fimmtudagur, ágúst 30, 2007

Lent i Köben..

Þá er ég komin, sit inni í eldhúsi, þessu fína eldhúsi btw.
Fjóla, stofan er rosalega flott.. it makes us proud!
Eldhúsið er líka til fyrirmyndar. Ég skal taka myndir og skell upp.

Sit núna með rauðvínsglas og hef það voða notalegt.

ætla láta danska fólkið vita að ég sé komin ...

til lördag söde.
Clara

núna eru 16 hits á síðuna, og ég veit aðeins hverjir 6 eru...
people make notice of yourself.

mánudagur, ágúst 27, 2007

fall er faraheill..

eftir þessa nýliðnu helgi er ég alveg blá og marin, með skurð á hnénu og með e-s konar áreynsluverk á hægri hné...
when it rains it pores... ! það er sko á hreinu!

ég er með massífan marbletta á vinstri fæti eftir að e-r steig á fótinn minn á föstudagskvöldið, ég er með massífan marblett sem er bara að stækka á hægri hliðinni eftir að e-m fannst ég þurfa komast nær barborðinu.

samt skemmtilegast frá að segja er að í gær skellti ég mér á hjólaskauta með dönsku hjúkkunni enda við tvær vanar frá köben ... been doin it for eons and eons.. skelltum okkur báðar í bauerskautana okkar og rúlluðum af stað...4 mín in to our trip hvað gerist annað en ég er að taka smá snúning og er að reyna fara renna mér beint út úr honum í halla... ! hvað gerist annað en að ég dett og ríf síðustu gallabuxurnurnar mínar... fæ skurð á hnéð :( og smá blóð...

öss.. maður lætur ekki svona aftra sér.. enda með einkahjúkku með í för.. við rennum áfram út að ægissíðu og tilbaka og förum svo upp á barnaspítala þar sem ég er dekruð af 2 sætum hjúkkum fæ plástur og ís og súkkulaði sósu.... mmm... gott að eiga góðar hjúkkur ;) og sætar þar að auki... verst að ég gat ekki komið lækninn inn í þetta.. !!

svo í morgun gerði ég góðverk mánaðarins.. fór og gaf blóð...
venjulega er ekkert mál en í dag þurfti næstum að skipta um sárabindi eftir á.. öss!!! ekki nógu kúl....

nógu gore-y upplýsingar fyrir ykkur? ;)

hætt í bili..

Clara á leið til Köben á fimmtudaginn ;) ..
Clara sem er með steraboostaðaferðflugu í sér ;P

fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Akureyri Kaupmannahöfn

Ég lýsti því yfir í gær við fjölskylduna mína að ævintýraþráin væri farin að gera allverulega vart við sig og að ég væri mikið að íhuga að láta verða af því að hverfa á vit ævintýranna á ókönnuðum slóðum, fyrir mig allavega vega.

Sat heillengi og ræddi þetta við múttuna og brósa... og tilkynnti að köben væri nú ekki ofarlega á listanum yfir óskastaði til að fara í ævintýraferð á. Þá kom brósi með góðan punkt, Hey Köben er eins og Akureyri... nema hvað það er meira ferðalag að fara til Akureyrar... þeir eru með franskar á öllu hjá sér!!

Það er reyndar satt hjá honum...
mér finnst meira spennandi að fara til Akureyrar en Köben... enda búin að vera annan fótinn þar for eons and eons and eons more!

Annars er nýtt í fréttum...
Ég keypti mér flugmiða til meginlandins í gær... er að fara á algjörlega ótroðnar slóðir fyrir mig... og þetta er gert í skiptum fyrir að fá góðan "partner in crime" yfir airwaves hátíðina!
vá hvað ég hlakka til að fara út... hef ekki farið í flugvél síðan 18. júní 2006.. sem jafngildir rúmum 14 mánuðum of no travel!!! þetta hefur aldrei, ALDREI komið fyrir mig áður!

eins gott að ég fljúgi nóg á komandi árum til að bæta mér þetta upp!

Hugleiðing dagsins:
Eru bakteríudrepandi efni í ískápum málið?

kv.
Clara...

about to tip toe through the tulips...

miðvikudagur, ágúst 22, 2007

Ækia

Fjölskyldan mín og ég erum miklir aðdáendur Ikea, mamma segir að það sé vegna þess að ég liggur við ólst upp í ikea í Svíþjóð og jú af því að bróðir minn litli er núa líka "made in Sweden"... aaaw.. litli sæti Svíinn minn. :-Þ
Fyrir utan það hef ég farið í all nokkrar ikea verslanir út um allan heim! Skylda segir mamma mín!

Ikea er, má ekki gleymast, góð uppspretta hugmynda fyrir innbúið og þar fyrir utan frábær leikstaður fyrir börnin og góður staður til að fara á deit á.... ;) þúst hversu oft fær maður tækifæri til að prófa rúm og dót og leika sér nema þegar maður er að prófa fullt af hlutum eins og í IKEA!

Mamma er samt búin að gera merkar uppgvötvarnir í Ikea nýlega, í fyrsta lagi er svo hentugt að kaupa kassa inn í skápana mína til að taka til í óreiðunni... núna líta skáparnir hjá mér út eins og í bækling hjá ikea.. smart ekki satt ;)
Ekki má gleyma veitingastaðnum... sem býður upp á sænskar kjötbollur með sultu og kartöflum, en ekki kartöflumús eins og í Svíþjóð. Og bara góðan mat á þessu fina fína verði.. frá aðeins 290 kr. ... geri aðrir betur! ;)
Það er meira að segja hægt að fá nokkuð fínt rauðvín með matnum... össs... klassi!

í Ikea er gott og gaman að vera.... og ódýrt þar að auki ;)

Mér fannst samt skemmtilegast þegar ég fór til San Diego í Kaliforníu og við mæðgurnar vorum á fulllu að leita eftir húsgögnum í litlu íbúðina hennar þar.... mamma hafði farið í Ikea og ekkert fundið. Svo mæti ég og við kíktum í Ikea, enda skylda, og heldurðu að daman hafi ekki fundið borð og stóla, lampa, gestarúm og nær allt í eldhúsið sem hún þurfti..
og ekki nóg með það... þá fundum við líka í matahlutanum, kavíar og kex og nammi sem ég hef ekki séð síðan ég var 6 ára og við fluttum frá Sverige!!
Hrikalega gaman.... núna er samt efst á óskalistanum að komast í boltalandið og leika sér þar aðeins... enda algjör snilld!

Vinkona mín er að vinna þarna... kannski ég geti plöggað e-ð!!

kv.
Clara... a child at heart ;)

þriðjudagur, ágúst 21, 2007

The spp.pp.p.p.pinster...

já ég er búin að ákveða það að verða einbúi, piparmey eða Spinster á ensku.
Ég ætla að eiga 2-3 ketti amk 1 kjölturakka og svo fullt búr af gullfiskum sem munu flestir heita Gulli.

ég ætla mér að búa ein í íbúð með skrítnar dúkkur og furðuverur hangandi í glugganum hjá mér og úti í garði og börn verða hrædd við að koma nálægt mig.

ég ætla að vera eins og konan í little britain með þvaglekann!

ég ætla að búa ein!!!

Kv.
CV.

það getur verið erfitt að búa með móður sinni í studíó íbúð.

föstudagur, ágúst 10, 2007

dancing with the devil...

það versta við að vinna hérna er að maður er fastur í freistingunum ...
freistingarnar eru allastaðar í kringum mann... úff það er erfitt...

ég er hins vegar mjög vel sett heima hjá mér enda þarf ég ekki mikið, hátalara, airport og góða tölvu ( sem er þó aðeins farin að láta vita að hún sé ekki nógu kúl.. enda ekki intel vædd og aðeins G4)

Bróðir minn dansar hérna í kringum mig þar sem upp kom að ég væri kannski að spá í að upgrade tölvuna hjá mér...
hann hljóp inn í búð og kom til baka með þetta....


svo á auðvitað að sérmerkja þetta Clöru svo það fari nú alls ekki milli mála hver eigi tölvuna ....
En þá kemur upp spurningin....
rautt eða grænt á svart ...... eða grænt á hvítt?

hjálp...
CV.

forvitni...

síðan mín fær um 15 heimsóknir á dag..
en nú er ég bara orðin of forvitin að fá að vita hverjir það eru sem líta hér við ...

endilega kommentið, annars er ég ekki frá því að ég takmarki aðgang að síðunni minni ...

átti annars alveg frekar góða verslunarmannahelgi...
sushi og frábær félagsskapur fredag, takk Fjóla!
Laugarvatn og svo lestur lördag .... takk Harry Potter
og svo partý og tjútt langt frameftir morgun söndag, thx guys ;)

mig er farið að langa smá til útlanda... vill e-r fara í smá ævintýri?

CV.
kl. er 9.23 og ég er enn uppí rúmi á föstudegi .....mmmmm ...

fimmtudagur, júlí 26, 2007

kvöl og pina

E-n tíman á árunum 1989-91 fengum við brósi tölvu í jólagjöf...
Fyrsta leikjatölvan sem við eignuðumst og þvílíka hamingjan (og "hamingjan") sem við áttum með þeirri tölvu..
Þessi tölva var Sega Master System


Við fengum kassa með 12 leikjum og ég get svo svarið það, það var leikið. Sumir unnu, sumir töpuðu, stundum var það réttlátt .. stundum ekki ... stundum var það blóðugt.. en hey ..Kid's R Kid's .. og maður leyfir litla bró ekki komast upp með allt!

Anyway.. .!
Fyrsti leikurinn sem við spiluðum og kláruðum strax á fyrsta kvöldinu var RAMPAGE. Þessi snilldar leikur var hvað oftast spilaður af okkur enda algjör snilld!

Í dag fékk ég að sjá þetta myndband. Þessi Kvikmynd sem verið er að teasa kemur út 18.01.2008, en það sem er áhugaverðast er að það er orðómur í gangi að þetta sé Rampage bíómyndin!!

úff.. nú fór sko firðingur um mann... jeij ..
næstum sami fiðringur og fór um mann þegar maður sá fyrsta teaserinn af 300 eða Transformers eða tilhugsunin um Thundercats... oh boy oh boy! já minns er smá spenntur.. ákvað að pína ykkur líka í leiðinni.. þeas. ykkur sem eruð svona nördar eins og ég.. lol

CV.
Njörður.

sunnudagur, júlí 22, 2007

Friday BBQ

Við Fjóla héldum smá matarboð á föstudaginn..

við gleymdum hins vegar að taka myndir af matnum .. en það náðust 2 af mér að grilla.. heheh
njótið.. og believe me maturinn var fantastic.. .


villtur lax, fylltar kjúllabringur, lambalundir, eggaldinn og sætar kartöflur á grillið og fylltir sveppir og tómatar og svo aðeins eðalvín með!

mánudagur, júlí 09, 2007

í goðu yfirlæti...

Heima hjá Fjólu er alltaf gott að vera...

þar er tekið á móti manni brosi og hlýju.... maður fær góðan mat og þrusu gott rauðvín svona rétt fyrir svefninn...
Ekki nóg með það þá er hún besti félagskapurinn og bara í næsta húsi....

Eins og í kvöld... þá fékk maður þrusugóða spelt pizzu og frábært rauðvín... og ennbetri félagsskap!!


-**-**-**-**-**-**-

.... en að e-u öðru..

ég er búin að vera með á dagskránni smá me-time... en hef bara enn ekki komist í það.
búin að ætla að skella mér í sund, lesa bækur, hlusta á tónlist og bara vera til... en e-a hluta vegna þá hefur það bara ekki ekki tekist...
Aftur á móti þá var endalaust skemmtilegt sleep-overpartý hjá mér um helgina... ég fór út að borða á Organic Fish & Chip (góður matur, endalaust góður matur)
kynntist spinning kennaranum hennar mömmu og konunni hans.. Dansaði og dansaði í nýja kjólnum mínum ;)
átti die hard maraþon með snillingum, boðin í snilldar grill og fór á landsleiknördanna þar sem að hann bróðir minn ljúflingurinn spilaði og sigraði svíana 7-0...... eins og einn félaginn sagði... við fengum uppreisn æru. *fliss*

en núna ætla ég að fara koma mér heim.... enda sit ég enn uppí sófa hjá Fjólunni og læt ljúfa tóna Ray Lamontagne flæða yfir mig.

ætla heim og njóta þess að vera til ...

þar til síðar SugahPillows
C.V.