fimmtudagur, maí 24, 2007

angan af blomum

að sitja hér við stofuborðið hennar ömmu að læra er alveg yndislegt þegar að blómaanganin berst að vitum mér..

Fersk blóm eru nauðsyn á hverju einasta heimili!

Verst að þau skuli vera svona dýr hér á landi..... þá er nú gott að eiga ömmu sem kemur reglulega með blóm til manns frá beðmálsstöðum :p

C.V.
á viti ævintýranna í heimi fjármálamarkaðar... eða bara Hvergilandi

mánudagur, maí 21, 2007

I sjukraproflestri..

Jebb.. það var eins gott veðrið var viðeigandi í dag... ekki eins og síðasta vika hefði nú verið slæm!

Þar sem maður situr og er að spá í þjóðhagfræði og viðskiptalögfræði á hugurinn aðeins til að reika.. ekkert langt en svona smá.

Í dag er ég búin að vera td. á ströndinni á Aruba og á ströndinni í Barbados með hanastél mér í hönd (e. Cocktail).
Ég er líka búin að vera spá mikið í hvaða mynd væri viðeigandi fyrir msnið.. þar sem ég finn enga af mér með kennaragleraugun fínu sem ég átti einu sinni ... hmm...
Fór svo að spá í hvort ég væri ennþá jafn kennaraleg eða fullorðinsleg með þau núna eins og ég var þá...

Svo fór hugurinn í það að taka myndir, ef ég ætti nú myndavél þá gæti ég sko tekið alvöru study mynd af mér.. ef ég ætti nú myndavél myndi ég vera dugleg að taka myndir af öllum samkomum með vinum mínum, ef ég ætti myndavél ætti ég líklega fleiri myndir af mér með fólkinu mínu. Held að ég taki út myndavéla skammtinn fyrir alla þegar ég loks fæ lánað myndavél :p

Ég sit í lesstofunni og peran fyrir ofan mig er biluð, hún blikkar og blikkar, mér líður eins og ég sé í vondri austantjalds lærdómsaðstöðu.. Hvaðan kom þetta eiginlega?!

Fékk líka að vita í dag að amma er farin til Ítalíu sem þýðir að ég verð ennþá lengur í suburbia.. sem er alveg fínt, þó svo að mér er farið að leiðast að vera svona langt í burtu frá vinum mínum ...

Ég er farin að fíla mig á stóra Volvonum... og ég skammast mín fyrir það! Er það ekki once you go "Big" you never go back ;) eða þúst þarna dæmið .. bílar! En það kostar líka.... Volvo með mínímum akstri.. eða fram og tilbaka 103-113 er að eyða um 6 þús á viku..... sem gerir 24 þús á 4 vikum!! held að það segi allt sem segja þarf!! Yaris er definetly málið!!!

Ég hef komist að því áður en að ég sé byrjuð að nota það, þá þoli ég ekki bensíndælulykilinn frá AO. Það er einum of mikið mál að fá einn lykil til að virka! ...

Ég er að spá í að fara á tónleika í köben í sumar... 3 tónleikar raðast svo fullkomlega á þá daga sem ég er úti.... fyrst Justin Timberlake 23. júní við hliðin á þar sem ég bý, svo Damien Rice 25. júní og að lokum Pearl Jam 26. júní.

Ég viðurkenni það fúslega að ég þekki ekki mikið til PJ, hef alveg hlustað á lögin þeirra og syng alveg með þegar þau koma, kannski ég finni fyrir e-u á tónleikunum með þeim...
En JT er audda bara entertainer af Gvuðs náð! sem maður verður að sjá er það ekki ;) og DR er auðvitað bara snillingur!!..

Danski vinur minn fór í gær og tók góða veðrið með sér, hann kom í 3. skiptið til landsins og fór í fyrsta skiptið út að tjútta með íslendingum ... og ég er ekki frá því að hann hafi bara fílað vel! Ég skildi greyið eftir með vinum mínum á laugardeginum og stelpurnar voru allar æstar í hann.. heheh .. ég á flotta vini ;)

Hann sagði að íslendingar lifa fyrir tónlistina, þeir eru óhræddir við að syngja með hvort sem þeir kunna textan eða ekki. Það er bara alltaf sungið með!! Það er allt annað á borðinu í DK, þar skiptir sko múvið á dansgólfinu miklu miklu meira máli .. össs!!

Ég fékk hrós.. ég tala víst dönskuna með Hellerup hreim, sem er víst svolítið posh danska ;) ekki slæmt þetta! Danski vinurinn opnaði líka fyrir e-a flóðgátt sem var stífluð í dönskunni minni og núna er ég meira að segja farin að hugsa aftur á dönsku .. það er e-ð sem hefur ekki gerst lengi! gaman gaman!

ætla að halda áfram að læra...
Fjóla á eftir að skamma mig fyrir að hafa bloggað!.... ooooh .. ég missti af kaffitár... snöft..

C.V. .... still mentally on Aruba!

miðvikudagur, maí 16, 2007

svefneysi..

Ef það er eitt sem ég þoli alveg alls alls ekki þegar ég er að reyna sofna þá er það tifið í klukku...
Það er e-ð sem fer í mig við þetta reglulega tif.. sem bara heldur fyrir mér vöku og ómar í kollinum á mér.. svona soldið eins og hjá Captain Hook!
Ég get alls alls ekki bara legið og sofnað út frá þannig hljóð, hins vegar ef það væri óreglulegt eða rigning... þá myndi ég lognast út af á skotstundu!

E-a hluta vegna er amma með 2 klukkur í gestaherberginu.. eina á sitthvoru náttborðinu.... ég setti háværari klukkuna inn í skáp í gærkvöldi .. og núna áðan myrti ég hina! ... 30 mín seinna og ég er enn dauðþreytt í öllum líkamanum en get ekki sofnað .. !!
Ef þetta er nýtt svefnleysis tímabil þá ætla ég að biðja um svefnpillu! og það strax!

Geisp og ég verð vakin kl. 7.15 í fyrramálið tli að fara niður í skóla að læra... .. geisp.. i need my sleep!
fyrir utan það .. gólftuskan heyrir í draugum og bregður mér á 30-57 mín fresti með háværu gelti ... ! ekki kúl! ég er að spá í að henda henni út!

C.V.

þriðjudagur, maí 15, 2007

sundið ...

Skellti mér í sund rétt fyrir lokun ... yndislegt alveg hreint..

þið kannist við það, eða hafið séð það þegar strákar fara í sund og loftið festist allt í buxunum hjá þeim..
þeir setjast niður allt bara blæs upp.. soldið fyndið ... let's face it.. it really is!

Allavega.. þá lenti ég í svipuðu dæmi hér í kvöld... fór í nýja nuddtækið í lauginni ... mmm.. yndislegt alveg..
Svo allt í einu tók ég eftir því kallarnir í pottinum eru lúmskt að stara á mig... ég lít niður.. og haldiði ekki að brjóstin á mér höfðu stækkað upp í Dolly.. ég hélt nú ekki að það væri hægt að stækka meira!...Ég svoleiðis sprakk úr hlátri og setist niður þannig að loftið allt fór úr... og gaurarnir í pottinum urðu hálf skömmustulegir!! .. LOL .. prufa að gera þetta næst þegar sætur strákur er í pottinum ... LOL..

Annars er tími minn senn kominn á enda aftur í Suburbia.. og hann er allavega kominn á enda í kvöld... rúmið kallar heiftarlega á mig!
Á morgun verður Grill og Gleði með The GANG! og ég hlakka óendanlega mikið til.. !! jeij!

Hasta maniana, carinios!

miðvikudagur, maí 09, 2007

Eiki Hauks..

krípar mig út á forsíðu mbl.is ... hann blikkar mann þegar honum hentar, þetta þykir mér alls ekki þægilegt, sérstaklega ef maður er að lesa grein sem er þarna í kringum hann ... úff... hrollur.

Séra Al Green er með tónleika 28. júni og 6. júlí í London í sumar, ef ég skyldi nú skella mér þangað gæti ég líka náð Justin Timberlake, Bright Eyes, The Good the bad and the Queen, The Who, Gypsi Kings, Lou Reed og Joe Cocker.

Sérann er líka í 7. ágúst Madison Square Garden í NY og þá gæti ég farið The Police, Michael Bublé, The Black Crowes, Kelly Clarkson, Kenny Rogers, BB: King með Ettu James og Al Green, Weird Al Yankowich og kannski í lengst aðeins til að sjá Dave Matthews Band.
Af hverju býr maður ekki í london, þar eru samgöngurnar svo auðveldar á milli landa og ódýrar oft á tíðum!!

Við Dóra Rokk settum reglu fyrir síðasta sumar sem hljóðaði þannig að ef það var sól, þá var grillað, held að við höfum ekki klikkað eitt skipti á því! Enda erum við ekki að tala um marga daga.. lol.
Þessa reglu settum við aftur fyrir þetta sumar og hún byrjar á morgun, hvort sem verður sól eða ekki, því það er víst forkeppnin í Eurovision, sem er víst eins og upphitunarballið á þjóðhátíð í eyjum, byrjar vel ;)

Annars hef ég enn lítið sem ekkert að segja, en jú, takið frá 26. maí (átti það víst að vera). more details will follow.

C. V. ... á leið í bakaríið?

þriðjudagur, maí 08, 2007

fann mynd

Fann þessa mynd af okkur systkynunum frá því á menningarnótt í fyrra..
sexy Bastards aren't we ;)


Nú vantar mér bara eina af okkur öllum saman í einu... man ekki einu sinni hvenær við vorum öll þrjú saman í sama landinu :o

kannski við photoshoppum bara eina saman ;)
C.V.

mánudagur, maí 07, 2007

Mai..

7. dagur maí mánaðar er kominn..

Hann hefur enga þýðingu aðra en fyrir þær sakir að vera mánudagur og mánudagurinn eftir eitt skemmtilegasta brúðkaup sem ég hef farið í og fyrir að vera fyrsti mánudagurinn þar sem hægt er að vera almennilega sumarklæddur.... já ég er búin að vera spá mjög mikið í þetta.

Takk Sóley og Freyr fyrir yndislegt brúðkaup og æðislega veislu. Þið eigið mikið af góðu fólki í kringum ykkur sem þykir mjög vænt um ykkur.

Að ofhugsa kallast á ensku overthinking en á fræðilegumáli heitir það Casual Analysis Paralysis
Ég á það heldur betur til að ofhugsa hlutinu, meira að segja áður en ég geri hlutina, og oftar en ekki kemst ég að þeirri niðurstöðu að afköstin verði ekki þau bestu og því væri betra að sleppa þeim heldur en að gera ekki sitt besta. Nú veit ég vandamálið og nú mun ég laga það.
Ég tel mig samt vera manneskja sem goes with the flow og læt bara rætast úr þessu. ... mótsagnakennt?

Um leið og andinn kemur mun ég deila því með ykkur..
C.V.

laugardagur, apríl 14, 2007

Önnin buin...

Pizza og bjór í kvöld?

C.V.

mánudagur, apríl 09, 2007

Varið ykkur.. Clara er að tala..

Það á ekki að hleypa mér út meðal fólks... allavega ætti að setja svona síur á hvað kemur út úr mér... og e-r ætti að vera með approve og cancel takka hjá sér..

Ég get svo svarið það!! Ég er alveg einkar góð í að koma orðunum vitlaust út úr mér ....

Það á að halda mig í beisli og aðeins að hleypa mér út með sérhæfðu fólki og aðeins að leyfa mér að tala við fólk sem veit um þetta vandamál mitt!


Ef til vill er þetta bara orsök þess að vera heima og læra og hitta varla annað fólk nema samnemendur þar sme maður talar lítið um annað en námið, og er með klúr komment hægri vinstri!

Clara kjánaprik...
sem var samt soldið sæt í gærkvöldi.. with a foot in her mouth.. þá meina ég ekki bókstaflega!

myndirnar hennar Fjólu frá Páskamáltíð Munaðarleysingjanna;)

miðvikudagur, apríl 04, 2007

eruði tilbuin?

Setning sem ég hélt að ég myndi aldrei segja datt út úr mér í dag....

Rakel bjallaði á mig til að koma í ræktina og auðvitað ákvað að skella mér ... um leið og ég væri búin að fara með hundinn í hundaSPA- ið!!! ... Þegar Rakel kom upp til að ná andanum aftur, spurði hún hvort ekki væri allt í lagi með mig.. ..

I'm living the high life... flutt á flottan stað í Grafaholtinu með geðveiku útsýni yfir Rvk, G.voginn, Esjuna og já meira. Er með kjölturakka sem heitir Coco Chanel, hvít og fín (sérstaklega núna eftir Spa-ið) og krúsa um á alvöru bíl... Volvo á einkanúmeri.. og ekki bara hvaða númeri sem er heldur mínu eigin nafni ;)
Það er ekki öll lukkan eins ... það verð ég nú að segja!

Það er aldeilis gott að hafa tíma aflögu til að geta passað upp á gersemarnar hennar ömmu ;)

Annað í fréttum, prófin mín ljúka í næstu viku en þar er ég víst ekki svo heppin... en hamingjuna má sjá í að ljúka á laugardegi kl. 12 þá má búast við að ég muni tapa mér í vitleysu... Fjóla, ræktin, sund og svo smá rauðvín? ;)

Farin aftur að læra... svo ég geti skellt mér á Silvíu Nótt, Trabant og Gullfoss & Geysi í kvöld!

C.V. ekki ferilskrá