mánudagur, janúar 28, 2008

Er leti í gangi eða hvað!

Eftir átakanlegan desember mánuð og annasaman janúar hefur löngun mín til að setjast niður og skrifa litla bloggfærslu, verið engin. Það hefur varla verið kveikt á tölvunni eftir vinnu, allavega ekki safari og msn.

Ég get ekki sagt að löngunin sé mikið í gangi núna heldur, en þar sem ég sit enn niðrí vinnu, að reyna skrifa e-ð fyrir skólann, ákvað ég að slá til.
Það er komið heljarinnar átak í gangi, löngun í að skreppa til Köben með A.Ch. er mikil, til að heimsækja fræknu stelpurnar mínar þar sem ég verð að viðurkenna, ég er að sakna alveg ógurlega!! en skype-ið bjargar, þannig hjólaskautastelpa, fáðu þér skype!

Útþrá er komin á hátt stig og þar sem allir eru að fara burt í e-n tíma gæti ég svo sem líka gert e-ð álíka.. heheh .. nota tímann meðan allir eru í burtu ... ;)

annars er það eina að frétta að það eeeeer að byrja brjálað átak í vinnunni .. ég er reyndar byrjuð, því 6 vikur af slökun er bara eitur! maður má ekki láta sjá að maður er í slæmu formi!!!
Bs heldur áfram .. vonandi tekur hann styttri tíma og enska er skemmtilegt tungumál!

that's all folks...
C.V