miðvikudagur, febrúar 28, 2007

nice..

Nýlega hefur mér var bent á ýmsar hljómsveitir, bækur og myndir sem ættu að vekja áhuga hjá mér og hef ég farið eftir því..
eftirtaldar myndir var mér bent á og ég mæli með:

The Prestige 4/5
Half Nelson 3,5/5
Pursuit of Happiness 4/5

Ég er byrjuð á og hef ekki klárað eftirtaldar bækur:

Ilmurinn, saga af morðingja
Milan Kundera bækurnar
og svo er ég með fullt af öðrum bókum á næturstandinum sem ég er komin á góða leið með..

Tónlist!! my favorit subject!!

Mér var bent á að hlusta á 3 volume 69 Love Songsdiskinn með The Magnetic fields..
og þvílíka eindæma snilldin.... diskurinn hljómar skemmtilega við fyrstu hlustun og svo fer maður að taka eftir textanum og jii minn eini svona mikið að svörtum húmor á 3 diska plötu .. algjör snilld....


Smá umhugsunarefni ..
fyrst að leyfilegt er fyrir konur í Bna að giftast gæludýrunum sínum .. má ég þá ekki giftast Gulla mínum?
Eini maðurinn (ef hann er kk þeas.) sem ég ber engar væntingar til og ber engar til mín.. nema að ég hugsi um hann annað slagið ....afturámóti þykist hann stundum vera dauður þegar ég gef honum ekki nóg athygli...

mæspeisist endilega... þú líka Silla ;)

Heyriði þið sem kannist við !! Eigum við ekki að taka Fyllibyttuna upp aftur í sumar?!?!
Ég saknaði hennar svo rosalega síðasta sumar og mér finnst að við eigum að gera hana núna...!!! endilega kommentið á þetta fólk!!

kv.
Clara

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahaha, að giftast gæludýrinu sínu! Er það ekki dálítið langt gengið? Mér finnst nú ekkert sérlega spennandi að vera í sambandi við einhvern kk sem hefur engar væntingar til mín og ég ekki til hans, hvar er fjörið í því??

nei, það er nóg til að fínum kk þarna úti, maður þarf bara að leita pínulítið og passa sig á þessum helvítum sem taka niður hringinn (og þá meina ég THE ring) áður en þeir fara á djammið ;)

kv. Silla