föstudagur, mars 14, 2008

Afmælis"barnið" ég!



Albert Einstein, π og ég eigum sameiginlegt 3.14 eða 14. 3. eða 14. mars.
Eva Dögg vann þar stóran sigur að sjá það út.. klára stelpa ;)

Annars er ég "hræðilegt" afmælisbarn... ! segi barn því já ég er eins og börnin á afmælinu mínu!

Ég vakna eeeeeldsnemma og veit svo ekkert hvað ég á að gera af mér... í morgun tók ég til því það verður smá kokteill eftir vinnu.. jeij ...

Annars er afmælið mitt bara ein stór hátíð og þar sem hún lendir á helgi þá lengist hún yfir alla helgina ;) þannig allir að skála fyrir mér um helgina ;)

og ef þið sjáið mig þá vil ég ammó knús!

ást í bossa og afmæliskveðjur til mín :D

Clara afmælisprinsessa ;)

miðvikudagur, mars 12, 2008

......



Jeij .... minns er svooo spenntur!


Hvað eiga Albert Einstein, Pí og ég sameiginlegt?

sunnudagur, febrúar 24, 2008

105 rvk

Það er alveg yndislegt að búa svona miðsvæðis, vera með allt það nauðsynlega í göngufæri við heimilið!
Þó það sé nú gott að vera á bíl eins og ég fékk að upplifa síðastliðnar 2 vikur og það ekkert slor af bíl heldur, rauður og hvítur Mini Cooper.... aaaw yeah! töffarinn ég ;)

En það er gott að vera komin á jafnfljóta aftur, maður upplifir umhverfi sitt svo allt öðruvísi... það að finna fyrir því að maður sé úti, dást að umhverfinu og það sérstaklega þegar það er komið í vetrarklæðin!

Núna þarf maður bara að komast í heitan pott og með smá rauðvín og besta félagsskapinn og þá er maður kominn á toppinn!!! Er ekki kominn tími á e-ð svoleiðis gott fólk?!

Annars lendi ég alltaf í svo óhugnarlegum aðstæðum... í nótt voru för fyrir utan svalahurðina hjá mér.. eins og e-r hafi verið að kíkja inn..þetta er svo augljóst í nýföllnum snjó.. úff.. not good.

Ein yndislegt og það er að búa á fyrstu hæð að geta gengið út báðum megin og allt það ... þá hef ég aldrei lent jafn oft í óhugnarlegum aðstæðum eins og síðan ég flutti hingað ... ég sé að ég þarf að flytja hærra upp í framtíðinni..... gott að það séu bara 5 mánuðir eftir að búsetu minni á þessum stað ... og gangi mér vel að finna íbúðina í hverfinu .... því ekki vil ég fara langt!

uppáhalds myndbandið mitt þessa dagana ;)

Incredible! from kwest on Vimeo.

mér leiðist... hver vill koma og leika við mig!?

mánudagur, febrúar 04, 2008

merkilegt nokk

í starfi mínu lendi ég í ýmsum ævintýrum.. ef það má kalla...

en merkilegast þykir mér þó hátterni fólks sem hringir inn, ég hef lent í því nokkrum sinnum að karlmenn séu á salerninu meðan þeir ræða við mann... maður heyrir svona létt í bununni og svo kemur toppurinn, sturtið ... .úff.. þá kemur á mann svipur!

Annað, fólk er hætt að kunna að tjá sig. Meirihlutinn af samtölum mínum gengur út á það að þýða og reyna að skilja það sem kemur út úr fólki þegar búið er að taka sko, hjéddna, heyrðu og skilurru út fyrir textann. Ég er núna kominn með hreint og beint óbeit á orðið sko og hjéddna fylgir þar strax á eftir.

Skellti mér í leikhús á föstudaginn og sá þetta prýðisverk Jesus Christ Superstar. Kraftmikið einkennir það mjög mikið. Passar mjög mikið inn í tónlistarstefnuna sem er allsráðandi þessa stundina.
Hefði samt frekar verið til í að sjá verkið þegar það var sett upp með Palla, snöft, hef heyrt að það var víst algjör toppur!

Núna er efst á listanum hjá mér að sjá Ívanov og Brúðgumann, eftir Balta.

Rauðvínsklúbburinn minn er æði! við erum svo fjölbreyttar stelpurnar þar en pössum samt svo vel saman, yndislegt alveg. Skemmtilegt að hann sé stækkandi.... rauðvínsaðdáendur nær og fjær eru svo hjartanlega velkomnir.

Má nefna að stórvinkonur mínar, Hrefna og Nína, voru með opnunarpartý fyrir stofuna sína um helgina og það var þetta magnaða tjútt! Lang besta crewið ever!


Fékk móðgandi komment frá manneskju sem ég þekki ekki baun, " Noh, bara mrs. Waage mætt á svæðið!"
Ég er ekki nógu gömul og ekki nógu GIFT! til að vera MRS!! takk fyrir!

með ástarkveðjur knús og kossa
C.V.

mánudagur, janúar 28, 2008

Er leti í gangi eða hvað!

Eftir átakanlegan desember mánuð og annasaman janúar hefur löngun mín til að setjast niður og skrifa litla bloggfærslu, verið engin. Það hefur varla verið kveikt á tölvunni eftir vinnu, allavega ekki safari og msn.

Ég get ekki sagt að löngunin sé mikið í gangi núna heldur, en þar sem ég sit enn niðrí vinnu, að reyna skrifa e-ð fyrir skólann, ákvað ég að slá til.
Það er komið heljarinnar átak í gangi, löngun í að skreppa til Köben með A.Ch. er mikil, til að heimsækja fræknu stelpurnar mínar þar sem ég verð að viðurkenna, ég er að sakna alveg ógurlega!! en skype-ið bjargar, þannig hjólaskautastelpa, fáðu þér skype!

Útþrá er komin á hátt stig og þar sem allir eru að fara burt í e-n tíma gæti ég svo sem líka gert e-ð álíka.. heheh .. nota tímann meðan allir eru í burtu ... ;)

annars er það eina að frétta að það eeeeer að byrja brjálað átak í vinnunni .. ég er reyndar byrjuð, því 6 vikur af slökun er bara eitur! maður má ekki láta sjá að maður er í slæmu formi!!!
Bs heldur áfram .. vonandi tekur hann styttri tíma og enska er skemmtilegt tungumál!

that's all folks...
C.V