Ég átti alveg frábæra kvöldstund hér í vikunni. Ekki frá því að þetta hafi verið bara besta deit sem ég hef farið á lengi!
Það var náð í mig um kl. 19, fórum að borða rómantíska máltíð á Hereford Steakhouse, við kertaljós og rólega tónlist, það var spjallað og spjallað og hlegið. Svo voru samræðurnar færðar út í bíl þar sem við rúntuðum aðeins um bæinn við töfrandi tónlist í útvarpinu og þar sem samræðurnar urðu innilegri, svo til að toppa allt var fengið sér smá ís til að kæla sig aðeins niður.
Ég er ekki frá því að aðilinn hefði verið annsi heppinn á fyrsta deiti hefði verið bætt rauðvínsflaska við líka ;)
Það besta við þetta er að ég veit að ég mun hitta aðilann aftur og aftur... enda alveg yndisleg manneskja.
Verst að þú skulir ekki vera strákur... við hefðum orðið fullkomið par ;)
Takk fyrir æðislegt kvöld, Lilja! ;)
kv.
C.V.
2 ummæli:
Hahahaha :)
alltaf fúlt þegar bestu deit ævinnar eru með vinkonu manns, maður hefur átt ófá slík.
Krípí með þennan gaur við hurðina hjá þér, góð lína samt að spyrja hvort þú heyrðir ekki byssuhljóðin! Hvar heldur maðurinn að hann sé? í Bagdad? ;)
kv. Silla
Lol nkl... við erum víst komin til Írak!! ég samt heyrði engin byssuhljóð.. kannski e-r bíll hafi verið með bilað pústið og gert svona eins og í bíómyndunum!!
Já þetta var alveg helv. gott deit... og það verður alveg örugglega endurtekið bráðlega...
mmmm...rauðvín! En fyrst pub-quiz í kvöld!! allir að mæta !
Skrifa ummæli