miðvikudagur, júlí 26, 2006

Fiðrildi að ná fótfestu?

eins og sumir vita hef ég verið mjög mikill "flakkari" í gegnum tíðina, flutt mikið milli foreldra minni í sitt hvoru landinu einnig flutt mikið milli húsnæða hérna.. sérstaklega eftir að ég flutti heim aftur 2002.

Eftir að ég byrjaði í Hr, hef ég reyndar náð meiri fótfestu í lífinu, margar breytingar hafa átt sér stað og allar til hins betra að því er mér finnst :)

Eitt af því sem að mér finnst best, fyrir utan allt þetta frábæra fólk sem ég er búin að kynnast, er íbúðin sem ég fékk hjá BN. Þar er ég núna búin að vera síðan um mið júní 2005 sem þýðir að ég er búin að búa á sama staðnum í meira en 1 ár!! eitthvað sem hefur ekki gerst síðan ég var 13-14 ára...

Og satt að segja.... líkar mér það mjög vel. Ég kann mjög vel við það að hafa allt dótið mitt uppi og í kringum mig. Ég kann vel við það að vita að ég þurfi ekki að fara leita mér að nýju húsnæði og fara flytja bráðlega aftur. Þótt ég viti að ég þurfi að flytja þegar ég lýk námi þá veit ég líka að það er ekki strax... T.G.!

Svo er líka spurningin hvort ég fari erlendis í áframhaldandi nám eða verði áfram hérna, þá þarf ég ekki að flytja burt úr litla kotinu mínu strax :) En það kemur bara allt í ljós á næsta ári...

Ég hlakka mikið til því eftir mánuð því þá flytur hún Fjóla yndið mitt inn í húsið við hliðin á, og þá fjölgar nú aldeilis frábærum nágrönnum.
þá fæ ég e-n til að njóta með mér góðu kvöldin úti á veröndinn minni ... með tebolla eða góðu rauðvíni... mmmmmm....

Með bestu farsældar kveðjur og með sumar í hjarta
Lifið heil og lengi vinir mínir!
Clara V.

To whom it might concern:(þú veist hver þú ert, ekki þú Jón Örn) Annars verð ég að segja að ég var ánægð að rekast á þig. Pleasant surprise, þegar litið er tilbaka og spjallið var gott.

laugardagur, júlí 22, 2006

Geðsjúklingar og skandale!

Föstudagskvöldið 21. Júlí um 1.30 var töskunni minni stolið inni á REX í fm-partýi eftir Pirates of the Carabien. Í töskunni minni voru lyklarnir mínir, kort og síminn ásamt smádót eins og glossar.

Ég stóð við hliðin á töskunni þegar hún var tekin þannig að þetta er mjög einkennilegt. Það sem er verra er þó að viðkomandi aðili sem tók töskuna ákvað að senda karlkyninu í símanum mínum frekar ósmekkleg og dónaleg sms.
Því miður hef ég ekki náð á flesta aðilana þar sem ég er enn símalaus og verð það þangað til í kvöld og auðvitað er ég ekki með numerin hjá neinum.
Þannig að ég á líklega von á ljótum skilaboðum á eftir.

Ég vona að þið þekkið mig betur en að senda svona sms og hvað þá um miðja nótt þótt það sé helgi. Ef manneskjan hringdi í ykkur vona ég að e-r hafi komist að því hver þetta er.

Mér þykir fyrir þessu en ég vona enn og aftur að þið þekkið mig betur en þetta.

annars sendið mér endilega símanr. ykkar því mig vantar öll nr aftur.

Eigið góða helgi og verið góð við hvort annað, það er óþarfi að vera leiðinlegur við aðra.
What goes around comes around.

Clara

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Insomnia..

Goood morning everyone...

Clara the insomniac er mætt aftur á sviðið... ég hef lítið sofið síðastliðnar nætur.. ástæður gætu verið eftirfarandi

a. ískápurinn er bilaður og in need of defrosting, vonandi að það sé nóg.
b. það er enn of bjart úti.
c. nágranninn með hælana sem er alltaf á vappi inni hjá sér
d. frænka mín lést á föstdaginn og ég er ekki enn alveg búin að ná tökin á því að höndla dauðann.
e. feng Sui er í rugli heima hjá mér því ég hef ekki nennt að taka til.
f. ég er ooof spennt að fá frænkur mínar heim á laugardaginn :D:D
g. mér hreinlega leiðist að sofa, og hvað þá sofa ein, maður getur sofið þegar maður verður gamall.
h. leit mín að svörum við spurningum lífsins halda mér vakandi.

ég gæti ef til vill fundið e-r fleiri ástæður.. en þar sem ég er í vinnunni núna nenni ég ekki að spá of mikið í hlutunum.
ég er búin að vera þessi morgunhressa manneskja.. vöknuð kl. 6 og mætt í vinnuna svona gífurlega snemma.... enda ekkert annað í boði þegar maður tekur almennings samgöngur upp í hafnarfjörð ... en það er mjög fínt.. ég næ morgunsólinni og sef ekki morgunin frá mér.... sem er alveg yndislegt!

Tók mig til í gær eftir heimsókn frá ömmu og tók sko til heima hjá mér... tók meira að segja til allstaðar í íbúðinni, í skápum og skúffum, nema inní geymslu því ég er með fullt af fötum sem ég ætla að gefa í rauða krossinn...
tók meira að segja til í bókhaldinu mínu, ég er nebbla þessi manneskja sem hendir alltaf reikningsyfirlitum og öllum "offical"pósti beint ofan í skúffu þannig að í gær ákvað ég nóg komið og tók bæði bókhaldið mitt og mömmu í gegn... ánægð með mig :D

Það er kominn tími á breytingar, sérstaklega þar sem ég er búin að vera í ræktinni núna í 9 mánuði og ok ég er að byggja umm svaka vöðvamassa en samt léttist ég ekki ... þannig nú er það bara harkan sex... núna er það bara strict diet og ekkert auka rugl. Reyndar veit ég að ég mun fá að heyra nokkur ókvæðisorð frá sumum félögum með sumar ákvarðanir en ef maður vill sjá árangur þá verður maður líka að vinna fyrir því .. með blóð, svita og tár.

Svo langar mig að nota tækifærið og óska Völu Húnbó til hamingju með 15 merkur strákinn sem hún eignaðist sunnudaginn 16. júli!
Innilega til hamingju skvísan mín! ég vonast til að sjá þig sem fyrst :D

Svo legg ég til að fólk commenti með hugmyndir um hvað maður á að gera um verslunarmanna helgina... stemmningin er svona frekar róleg en ég er alveg opin fyrir öllu :D

Commenta fólk!!!

Claran kveður.. ætla að eyða deginum í sundi... þannig allir eru velkomnir.. ég verð á bakkanum e-r staðar... nema ég endi á að sitja fyrir utan hjá mér að njóta dagsins!!

Gleðilega Sól, gott fólk!