mánudagur, júlí 09, 2007

í goðu yfirlæti...

Heima hjá Fjólu er alltaf gott að vera...

þar er tekið á móti manni brosi og hlýju.... maður fær góðan mat og þrusu gott rauðvín svona rétt fyrir svefninn...
Ekki nóg með það þá er hún besti félagskapurinn og bara í næsta húsi....

Eins og í kvöld... þá fékk maður þrusugóða spelt pizzu og frábært rauðvín... og ennbetri félagsskap!!


-**-**-**-**-**-**-

.... en að e-u öðru..

ég er búin að vera með á dagskránni smá me-time... en hef bara enn ekki komist í það.
búin að ætla að skella mér í sund, lesa bækur, hlusta á tónlist og bara vera til... en e-a hluta vegna þá hefur það bara ekki ekki tekist...
Aftur á móti þá var endalaust skemmtilegt sleep-overpartý hjá mér um helgina... ég fór út að borða á Organic Fish & Chip (góður matur, endalaust góður matur)
kynntist spinning kennaranum hennar mömmu og konunni hans.. Dansaði og dansaði í nýja kjólnum mínum ;)
átti die hard maraþon með snillingum, boðin í snilldar grill og fór á landsleiknördanna þar sem að hann bróðir minn ljúflingurinn spilaði og sigraði svíana 7-0...... eins og einn félaginn sagði... við fengum uppreisn æru. *fliss*

en núna ætla ég að fara koma mér heim.... enda sit ég enn uppí sófa hjá Fjólunni og læt ljúfa tóna Ray Lamontagne flæða yfir mig.

ætla heim og njóta þess að vera til ...

þar til síðar SugahPillows
C.V.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nei, datt aftur inn á bloggið hjá þér og nú bara fullt fullt að lesa :)

hvar er Organic Fish & Chips?? maður fær bara vatn í munninn að heyra af góðum mat á nýjum stað - er þetta eitthvað svona must-try?

kv. Silla

Clara sagði...

Vertu Velkomin aftur Silla mín.. alltaf gaman að fá þig í heimsókn!

ERtu ekki enn útí London?

Organic fish and chips er beint á móti Tveir Fiskar þarna við tryggvagötuna..
Mæli eindregið með honum. Þeir eru meira að segja með heimatilbúin sódavötn.. me like me like.. .

Nafnlaus sagði...

já það er gott að vera komin aftur með þig inn á bloggrúntinn, ótrúlegt hvað manni finnst gaman að lesa blogg hjá alveg bláókunnugu fólki og fá svona smá glimpse inn í hversdaginn hjá öðrum :)

ah,já ég verð að prófa prófa OFC (næstum bara eins og KFC nema bara hollara!!) og sjá hvort me like, me like líka ;)

ég er löngu komin á klakann, fór bara til London og svo auðvitað Kenýa safaríið mikla yfir jól og áramót... kenýa safarí, now THAT is a must-try :)

kv. Silla

Clara sagði...

oooh .. já alveg rétt!!!
Já það er e-ð sem er möst! ... ég er samt núna með drauma um ananastínslu á Fiji eyjum... ...
*draumur*

Nafnlaus sagði...

Hvernig er það - búin að sjá fjórðu Die Hard

Clara sagði...

nei ekki enn! nú vantar mig sko partner in crime.. viltu sjá hana aftur ;)