Mér finnst þessi umræða alveg langskemmtilegust af öllu sem er í fréttunum þessa dagana. Sérstaklega fannst mér fyndið þegar ég las grein í fréttablaðinu þar sem stóð að núna væri sko komið að strákunum, stelpurnar hafa fengið að leika sér þegar herskipin hafa lagst að höfn og núna ættu þeir að fá að sleppa sér aðeins... .....
Einhverra hluta vegna hef ég á tilfinningunni að strákarnir eigi eftir að verða fyrir e-m vonbrigðum.
Ég nefnilega held að það verði ekkert mikið af grönnum, brjóstastórum stjörnum sem munu vera tilbúnar að leggjast með litlu sætu íslensku strákunum, þegar þær geta sofið hjá öllum þessum gömlu refum með alla peningana sem geta gert þær frægar í klámiðnaðnum.... enda er það víst draumur þeirra að verða næsta Jenna eða Rocko eða Ron.. hver veit... þær eiga alla vega framtíðina fyrir sér... hehehe ..
Ég óska öllum sem koma að þessari helgi góðs gengis. Ég vona að efnahagurinn á Íslandi hafi gott af þessu og að strákarnir okkar geti gert hosur sínar grænar fyrir dömunum sem verða hérna þessa komandi viku. ;)
Hmm... þetta gefur mér kannski hugmynd fyrir afmælispartýið mitt... nice!
kv.
C.V.
sunnudagur, febrúar 18, 2007
föstudagur, febrúar 16, 2007
Koreskar kultmyndir

Ég er alveg dottin inn í kóresku myndirnar... ég er með Vengance seríuna og byrjaði á henni í gær.
Vengance serían inniheldur 3 myndir
Sympathy for Mr. Vengance
Old Boy
Sympathy for Lady Vengance
Það sem þessar myndir eiga sameiginlegt fyrir utan flotta sögu, vel tekin og gory atriði ... þá tekur hún heldur betur á siðferðiskenndinni hjá manni... maður situr uppi með spurningunamerkið.... hvað myndi maður sjálfur gera í þessari stöðu.
Ég horfði á fyrstu í gær, Sympathy for Mr. Vengance... og hún er alveg vel rosaleg!
Ég fór á Old Boy í bíó ... við fórum 7 saman í bíó .. en .. hehe .. hluti af hópnum höndlaði ekki myndina og fór í hléi!!..
Við brósi og ég man ekki hver sátum út myndina og fíluðum hana vel.. enda er hún alveg vel sýrð!! en ótrúlega flott!!
Ég tek ofan fyrir kóreskum og asískum myndum.. enda eru þær brjálæðislega flottar!! Mér var bent á Hard Boiled og The Killers sem ég er núna á höttunum eftir á DVD formi! þar sem ég er ekki með VHS... nema audda e-r bjóði mér í vidjó... *fliss* ;)

Annars verð ég bara að nefna diskinn sem er að trylla tilveruna hjá mér þessa dagana.. og ég er svo ánægð að ég sé ekki ein að tapa mér í þessum!
Nýjasti diskurinn frá Arcade Fire Neon Bible er nýlega kominn út... er bara must have eign of the YEAR! Get it and enjoy!!
C.V.
þriðjudagur, febrúar 13, 2007
Clara i Kina!!
það liggur við að maður sé kominn til Kína!! það er búið að loka á næstum allt netlega séð innan skólans... maður kemst ekki á netsíður vina sinna, maður getur ekki googlað efni til að vinna verkefni, það er ekki hægt að skoða síður sér til afþreyingar og til að stytta manni stundir. Sem þýðir ekkert Pron, ekkert niðurhal, engin skemmtun!!!
Það er ekki einu sinni hægt að vinna verkefni í skólanum lengur því netið hefur verið læst á ákveðnar síður!!!
og vitiði hver skýringin er.... þetta eru vírusvarnir skólans!
Ekki er búið að setja síur á netið í HÍ eða Bifröst!! af hverju bara hjá okkurr!!!
Ekki er ég á fullu í proninu, og auðvitað að er frábært að það sé búið að loka á niðurhal myndefnis svo sem kvikmyndir og sjónvarpsþætti! maður á auðvitað ekki að brjóta lögin! ;)
En kom on!! HR stærir sig af því hversu opinn hann er bæði fyrir alla og nemendur, engin takmörk!! en það er samt verið að takmarka mann alveg all verulega þegar maður getur ekki unnið verkefnin sín í skólanum vegna sía!!
Ég segi Tökum Hömlurnar af HR!!! Hindranir Takmarka Nám!!

jii minn eini!!

ég er búin að vera á þvílíkri draumferð síðastliðnar nætur!
Td. í morgun þá dreymdi ég að ég væri á ströndinni að horfa á sólarupprásina.... fann fyrir kossum geislanna á húðinni og hitann sem henni fylgir... .. og ekki nóg með það þá er birtan úti alveg í samræmi við það... ég hélt að það væri komið sumar þegar endurskinið frá kirkjunni varpaðist inn til mín...!...
núna langar mig bara á ströndina, eða bara e-t þar sem hægt er að njóta sólarupprásarinnar með hita allan daginn!
hmm... hvað segiði um ferð e-t í sumar stelpur.. bara svona fun ferð!! e-t spennandi .. eins og miðju spánar? eða
en já .. kannski er Jude-arinn kominn tað heimsækja mig!!... girls hands OFF he´s mine ;)... lol....
nei annars er hann ekki í minni kantinum?... það gengur víst ekki alveg....
Er að hlusta á þennan geðveika disk.. raddirnar, orgelið, fiðlurnar ég fæ þvílikan fiðring innan í mér þegar ég hlusta á hann... það fer allt á fullt!!!
Neon Bible með The Arcade Fire!!
þið verðið bara að fá ykkur hann!!!
kv.
Clara
fimmtudagur, febrúar 08, 2007
Frabært!
Ég átti alveg frábæra kvöldstund hér í vikunni. Ekki frá því að þetta hafi verið bara besta deit sem ég hef farið á lengi!
Það var náð í mig um kl. 19, fórum að borða rómantíska máltíð á Hereford Steakhouse, við kertaljós og rólega tónlist, það var spjallað og spjallað og hlegið. Svo voru samræðurnar færðar út í bíl þar sem við rúntuðum aðeins um bæinn við töfrandi tónlist í útvarpinu og þar sem samræðurnar urðu innilegri, svo til að toppa allt var fengið sér smá ís til að kæla sig aðeins niður.
Ég er ekki frá því að aðilinn hefði verið annsi heppinn á fyrsta deiti hefði verið bætt rauðvínsflaska við líka ;)
Það besta við þetta er að ég veit að ég mun hitta aðilann aftur og aftur... enda alveg yndisleg manneskja.
Verst að þú skulir ekki vera strákur... við hefðum orðið fullkomið par ;)
Takk fyrir æðislegt kvöld, Lilja! ;)
kv.
C.V.
mánudagur, febrúar 05, 2007
Endalaus heppni!

Ég er þessi endalaust heppna týpa...
í morgun kl. 6 var hringt á dyrabjölluna hjá mér og fyrir utan stóð þessi afar risky týpa... með hettuna uppi og ég ætla ekki að neita að ég hafi orðið pínu hrædd..
hann : "heyrðu má ég hringja hjá þér? það er e-ð að gerast hérna úti, maar!"
ég : "bíddu, ha, hvað meinarðu?"
Hann: "heyrirðu ekki byssuhljóðin, heyrirðu ekki?"
svo var hann alltaf að kikja í kringum sig... ég tók enga sénsa og lokaði bara, sagði honum að ég gæti ekki verið að þessu eins og er. ....
stóð samt og hlustaði þegar hann fór og heyrðu hann segja "þetta er hún, hún er þarna ennþá"...
já ónotatilfinningin er sko aldeilis búin að vera skríða upp í mér í dag...
Af öllum íbúðunum í húsi, af öllum bjöllunum valdi hann mína... var e-ð undirliggjandi mótív?
hvað er að gerast? ég þekki þennan náunga ekki neitt og hann var alls ekki einn, e-r stóð handan við hornið svo ég sæi hann ekki ..... úff ennþá meira krípí!
svo hjálpar mamma því miður ekki með horror sögurnar og hvað ef?
úff.. á svona stundum vantar mann varðhund!
amk. svona alert takk inn til nágrannans... ;)
C.V.
sunnudagur, janúar 21, 2007
miklar pælingar i gangi!

ég fór á viðskiptaþing í síðustu viku þar sem Maggi Scheving var að tala við okkur...
og hann sagði margt sem hitti svona rosa vel í mig og margt sem situr svo fast að ég kemst varla yfir!
td. fór hann út í af hverju strákar ná samningum svona auðveldlega og af hverju þeir ná svona langt...
td. er þeim kennt skák, þeir eru í strategy leikjum og keppnis íþróttum þar sem keppnis andinn í þeim er alinn upp á meðan stelpurnar... já stelpurnar eru í snúsnú og parís þar sem allir vinna og allir eru jafnir... jibbí fuckin jei!
Satt?
og annað.... á bakvið karlmann er alltaf e-r kona, móðir eða kærasta, eiginkona sem styðja þá í einu og öllu og sjá um allt annað... satt? algjörlega!!
aðalástæðan fyrir því að þeir ná langt er af því að þeir hafa e-n á bakvið sig sem sjá um heimilið og og styðja þá þannig að þeir geti einbeitt sér að sínum markmiðum...
Þeir setja sér markmið og konan styður hans ákvörðun og gerir allt til þess að auðvelda fyrir hann lífið...
Satt?
Annað sem hann sagði ... konur ná ekki langt í starfi því að þær vilja alltaf hafa jafnvægi á heimili og vinnu, joggla bæði og láta það ganga upp... en virkar það? er hægt að ná frama og sjá um heimili?
M.S. sagði að til að ná frama sem kona þá yrði maður að fórna e-u .. það væri ekki hægt að ná bæði og alls ekki í einu.
jújú það væri alltaf hægt að eignast börnin en þá þyrfti e-r að vera heima með þau, amma, au-pair eða pabbinn.... mamma myndi ekki geta náð framanum og hugsað um heimilið og börnin. Imposible!
Þetta festist alveg rosalega í mér... og ég hef lítið annað hugsað um....
Strákar ná öllum sínum takmörkum af því að kærastan, konan gerir allt annað auðveldara fyrir þá...
þeim langar í nám og stelpan styður þá, fínt ekkert mál, þeim langar erlendis í nám... og stelpan styður þá og fer með .. jújú þær fara í nám svona til að hafa e-ð að gera... en þær eru að setja sín markmið á hold til þess að styðja og elta kærastann..
af hverju eru kvenmenn svona veiklyndar, af hverju eru þær tilbúnar að fórna sínum draumum til að elta strák?
af hverju fá strákarnir að ná að uppfylla sína drauma og stelpurnar sætta sig við að vera kona mannsins, móðir barna hans, en ekki manneskjan sem hún vildi vera..... kannski er það bara nóg fyrir þær....
Vá hvað það er ekki nóg fyrir mig!
ég ákvað það þegar ég var ung að ég myndi ekki fórna mínum draumum og markmiðum fyrir e-n annan...
Kannski hefði ég átt að fæðast sem strákur! það er augljóst að ég myndi allavega hafa fleiri góð spil á minni hendi en ég hef núna! Ég verð bara að spila þeim rétt út, þau spil sem ég hef.
C.V.
ps.
ég ræddi aðeins við Mr. Helgason og fékk það í mig að nokkrir vinir hans eru að elta konurnar sínar í frekara nám, sem er alveg frábæert.. en þetta eru auðvitað ekki algilt.
ég hef séð allnokkrar kunningjakonur mínar bara hverfa fyrir aftan manninn sinn...
mér finnst kominn tími á meiri breytingu!
Þó svo að það sé alltaf verið að segja manni að konan eigi að vera heima.. það var nú bara í grey's um daginn, þá var mamman svo mikil framakona og með au pair heima og barnið slasaðist og au pairið rekið en barnið vildi bara au pairið af því að mamman var aldrei heima... oh búhú! segi ég nú bara...
sunnudagur, janúar 14, 2007
Afmælis helgi!!
Fyrsta Vísó á fredag svo söplæs ammæli .. geðveikt gaman!!!! og maður gleymir alltaf e-u í fyrsta vísó annarinnar...
1. og mikilvægasta reglan er að borða e-ð áður en maður fer í vísó!!! ... very important.
Afmæli á REX á laugardaginn .. svaka fjör... og þvílik stemmning! og dansað allt kvöldið... á domo og vegamótum og það eru alveg harðsperrur í lærunum í dag ;) awesome!
Múttan er komin til landsins og það er voða gaman að fá hana heim .. ég var alveg búin að sakna hennar ..... hún gistir hjá mér þessa dagana..... sem er alveg á báðum áttum... en þröngt mega sáttir búa .. er það ekki .. hehehe..
ég hef verið að spá í einu síðan ég fór á ball með sálinni á nasa fyrir jólin .... mér fannst að íslenskt fólk á böllum og á skemmtistöðum væru ó svo oft alveg rosalega dónalegt.... þeir ryðjast framm fyrir mann á bari, í tröppum og í röðum... það er alveg munur á þessa almennu kurteisi sem er alls ráðandi allstaðar annarstaðar en í skandinavíu ... þá sérstaklega hér á landi ....
úff.. mig langar að fara aftur til útlanda. ég er að spá í að kikja til ömmu á kanarí e-n tímann bráðlega ... just for sem recharging.
skóli kl. 13 á morgun .. .niice!
ætla í sund í fyrramálið ... og líklega í ræktina... nice!
C.V. kveður að sinni .....

sunnudagur, janúar 07, 2007
nytt ar nyir möguleikar endalaust fjör!
Já árið byrjar með stæl..
og satt að segja held ég að þetta komandi ár verði enn skemmtilegra enn það síðasta... þó svo að erfitt mun vera að toppa síðastliðin ár.. það er bara búið að vera svo gaman!!
En það er að myndast plön fyrir 2007 .... og ég er ekki frá því að þetta ár toppi allt saman!
ég mun fara í útskriftarferð, ég mun útskrifast, ég mun vonandi ferðast e-ð meira... kannski profa e-ð nýtt ... og e-ð ennþá meira nýtt.. það er bara aldrei að vita hvað gerist... jeij .. ég elska óvissuna.. hún er spennandi....
Ég er með stillt á sirkus Queen live @ Wembley!!
að horfa að þessa guara... þeir eru að fíla sig svo í botn!! þetta hlýtur að hafa verið algjör draumaferð fyrir þá þegar það loksins komst á skrið.... ég gæti alveg vel trúað því að þetta sé eitt það skemmtilegasta sem maður getur gert...og upplifa þetta með sínum bestum vinum.... sem maður hefur með sér ígegnum þykkt og þunnt!! must be AWESOME!
mig langar allavega í þessa adidas skó sem þeir eru í .. ógo töff maður!
stelpan situr heima í svo fínum kjól.... bara vantar tilefnið .... þarf að finna tilefni .. ætli það verði ekki bara það næsta sem kemur upp .. ég held það nú bara.... það er svo gaman að dressa sig upp ;)
ég er allavega að njóta mín ... eina sem vantar er heitt bað ... og eða heitan líkama undir sæng... any voluntere's? ;)
ætla allavega að fara njóta Freddie boy og félaga...
latz ppl

þriðjudagur, janúar 02, 2007
Gleðilegt nytt ar ppl!
sökum þess að síðan sem liggur yfir þessari er alltaf biluð þessa dagana getiði líklega ekki lesið bloggið mitt.. fliss ;)
ég þarf að láta kikja á það ... og kannski líka læra hvernig hún virkar.
Annars er búið aðvera alveg geggjað gaman, fórum upp í bústað gamlársdag við vorum 12 sem fórum 10 sem gistum .. og þetta var alveg brjálað gaman og alveg frá því að við mættum ....
við vorum með þvílíka dagskrá... klára að undirbúa matinn, skreyta allt fyrir ammælið og kvöldið og svo taka sig til ...
en þetta tókst allt saman og heppnaðist alveg með einsdæmum vel!!! það er alveg líklegt að þetta verði endurtekið aftur á næsta ári!!
ég kom út með mesta peningana.. lol.... 4 af 5 ávísunum skrifaðar.. lol.... ég komst af mörgum leyndarmálum.... lol ......oh boy ... ég þarf að fá myndir og setja inn .. því þetta var algjör snilld!!
núna sit ég heima að undirbúa mig fyrir prófin i lok vikunnar... merkilegt hvað tíminn er fljótur að líða... en samt ekki ...
Hlakka til að fá smá pásu áður en skólinn byrjar... spá í að taka mér smá tíma í að lesa bækur og kannski fara í sund... mmm.... sund og heiti pottur.... mmmm ...
jæja.. ég er á leið upp í skóla að læra.... það verður gaman...
alltaf gaman að vera upp í skóla.... alltaf fjör þar...
ég hef ekkert að segja...obviously .....
þannig að ég kveð ... ekki með látum....
C.V.W.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)