miðvikudagur, maí 16, 2007

svefneysi..

Ef það er eitt sem ég þoli alveg alls alls ekki þegar ég er að reyna sofna þá er það tifið í klukku...
Það er e-ð sem fer í mig við þetta reglulega tif.. sem bara heldur fyrir mér vöku og ómar í kollinum á mér.. svona soldið eins og hjá Captain Hook!
Ég get alls alls ekki bara legið og sofnað út frá þannig hljóð, hins vegar ef það væri óreglulegt eða rigning... þá myndi ég lognast út af á skotstundu!

E-a hluta vegna er amma með 2 klukkur í gestaherberginu.. eina á sitthvoru náttborðinu.... ég setti háværari klukkuna inn í skáp í gærkvöldi .. og núna áðan myrti ég hina! ... 30 mín seinna og ég er enn dauðþreytt í öllum líkamanum en get ekki sofnað .. !!
Ef þetta er nýtt svefnleysis tímabil þá ætla ég að biðja um svefnpillu! og það strax!

Geisp og ég verð vakin kl. 7.15 í fyrramálið tli að fara niður í skóla að læra... .. geisp.. i need my sleep!
fyrir utan það .. gólftuskan heyrir í draugum og bregður mér á 30-57 mín fresti með háværu gelti ... ! ekki kúl! ég er að spá í að henda henni út!

C.V.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæta mín!! Það er ekki gott að heyra þetta!

Þar sem ég sé þig ekki á msn vona ég að þú sért sofandi - maður græðir ekki mikið á því að læra ef maður er of þreyttur:(