
Þessa dagana er maður á fullu að senda út ferilskránna sína þess á milli sem maður er að klára verkefni og undirbúa sig fyrir prófin.
Maður er búinn að vera á fullu að gera þessa rosa finu ferilskrá, sumir láta taka mynd af sér til að geta sýnt sína bestu hlið, og láta sig líta sem best út á blaði. Maður verður svo stoltur af ferilskránni sem maður hefur eytt tíma í að gera fallega, fágaða og heillandi.
Svo fer maður á stúfana á netinu og leitar sér heimilda um mannauðsdeildir og -stjóra fyrirtækja sem vekja hjá manni áhuga, maður verðu spenntur þegar maður finnur tölvupóstfangið hjá þeim og sendir á þá með von í hjarta að ferilskráin muni heilla þá upp úr skónnum..
Svo verður maður enn spenntari þegar maður tölvupóst tilbaka, "jeij, kannski fæ ég tækifæri þarna, úúú mér líst vel á þetta"...
svo opnar maður póstinn og í því stendur "Vinsamlegast fyllið út umsóknina á netinu svo að allar upplýsingar komist rétt til skila."
Ég hélt að ég væri búin að því..? Ég var búin að gera þessa rosa fínu ferilskrá, allar upplýsingarnar um mig eru þarna.. nema kannski aukavinnan sem ég tel ekki til styrkleika í starfinu sem ég er að óska eftir. Það þarf bara að prenta hana út og leggja í búnkann með öllum hinum útfylltu umsóknunum. Ég er svekkt.. mér finnst þetta asnalegt, ég nenni ekki að vera að fara á allar heimasíðurnar að setja inn sömu upplýsingarnar sem eru á ferilskránni minn. Ég eyddi fullt af tíma í að búa hana til, það er lagt áhersla á að hafa fína ferilskrá og síðan er ekki einu sinni tekið mark á henni!
Hvaða rugl er það!?

Anywhoo.. ég heyrði rosalega útgáfu af Crazy í síðustu viku, It rocked my world!!
Ég bið tónlistarmanninn Togga um að vinsamlegast hlóðrita þessa útgáfu eða gefa hana út á myndbandi, því ég veit að það var kamera þarna .. I gotta have it!! sama hvernig .. I gotta have it!
3 ummæli:
Mér var alltaf kennt að ferilskrá væri svona teaser eða forréttur sem væri borinn fram til að lokka að atvinnutækifæri. Þegar þau kæmu ætti maður svo að fylla út atvinnuumsókn með öllum tilheyrandi upplýsingum og ef þeim líst ennþá vel á þig eftir allt það að þá kemur röðin að eftirréttinum ;)
eða jafnvel atvinnutækifæri = atvinnutilboð...
Það er svo misjanft. Stundum þarf maður bara að mæta og leyfa persónuleikanum að ráða leiknum .. enda er hann bestur í mínu tilfelli ;) lol
Skrifa ummæli