fimmtudagur, september 29, 2005

Litið að fretta....

Það er víst kominn smá tími frá því ég bloggaði síðast... enda þannig séð ekkert mikið að gerast hjá mér... fyrir utan það auðvitað að ég er búin að kaffæra mig í endalausum verkefnum.. það er að segja vinnu og skóla og núna það nýjasta .. einkaþjálfun.. ;)
Enda er planið að verða flottari kroppur heldur en hún móðir mín.... sem er “knocking them dead” in sunny Cali....

Þannig er mál með vexti að ég er búin að gjörsamlega fylla vikuna mína og meira að segja fullbóka mig þannig að lærdómstíminn er orðinn takmarkaður... nema auðvitað að gvuð verði svo góður að bæta nokkrum klukkustundum við sólarhringinn svo ég þurfi nú ekki að byrja á kaffinu....
Er víst í 120% námi, 2 vinnum (er reyndar að cutta niður) og auðvitað einkaþjálfaranum 3x í viku plús það að ég mæti sjálf 2x í viku kl. 6 á morgnanna með nágrannanum....það er sko heaví átak í gangi!
En hvað get ég sagt........ þetta eru bara nokrir mánuðir... þetta verður allt búið um mið nóv... þá byrja prófin ...
Ein aðalástðan fyrir þessari hörku er það að verðlaunin eru svo góð.....
Ég ætla að verðlauna mig með ferð til NY og Californiu um jólin ..
Það verður svo ótrúelga gaman.. .. planið er að fara strax eftir próf til NY vera þar í nokkra daga... fara kannski a´bradway show eða 2.... versla nokkrar sætar flíkur og knúsa englana mína 2 sem búa þarna úti..... . . svo er planið að fljúga til San Diego og heilsa upp á múttuna og svo vonandi fara skoða suðurhluta Californiu og hver veit nema að ég fari á gamlar heimaslóðir í norðurhlutanum ......
Svo á ég eftir að ákveða hvort ég komi heim fyrir áramótin eða eyði þeim annað hvort í NY á timessquare eða bara á ströndinni í Cali.... úff.. hugs hugs.. þetta verður erfitt.... sérstaklega fyrir manneskju eins og mig sem ELSKAR flugelda....


Ég ætti nú alveg að geta plöggað það ... þið verðið bara að vera annsi supportive við mig á næstunni :) ... .... .... líka fyrst að ég er svona eiginlega munaðarlaus...
Foreldrarnir í sitthvorri heimsálfunni og solleis...
Bróðirinn upptekinn með konunni.... og vinnunni.... reyndar er hann nú líka ða fara hverfa í e-a rosa törn.... hann audda kominn í þessa fínu vinnu hjá apple.... svo er hann búinn að koma sér í skóla... til að læra kerfisfræðinginn .... held ég.. ekki taka mig á orðinu .... og svo ætlar hann líka að vera vinna í “Það var lagið”... það er aldeilis búið að pakka okkur systkynunum í þvílikan törn pakka....
Svo er amma Laulau og Siggi farin til Costa del Sol... þau koma svo ekkert aftur fyrr en í feb.... og amma Clara.. já hún er nú bara að koma sér fyrir í nýja húsinu og njóta lífsins... getur maður beðið um meira ....

2 vinkonur mínar fóru í framboð fyrir stjórn Heimdallar.... og ég dróst sko alveg inn... útnefndi mig head cheerleader.. "klæðnaður var ekki skilyrði".... !
Alveg svaka fjör að vera á skrifstofunni og hringja í fólk og þvílikur andi yfir liðinu... Jóhanna Dýrunn og Lafði Hanna Kristín voru í framboði og það var svo mikill kraftur í þeim.. svo voru kosningar síðastliðinn þriðjudag... og þvílika spennan... yfir 1000 manns komu og kusu... það var röð í meira en 2 tíma.. en thankfully gekk hún hratt fyrir sér....
Spennan var alveg kyngi mögnuð þegar beðið var eftir úrslitunum.... og því miður náðum formannsefni okkar ekki inn... og Bolli var kosinn aftur... ☹(.... en við náðum þó einum í stjórn... hann Ari...okkur til mikillar ánægju .... góð byrjun :D

Hvað meira... Ég er ekki en búin að missa af einni vísó...... ja reyndar síðast var e-r golfferð... og ekki er ég nú mikil golfmanneskja... þannig að ég skrapp ís má ammæli... smá á kosningaskrifstofuna og smá í pool... en síðasta vísó var alveg helv. Flott.. þar var flott fyrirtæki sem bauð okkur.. nebbla Avion Group.. og ég verð að segja að þetta er alveg þrælflott fyrirtæki og það er miklu stærra en ég hafði get mér í hugarlund..

Svo núna á morgun er Austurbakki.. það verður spennó og svo bjórkvöld eftir á á Gauknum... sem nú er oðrinn heimastaður HR-inga... nær og fjær... það verður spennandi...
Annars eru skilaverkefni, verkefni og miðannapróf að fara koma.. þannig að maður þarf víst að setja smá kraft í manninn... svo maður detti nú ekki aftur úr...

Og það besta er auðvitað að AirWaves byrja um leið og miðannaprófin eru búin... ! hversu magnað er það !!!

Það er samt kominn þvílikur fararhugur í mig núna.. jájá.. ég fór út í mánuð ... en það var í byrjun sumars.. það eru alveg 3 og hálfur mánuður síðan.. og jú .. ég kannski skrapp í sólarhring til Ny.. en það var bara sólarhringur.... allt of stuttur tími... og telst því ekki með ...
Nei núna langar mig í sólina.... mig langar að liggja í sundlaugarbakkanum og sleikja upp sólina.. eða bar láta hana sleikja mig... ... sól hvar ertu og.. jhvað er málið með veturkonung og Kára.... get it boys.. we dont´like you!

En jæja.. það eru víst e-r bjánar að bíða eftir þessu bloggi... verðið ykku r af því strákar.. og allir vera duglegir að commenta og skrifa í gestabókina...

Luv’yall
Clara Víf

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Einu sinni var hávaxin tignarleg stelpa sem bloggaði og bloggaði, hún bloggaði svo mikið að fólk hélt að það væri atvinna hennar. Hún vann meira að segja blogg keppni.

En svo fékk hún sér einkaþjálfara og hætti að blogga......
massi!

Nafnlaus sagði...

ég er bara svo dugleg stundum að það er alveg ótrúlegt!
en ég lofa að vera duglegri að blogga.... þegar tími gefst... :D