mánudagur, október 09, 2006

og meira..?

ég sé að ég hef hitt e-a taug þarna í síðust færslu .. frábært... alltaf gaman að skapa smá umræðu....

en ok . . höldum áfram....
í sumar hefur bókin "he's just not that into you" verið mjöööööög svo vinsæl.... og þó að ég hafi ekki lesið hana.. reikna ég alveg vel með því að hún sé mjög skemmtileg... að því sem ég hef heyrt eru margar fyndar sögur þarna...

en talandi um að fría karlpeninginn frá ALLRi Ábyrgð!!!.... ok .... hittir e-n strák þið hafið mjög gaman ..kannski 1-2 kvöldstundir og svo bara heyrist ekkert í honum meira.... já alveg rétt... he's just not that into you.....i ...... nei í staðin er allt gott og blessað með það ...það er það bara alls ekki ..... stelpum jafnt sem strákum fíla ekki að vera dissuð... sérstakelga ef það var í alvörunni gaman.... Show some respect og segðu það við okkur...!! í alvöru .. við munum ekki fara að gráta.. við munum ekki verða hysterískar.. það er í alvörunni hægt að eiga alvarlegar samræður við kvenþjóðina án þess að við spilum inn á samviskubitið hjá strákunum....... og stelpur.... það er bara mean að spila inn á samviskubitið .... if it isn't meant to be.. then it isn't meant to be......

Mér fyndist það bara mjög þroskað ef ég væri að hitta e-n sem segði við mig... " veistu ég held að þetta sé ekki alveg að ganga, þetta samband hefur ekki það sem ég er að leita að !" ok harsh og já mér myndi líklega finnast þetta leiðinlegt... en ég myndi frekar meta hreinskilnina... frekar vita nákvmælega hvar ég stend heldur en að félaginn myndi bara gufa upp..... takið þetta til sín sem eigið það skilið!

Ég veit td. að félagi minn myndi frekar detta niður dauður en að segja við stelpu að hann bara væri ekki hrifinn af henni .... frekar skiptir hann um msn, síma, heimilisfang og nafn en að vera hreinskilin um svona .. merkilegt ha?

Come on!!! af hverju ekki að segja við dömuna.. hey.. þú ert þrælskemmtileg en mér finnst bara e-ð vanta upp á ... ég held að þetta gangi ekki...!

Af reynslu þá fíla ég betur hreinskilnina.... Strákar og stelpur .. það eru fleiri fiskar í sjónum .... og af hverju ekki bara hafa gaman af þvíað kynnast nýju fólki, nýjum aðstæðum og nýrri fræði ;) if you catch my drift.... ;):P

Ég hugsa þannig að ef ein hurð lokast opnast önnur.... og alltaf hafa gaman ;) ... ... if it's not meant to be .... you could at least have some FUN!

XXX
C

20 ummæli:

Nafnlaus sagði...

AMEN BABY!

Nafnlaus sagði...

Ég held þú getir flokkað þessa gaura sem hringja ekki í tvær grúppur:

A: Aumingi
B: Var ég búinn með 'Aumingi'?

Nafnlaus sagði...

C: inneignalausa?

En fuck ég skal alveg játa það að hafa ekki hringt einhvern tímann strax.
(fyrst að enginn annar þorir því)

Hverjar eru ástæðurnar fyrir því?

* Þú vilt bíða í smástund til að sjá hvað hún gerir.
* Þú vilt ekki verða of hrifnn of fljótt.
* Þú vilt ekki virka of ,,auðfáanlegur" því það bara fílar enginn.
(það velur enginn ,,fyrsta" kost - allir vilja hafa smá fyrir hlutunum)

Þið megið kalla mig aumingja....
en mér finnst bara stundum ágætt að vera raunsær og það að reyna vera ,,ástsjúkur" kjáni
hefur ávalt komið mér í vandræði.

Ég held það skipti bara mestu máli að vera heiðarlegur, ganga hreint til verks
og segja rétt frá. Ekki hvort manneskjan hringi strax eða ekki.

Það fílar enginn heilbrigð manneskja smeðjulega gaura sem hringja strax ....
og segjast hafa fundið ástina í lífi sínu -
sömu línu og þeir notuðu á allar hinar.

Jón Örn

Nafnlaus sagði...

Hlustaðu bara á Teenage guide to popularity með Nada Surf, það lag kennir allt sem kunna þarf, hehe.

Nafnlaus sagði...

Í fyrsta lagi þá hef ég ekki hitt neinn strák sem hefur lesið þessa bók svo ég veit ekki hvernig skoðun maður á að hafa á henni.

Manipulasjónir eru bara hluti af tilhugalífi. Það er kannski ekki fallegt þegar það er kallað þessu nafni en það gera það allir að einhverju leiti. Einu sinni var ég í vandræðum með stelpu og spurði vinkonu mína hvernig maður ætti að ná henni hún sagði mér að fara í sleik við aðra beint fyrir framan þess píu.

Hreinskilni kemur manni yfirleitt ekki langt þó að maður eigi alla vegana a að geta endað hlutina á heinskilin hátt. Það eru víst merki um gáfur að ljúga...

Annars er ég að mestu sammála Jóni og finnst þetta komment mitt sjálfum lélegt. Getur annars einhver sagt hvað þessi He's not that... er um.

Nafnlaus sagði...

Tad er nu svosem stort bil a milli tess ad hringja og segja: hey villtu hitta mig a kaffihusi.. eda hringja og segja: Eg hef ekki geta hugsad um annad en tig sidan eg sa tig, I LOVE YOU!!!

Nafnlaus sagði...

Æ...

ég er ekkert svo sammála.

Ekki vera bitur. Trúðu á ástina...

sniff

Nafnlaus sagði...

hér langar mig að kynna ykkur fyrir næsta stig.... ss. þegar upprunalega höftin hafa verið fjarlægð .. fólk er farið að kynnast og veit betur hvort losti, spenna og áhugi er til staðar...
muniði ekki eftir þessum skiptum þegar maður horfði á hinn aðilann ... bara vá .. en spennandi ... svo kynnist maður manneskjunni og þá er hún bara ekkert skemmtileg.. og það er engin spenna á milli ... jújú .. þetta kemur fyrir alla....

in ref. til færslunnar hans úlla.... sumar stelpur þurfa að hafa allt í hendurnar ..... og þegar þær missa það .. vilja þær fá það aftur .. sama hvað ... svona bara er þetta stundum... get ekki útskýrt... ... og það er augljóst að hún hafi verið ung úlli minn.... vonandni varstu það líka.;)

Nafnlaus sagði...

Ég held að fólk fíli ekki smeðjulega gaura hvort sem þeir hringi strax eður ei.

Það er ekki hægt að flokka þetta svona gróft, aðeins of margar breytur. En ég veit að það er mjög freistandi að setja þetta fram svona svart og hvítt því að konur muna eins og fílar þegar æðislegi sjarmerandi gaurinn hringdi ekki en muna síður þegar þær voru fegnar yfir að einhver 'mistake' hringdi ekki. Svo er Sex and the City búið að heilaþvo ykkur by the millions.

En verkin tala og við erum víst orðin töluvert fleiri en 6 milljarðar... þannig að einhvers staðar hlýtur fólk að vera að hringja ;)

Nafnlaus sagði...

Auðvitað man maður þegar heillandi gaurinn hringdi ekki ... maðu hafði kannski áhuga á að heyra frá honum.... en hey það gerist....

eins og allar stelpur og kærastar hafa fengið að kynnast þá er Sex and the City mjög skemmtilegir þættir og mikið talað um samskipti kynjanna og what not......

ég er samt ekki að koma með punkta frá þeim.. heldur eru þetta mínar skoðanir, reynsla vina minna og míns....

maður þarf stundum að koma með svona punkta frá sér... ekki endliega að apa eftir þeim úr sjónvarpsþætti.... þótt hann hafi verið góður...

Nafnlaus sagði...

heyr heyr systir ;-) hef lesið bókina og er SVOOO að bíða eftir að gaur sem Á MIG SKILIÐ birtist!!! nú er ekkert elsku mamma lengur!

Nafnlaus sagði...

Ekki bíða... go for it... finndu hann ... hann er líka að bíða eftir að þú komir til hans....
og ef þið eruð hvorugt að fylgjast með .. hvernig finnið þið þá vhert annað?!?1

Nafnlaus sagði...

Clara mín - vel og undursamlega orðað!!
Luv u honý

Nafnlaus sagði...

Það fer að styttast í að maður nái sér í popp og kók og fylgist með kommentunum hérna, auto-refresh á 5sek.

Nafnlaus sagði...

Það fer að styttast í að maður nái sér í popp og kók og fylgist með kommentunum hérna, auto-refresh á 5sek.

Nafnlaus sagði...

Un-jinx, un-jinx

Nafnlaus sagði...

Þú skemmdir umræðuna alveg...

Nafnlaus sagði...

ef það næst upp í 20 comment ... ss. sem tengjast umræðunni skal ég birta nýja færslu í kvöld eða í fyrramálið ... díll? ;)

Nafnlaus sagði...

Hafid tid sed diet coke auglysinguna tar sem er verid ad klappa fyrir folki??

Well.. í eitt skiptid segir hann, klappid fyrir stelpunni sem beid ekki eftir ad strakurinn hringdi i hana heldur hringdi sjalf i hann!

Nei bara, fannst tad passa agaetlega her inn:)

Nafnlaus sagði...

Ég mæli með myndinni Singles ef þið viljið sjá skemmtilegar pælingar um hvenær eigi að hringja og/eða ef þið hafið gaman af tónlistarsenunni í Seattle við upphaf tíunda áratugarins.