Haldiði ekki að stelpan hafi ákveðið að skreppa í örstutta dagsferð til stóra eplisins, eða borgina sem aldrei sefur vestur um höf...
Þótt þetta hafi verið stutt náði ég annsi mörgu. Hann brósi litli var að fara til BNA í fyrsta skipti á ævinni og því fannst mér skylda að taka almennilegan túristapakka á þetta..
Við lendum þar í borg um 8 PM og löbbum í fangið á yndislegustu frænku sem ég á (eða aðra þeirra) sem er mætt með eðalvín ;) Þegar komið var upp á herbergi á 29 hæð var skipt um föt og skotist upp á 39 hæð til að hitta frænkurnar... þær voru btw með mun betra útsýni heldur við því þær voru með allt Time Square.
Svo var farið út að borða á Asia de Cuba... og ég verð að segja það... vá hvað maturinn var góður... fengum svona fancy drykki.. minn hét mambo king sem var kampavín og rasperry vodka alveg Delicious... nammi namm
Eftir alveg dýrindis máltíð og þegar allt slúður var sagt héldum við brósi í átt að Empire State þar sem við ætluðum að ná síðustu lyftu upp áður en lokaði...
Því miður var hætt við hana þannig að við tókum Time Square í staðinn og löbbuðum að henni... og þvílík litadýrð.
Við skriðum svo upp í rúm um 1-2 leytið... þá um 5-6 leytið að íslenskum tíma..
Spennan var orðin svo mikil í mér að þegar ég vaknaði um 7 leytið að staðartíma varð ég að halda aftur af mér að vekja ekki allt fólkið....
En um 8.30 skreið brósi á fætur og það var farið út að fá sér Starbucks... nammi nammi...
Svo má ekki gleyma því að það er nálægt 30° hiti þarna.... og ekkert súrefni WHAT SO EVER! Það var bara stanslaus heit molla...og alls engir vindar...
Þrátt fyrir þetta var alveg ótrúlega gaman... maður gleymir sér alveg þarna..
Að horfa á fólkið að skoða í búðir(eins og sönnum dömum sæmir ;) og að vera til!
Ég samt verð að viðurkenna.... ég tapaði mér alls ekki verslunarkaupum... nope... ég keypti mér 2 pils og húfu... svo smá krem og spray hjá Victoriu vinkonu minni.. því maður verður nú að ilma vel öllum stundum ;p
Hins vegar tók ég mig til og hjálpaði bróður mínum að finna nýtt outfit... og ég vrð að segja það sem hann fékk sér var mjög flott....
Það var sko verslað í Armani Exchange, enda þjónustan alveg til fyrirmyndar... maður tók flík af henginu eða úr hillunni og þá var strax e-r búinn að fara og taka frá mátunarklefa og öll fötin geymd þar.. fyrirmyndarþjónusta!! og flott föt!
Svo var farið í apple búðina sem er auðvitað svo flott þarna úti... og á hverjum degi eru svo námskeið í öllum þeim prógrömmum sem apple er með ... rosa flott .. og svo getur maður prófað allt saman og það er svo gaman að fara þarna inn ... :D
Svo var labbað allt broadway frá Soho up að Union Square og þvílikur göngutúr.. það var stoppað í ótrúlega margar flottar búðir og eina Halloween búð sem er ALVEG MERGJUÐ! það er svo flottir búningar þar!
Svo var bara brunað upp á hótel í sturtu, skipta um föt og út í bíl með crewinu til að ná fluginu heim... voða gaman allt saman :D
En Þessi borg er alveg ótrúleg! Ég er svo kolfallin fyrir henni.. ég hlakka svo til að flytjast þangað þegar að því kemur.
jæja.. þetta finnst mér vera annsi ítarlega frá sögn.. það vantar þó aðeins um heimferðina...
ég bæti því við kannski seinna... en ég er víst að fara í próf eftir 1 og hálfa klst. þannig ég ætla að fara læra..
later
Clara Cosmogirl :P
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hvað get ég sagt... stutt ferð... gotta plan!!
Skrifa ummæli