fimmtudagur, júní 07, 2007

back from suburbia

Suburbia er alveg næs, gott útsýni, ró og næði, mikið pláss, en það er e-ð við að vera í grónu hverfi, þar sem að trén rísa hátt yfir mann þegar maður röltir um bæinn... ilmurinn í loftinu býður manni heim og í kaffi!

mmmm.... skjótast á milli húsa í náttfötunum eða inniskónum, a little night-cap á veröndinni með nágrannanum.. .mmmm... verst að allir góðu nágrannarnir flytja eftir sumarið .. snöft.. hvað geri ég þá!!

Allar helgar í Júní eru nær fullbókaðar og ég er ekki frá því að nær allar helgar í Júlí og Ágúst séu það líka....gaman gaman! voðalega er maður e-ð vinsæll ;)

Mig langar svolítið að fara á Laugarvatn á sjóketti þar og svo grilla og liggja í sólabði, miðað við hvað amma og afi eru ánægð þar þá held ég að við vinahópurinn getum alveg sætt okkur við þann stað! Fyllibyttan í sumar!

C.V.
að reyna finnu besta lausn á dagskrá og staðsetningar útskriftaveislna á laugardagskvöldinu!

miðvikudagur, maí 30, 2007

Long time no see!

Það er það komið á hreint!
Ég er búin að vera ALLT OF LENGI OG LANGT í burtu!!!

Ég er að missa af ÖLLU!! Fjóla er að gera drastíska hluti og ég missa af allri spennunni og slúðrinu! Það eru allir að gera e-ð ógó spennandi og ég fæ ekki að vera með af því ég er uppí 113!!! eins gott að amma fari að drífa sig heim aftur svo allt geti orðið eðlilegt aftur, jafnvægi þarf að nást!

Annars er gólftuskan orðin að bómullarhnoðra aftur, nú lít ég út eins og algjört snobb! Rúntandi um á Volvo á einkanr. með hvítan hnoðra í fanginu. úff.. i am way to young to be that grown up!!

Fór á 28 Weeks Later í gær.. snilld! mæli með henni, hún er blóðugri en 28 Days Later .. me like it!

Sá Blades of Gloryum daginn... snilld! frétti svo að það væri að koma önnur mynd sem heitir Balls of Fury!! awesome!

með mínum uppáhaldsleikara of all time Christopher Walken!! hann er bara uppáhald, þvílíkt scary með svalan húmor! the Dude Rocks!

Ætla að fara vera menningarleg með móður minni ;)

C.V.

fimmtudagur, maí 24, 2007

Technifreaks ;)

Þeir sem þekkja til okkur systkyna vita það að við erum frekar hrifin af tækjum og tækniundrum... helst þá svona flashy dót sem er fjölhæft, fallegt, nýstárlegt og töff.. !

Ég ógó ánægð með græju settupið mitt heima... allt þráðlaust og fallegt.. love it!

Brósi var að fá sér nýjan síma og ég verð að viðurkenna hann er frekar flottur, þó svo að ég muni ekki skipta um lið og fara yfir í SE þá mun ég ekki neita því að síminn er flottur!
Hann er með myndavél báðum megin svo hægt er að halda videoconference calls og alls konar.. !! og þetta er bara tempsíminn þar til vinnusíminn kemur í haust.. og við vitum öll hvaða sími það verður!!

það er nú aldeilis!! og ég sem var svo ótrúlega ánægð með símann minn .. ;) ég er það enn.. hann er amk með betri myndavél en brósa síma..

C.V.

bíð spennt eftir Transformers!

angan af blomum

að sitja hér við stofuborðið hennar ömmu að læra er alveg yndislegt þegar að blómaanganin berst að vitum mér..

Fersk blóm eru nauðsyn á hverju einasta heimili!

Verst að þau skuli vera svona dýr hér á landi..... þá er nú gott að eiga ömmu sem kemur reglulega með blóm til manns frá beðmálsstöðum :p

C.V.
á viti ævintýranna í heimi fjármálamarkaðar... eða bara Hvergilandi

mánudagur, maí 21, 2007

I sjukraproflestri..

Jebb.. það var eins gott veðrið var viðeigandi í dag... ekki eins og síðasta vika hefði nú verið slæm!

Þar sem maður situr og er að spá í þjóðhagfræði og viðskiptalögfræði á hugurinn aðeins til að reika.. ekkert langt en svona smá.

Í dag er ég búin að vera td. á ströndinni á Aruba og á ströndinni í Barbados með hanastél mér í hönd (e. Cocktail).
Ég er líka búin að vera spá mikið í hvaða mynd væri viðeigandi fyrir msnið.. þar sem ég finn enga af mér með kennaragleraugun fínu sem ég átti einu sinni ... hmm...
Fór svo að spá í hvort ég væri ennþá jafn kennaraleg eða fullorðinsleg með þau núna eins og ég var þá...

Svo fór hugurinn í það að taka myndir, ef ég ætti nú myndavél þá gæti ég sko tekið alvöru study mynd af mér.. ef ég ætti nú myndavél myndi ég vera dugleg að taka myndir af öllum samkomum með vinum mínum, ef ég ætti myndavél ætti ég líklega fleiri myndir af mér með fólkinu mínu. Held að ég taki út myndavéla skammtinn fyrir alla þegar ég loks fæ lánað myndavél :p

Ég sit í lesstofunni og peran fyrir ofan mig er biluð, hún blikkar og blikkar, mér líður eins og ég sé í vondri austantjalds lærdómsaðstöðu.. Hvaðan kom þetta eiginlega?!

Fékk líka að vita í dag að amma er farin til Ítalíu sem þýðir að ég verð ennþá lengur í suburbia.. sem er alveg fínt, þó svo að mér er farið að leiðast að vera svona langt í burtu frá vinum mínum ...

Ég er farin að fíla mig á stóra Volvonum... og ég skammast mín fyrir það! Er það ekki once you go "Big" you never go back ;) eða þúst þarna dæmið .. bílar! En það kostar líka.... Volvo með mínímum akstri.. eða fram og tilbaka 103-113 er að eyða um 6 þús á viku..... sem gerir 24 þús á 4 vikum!! held að það segi allt sem segja þarf!! Yaris er definetly málið!!!

Ég hef komist að því áður en að ég sé byrjuð að nota það, þá þoli ég ekki bensíndælulykilinn frá AO. Það er einum of mikið mál að fá einn lykil til að virka! ...

Ég er að spá í að fara á tónleika í köben í sumar... 3 tónleikar raðast svo fullkomlega á þá daga sem ég er úti.... fyrst Justin Timberlake 23. júní við hliðin á þar sem ég bý, svo Damien Rice 25. júní og að lokum Pearl Jam 26. júní.

Ég viðurkenni það fúslega að ég þekki ekki mikið til PJ, hef alveg hlustað á lögin þeirra og syng alveg með þegar þau koma, kannski ég finni fyrir e-u á tónleikunum með þeim...
En JT er audda bara entertainer af Gvuðs náð! sem maður verður að sjá er það ekki ;) og DR er auðvitað bara snillingur!!..

Danski vinur minn fór í gær og tók góða veðrið með sér, hann kom í 3. skiptið til landsins og fór í fyrsta skiptið út að tjútta með íslendingum ... og ég er ekki frá því að hann hafi bara fílað vel! Ég skildi greyið eftir með vinum mínum á laugardeginum og stelpurnar voru allar æstar í hann.. heheh .. ég á flotta vini ;)

Hann sagði að íslendingar lifa fyrir tónlistina, þeir eru óhræddir við að syngja með hvort sem þeir kunna textan eða ekki. Það er bara alltaf sungið með!! Það er allt annað á borðinu í DK, þar skiptir sko múvið á dansgólfinu miklu miklu meira máli .. össs!!

Ég fékk hrós.. ég tala víst dönskuna með Hellerup hreim, sem er víst svolítið posh danska ;) ekki slæmt þetta! Danski vinurinn opnaði líka fyrir e-a flóðgátt sem var stífluð í dönskunni minni og núna er ég meira að segja farin að hugsa aftur á dönsku .. það er e-ð sem hefur ekki gerst lengi! gaman gaman!

ætla að halda áfram að læra...
Fjóla á eftir að skamma mig fyrir að hafa bloggað!.... ooooh .. ég missti af kaffitár... snöft..

C.V. .... still mentally on Aruba!

miðvikudagur, maí 16, 2007

svefneysi..

Ef það er eitt sem ég þoli alveg alls alls ekki þegar ég er að reyna sofna þá er það tifið í klukku...
Það er e-ð sem fer í mig við þetta reglulega tif.. sem bara heldur fyrir mér vöku og ómar í kollinum á mér.. svona soldið eins og hjá Captain Hook!
Ég get alls alls ekki bara legið og sofnað út frá þannig hljóð, hins vegar ef það væri óreglulegt eða rigning... þá myndi ég lognast út af á skotstundu!

E-a hluta vegna er amma með 2 klukkur í gestaherberginu.. eina á sitthvoru náttborðinu.... ég setti háværari klukkuna inn í skáp í gærkvöldi .. og núna áðan myrti ég hina! ... 30 mín seinna og ég er enn dauðþreytt í öllum líkamanum en get ekki sofnað .. !!
Ef þetta er nýtt svefnleysis tímabil þá ætla ég að biðja um svefnpillu! og það strax!

Geisp og ég verð vakin kl. 7.15 í fyrramálið tli að fara niður í skóla að læra... .. geisp.. i need my sleep!
fyrir utan það .. gólftuskan heyrir í draugum og bregður mér á 30-57 mín fresti með háværu gelti ... ! ekki kúl! ég er að spá í að henda henni út!

C.V.

þriðjudagur, maí 15, 2007

sundið ...

Skellti mér í sund rétt fyrir lokun ... yndislegt alveg hreint..

þið kannist við það, eða hafið séð það þegar strákar fara í sund og loftið festist allt í buxunum hjá þeim..
þeir setjast niður allt bara blæs upp.. soldið fyndið ... let's face it.. it really is!

Allavega.. þá lenti ég í svipuðu dæmi hér í kvöld... fór í nýja nuddtækið í lauginni ... mmm.. yndislegt alveg..
Svo allt í einu tók ég eftir því kallarnir í pottinum eru lúmskt að stara á mig... ég lít niður.. og haldiði ekki að brjóstin á mér höfðu stækkað upp í Dolly.. ég hélt nú ekki að það væri hægt að stækka meira!...Ég svoleiðis sprakk úr hlátri og setist niður þannig að loftið allt fór úr... og gaurarnir í pottinum urðu hálf skömmustulegir!! .. LOL .. prufa að gera þetta næst þegar sætur strákur er í pottinum ... LOL..

Annars er tími minn senn kominn á enda aftur í Suburbia.. og hann er allavega kominn á enda í kvöld... rúmið kallar heiftarlega á mig!
Á morgun verður Grill og Gleði með The GANG! og ég hlakka óendanlega mikið til.. !! jeij!

Hasta maniana, carinios!

miðvikudagur, maí 09, 2007

Eiki Hauks..

krípar mig út á forsíðu mbl.is ... hann blikkar mann þegar honum hentar, þetta þykir mér alls ekki þægilegt, sérstaklega ef maður er að lesa grein sem er þarna í kringum hann ... úff... hrollur.

Séra Al Green er með tónleika 28. júni og 6. júlí í London í sumar, ef ég skyldi nú skella mér þangað gæti ég líka náð Justin Timberlake, Bright Eyes, The Good the bad and the Queen, The Who, Gypsi Kings, Lou Reed og Joe Cocker.

Sérann er líka í 7. ágúst Madison Square Garden í NY og þá gæti ég farið The Police, Michael Bublé, The Black Crowes, Kelly Clarkson, Kenny Rogers, BB: King með Ettu James og Al Green, Weird Al Yankowich og kannski í lengst aðeins til að sjá Dave Matthews Band.
Af hverju býr maður ekki í london, þar eru samgöngurnar svo auðveldar á milli landa og ódýrar oft á tíðum!!

Við Dóra Rokk settum reglu fyrir síðasta sumar sem hljóðaði þannig að ef það var sól, þá var grillað, held að við höfum ekki klikkað eitt skipti á því! Enda erum við ekki að tala um marga daga.. lol.
Þessa reglu settum við aftur fyrir þetta sumar og hún byrjar á morgun, hvort sem verður sól eða ekki, því það er víst forkeppnin í Eurovision, sem er víst eins og upphitunarballið á þjóðhátíð í eyjum, byrjar vel ;)

Annars hef ég enn lítið sem ekkert að segja, en jú, takið frá 26. maí (átti það víst að vera). more details will follow.

C. V. ... á leið í bakaríið?

þriðjudagur, maí 08, 2007

fann mynd

Fann þessa mynd af okkur systkynunum frá því á menningarnótt í fyrra..
sexy Bastards aren't we ;)


Nú vantar mér bara eina af okkur öllum saman í einu... man ekki einu sinni hvenær við vorum öll þrjú saman í sama landinu :o

kannski við photoshoppum bara eina saman ;)
C.V.

mánudagur, maí 07, 2007

Mai..

7. dagur maí mánaðar er kominn..

Hann hefur enga þýðingu aðra en fyrir þær sakir að vera mánudagur og mánudagurinn eftir eitt skemmtilegasta brúðkaup sem ég hef farið í og fyrir að vera fyrsti mánudagurinn þar sem hægt er að vera almennilega sumarklæddur.... já ég er búin að vera spá mjög mikið í þetta.

Takk Sóley og Freyr fyrir yndislegt brúðkaup og æðislega veislu. Þið eigið mikið af góðu fólki í kringum ykkur sem þykir mjög vænt um ykkur.

Að ofhugsa kallast á ensku overthinking en á fræðilegumáli heitir það Casual Analysis Paralysis
Ég á það heldur betur til að ofhugsa hlutinu, meira að segja áður en ég geri hlutina, og oftar en ekki kemst ég að þeirri niðurstöðu að afköstin verði ekki þau bestu og því væri betra að sleppa þeim heldur en að gera ekki sitt besta. Nú veit ég vandamálið og nú mun ég laga það.
Ég tel mig samt vera manneskja sem goes with the flow og læt bara rætast úr þessu. ... mótsagnakennt?

Um leið og andinn kemur mun ég deila því með ykkur..
C.V.