
ég fór á viðskiptaþing í síðustu viku þar sem Maggi Scheving var að tala við okkur...
og hann sagði margt sem hitti svona rosa vel í mig og margt sem situr svo fast að ég kemst varla yfir!
td. fór hann út í af hverju strákar ná samningum svona auðveldlega og af hverju þeir ná svona langt...
td. er þeim kennt skák, þeir eru í strategy leikjum og keppnis íþróttum þar sem keppnis andinn í þeim er alinn upp á meðan stelpurnar... já stelpurnar eru í snúsnú og parís þar sem allir vinna og allir eru jafnir... jibbí fuckin jei!
Satt?
og annað.... á bakvið karlmann er alltaf e-r kona, móðir eða kærasta, eiginkona sem styðja þá í einu og öllu og sjá um allt annað... satt? algjörlega!!
aðalástæðan fyrir því að þeir ná langt er af því að þeir hafa e-n á bakvið sig sem sjá um heimilið og og styðja þá þannig að þeir geti einbeitt sér að sínum markmiðum...
Þeir setja sér markmið og konan styður hans ákvörðun og gerir allt til þess að auðvelda fyrir hann lífið...
Satt?
Annað sem hann sagði ... konur ná ekki langt í starfi því að þær vilja alltaf hafa jafnvægi á heimili og vinnu, joggla bæði og láta það ganga upp... en virkar það? er hægt að ná frama og sjá um heimili?
M.S. sagði að til að ná frama sem kona þá yrði maður að fórna e-u .. það væri ekki hægt að ná bæði og alls ekki í einu.
jújú það væri alltaf hægt að eignast börnin en þá þyrfti e-r að vera heima með þau, amma, au-pair eða pabbinn.... mamma myndi ekki geta náð framanum og hugsað um heimilið og börnin. Imposible!
Þetta festist alveg rosalega í mér... og ég hef lítið annað hugsað um....
Strákar ná öllum sínum takmörkum af því að kærastan, konan gerir allt annað auðveldara fyrir þá...
þeim langar í nám og stelpan styður þá, fínt ekkert mál, þeim langar erlendis í nám... og stelpan styður þá og fer með .. jújú þær fara í nám svona til að hafa e-ð að gera... en þær eru að setja sín markmið á hold til þess að styðja og elta kærastann..
af hverju eru kvenmenn svona veiklyndar, af hverju eru þær tilbúnar að fórna sínum draumum til að elta strák?
af hverju fá strákarnir að ná að uppfylla sína drauma og stelpurnar sætta sig við að vera kona mannsins, móðir barna hans, en ekki manneskjan sem hún vildi vera..... kannski er það bara nóg fyrir þær....
Vá hvað það er ekki nóg fyrir mig!
ég ákvað það þegar ég var ung að ég myndi ekki fórna mínum draumum og markmiðum fyrir e-n annan...
Kannski hefði ég átt að fæðast sem strákur! það er augljóst að ég myndi allavega hafa fleiri góð spil á minni hendi en ég hef núna! Ég verð bara að spila þeim rétt út, þau spil sem ég hef.
C.V.
ps.
ég ræddi aðeins við Mr. Helgason og fékk það í mig að nokkrir vinir hans eru að elta konurnar sínar í frekara nám, sem er alveg frábæert.. en þetta eru auðvitað ekki algilt.
ég hef séð allnokkrar kunningjakonur mínar bara hverfa fyrir aftan manninn sinn...
mér finnst kominn tími á meiri breytingu!
Þó svo að það sé alltaf verið að segja manni að konan eigi að vera heima.. það var nú bara í grey's um daginn, þá var mamman svo mikil framakona og með au pair heima og barnið slasaðist og au pairið rekið en barnið vildi bara au pairið af því að mamman var aldrei heima... oh búhú! segi ég nú bara...