nokkrir félagar hafa kommentað hjá mér og nefnt við mig að textinn sem ég skrifaði um samskipti kynjana hafi haft smá sannleiks korn í sér. Auðvitað á þetta allt við rök að styðjast, því þetta gerist á hverjum degi.
Þegar maður kynnist e-m spennandi eða rekst á e-n þá stekkur maður ekki bara til að býður manneskjunni út eins og maður sér oft í hollívúdd myndum. Neeeei .. sko alls ekki .. hér á íslandi gilda allt aðrar reglur .. en það er auvðitað alveg löngu vitað.... enda sérlega fræg djammmenning hér á landi.
En af hverju er ekki stefnumenning,ég reyndar veit að það er e-r smá í gangi... en það lítil að maður heyrir varla af því ... þetta er allavega ekkerrt sex and the city dæmi þar sem við vinkonurnar sitjum og ræðum deiti vikunnar saman yfir brunch ...
Af hverju ekki stökkva til að breyta þessu aðeins til ... ég er allavega að spá í að fara gera það aðeins... taka mig til og kannski bjóða sætum strák upp á kaffibolla eða te.. og kynnast kannski aðeins betur... ekki bara þetta stanslausa "kannski hittumst við næstu helgi, á djamminu .. !!" so nineties-jú-nóv!!
Strákar .. hættið að vera svona feimnir..... Það er alveg hægt að brjóta niður ytri skelina og bjóða e-m út.. hvort sem maður þekkir manneskjuna eða ekki ... og það sakar ekki rabba saman aðeinsbara yfir kaffibolla .. til að sjá hvort það sé e-ð spennandi sem leynist þarna undir.. maður þarf ekki alltaf að prufukeyra áður en lengra er farið ... stundum er fólk í alvöru skemmtilegt utan rúmfræðinnar... sjáðu bara mig .. ég er æði .. og ekki stunda ég rúmfræði ... !! (skírlifi all the way!!)
og hvað er málið með 3 daga regluna!!! OMG erum við ekki alveg komin með nóg af henni ... "má ekki hafa samband of snemma, might seem too eager" .. "má ekki hafa samband of sein, virðist of áhugalaus"... sem er auðvitað mjög rétt...
en það er líka allt í lagi að hringja kannski daginn eftir ef viðkomandi aðlil veit að hinn viðkomandi aðilinn er ekkert að gera.... Um að gera bara að hringja... sýnir karakter! sýnir meiri áhuga!...enda erum við ekki feimnir unglingar lengur.. komin með smá reynslu á ýmsum sviðum... áherslur eru bryetta... maður er orðinn þroskaðri ... ..... ... á sumum sviðum allavega ;)
Sms svo sem í lagi .. allt í lagi svona þegar maður er kannski að kynnast...
kannski er ég að verað pínu gömul... en e-a hluta vegna vil ég sjálf núna að e-r hringi í mig.. bara svona til að sýna meiri áhuga... Sms eru þó góð fyrir feimna.. en maður verður samt að byggja sig upp og kannski ef til vill hringja eitt símtal.. svona til að brjóta ísinn... gerir það alltaf auðveldara fyrir næsta símtal.. það fyrsta er alltaf erfiðast!!
æj .. ég veit ekkert hvað ég er baula hérna.... hugurinn er bara annar staðar þegar maður á að vera í prófum...
en ef ykkur líst vel á þetta.. kommentið endilega og ég skal kannski bæta við fleiri pælingar sem ég hef verið með...
en forvitnin hjá mér þessa dagana liggur í hverjir eru alltaf í heimsókn á síðunni minn .... :o
whoooo aaaaaare youuuuu.... sagt eins og margfættlan í lísu í undralandi... btw.. sá sem gerði myndina hefur verið þvílíkt steiktur!!! ég hló frá mér allt vit þegar ég á verkjó... hafði ekki séð fyndnari mynd lengi .... byrjaði svo að horfa á hana um daginn ... og omg!!! sýrutripp!!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
20 ummæli:
Nakvaemlega... strakar hvad er malid, just start calling!! Eda er tad kannski lika soldid 90's ad strakar turfi alltaf ad hringja???
Ég hef alltaf hringt daginn eftir þegar eitthvað hefur verið í gangi og flestir félagar mínir þegar ég hugsa út í það...
Getur verið að þú þekkir bara ranga fólkið? ;)
Ætli það séu ekki bara til tveir strákaþjóðbálkar. Sumir hringja og sumir ekki. Helgi, þú ert greinilega one of the good ones.
af hverju að pirra sig á þeim sem ekki hringja??? þetta er bara þeirra missir.
Eftir að ég las þarna He's just not that into you þá bara frelsaðist ég, fjandinn hafi það... hugsaðu bara þannig; ekki ætla ég að eyða tíma í einhvern sem er bara just not that into me :)
Clara þú ert búin að fría stelpur ábyrgð á allan hátt. Þessu verður svarað í lengra máli á mínu blog.... um leið og ég kemst yfir þynjuna.
Eva - Just do what you want... þá fær maður oft það sem maður vill
Helgi - þú ert einn af góðu strákunum það vitum við :)
Silla - af hverju að bíða eftir þeim.. maður þarf bara að taka málin í sínar hendur. svo lít ég á það.
Úlli - fría undan allri ábyrgð? alls ekki ... af hverju þurfa þeir alltaf að ráða?
Eva:
Ég bara veit ekki númerið þitt... er samt alltaf að safna kjarki til að hringja.
Svo meika ekki allir síma, eru með einhverja fóbíu - þetta er ekki svo auðvelt.
ok, allt í lagi að taka málin í sínar eigin hendur ef að gaurinn er "just that into you" en varstu ekki að tala um menn sem ekki vilja eða þora að hringja - ég lít svo á að þá finnist gaurnum maður ekki nógu eftirsóknarverð og túlka það sem að hann sé ekki into me.
en ég skal fyrr dauð liggja en að eltast við einhvern sem vill bara láta eltast við sig upp á egóið en sýnir enga tilburði til að gera neitt í því sjálfur. Það eru takmörk fyrir því hversu mikið hard-to-get menn geta orðið
Ef maður finnur straumana og fílar gaurinn af hverju þá ekki hringja? Stelpur mega alveg taka fyrsta skrefið. En ef gaurinn er of huglaus til að segja að hann hafi ekki áhuga og hefur ekki samband á móti þá má hann eiga sig. Hann má líka eiga sig ef hann er ekki með eistu til að hafa samband þegar hann hefur áhuga.
Jón Orn: Hlaut ad vera, eg er einmitt buin ad vera svo hart broken ad tu sert ekki buin ad hringja ennta;)
En eg akvad samt eftir tetta blogg ad taka bara fyrsta skrefid, tok reyndar bara halft skref og sendi sms a gaur sem eg hef bedid eftir ad myndi hringja.. ýkt dúleg ég!
Eitt klapp fyrir Evu!!!!!
Vó...
Ekki vera svona snögg að svarthvít stimpla stráka.
Það vill engin stelpa strák sem er of ,,eager"
á sama hátt og enginn strákur vill stelpur sem er of ,,eager".
Þið vitið þetta...
Og þetta á líka við um konur sem vilja konur - karla sem vilja karla...
Við erum öll svo lík eitthvað...
það er alveg rétt.. það má ekki stimpla neinn... og þetta á auðvitað við bæði kynin....
mín hugsun er bara sú að ef maður finnur fyrir e-u ... af hverju ekki bara ýta undir það ... það er alltaf smá tækifæris gluggi .. af hverju ekki að taka það ... sama hvort maður sé stelpa eða strákur ... að eltast við stelpu eða strák...
og það er bannað að kommenta anonymously!!!! grrrr...!!
Þetta var óvart.... þetta anonymous komment var ég....
Ekki lemja mig Clara....
þú hefur sært mig nóg með því að hringja aldrei í mig.
jón minn.. ég hringi kannski ekki í þig daglega.... en aftur á móti tala ég við þig daglega... er það ekki nóg? ;) .... hehehe...
Msn styttir mann stundir og léttir á símreikningum ;)
Ja er tad ekki bara malid?? Haettum ad skiptast a simanumerum og faum bara msn adressu! Ta tarf ekki annad en ad adda manneskjunni og enginn tarf ad taka skrefid ad hringja!
nei alls ekki .. það verður svo rosalega ópersónulegt! maður gerir svo margt og segir svo margt á msn sem maður myndi aldrei þora að segja in person.
Maður á að reyna brjóta þessa höft og segja það sem maður vill og getur in person... hafa þetta persónulegt.. þá sér maður líka betur viðbrögðin....
við þurfum ekki á tækninni að halda til að hjálpa okkur í samskiptum við annað fólk!!!
En simi er lika taekni!! Sammala ad msn getur ordid opersonulegt, en samraedur tar geta bara ordid svo skemmtilegar og taer eru allaveg betri kostur en ad senda sms!
Tjaa en msn er með nudge en ekki síminn.
Skrifa ummæli