðrum ástæðum en sjálfan sig.....

kynlíf?.. það er alveg hægt að stunda gott kynlíf með e-m öðrum en nákvæmlega þessum aðila... kannski meira að segja betra...
væntumþykja.... ég þori að veðja að það er e-r annar þarna úti sem gæti gert þig hamingjusamari en þú ert akkúrat núna... !

mér finnst voða gaman að vita að e-r hugsi til mín þarna úti.... mér finnst enn skemmtilegra þegar aðiliinn segir það við mig....
en mér finnst líka gaman að vera með e-m sem þykir vænt um mig ... og vill gera mig hamingjusama..... mér finnst hinsvegar alveg óréttlátt að vera með aðilanum ef tilfinningar mínar eru ekki eins... þá vantar bara e-ð upp á..... e-ð meira ... þó svo kannski við höfum voða gaman saman... og allt það .... en ég gæti ekki gert hinum aðilanum það .. því miður.... !

En síðan las ég e-r staðar um framhjáhöld... kvenmenn tengjast tilfinningalegum böndum þeim sem þær sofa hjá .. það bara gerast.. það að stunda kynlíf með e-m er svo persónulegt fyrir þeim.. ( í flestum tilvikum) ... strákar hins vegar... þegar þeir þrufa þá þurfa þeir..og það er alveg sama hvert þeir kikja inn.. svo lengi sem þeir fá að tappa af.... lol...
Þannig stelpur... þótt að kallinn haldi framhjá þá er það ekki honum að kenna.. annað hvort ert þú ekki að sinna manninum nógu vel .... eða hann er kynlífs fíkil....

*ég tek það framm ég las þetta e-r staðar... I don't believe it!* .... strákar jafnt sem stelpur vita alveg hvað þau eru að gera... og ef maður vill ekki freistast .. þá heldur maður sér frá syndinni .... þannig er það bara.....

Clara

mánudagur, október 09, 2006

og meira..?

ég sé að ég hef hitt e-a taug þarna í síðust færslu .. frábært... alltaf gaman að skapa smá umræðu....

en ok . . höldum áfram....
í sumar hefur bókin "he's just not that into you" verið mjöööööög svo vinsæl.... og þó að ég hafi ekki lesið hana.. reikna ég alveg vel með því að hún sé mjög skemmtileg... að því sem ég hef heyrt eru margar fyndar sögur þarna...

en talandi um að fría karlpeninginn frá ALLRi Ábyrgð!!!.... ok .... hittir e-n strák þið hafið mjög gaman ..kannski 1-2 kvöldstundir og svo bara heyrist ekkert í honum meira.... já alveg rétt... he's just not that into you.....i ...... nei í staðin er allt gott og blessað með það ...það er það bara alls ekki ..... stelpum jafnt sem strákum fíla ekki að vera dissuð... sérstakelga ef það var í alvörunni gaman.... Show some respect og segðu það við okkur...!! í alvöru .. við munum ekki fara að gráta.. við munum ekki verða hysterískar.. það er í alvörunni hægt að eiga alvarlegar samræður við kvenþjóðina án þess að við spilum inn á samviskubitið hjá strákunum....... og stelpur.... það er bara mean að spila inn á samviskubitið .... if it isn't meant to be.. then it isn't meant to be......

Mér fyndist það bara mjög þroskað ef ég væri að hitta e-n sem segði við mig... " veistu ég held að þetta sé ekki alveg að ganga, þetta samband hefur ekki það sem ég er að leita að !" ok harsh og já mér myndi líklega finnast þetta leiðinlegt... en ég myndi frekar meta hreinskilnina... frekar vita nákvmælega hvar ég stend heldur en að félaginn myndi bara gufa upp..... takið þetta til sín sem eigið það skilið!

Ég veit td. að félagi minn myndi frekar detta niður dauður en að segja við stelpu að hann bara væri ekki hrifinn af henni .... frekar skiptir hann um msn, síma, heimilisfang og nafn en að vera hreinskilin um svona .. merkilegt ha?

Come on!!! af hverju ekki að segja við dömuna.. hey.. þú ert þrælskemmtileg en mér finnst bara e-ð vanta upp á ... ég held að þetta gangi ekki...!

Af reynslu þá fíla ég betur hreinskilnina.... Strákar og stelpur .. það eru fleiri fiskar í sjónum .... og af hverju ekki bara hafa gaman af þvíað kynnast nýju fólki, nýjum aðstæðum og nýrri fræði ;) if you catch my drift.... ;):P

Ég hugsa þannig að ef ein hurð lokast opnast önnur.... og alltaf hafa gaman ;) ... ... if it's not meant to be .... you could at least have some FUN!

XXX
C

föstudagur, október 06, 2006

svona sma fyrir ykkur....

nokkrir félagar hafa kommentað hjá mér og nefnt við mig að textinn sem ég skrifaði um samskipti kynjana hafi haft smá sannleiks korn í sér. Auðvitað á þetta allt við rök að styðjast, því þetta gerist á hverjum degi.

Þegar maður kynnist e-m spennandi eða rekst á e-n þá stekkur maður ekki bara til að býður manneskjunni út eins og maður sér oft í hollívúdd myndum. Neeeei .. sko alls ekki .. hér á íslandi gilda allt aðrar reglur .. en það er auvðitað alveg löngu vitað.... enda sérlega fræg djammmenning hér á landi.

En af hverju er ekki stefnumenning,ég reyndar veit að það er e-r smá í gangi... en það lítil að maður heyrir varla af því ... þetta er allavega ekkerrt sex and the city dæmi þar sem við vinkonurnar sitjum og ræðum deiti vikunnar saman yfir brunch ...
Af hverju ekki stökkva til að breyta þessu aðeins til ... ég er allavega að spá í að fara gera það aðeins... taka mig til og kannski bjóða sætum strák upp á kaffibolla eða te.. og kynnast kannski aðeins betur... ekki bara þetta stanslausa "kannski hittumst við næstu helgi, á djamminu .. !!" so nineties-jú-nóv!!

Strákar .. hættið að vera svona feimnir..... Það er alveg hægt að brjóta niður ytri skelina og bjóða e-m út.. hvort sem maður þekkir manneskjuna eða ekki ... og það sakar ekki rabba saman aðeinsbara yfir kaffibolla .. til að sjá hvort það sé e-ð spennandi sem leynist þarna undir.. maður þarf ekki alltaf að prufukeyra áður en lengra er farið ... stundum er fólk í alvöru skemmtilegt utan rúmfræðinnar... sjáðu bara mig .. ég er æði .. og ekki stunda ég rúmfræði ... !! (skírlifi all the way!!)

og hvað er málið með 3 daga regluna!!! OMG erum við ekki alveg komin með nóg af henni ... "má ekki hafa samband of snemma, might seem too eager" .. "má ekki hafa samband of sein, virðist of áhugalaus"... sem er auðvitað mjög rétt...
en það er líka allt í lagi að hringja kannski daginn eftir ef viðkomandi aðlil veit að hinn viðkomandi aðilinn er ekkert að gera.... Um að gera bara að hringja... sýnir karakter! sýnir meiri áhuga!...enda erum við ekki feimnir unglingar lengur.. komin með smá reynslu á ýmsum sviðum... áherslur eru bryetta... maður er orðinn þroskaðri ... ..... ... á sumum sviðum allavega ;)

Sms svo sem í lagi .. allt í lagi svona þegar maður er kannski að kynnast...
kannski er ég að verað pínu gömul... en e-a hluta vegna vil ég sjálf núna að e-r hringi í mig.. bara svona til að sýna meiri áhuga... Sms eru þó góð fyrir feimna.. en maður verður samt að byggja sig upp og kannski ef til vill hringja eitt símtal.. svona til að brjóta ísinn... gerir það alltaf auðveldara fyrir næsta símtal.. það fyrsta er alltaf erfiðast!!

æj .. ég veit ekkert hvað ég er baula hérna.... hugurinn er bara annar staðar þegar maður á að vera í prófum...

en ef ykkur líst vel á þetta.. kommentið endilega og ég skal kannski bæta við fleiri pælingar sem ég hef verið með...

en forvitnin hjá mér þessa dagana liggur í hverjir eru alltaf í heimsókn á síðunni minn .... :o

whoooo aaaaaare youuuuu.... sagt eins og margfættlan í lísu í undralandi... btw.. sá sem gerði myndina hefur verið þvílíkt steiktur!!! ég hló frá mér allt vit þegar ég á verkjó... hafði ekki séð fyndnari mynd lengi .... byrjaði svo að horfa á hana um daginn ... og omg!!! sýrutripp!!!

fimmtudagur, október 05, 2006

miðönn

jáabb.. þá er þessi önn hálfnuð ..og hvað þýðir það .. jú stöðupróf, miðannapróf eða hreinlega lærdómsmadness!!!
en það þýðir líka að próftaflan er birt...
að þessu sinni byrjar jólafríið mitt 7.desember.. jeij!!aftur á móti verður það alveg svakaleg törn.. sem þýðir það að ég hef sjövikur til að verða mér vel að í 4 fögum því þau lenda eiginlega öll í röð... og 2 erfiðustu prófin eru alveg í röð og ég fæ 1 dag til að undirbúa mig undir það fyrra.. oh boy ...

en það verður bara ógó fjör.. vúhúú !! ...
en já .. miðönn ... stöðupróf...
var í prófi í gær... var með kynningu í kvöld.. lokapróf á morgun og svo próf í viðskiptalögfræði á mánudaginn .. jeij ....
já þetta rokgengur allt saman ... life is fun....

ég er búin að skrifa 2 önnur blogg.... er með þau geymd... bæði um kk og kvk og sambönd.... mín skoðun.. svona eins og mín skoðum á Xfm 9,19 nema ekki um fótbolta... heldur um stráka og stelpur.. my opinion....

á maður að birta eða bara sleppa því .. good question .. hvað finnst ykkur?!?

Annars var KF NÖRD vs. FH í gær á Laugardalsvelli!!! og ég get ekki neitað því hvað ég er ótrúlega stolt af strákunum!!! öllum saman!! þið stóðuð ykkur eins og hetjur!!! þetta var alveg fáránlega flott! Sat auðvitað í VIP stúkunni .. í áhorfenda stúkunnu ... meðal tæplega 8.000 manns.... ertu ekki að grínast!!! það verður fátt sem mun geta toppað þetta hjá strákunum .. það er allavega á hreinu!!!!!

jæja... mín ætlar að halda áfram að læra... er að spá í að bjarga vinkonu minni á morgun... hún er smá rauðvínsinfestation á morgun .. þannig að það stefnir í smá útrýmingu á rauðvíni hjá henni ... langt síðan maður hefur verið í þeirri iðju ... þeas. stúta rauðvini .. lol!!

oh well... 10 krossa lokapróf á morgun ... hvernig mun það enda....

Lot's of love..... eins og þeir segja í bretlandi ...... mig langar að fara þangað ....

kv.
Clara