mánudagur, október 10, 2005

Nytt langt blogg ;)

Ég komst víst ekki hjá því að verða klukkuð .... ($&#/%&#)
Þannig hér eru 5 staðreyndir um mig..

1. Ég er lestrarhestur... ég elska að lesa... ef ég fæ góða bók í hendurnar get ég týnt mér algjörlega þangað til að ég hef klárað hana..... harry potter bækurnar eru td. bækur sem ég verð að fá strax!

2. Þegar ég var lítil klifraði ég upp á allt sem mögulegt var að klifra í og á ... átti það þó nokkuð til að festast uppi.... :S Hef samt aldrei dottið niður úr hárri hæð..(nema einu sinni)... og aldrei brotnað..

3. Ég þarf að prófa allan mat að minnsta kosti einu sinni. Og það sem ég hef komist að er að mér finnst ólífur og kókos ekki gott. Og merkilegast nokk þá er ég með ofnæmi fyrir e-u chutneyi frá Pakistan... hversu furðulegt er það !!

4. Þegar ég var útí Dk þá ferðaðist ég út um allt á hjólaskutum með pabba mínum og bróður. Og mér fannst og finnst það enn ÆÐI. Það er fátt skemmtilegra en að fara frá húsinu mínu renna niður að litlu hafmeyjunni áfram með höfninnu að Nyhavn og enda á strikinu og fá sér bjór alls staðar á leiðinni :D bara gaman! Enda á ég 2 pör hjólaskautum... og 1 par af línuskautum... það vantar bara svona rollerdisco hérna.. þar yrði ég sko laaaangflottust ;)

5. Og svo eina crazy staðreynd um mig.... ég ELKSA allt grænt!!
íbúðin mín er með grænt þema frá sófasettinu til borðstofusettsins.. til diskana og servíetturnar og alveg niður í ógisslega flottu grænu sleifina mína :D:D:D:D
Svo á ég 2 grænar peysur og 4 pör af grænum skóm!!! Og mig langar í meira!!!!
Mig vantar græn rúmföt, græn púðaver, grænan jakka.. ( reyndar átti ég geðveikar grænan leðurjakka sem hvarf því miður á Nellýs :( ) jaaa.. ég á hvítan jakka með grænu mynstri.. mjög flottur.. svo á ég auðvitað fullt fullt af grænum skartgripum :D:D:D


And know for somthing completely different....
Eins og þíð vitið er ég búin að vera duglega að fara í laugar... og er með einkaþjálfar ásamt 3 öðrum stelpum....
Og í gær byrjuðum við á nýju prógrammi... núna verður tekið á efri neðri eða mið hluta líkamans sitthvorn daginn... í gær var tekið rass og magi..... 6 mín hver æfing.... úff... trúið mér ekki auðvelt....

Svo fengum við nákvæmari matarlista.... sem núna veðrur að fyljga!!! Og við vorum beðnar um að ... humm... sleppa áfengi næstu 4 vikurnar... !?!?!
Trúið þið þessu.. hvernig dettur honum þetta í hug...!?!?1

Neinei .. ég ætlaði hvort eð er að fara slaka aðeins á... önnun er hálfnuð og núna byrjar alvaran... verkefnin prófin og ég veit ekki hvað .. þannig að núna á föstud. Og laugard. kvöldum ætla ég að vera á e-t af eftirfarandi stöðum.
a. heima hjá mér að læra...
b. heima hjá frænda mínum að passa
c. heima hjá hinum frænda mínum að hoppa á trampolíni ef veður leyfir..
d. heima hjá ömmu að læra
e. að læra uppí skóla
f. heima Hönnu Kristínu að læra..


Annars má nefna það að ég er besta systir í heimi..... þessa nýliðnu helgi var litli bró voða duglegur að djamma... og vitið hvað stelpan gerði .... skráði sig sem designated Dave alla helgina.. brósa og vinum hans til mikillar ánægju.....

En ég skemmti mér alveg ótrúelga vel... fór meira segja út á djammnið, edrú á laugardaginn og dansaði eins og viitleysingur og skemmti mér brjálæðislega vel!!!.... enda var ég í 7földum vodka dry.... eða.bara vatni ;)

En já.. prófin eru byrjuð... próf á morgun og hinn... svo 2-3 próf í næstu viku,,, og svo má víst ekki gleyma ritgerðunum og verkefnunum sem eru að detta inn.......
Eina rúsinan í pylsuendanum er það að önnin er alveg að verða búin og ég er alveg að fara fara til USA að leika mér :D

Well later you all... .

Ps.
Voðalega er ég dugleg að setja þetta allt inn í einu ..... engin mini blog.. þannig að ef þið leggið í það að lesa þetta þá kalla ég ykkur góð!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þekki þig sko ekkert en rekst hérna inn svona í gegnum-vin í gegnum-annan-vin... :)
skemmtilegt blogg hjá þér - ekki alltaf sem maður sér blogg þar sem fólk nennir að skrifa eitthvað meira en 2 línur um að það sé orðið þreytt á Baugsmálinu.
btw, varðandi hvað þú ættir að gera yfir áramótin, þá fer mitt atkvæði í að vera í NY eða Californiu - djeez louise hvað ég væri til í að vera í USA yfir áramótin, hérna heima finnst mér þetta alltaf vera hálfgert let-down...

Nafnlaus sagði...

Ég þakka fyrir innlitið. ég er alveg sammála þér með þetta baugsmál! er það orðið þreytt eða er það orðið þreytt!!
En með áramótin... því nú vandast málin... hvort er fýsilegri kostur... NY eða Cali... boltin eða ströndin? maður spyr sig... hvar verður fjörið?!

annars hef ég ekkert út á íslensk áramót að setja flugeldar eru ÆÐI!
en djammið er orðið sodlið þreytt.... but don´t tell anyone I told you that.. ok!

Nafnlaus sagði...

hæ ég aftur... hef greinilega ekkert betra að gera en að flækjast á milli bloggsíða :) Sá bara að þú hafðir svarað mér og varð eilega að koma því að að mér finnst sólin og ströndin meira spennó... svo er það líka helvíti góð hvatning til að nýta ræktina sem mest og best. Myndi sko ekki fara á ströndina í bikiníi að fagna nýju ári ef ég væri með keppi lafandi. En ef ég vissi að ég yrði fáklædd um áramótin þá myndi ég sko meika damn sure að ég yrði flott og púla rassgatið af mér.. ekki það að ég sé að segja að þú sért in need of svoleiðis meðferð (my god, veit ekki einu sinni hvernig þín lítur út) :)

Sem sagt, myndi slá 2 flugur í einu höggi; flott og mjó eftir ræktarátakið og myndi svo fagna nýju ári með því að show off what my mama gave me! ;)