miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Lifið er yndislegt, sjaðu, það er rett að byrja her...

Þeir vita sem hafa farið á þjóðhátíð í eyjum er alveg stórkostlega mögnuð!

og þá sérstaklega í góðum vinahóp, með góðri tónlist og góðum drykkjarvörum... muahahhaha
þetta er bara búin að vera mögnuð ferð og það heyrist sko á röddinni minni.... hún er sko farin!

Helgin var eydd að meirihluta í partýtjaldinu góða en einnig alveg heil mikið uppí brekku og ... humm.. í matartjaldinu... muahahaha.... þar sem reyktur lundi var sporðrendur niður með heilmörgum frönskum og fullt fullt af jummy tómatsósu :P

í Svörtum fötum skoruðu svo ótrúlega mörg stig á föstudagskvöldinu... þeir tóku Kiss og þá meina ég allan pakkann!!
Fötin, málningin og lögin!!! þeir áttu þessa helgi...!
Skítamórall.. hinsvegar.... is not worth mentioning!
Svo var það nú sunnudagsmorguninn svona um 7 leitið að ég reif Úlla bíkini út úr tjaldinu hans og manaði hann í að hlaupa með mér upp fjallið..... djö.. var það gaman... og djö... var gott veður! ég sá sko liggur við til Írlands!!!

svo rendi ég mér alla leið niður brekkuna... magnað ... MAGNAÐ!
hinsvegar myrti ég regnbuxurnar mínar.... og þá meina ég ALGJÖRLEGA...!
það voru eiginlega bara skálmarnar eftir... en það var bara fyndið!!

jæja... ég er víst byrjuð í skólanum... er að taka einn áfanga með HMV og það er nú bara sodlið erfitt að mæta á réttum tíma.... er auðvitað að vinna til 5 eða 7 aðra hverja viku en skólinn byrjar kl. 4... ekki alveg nógu gott... en ég held að þetta verði alveg allt í lagi.... þetta er nú meira eða minna alveg eins og þjóðhagfræðin...

óh vell...... Law and order er í gangi.... og ég þarf að vaska upp.... sem mér finnst btw mjög róandi.... kannski er það tilhugsunin um að strax á eftir verði allt hreint í eldhúsinu..... sem er alveg yndisleg.... allt hreint og fínt upp í skáp....
núna væri best að rífa sig í að klára þvottinn og ganga frá honum.... svona er að fara í eyjar... maður fær víst ekki mikið af hreinum fötum með sér heim...

Hvað gerðuð þið svo annars um helgina?

hvernig líst ykkur svo á nýju síðuna mína..... endilega segið nú skoðun ykkar. ... ... sama hversu lítilfjörleg sem hún er...

Engin ummæli: