
ég fór á viðskiptaþing í síðustu viku þar sem Maggi Scheving var að tala við okkur...
og hann sagði margt sem hitti svona rosa vel í mig og margt sem situr svo fast að ég kemst varla yfir!
td. fór hann út í af hverju strákar ná samningum svona auðveldlega og af hverju þeir ná svona langt...
td. er þeim kennt skák, þeir eru í strategy leikjum og keppnis íþróttum þar sem keppnis andinn í þeim er alinn upp á meðan stelpurnar... já stelpurnar eru í snúsnú og parís þar sem allir vinna og allir eru jafnir... jibbí fuckin jei!
Satt?
og annað.... á bakvið karlmann er alltaf e-r kona, móðir eða kærasta, eiginkona sem styðja þá í einu og öllu og sjá um allt annað... satt? algjörlega!!
aðalástæðan fyrir því að þeir ná langt er af því að þeir hafa e-n á bakvið sig sem sjá um heimilið og og styðja þá þannig að þeir geti einbeitt sér að sínum markmiðum...
Þeir setja sér markmið og konan styður hans ákvörðun og gerir allt til þess að auðvelda fyrir hann lífið...
Satt?
Annað sem hann sagði ... konur ná ekki langt í starfi því að þær vilja alltaf hafa jafnvægi á heimili og vinnu, joggla bæði og láta það ganga upp... en virkar það? er hægt að ná frama og sjá um heimili?
M.S. sagði að til að ná frama sem kona þá yrði maður að fórna e-u .. það væri ekki hægt að ná bæði og alls ekki í einu.
jújú það væri alltaf hægt að eignast börnin en þá þyrfti e-r að vera heima með þau, amma, au-pair eða pabbinn.... mamma myndi ekki geta náð framanum og hugsað um heimilið og börnin. Imposible!
Þetta festist alveg rosalega í mér... og ég hef lítið annað hugsað um....
Strákar ná öllum sínum takmörkum af því að kærastan, konan gerir allt annað auðveldara fyrir þá...
þeim langar í nám og stelpan styður þá, fínt ekkert mál, þeim langar erlendis í nám... og stelpan styður þá og fer með .. jújú þær fara í nám svona til að hafa e-ð að gera... en þær eru að setja sín markmið á hold til þess að styðja og elta kærastann..
af hverju eru kvenmenn svona veiklyndar, af hverju eru þær tilbúnar að fórna sínum draumum til að elta strák?
af hverju fá strákarnir að ná að uppfylla sína drauma og stelpurnar sætta sig við að vera kona mannsins, móðir barna hans, en ekki manneskjan sem hún vildi vera..... kannski er það bara nóg fyrir þær....
Vá hvað það er ekki nóg fyrir mig!
ég ákvað það þegar ég var ung að ég myndi ekki fórna mínum draumum og markmiðum fyrir e-n annan...
Kannski hefði ég átt að fæðast sem strákur! það er augljóst að ég myndi allavega hafa fleiri góð spil á minni hendi en ég hef núna! Ég verð bara að spila þeim rétt út, þau spil sem ég hef.
C.V.
ps.
ég ræddi aðeins við Mr. Helgason og fékk það í mig að nokkrir vinir hans eru að elta konurnar sínar í frekara nám, sem er alveg frábæert.. en þetta eru auðvitað ekki algilt.
ég hef séð allnokkrar kunningjakonur mínar bara hverfa fyrir aftan manninn sinn...
mér finnst kominn tími á meiri breytingu!
Þó svo að það sé alltaf verið að segja manni að konan eigi að vera heima.. það var nú bara í grey's um daginn, þá var mamman svo mikil framakona og með au pair heima og barnið slasaðist og au pairið rekið en barnið vildi bara au pairið af því að mamman var aldrei heima... oh búhú! segi ég nú bara...
14 ummæli:
En af hverju er það ennþá þannig að fólki finnist skrýtið ef konan ákveður að leggja framann fyrir sig og skilja börnin eftir hjá pabbanum á daginn??? Af hverju þykir það ekkert skrýtið ef pabbinn sér varla börnin sín??? af hverju er kona dæmd fyrir það en ekki karlmaður????
ég er despret - aumingjalegur strákur og skal alveg fórna öllu mínu (þar sem ég er hvort er draumalaus) fyrir góða stúlku.
Á móti verður hún að segja einu sinni í viku: Þú ert svo sætur Jón (jafnvel þegar ég er orðinn feitur og ljótur)
Jón Örn: okkur finnst þú algjört yndi! og ég bíð eftir því að þú verðir forseti íslands eða bara næsti Laxness!
Fjóla:
þetta eru bara gamalar hugmyndir, konur eiga að vera heima með börnin og karlinn úti að vinna fyrir heimilinu. Þetta er orðið svo ótrúleg úrelt.! konur í dag vilja svo mikið mikið meira út úr öllu og þær eiga það sov skilið, á alla kanta!
En hvað með þær konur sem VILJA vera heima og styðja sinn mann? Það má ekki dæma þær heldur finnst mér, þetta er allt saman spurning um persónulegt val.
Ekki það að mér þætti heldur leiðinlegt ef ég ætti barn sem vildi frekar leita til au-pair stelpunnar heldur en til mín, sem sagt væri tilfinningalega tengdara au-pairinu
Bíddu geta Au-pair ekki líka verið strákar?
ánægð að fá þig aftur Silla, þú kemur alltaf með svo skemmtileg comment!! :)
það er auðvitað að rétt að margar konur vilja frekar vera heima og ég styð þá ákvörðun, það er auðvitað draumur kvenna að eiga fjölskyldu og heimili, þá vil ég meina að það sé ekki nóg fyrir mig allavega ;)
Ég frétti einmitt að gömlum kunningja sem langaði bara að eiga konu og barn, sem hann á núna, og hann vinnur hamingjusamur á pizzastað, sem hann hefur gert síðustu 10 árin, completely happy.
Ég þarf e-ð miklu meira en það .... ég þarf WORLD DOMINATION!!!
Takk fyrir hlý orð, ég er ánægð með að hafa munað eftir að bæta þér aftur inn á bloggrúntinn ;)
en já, auðvitað snýst þetta bara um hvað maður vill og svona, eins og þú sagðir þá geta sumir verið hressir á pizzastað allan sinn starfsferil þó það myndi t.d. ekki henta mér.
Ég myndi persónulega vilja hafa þetta allt - kannski ekki WORLD DOMINATION eins og einhver mikilmennskubrjálæðingur *vink vink* sagði hér áðan heldur væri ég til að finna þennan gullna meðalveg.
Ég er búin að prófa hvorutveggja og ég veit bara að ég er mun fullnægðari með það að halda áfram námi og vinna vel og sækja mér frama. Og ég trúi vel á orðtakið "If mamma ain't happy, nobody ain't happy". Þannig að við verðum að hafa valið, en ekki karlarnir okkar.
Ég held að við höfum alltaf valið, en það það sé auðveldara að gefa upp sína drauma fyrir tímabilshamingju.... ég held að að vera heima og sinna heimili og börnum sé skammtímur vermir... auðvitað gaman til að byrja með en verður svo svo ótrúlega einsleitt og blæbrigðalaust... maður verður að hafa e-ð sem að styrkir og þroskar hið andlega innra með manni! það er alveg bráðnauðsynlegt. Auðvitað er gaman kannski að sjá börnin þroskast og verða stór en ég held að maður þroskast ekkert sjálfur með þeim... maður fullorðnast.. .. ég tel að maður þroskist ekki nema með því að taka á stórum málum, málum sem maður myndi aldrei lenda í heima fyrir... en það er auðvitað bara mitt álit ;)
Þú átt sem sagt ekki barn?! :)
Mana þig til að viðra þessa skoðun þína inni á Barnalandi.is, þú yrðir ábyggilega vinsælasta konan á svæðinu ;)
auðvitað ekki.... af hverju að eiga barn þegar maður getur fengið þau lánuð og svo skila þeim aftur!!! LOL
já, þær eru allar vinkonur mínar þarna á barnalandi ... held að við eigum bara allt of vel saman.. LOL
Veistu Silla mín, ég held að ég haldi mér bara við mitt fólk. Því eins og þau segja á dönsku "Lige börn leger best"
ok en lokapæling sem kom upp í sálfræðinni hjá mér einu sinni:
Myndirðu breyta þér fyrir Mr. Right ef hann væri rosalega fjölskyldusinnaður en þú ekki?
Það má ekki segja að þú myndir ekki lenda í slíkri aðstöðu því þetta er ÞINN mr. Right og hann er með þreföld þín mánaðarlaun svo það væri ekki fjárhagslega sniðugt að segja að ef hann vildi börn þá gæti hann bara verið heima með þau ;)
Hvað myndir þú gera? Myndir þú breyta lífsviðhorfi þínu ef þú hittir mr. Right (það er ekkert catch með að það komi svo í ljós seinna að þetta var bara ekki maðurinn fyrir þig) :)
kv. Silla
Þessi er erfiður... en ég held að ef þessi aðstaða kæmi upp.. þá myndi ég bara fá mér au pair.
ég persónulega er svo mikil félagsvera, það þarf að vera svo mikið action í kringum mig allan tímann.... ætli ég verði ekki bara eins og gellan í blood diamond... systkyni mín verða þessi hamingjusamlega gift.. meðan ég verð e-r staðar á ferð og flugi með hundinn ... og Gulla í nýstárlegu ferðabúri.
Skrifa ummæli