mánudagur, apríl 09, 2007

Varið ykkur.. Clara er að tala..

Það á ekki að hleypa mér út meðal fólks... allavega ætti að setja svona síur á hvað kemur út úr mér... og e-r ætti að vera með approve og cancel takka hjá sér..

Ég get svo svarið það!! Ég er alveg einkar góð í að koma orðunum vitlaust út úr mér ....

Það á að halda mig í beisli og aðeins að hleypa mér út með sérhæfðu fólki og aðeins að leyfa mér að tala við fólk sem veit um þetta vandamál mitt!


Ef til vill er þetta bara orsök þess að vera heima og læra og hitta varla annað fólk nema samnemendur þar sme maður talar lítið um annað en námið, og er með klúr komment hægri vinstri!

Clara kjánaprik...
sem var samt soldið sæt í gærkvöldi.. with a foot in her mouth.. þá meina ég ekki bókstaflega!

myndirnar hennar Fjólu frá Páskamáltíð Munaðarleysingjanna;)

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahahahaha... Þú ert óborganleg... og ég er viss um orð þín séu gleymd í dag...

Clara sagði...

Úff ... ég miðað við hvað ég á að geta verið eftirminnileg á tímum þá efast ég um að þetta gleymist strax....
Þetta mun allavega lifa í minni minningu það sem eftir lifir árs amk!!

Nafnlaus sagði...

megum við, sem komum hér í bloggheimsóknir, vita hvað þú sagðir svona rosalegt?
forvitnin er bara alveg að drepa mig ;)

kv. Silla

Nafnlaus sagði...

hummm comment viltu jájá þessi ófáu ár sem ég er búinn að þekkja þig og umgangast þá hefur maður heyrt ýmislegt sem ekki átti að detta uppúr þér he en sía held ég að myndi ekki gera mikið ( GET A LIFE or a men )

Kveðja
strákurinn úr borgó HU

Clara sagði...

má hér bæta við ... Get a Life or a Man setninguna, að ég er víst of mikið í skólanum eða að umgangast skólafélaga mína, sem gerir mig víst alveg hundleiðinleg ;)

Nafnlaus sagði...

HA?????
Gerum við þig hundleiðinlega? Ég er sármóðguð!!!!!!!

Clara sagði...

fjóla makes me better ;)

Nafnlaus sagði...

Held þú sért bara að bæta upp fyrir að umgangast mig ekki meira eða var það ekki alltaf ég sem sagði vitlausa hluti hérna í gamla daga... eins og "ojj nei" ;P

Clara sagði...

lol... jú ætli það sé ekki bara málið.. Þórey ég sakna þín .. hahaha..

þú áttir nú heldur betur ófáar setningar!