Föstudagskvöldið 21. Júlí um 1.30 var töskunni minni stolið inni á REX í fm-partýi eftir Pirates of the Carabien. Í töskunni minni voru lyklarnir mínir, kort og síminn ásamt smádót eins og glossar.
Ég stóð við hliðin á töskunni þegar hún var tekin þannig að þetta er mjög einkennilegt. Það sem er verra er þó að viðkomandi aðili sem tók töskuna ákvað að senda karlkyninu í símanum mínum frekar ósmekkleg og dónaleg sms.
Því miður hef ég ekki náð á flesta aðilana þar sem ég er enn símalaus og verð það þangað til í kvöld og auðvitað er ég ekki með numerin hjá neinum.
Þannig að ég á líklega von á ljótum skilaboðum á eftir.
Ég vona að þið þekkið mig betur en að senda svona sms og hvað þá um miðja nótt þótt það sé helgi. Ef manneskjan hringdi í ykkur vona ég að e-r hafi komist að því hver þetta er.
Mér þykir fyrir þessu en ég vona enn og aftur að þið þekkið mig betur en þetta.
annars sendið mér endilega símanr. ykkar því mig vantar öll nr aftur.
Eigið góða helgi og verið góð við hvort annað, það er óþarfi að vera leiðinlegur við aðra.
What goes around comes around.
Clara
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hey ég tilheyri ekkert karlkyninu en fékk samt f*** you sms í nótt, í hvaða númeri er þá hægt að ná í þig núna??? á msn-inu gefuru upp gamla númerið þitt sem er lokað núna...
sælar... ég opnaði fyrir gamla nr. mitt aftur laugard.kvöldið. þannig að ég er þar enn.
still here so please call :)
Skrifa ummæli