Maður ætti að læra af reynslunni, er það ekki?.. er það ekki það sem þessi setning á að kenna manni....
en af hverju lærir maður aldrei af reynslunni? hvernig tekst manni að blindast fyrir raunsæji þegar maður ætti að vita betur...
verður löngunin um drauminn svo yfirþyrmandi að hann dregur úr skynseminni?
maður spyr sig.... af hverju forðast maður ekki eldinn þegar maður veit svo miklu betur...
Annað sem ég hef líkið verið að spekúlera er af hverju gerir maður ekki það sem maður sjálfur segir.....
maður kemur með allar þessar yfirlýsingar og þykist vita svo miklu betur en allir aðrir.... af hverju gerir maður ekkert í því sjálfur? Ég reyni sjálf að lifa eftir mínum orðum.. en ég á mínar gryfjur sem ég dansa á brúninni í kringum... stundum dettur maður oní .. stundum labbar maður í burtu.... maður reynir að halda höfðinu uppi no matter what.. ..
Maður vill ekki láta brjóta sig niður .. og alls ekki augljóslega !!
Erlendur félagi minn nefndi við mig um daginn að Íslendingar ganga allir með höfuðið reist hátt.. sama hvernig vindar og sama hvernig skapi þeir eru í .... það er nokkuð til í það ... Við höldum höfðinu alltaf uppi sama hvað bjátar á.. mér finnst gott að vita það .. mér líður vel að vita að við erum stolt fólk, að ég sé stolt af mér og mínum. Fyndið samt að þurfa heyra þetta frá útlendingi, vinur minn, en samt sem áður erlendur maður.. þeir taka augljóslega betur eftir þessu en aðrir.
Haldið höfðinu hátt og verið stolt.
Þið hafið allt að bera og alla getu til þess að ná þangað sem þið viljið fara.
C.V.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
rosalega er þetta eitthvað dularfullur póstur, þetta er greinilega eitthvað kóðað fyrir svona allra nánustu vini að vita :) það þarf stundum svoleiðis líka, jafnvel þótt maður sé að skrifa á netinu
vona að þetta lagist hjá þér, eftir að maður fellur einu sinni ofan í brunninn þá gerir maður það ekki aftur af því að maður lærir af reynslunni, er það ekki bara?? vera dálítið bjartsýn á lífið ;)
Bíddu bíddu er hann útlendingur en samt sem áður erlendur maður... I don't get it. Annars er dáldið talað í gátum finnst manni.
Það er nú lítið annað en bjartsýni á mínum bæ... og stundum verður maður að senda út smá mystery fyrir félagana ;)
En með að falla ofan í brunninn.. ég er með eina svo flotta sögu sem þetta kemur úr.. ég þarf að finna hana og leyfa ykkur að lesa ..
Skrifa ummæli