þriðjudagur, mars 13, 2007

14. mars eða 3.14..

Nú hefur sá dagur runnið upp sem bna-menn skrifa 3.14, sem hann Jón Örn svo réttilega og skemmtilega benti á vill svo skemmtilega til að er talan PÍ --=> π

Ekki nóg með að þetta sé π-dagurinn þá er þetta einnig afmælisdagur snillingsins Alberts Einsteins.... Verkfræðingur fjölskyldunnar móðurbróðir minn á einnig sama afmælisdag..... 14. mars er einnig frægur fyrir aðra daga sjá hér....

Fyrir utan þessa merku menn og þessa merkilegu tölu og fleiri atriði, sjá hér, þá fæddist ég þennan dag líka fyrir aðeins 25(+1) ári síðan... í tilefni dagsins þá er ég að spá í að bjóða í smá “selebreysjón” um helgina... partýnefndin er komin á gott skrið með hugmyndir og önnur herlegheit og allt er í óðaönn að verða hin glæsilegasta samkoma góðs fólks í kringum mig.... það er víst komið að skuldadögum þar sem mér tókst svo lúmskulega að komast hjá veislu á síðasta ári og verð ég að bæta fólkinu mínu það upp .... fliss
og tel ég mig hreinlega bara lukkulega að fá að deila þessum degi með þeim stórmerku uppgvötvunum... og þeim stórmerku mönnum og konum....

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með ammælið :)

Vera Waage sagði...

Ja innilega til hamingju med afmælid.. dulla..

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með π-daginn í gær! Greinilega komið sumar hjá þér með sólgleraugu og kokteil í hönd ;)

þegar ég las orðið "selebreysjón" hjá þér í færslunni fór ég strax að syngja
"Seeleeebreyt gúd tæms, komm ón!", góða skemmtun í selebreysjóninni þinni.

kv.Silla

Clara sagði...

Takk fyrir öll!
og Takk fyrir Silla!

Já við héldum sumar og sól partý síðustu helgi .. kokteilar og sandalar .. það var alveg awesome!!

Ég hugsaði einmitt um það líka þegar ég skrifaði færsluna... sönglaði það allan daginn ;)