
Svo langar mig að benda á að karlmenn eru ekki þeir einu sem missa af svefni þegar þeir deila rúminu með e-m. Kvenmenn gera það líka. Fyrir mína parta á ég því miður frekar erfitt að sofa við hliðin á öðru fólki, má þar benda á að ég henti móður minni úr rúminu mínu eftir aðeins eina helgi, þá gat ég hreinlega ekki meir. Það liggur við að ég styðji sitthvort svefnherbergið fyrir pör og hjón. Þó svo auðvitað að það sé voða notalegt að kúra með e-m upp í rúmi þá sefur maður miklu betur einn! Þá er enginn að stela af manni sænginni, enginn að hrjóta, enginn að gnísta tönnum ( takið það til sín sem eigið), enginn að fara inn á mitt pláss í rúminu.. já ok .. ég er frekar plássfrek þegar kemur að rúminu mínu... ekki það að ég taki allt plássið heldur það að ég á minn helming og þú átt þinn helming! mér þykir það ansi góð regla!
My bed, My side! Your bed, your side! My bed, your side (stay there)! Your bed, my side (I will stay there)!
Clara... sem sefur ein.. laaaaangbest!
4 ummæli:
ehemmm...
Aren't you forgetting something????
fyrirgefðu Fjóla, það er best að sofa við hliðin á þér!
Besti afþynnkari ever!!!
Hehehe ... alveg sammála þér Clara mín - maður sefur best einn en það getur verið suddalega gott að kúra sig með einhverjum :)
skemmtó færsla...
Mér hefur alltaf fundist best að kúra bara með sænginni minni en finnst samt notalegt að vita af e-m hinum megin í rúminu:) það er samt ég sem tek sængina og er útum allt rúm. Litla frænka mín hefur undanfarið deilt með mér rúmi og í morgun spurði hún mig hvað ég hefði verið að pæla í nótt því hún hefði vaknað og þá hefði ég snúið öfugt í rúminu. Einnig hef ég verið þekkt fyrir það að vekja Salóme um miðja nótt og biðja hana um að gefa mér five. Hef líka vaknað við að vera lemja á bakið á frænku minni í svefni ef hún hóstar. Shit hvað það hlýtur að vera skemmtó að lúlla við hliðina á mér :)
Skrifa ummæli