Í annað skiptið í mánuðinum kallar blóðbankinn á hjálp landsmanna, það vantar blóð í bankann...
Ég hef í gegnum tíðina verið virkur blóðgjafi, alltaf farið þegar kallað hefur verið í mig og mér finnst þetta nauðsynlegt.
Ég get ekki sagt af hverju ég byrjaði þessu, en ég hef dregið móður mína og bróður í þetta og við systkyni erum dugleg að fara reglulega.
Þar sem ég hef alltaf verið dugleg að fara hef ég aldrei spáð neitt mikið í því hvert blóðið mitt fer.. vonast alltaf til að það sé að bjarga e-m og ekki að renna út í kælinum.
Um daginn lenti ég á manneskju sem þurfti á blóðgjöf að halda aðra hverja viku í 6 mánuði eftir barnsburð, ef hún hefði ekki fengið blóð þá hefði hún líklega ekki verið hér. Að heyra frásögn hennar styrkti mig í það að halda áfram að gefa.
Núna má ég hins vegar ekki gefa blóð og því langar mig að biðja þig! góði lesandi að fara niður í blóðbanka og gefa blóð fyrir mig... þau taka vel á móti þér og þau passa upp á þig allan tímann sem þú ert þarna...
ef þú ert heilsuhraust/ur, við góða heilsu og langar að gera e-ð fyrir náungann ... þá mæli ég með því að gera þetta.
Þó svo að þú fáir ekki beinar þakkir geturðu verið viss um að þú sért að bjarga einhverjum...
áður var þörf en núna nauðsyn!
Blóðbankinn kallar á þig
C.V.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
já, vissulega gott málefni hér á ferð og ég var að spá hvort ég ætti ekki bara að skella mér.
En veistu hvernig það er: ef ég fer núna, má ég þá gefa blóð svo aí fyrsta skipti? Hélt sko að það þyrfti að gera alls konar rannsóknir og svona fyrst
Ef þú ert að fara í fyrsta skiptið þá ertu spurð út í heilsufar og teknar litlar prufur til rannsóknar....
svo ertu beðin að koma aftur eftir 2 vikur..
endilega skelltu þér.. þetta er verðugt málefni sem skiptir okkur öllum máli :)
Skrifa ummæli