miðvikudagur, júlí 26, 2006

Fiðrildi að ná fótfestu?

eins og sumir vita hef ég verið mjög mikill "flakkari" í gegnum tíðina, flutt mikið milli foreldra minni í sitt hvoru landinu einnig flutt mikið milli húsnæða hérna.. sérstaklega eftir að ég flutti heim aftur 2002.

Eftir að ég byrjaði í Hr, hef ég reyndar náð meiri fótfestu í lífinu, margar breytingar hafa átt sér stað og allar til hins betra að því er mér finnst :)

Eitt af því sem að mér finnst best, fyrir utan allt þetta frábæra fólk sem ég er búin að kynnast, er íbúðin sem ég fékk hjá BN. Þar er ég núna búin að vera síðan um mið júní 2005 sem þýðir að ég er búin að búa á sama staðnum í meira en 1 ár!! eitthvað sem hefur ekki gerst síðan ég var 13-14 ára...

Og satt að segja.... líkar mér það mjög vel. Ég kann mjög vel við það að hafa allt dótið mitt uppi og í kringum mig. Ég kann vel við það að vita að ég þurfi ekki að fara leita mér að nýju húsnæði og fara flytja bráðlega aftur. Þótt ég viti að ég þurfi að flytja þegar ég lýk námi þá veit ég líka að það er ekki strax... T.G.!

Svo er líka spurningin hvort ég fari erlendis í áframhaldandi nám eða verði áfram hérna, þá þarf ég ekki að flytja burt úr litla kotinu mínu strax :) En það kemur bara allt í ljós á næsta ári...

Ég hlakka mikið til því eftir mánuð því þá flytur hún Fjóla yndið mitt inn í húsið við hliðin á, og þá fjölgar nú aldeilis frábærum nágrönnum.
þá fæ ég e-n til að njóta með mér góðu kvöldin úti á veröndinn minni ... með tebolla eða góðu rauðvíni... mmmmmm....

Með bestu farsældar kveðjur og með sumar í hjarta
Lifið heil og lengi vinir mínir!
Clara V.

To whom it might concern:(þú veist hver þú ert, ekki þú Jón Örn) Annars verð ég að segja að ég var ánægð að rekast á þig. Pleasant surprise, þegar litið er tilbaka og spjallið var gott.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hlakka svo til að flytja inn við hliðiná þér. Bíð þér í rauðvín úti á svölum strax fyrsta kvöldið.

Nafnlaus sagði...

Vá hvað ég hlakka til ... svo má ekki gleyma að skála kannski í kampavíni ;) .. hihih .... now this is life ;) :D

Nafnlaus sagði...

Ég er svoldið sár ...

ó jæja

Nafnlaus sagði...

Elsku Clara, það er svo gott að heyra hvað þú ert sátt :) Þið Fjóla eigið eftir að hafa það endalaust gott saman þegar hún flytur... Þurfum svo að fara að slá upp í eins og eitt gott partý fljótlega!! En by the way hvaða hottie gaur er þetta með þér á einni myndinni??? mynd 4.. er hann á lausu?? haha ;)
Góða skemmtun á Belle og Sebastian í kvöld!!
Luv, Saló

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir það, Saló, þú ert allatf svo sæt! þú getur treyst því að það veðrur partý þegar Fjóla flytur.. ekki annað í boði!!!

Hottie á mynd nr. 4 er engin annar en tilvonandi maður minn hann Paul Walker... bara heitur teitur!
Takk takk
knús
Clara