þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Update..

Háskólinn byrjaður
Vala Húnbo eignaðist fallegan dreng.. TIL HAMINGJU!
Menningarnótt kom og fór...
Afmæli Halldóru var AWESOME að vanda!
Enda vorum við svoooo endalaust glæsilegar!!!

Annars er lítið að frétta.... ég er líklega að fara skella mér norður um helgina í skírn.. fæ far með yndislegri skvísu.. þarf hins vegar að redda fari tilbaka aftur.. now this will be more interesting...
svo var verið að bjóða mér í partý á Sunnudegi .. af öllu dögum .. já sunnudagur.. Amin er víst að kveðja land aftur .. og honum finnst laaaangbest að djamma á sunnudögum.. því hann er allatf að vinna um helgar..

Skiptinema Buddyinn minn er æði! ...

Það er kalt úti!

Ég ætla að vera mjöög dugleg að læra í vetur...

Ævintýrið heldur áframm með nafnlausa aðdáanda minn... frábært ;)

tíminn er búinn .. ég er farin heim ...

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Litlu stundirnar..

Siðastliðna daga hef ég verið með Andy, frænku minni, og við höfum verið að gera margt sem ég hafði hreinlega gleymt að gera...
við td. fórum í göngutúr rétt um miðnætti niður að fjörunni dáðumst að rökkrinu sem var að falla yfir okkur, fórum á eldgamlan róluvöll og róluðum heillengi og lögðumst svo í grasið til að njóta stjarnanna... mmm....
svo fórum við upp á klambratún og horfðum og þetta gífurlega tungl rísa upp yfir trén og húsin .... það er alveg ótrúlegt hvað umhverfi okkar er fallegt... og þegar félagsskapurinn er svona góður gerist það varla betra!! I love you sweety!!

í gærkvöld .. klifum við fjall, drukkum rauðvín og borðuðum morgunmat... ehm ... mjög snemma... eða mjög seint ;) fer eftir því hvrnig maður lítur á það ;) and not in that order... life is wonderful!!

Þótt að smá mótvindur komi lætur maður hann ekki fella sig.... þá gerir maður bara eins og bangsímon .. hurumph og stígur upp aftur og heldur áfram. ..

njótið litlu augnablikana.... þau eru þau dýrmætustu sem maður fær

Clara Víf

þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Verslunarmannahelgin 2006

oh my oh my ...

Eigum við að ræða næstum bestu verslunarmannahelgi sem ég hef átt?!?
við erum að tala bestu stelpurnar, mesta fjörið, náttfatapartý, kokteils, stelpudjamm, sveitaball í höfuðborginni....
Endalaust daður ;) og brekkusöngur...

það gerist ekki betra en það!

Maður veit ekki hvort maður á að segja frá því en við stelpurnar lágum og kúrðum til kl. 18 á sunnudeginum og það var svoooo notalegt!

Svo ball um kvöldið með allt gamla fólkið .... awesome bebe!

spjall.. eftirparty... meira spjall.... kúr með litlu frænku.....
hazar á bíl... og meiri hazar....

það er svo gott og gaman að vera til!

ég er ekki frá því að maður geri þetta oftar!

annars er fullt að segja frá og ef ykkur langar að vita meira you know where to find me... bebe.....

skál fyrir mér.. því ég er frábær ;)

Clara

miðvikudagur, júlí 26, 2006

Fiðrildi að ná fótfestu?

eins og sumir vita hef ég verið mjög mikill "flakkari" í gegnum tíðina, flutt mikið milli foreldra minni í sitt hvoru landinu einnig flutt mikið milli húsnæða hérna.. sérstaklega eftir að ég flutti heim aftur 2002.

Eftir að ég byrjaði í Hr, hef ég reyndar náð meiri fótfestu í lífinu, margar breytingar hafa átt sér stað og allar til hins betra að því er mér finnst :)

Eitt af því sem að mér finnst best, fyrir utan allt þetta frábæra fólk sem ég er búin að kynnast, er íbúðin sem ég fékk hjá BN. Þar er ég núna búin að vera síðan um mið júní 2005 sem þýðir að ég er búin að búa á sama staðnum í meira en 1 ár!! eitthvað sem hefur ekki gerst síðan ég var 13-14 ára...

Og satt að segja.... líkar mér það mjög vel. Ég kann mjög vel við það að hafa allt dótið mitt uppi og í kringum mig. Ég kann vel við það að vita að ég þurfi ekki að fara leita mér að nýju húsnæði og fara flytja bráðlega aftur. Þótt ég viti að ég þurfi að flytja þegar ég lýk námi þá veit ég líka að það er ekki strax... T.G.!

Svo er líka spurningin hvort ég fari erlendis í áframhaldandi nám eða verði áfram hérna, þá þarf ég ekki að flytja burt úr litla kotinu mínu strax :) En það kemur bara allt í ljós á næsta ári...

Ég hlakka mikið til því eftir mánuð því þá flytur hún Fjóla yndið mitt inn í húsið við hliðin á, og þá fjölgar nú aldeilis frábærum nágrönnum.
þá fæ ég e-n til að njóta með mér góðu kvöldin úti á veröndinn minni ... með tebolla eða góðu rauðvíni... mmmmmm....

Með bestu farsældar kveðjur og með sumar í hjarta
Lifið heil og lengi vinir mínir!
Clara V.

To whom it might concern:(þú veist hver þú ert, ekki þú Jón Örn) Annars verð ég að segja að ég var ánægð að rekast á þig. Pleasant surprise, þegar litið er tilbaka og spjallið var gott.

laugardagur, júlí 22, 2006

Geðsjúklingar og skandale!

Föstudagskvöldið 21. Júlí um 1.30 var töskunni minni stolið inni á REX í fm-partýi eftir Pirates of the Carabien. Í töskunni minni voru lyklarnir mínir, kort og síminn ásamt smádót eins og glossar.

Ég stóð við hliðin á töskunni þegar hún var tekin þannig að þetta er mjög einkennilegt. Það sem er verra er þó að viðkomandi aðili sem tók töskuna ákvað að senda karlkyninu í símanum mínum frekar ósmekkleg og dónaleg sms.
Því miður hef ég ekki náð á flesta aðilana þar sem ég er enn símalaus og verð það þangað til í kvöld og auðvitað er ég ekki með numerin hjá neinum.
Þannig að ég á líklega von á ljótum skilaboðum á eftir.

Ég vona að þið þekkið mig betur en að senda svona sms og hvað þá um miðja nótt þótt það sé helgi. Ef manneskjan hringdi í ykkur vona ég að e-r hafi komist að því hver þetta er.

Mér þykir fyrir þessu en ég vona enn og aftur að þið þekkið mig betur en þetta.

annars sendið mér endilega símanr. ykkar því mig vantar öll nr aftur.

Eigið góða helgi og verið góð við hvort annað, það er óþarfi að vera leiðinlegur við aðra.
What goes around comes around.

Clara

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Insomnia..

Goood morning everyone...

Clara the insomniac er mætt aftur á sviðið... ég hef lítið sofið síðastliðnar nætur.. ástæður gætu verið eftirfarandi

a. ískápurinn er bilaður og in need of defrosting, vonandi að það sé nóg.
b. það er enn of bjart úti.
c. nágranninn með hælana sem er alltaf á vappi inni hjá sér
d. frænka mín lést á föstdaginn og ég er ekki enn alveg búin að ná tökin á því að höndla dauðann.
e. feng Sui er í rugli heima hjá mér því ég hef ekki nennt að taka til.
f. ég er ooof spennt að fá frænkur mínar heim á laugardaginn :D:D
g. mér hreinlega leiðist að sofa, og hvað þá sofa ein, maður getur sofið þegar maður verður gamall.
h. leit mín að svörum við spurningum lífsins halda mér vakandi.

ég gæti ef til vill fundið e-r fleiri ástæður.. en þar sem ég er í vinnunni núna nenni ég ekki að spá of mikið í hlutunum.
ég er búin að vera þessi morgunhressa manneskja.. vöknuð kl. 6 og mætt í vinnuna svona gífurlega snemma.... enda ekkert annað í boði þegar maður tekur almennings samgöngur upp í hafnarfjörð ... en það er mjög fínt.. ég næ morgunsólinni og sef ekki morgunin frá mér.... sem er alveg yndislegt!

Tók mig til í gær eftir heimsókn frá ömmu og tók sko til heima hjá mér... tók meira að segja til allstaðar í íbúðinni, í skápum og skúffum, nema inní geymslu því ég er með fullt af fötum sem ég ætla að gefa í rauða krossinn...
tók meira að segja til í bókhaldinu mínu, ég er nebbla þessi manneskja sem hendir alltaf reikningsyfirlitum og öllum "offical"pósti beint ofan í skúffu þannig að í gær ákvað ég nóg komið og tók bæði bókhaldið mitt og mömmu í gegn... ánægð með mig :D

Það er kominn tími á breytingar, sérstaklega þar sem ég er búin að vera í ræktinni núna í 9 mánuði og ok ég er að byggja umm svaka vöðvamassa en samt léttist ég ekki ... þannig nú er það bara harkan sex... núna er það bara strict diet og ekkert auka rugl. Reyndar veit ég að ég mun fá að heyra nokkur ókvæðisorð frá sumum félögum með sumar ákvarðanir en ef maður vill sjá árangur þá verður maður líka að vinna fyrir því .. með blóð, svita og tár.

Svo langar mig að nota tækifærið og óska Völu Húnbó til hamingju með 15 merkur strákinn sem hún eignaðist sunnudaginn 16. júli!
Innilega til hamingju skvísan mín! ég vonast til að sjá þig sem fyrst :D

Svo legg ég til að fólk commenti með hugmyndir um hvað maður á að gera um verslunarmanna helgina... stemmningin er svona frekar róleg en ég er alveg opin fyrir öllu :D

Commenta fólk!!!

Claran kveður.. ætla að eyða deginum í sundi... þannig allir eru velkomnir.. ég verð á bakkanum e-r staðar... nema ég endi á að sitja fyrir utan hjá mér að njóta dagsins!!

Gleðilega Sól, gott fólk!

þriðjudagur, júní 20, 2006

fyndið atvik og klúður ástarlífsins

Við Fjóla skelltum okkur út á föstudaginn í leit að stað sem heitir Luðvíksen....
þessi staður átti víst að rækta alla þessa fallegu karlmenn sem við sáum allastaðar þarna úti....

Því miður fundum við hann ekki ... og þar sem svo langt var liðið á kvöldið þá duttum við inn á annan stað (btw. Halldóra.. you would have loved this one) röltum inn, fengum okkur drykk... dönsuðum aðeins og fórum svo upp... ný komnar upp síðust tröppuna gengur gaur upp að okkur og býður okkur að setjast með sér og vinum sínum .. .við þáðum.. enda ekki mikið um önnur sæti að ræða....
Þeir voru allir saman í hljómsveit DSB Danske Sumo Brödre.... fínir strákar... einn hafði búið á Íslandi og well.. that was all....

Þeir hétu Thomas, Thomas og Tommy... heheheheh...

Svo þegar kvöldinu var að ljúka... þá stöndum við aðeins fyrir utan (þeas. Fjóla og ég) og gaur kemur upp að mér og spyr mig um lag með Frank Sinatra... Ok.. hér kemur smá upprifjun: ég er ss. búin að vera með þessar rosalegu staðhæfingar ef að e-r gaur syngur fyrir e-ð með Frankie boy, Dean Martin, Sammy Davies eða e-a af þessum gaurum... og þá er ég að tala um ekki "My Way" eða "NY, NY" þá mætti hann eiga mig....
gaurinn gengur upp að mér... byrjar að syngja... og hvað geri ég?... same as i do every time a guy walks up to me.... I send him away!..... Hvað er að mér?!?!?!

Var guð að bænheyra mig með drauma mína? gaurinn btw. hávaxinn, myndarlegur og augljóslega smekkmaður! var þetta mitt eina tækifæri?

það kemur bara í ljós...

Btw. Hann hét Thomas..

kv. Clara
bloggóða

2 vikur í sól... 2 dagar í rigningu

það er búið að vera alveg rosalega gaman úti .... ég er búin að vera í iðnaðarmannahlutverkinu, rafvirki, smiðurn, málari og eiginlega bara alt-muligmand..
svo auðvitað túristi þess á milli ..

Og það er nú aldeilis búið að vera fjörið ..... það er búið að vera tjútt, verslað, sólað sig, unnið og haft ótrúlega gaman :D
Svo er auðvitað svo margt skemmtilegt búið að gerast... ég skipti út vinkonum á vikufresti .. e-ð sem gerist ekki oft.. en svaka fyndið ...
Svo má ekki gleyma því að hitinn var bara hækkandi og fór upp í 30° í síðustu viku .. sem þýddi auðvitað 33° inní miðborg..... steikjandi hiti.. enda fórum við Halldóra skvísa líka í sólbað útí garði ... sem var ÆÐI!!

Fór á tónleika með Sugarbabes.. þessi ljóshærða er definetly heitust... rourrr... ;)
það var drukkið bjór eins og dönskum iðnaðarmönnum sæmir.... :p

það var farið í Kanoferð, það var grillað, það var gengið heim í sólarupprás.... words could not describe the beauty... .

Það var kynnst fólki og nýju fólki, sumir hözzluðu.. aðrir ekki...
það var fengið fullt af æðislegu fólki í heimsókn... það var farið í heimsókn..

það var með einu orði ... gaman ..

17. Júní var tekin heldur rólegar... við höfðum tjúttað til 5 kvöldið áður (fórum seint út því Fjóla lenti svo seint) og því miður sofið aðeins lengur en við ætluðum.. en við tókum vel á því í stofunni og afrakstruinn er æðislegur....

svo var bara pantað sushi og sest útí garð að njóta dagsins.. og það var yndislegt!!

fyrir utan kannski þjónustu Icelandair... ég held að það hafi bara einu sinni ekki verið seinkun á flugi.. og það þegar fyrsta holl of vinkonum fóru heim.... flugið út var seinkað um 2,5 tíma.. Halldóru flug var seinkað um 4 tíma..
og fellt niður á heimleiðinni... þannig að hún flaug heim 6 tímum seinna :S:S ekki kúl..
svo þegar við Fjóla áttum flug heim .. var seinkun upp á 3 tíma.... sem reyndar var tekið fagnandi .. því við náðum að vera lengur í sólinni ... en bölvað daginn eftir í vinnunni .. því maður var exhausted.... enda ekki komin upp í rum fyrr en 3-3.30... geisp.. og komin á fætur fyrir 7 daginn eftir.... geisp..

En maður er kominn heim... rúmið mitt, fólkið mitt, loftið mitt..... mmmm.. nice..
nú er bara að fara koma sér að hitta liðið...

Nágranninn var að bjóða mér með í að hjóla Laugaveginn um helgina og ég væri svoooo til í það ef ég væri ekki með önnur plön.... það hefði verið snilld að hjóla alla nóttina og lenda svo í þórsmörk... leggja sig aðeins og svo alvöru útileigu stemmningu.. veivievie... geri það bara síðar ;)

annars er það Esjan á morgun vonandi ... og ég er að spá í að plana smá sumó ferð bráðum... ég held að það sé kominn tími til.. hvað finnst ykkur?

kv.
Clara.... @Marel í sumar.... geðveikt kúl ;)

laugardagur, júní 17, 2006

Clara enn i Köben .. hihih

Já .. ég átti víst að fljúga heim í gærkvöldi..... en talk about change of plans!!1

sko.. ég átti að vera samferða Halldóru babylicious heim.... en mér var boðið að vera áfram fram að sunnudag...
þvílík snilld hugsaði ég með mér.. nokkrir dagar áfram í sólinni og tjillinu og fara svo heim að vinna...
en hvða skyldi nú Fjóla segja... við vorum með fullskipaða helgi.. allt planlagt.. enda var skvísan ekkert smá hissa á minni....
Fjóla bara... snillingur eins og henni einni er lagið .. skellti sér bara í heimsókn...

þannig the dynamic duo is conquering a new world.. muahahhahahah

búinn að vera magnaður dagur.. og kvöldið verður enn betra..

meiri, betri og ítarlegri sögur munu koma eftir helgi.. þegar ég lendi aftur á brrrrr-landi...

kv.
Clara-licious... og Fjóla-licous.. í Köben .... ligga ligga lái.. og hí á þig...muahahhahah

miðvikudagur, júní 07, 2006

Köben.. sunny, warm and wonderful

það er sko búið að vera fjör síðan við mættum hingað stelpurnar....
ok ... til að byrja á byrjuninni lögðum við af stað á flugvöllin um eftirmiðdaginn á laugardaginn...
mætum upp eftir í þessa rosalegu röð.... komumst að því að það er seinkun á flugvélinni um 1,5 tíma... og þurftum að bíða í tjekkinninu í klst með 4 grátandi þreytt lítil börn öll yngri en 3 ára..
ég vorkenndi foreldrunum ekkert smá mikið ...
en fínt... áttum rosalega gott flug, Íris Ósk svaf alla leiðina okkur Önnu til mikillar mæðu þar sem við fengum sama sem ekkert svæði fyrir okkur.. en fínt...

við lentum ... skiptum um föt og gerðum það íslenska sem er aðeins hægt að gera ... duttum í það í eldhúsinu áður en við skelltum okkur á Park til að hitta Katy babylicous!!....
Þvílíkt snilldar staður... stóraropnar svalir og læti... bara stemmning!
við stelpurnar vorum vel hressar.. sumar duglegri í daðrinu en aðrir, aðrar að dansa af sér bossan og ein edrú.... mauhaha ...
ýttum vinkonu okkar á 1 gaur og sendum þau á dansgólfið ..... og viti menn .. . hún kemur hlaupandi tilbaka .... "hann er íslendingur""... !!!! hahhahahhahahhahahha

Nú þessi félagi er búinn að ættleiða okkur algjörlega... sína mér aðrar hliðar af köben sem ég hafði gleymt og aðrar sem ég hafði sldrei kynnst og hefur fengið vinkonur mínar til að falla algjörlega fyrir land og þjóð!!
í gær fórum við í kanóferð í Lyngby .... grilluðum og fórum svo til baka aftur.... létum okkur fljóta á bátnum á meðan sólin fór niður.. hversu magnað er það!!!!

í kvöld er smá vinna fyrir Clöru og svo pizza, rauðvín og líklega tjútt... Eva Rós vinkona mín var að koma og hún elska rautt, Fjóla... you would LOVE her ! :)

svo er bara Halldóra babylotion að mæta á staðinn á morgun, svo er út að borða og major ferð í Tivolí aað sjá Sugarbabes á fredag .... ætlum mörg saman .. þannig að það verðua alveg brjálað gaman!!!
svo er nýji félaginn búinn að bjóða okkur Halldóru í Grille að bjrál partý á söndag.....
btw drengz býr í fáránlega flottir íbúð á frábærum stað!!! SNiiillllD!

Svo er planið Belle & Sebastian .. veivievie.. gerist ekki betra!!!
en það eru bara 9 dagar eftir.... og ég ætla að nýta þá til fullnustu....... !!!

Love you all ....

Clara