Köben var æði!
Eyddi föstudeginum hjólandi um í rigningunni meðframm vötnin, allar hliðargöturnar við strikið, fékk alveg fílinginn að vera í Köben, sakna hennar pínu.
Systir mín kom og heilsaði upp á mig.... hún er ða verða algjör skvísa... öss....
Verslaði nú ekkert af viti þarna úti og tjúttaði alls ekkert.. merkilegt nokk!
Á föstudaginn fórum við út að borða til að halda upp á 85 ára afmæli afa Jóns.
Við buðum þau hjónin á Vox, Nordica og fengum þessa fínu þjónustu og rosalegan mat... mmm...
Ekki var það neitt verra heldur þegar spænska landsliðið flautaði á eftir mér.... heheh
Svo vildi svo heppilega til að ég þekkti nokkra sem voru á leið á ball á Nordica þetta sama kvöld. Þannig þegar gömlu hjónin voru farin heim enduðu við systkynin og móðir á smá tjútti með þeim....
það var nú meira stuðð! Elvis var alveg að gera það .. heheh
Fór svo í gær á Chris Cornell í höllinni .... mikið rosalega var hann góður!!! Það mátti varla tala við mig hann var svo góður.. og ekki bara hann heldur öll hljómsveitin... sólóarnir sem þeir tóku voru snilld.. !
Þeir mega eiga það að ég hef aldrei séð neina hljómsveit eða tónlistarmenn jafn duglega í að sinna aðdáendum sínum.. þeir hentu út fullt af dóti af sviðinu, Chris var á fullu að árta hausa og boli, tók myndavélarnar af áhorfendum í allra fremstu röð tók fullt af myndum og skilaði aftur.
Væri alveg ti í að á tónleika ferðalagi með þessum gaurum... heheh
Eftir brjálaðan tiltektardag ligg ég upp í rúmi að horfa á Mexikanska mynd með Gael García Bernal... hún virðist lofa góðu.
Næstu helgi er það svo Franz Ferdinand á Organ... schnellld!
Roger
Over and Out
Clara
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Chrissarinn var freaking outstanding!
Mér var boðið í eftirpartýið á REX en því miður sá kóngurinn sér ekki fært að mæta þar sem hann hefur örugglega verið upptekinn við að uuuuu....spjalla við einhverjar dömur uppi á hótelherberginu sínu eftir konsertinn. Mjámm jámm...
En tek undir þín orð...tónleikarnir voru argasta fxxx schnelld!
Kveðja,
JGB
Skrifa ummæli