Sambönd... þá erum við að tala um dágóðan tíma.. þið eruð búin að kynnast.. vitið alveg hvernig hinn aðilinn virkar... á sá tími ekki að vera unaðslegur..... kannski fellur maður inn í rútínu .. kannski tekst manni að halda því fersku og spennandi .... en samt.. á maður ekki að vera hamingjusamur.... sjá sig eldast saman og unga út börnum og hvíta girðingin og hundinn .. þið vitið allan pakkann....
Það hefði ég haldið .. alla vega langar mig soldið í það ... ég er nú einu sinni stelpa... ég gæti auðvitað farið bara í nunnuklaustur eða hreinlega brynjað mig frá ástinni eins og hún Lóló í laugum gerir (skv. DV síðustu helgi) En where is the fun in that?!?! Life is supposed to be fun, fullt af skemmtilegum mómentum, andartökum og ævintýrum.... td. langar mig geðveikt að horfa á sólarupprásina af toppnum á Esjunni.... er e-r til? ég skal koma með smá heitan lögg... annars þurfum við bara að halda okkur saman til að halda hlýjunni ;) hihi...
Það er samt eitt sem er að valda mér miklu hugarangri og sem ég skil bara hreinlega ekki og það er af hverju fólk vill vera saman þegar það er óhamingjusamt... halda þau að þau séu í alvöru hamingjusöm?
mitt álit á samböndum er að sambönd eiga að bæta mann upp.. ss. gera báða aðila hamingjusama... að báðir aðilar blómstri og hafa gaman af að vera saman. ... að það sé ekkert sem að hindrar fólkið í að vera eins og það vill....
Það á að vera gaman saman, spennandi ... og maður á að vera frjáls en hamingjusamur saman... byggja sig upp saman að betri manneskjum... ekki brjóta mann niður eða gleyma sjálfum sér....
Af hverju haldast aðilar í sambandi þegar það er ekki hamingjusamt? .... eru það þægindi? uppgjöf? reynsluleysi? vani?
mér hefur skilst að fólk í óhamingjusömum samböndum haldist saman út af vana og þægindi.... út af foreldrum eða börnum.... halda áfram að vera saman óhamingjusöm ... út af öllum öðrum ástæðum en sjálfan sig.....
kynlíf?.. það er alveg hægt að stunda gott kynlíf með e-m öðrum en nákvæmlega þessum aðila... kannski meira að segja betra...
væntumþykja.... ég þori að veðja að það er e-r annar þarna úti sem gæti gert þig hamingjusamari en þú ert akkúrat núna... !
mér finnst voða gaman að vita að e-r hugsi til mín þarna úti.... mér finnst enn skemmtilegra þegar aðiliinn segir það við mig....
en mér finnst líka gaman að vera með e-m sem þykir vænt um mig ... og vill gera mig hamingjusama..... mér finnst hinsvegar alveg óréttlátt að vera með aðilanum ef tilfinningar mínar eru ekki eins... þá vantar bara e-ð upp á..... e-ð meira ... þó svo kannski við höfum voða gaman saman... og allt það .... en ég gæti ekki gert hinum aðilanum það .. því miður.... !
En síðan las ég e-r staðar um framhjáhöld... kvenmenn tengjast tilfinningalegum böndum þeim sem þær sofa hjá .. það bara gerast.. það að stunda kynlíf með e-m er svo persónulegt fyrir þeim.. ( í flestum tilvikum) ... strákar hins vegar... þegar þeir þrufa þá þurfa þeir..og það er alveg sama hvert þeir kikja inn.. svo lengi sem þeir fá að tappa af.... lol...
Þannig stelpur... þótt að kallinn haldi framhjá þá er það ekki honum að kenna.. annað hvort ert þú ekki að sinna manninum nógu vel .... eða hann er kynlífs fíkil....
*ég tek það framm ég las þetta e-r staðar... I don't believe it!* .... strákar jafnt sem stelpur vita alveg hvað þau eru að gera... og ef maður vill ekki freistast .. þá heldur maður sér frá syndinni .... þannig er það bara.....
Clara
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
16 ummæli:
Á ekki bara að gerast Tracey Cox Íslands og gefa út bækur um þetta?
Tetta er nu meiri vaemnin:)
En eg er alveg til i Esjuna, en vaeri ta alveg til i ad fara bara i hlýja ulla peysu i stad tess ad kúra sér saman, nema tad sér einvher hot gaeji sem vaeri til í ad fara med;)
Hvaða fólk er það sem helst í sambandi þegar það er óhamingjusamt?
vó, þetta er engar smá pælingar sem eru hér í gangi. En ég spyr eins og Jón Örn; hvernig fólk er það sem helst í sambandi þegar það er óhamingjusamt??
er það ekki fólk með sjálfsálit á við maur?? ég hefði einhvern veginn haldið það. Engin almennileg manneskja sem metur sig að verðleikum er í sambandi bara af því hún þorir ekki einhverju öðru.
haha, það mætti halda að Jessica Simpson hafi verið að lesa pistlana hérna - fyrir áhugasama bendi ég á YouTube sem er með nýjasta lagið hennar sem heitir "I Belong to Me" :)
annað hvort las hún þetta...
eða hún er bara síríösslí sköðuð eftir að hafa misst Nick Lachey...
varúð! lagið er BRJÁLÆÐISLEGA væmið en hún er reið, ó svo voða voða reið ;) Check it!
jee minn eini!! ! var að kikja á þetta myndband.. the girls a basket case!! fyrir utan að vera algjörlega veruleikafirt... þá er hún augljóst lega orðin kreisí í þokkabót!! hún hefur augljóslega ekki verið að lesa bloggið mitt.. hjúff!!! .... ;)
Hún er með plús í minni bók, fengið mig til að brosa oftar en einu sinni. Chicken of the sea!
Ekki bjóða syndinni í kaffi!
Eru bitru djúp-pælingar-pistlarnir hættir??
Ég er búin að skemmta mér svo vel yfir þessum pælingum, bryddaði meira að segja upp á þessu "óhamingjusamt fólk sem hangir í vonlausum samböndum"-umræðuefni í saumklúbb um daginn! Það urðu ekkert smá heitar umræður og greinilegt að efni þessara pistla er alveg svona conversation piece dauðans, það hafa ALLIR skoðun :)
I object.. BITRU!!!
þetta er meira bara pælingar sem ég ákvað að birta eftir samræður og umræður vina minna ... bæði kvenna og karla. fyrirgefið .. stráka og stelpna ;)
en segðu mér endilega hvað þið komust að í þessum umræðum í saumaklúbbnum.. ;)
sko, það varð eiginlega engin eiginleg niðurstaða nema að við héldum að þetta væri eiginlega alveg hætt, þetta að hanga saman barnanna vegna. Það er bara eitthvað viðhorf sem var í gangi hjá afa og ömmu sem hefðu bara legið á bæn með að annað þeirra myndi hrökkva upp af svo að þau gætu losnað úr sambandinu... oj ljótt að segja svona en samt pínu satt örugglega.
Í dag þá er fólk svo fljótt að fara í og úr samböndum að það hefur litla þolinmæði í að reyna að vinna úr hlutunum. Um leið og eitthvað verður leiðinlegt þá er bara farið í að slíta sambúð.
Þannig að í sttu máli þá hélt minn saumaklúbbur að fólk í dag væri ekki að hanga í vonlausum samböndum heldur losaði fólk sig út og án þess að hika
svo er fólk sem er í ömurlegum samböndum og þolir ekki maka sinn ööömurlegt að gera ekki bara út um málið! Ekkert smá mikil vanvirðing að vera í sambandi og vilja það ekki, hinn aðilinn kannski enn geðveikt hrifinn og er í þessu af fullum hug... sá aðili á ekki skilið svona framkomu.
Það er víst nóg af fiskum í sjónum svo maður sé ekki að eyða því í einhvern sem er bara í þessu af því hann "nennir" ekki að fara að leita sér að nýju sambandi :)
Ég held að þetta sé ekki hætt. Fólk sem er komið með börn og hús og allan pakkann það oft nennir ekki að slíta þessu því það er vesen...heldur bara framhjá í staðinn. Framhjáhöld eru algengari en ég veit ekki hvað og það hlýtur að vera ástæða fyrir því að gera það....þ.e. leitar annað því það er óhamingjusamt. Fólk myndi væntanlega ekki að halda framhjá ef það er í góðu sambandi...þá hljóta að vera mörg slæm sambönd bakvið öll þessi framhjáhöld.
Bara að koma með smá innlegg í þetta :)
ég held að framhjáhöld verði ekki bara vegna þess að viðkomandi sé í slæmu sambandi... þótt auðvitað einhver framhjáhöld séu vegna þess. sumir halda einfaldlega framhjá vegna spennunnar eins hræðilegt og það hljómar. Ég þekki nokkra stráka sem segjast "eeeeeeeelska" kærusturnar sínar en halda framhjá af því að þá finnst þeim þeir veru enn svona wanted. Það finnst mér ekki vera mikil ást heldur meira bara dónaskapur við kærusturnar og mikilmennskubrjálæði.
Vona innilega að ég eigi aldrei eftir að lenda í sambandi með svo illa uppöldum dóna :/
Eru til vel uppaldir dónar?
Annars eru framhjáhöld frekar leiðinleg og engu skárri eru stelpur.
Uss.....
Við erum öll skepnur!
illa uppöldum dóna? Hvenær eru dónar vel uppaldir?
Svo geta stelpur líka verið dónar!!
Shiii....
Skrifa ummæli