sunnudagur, janúar 21, 2007

miklar pælingar i gangi!


ég fór á viðskiptaþing í síðustu viku þar sem Maggi Scheving var að tala við okkur...
og hann sagði margt sem hitti svona rosa vel í mig og margt sem situr svo fast að ég kemst varla yfir!

td. fór hann út í af hverju strákar ná samningum svona auðveldlega og af hverju þeir ná svona langt...

td. er þeim kennt skák, þeir eru í strategy leikjum og keppnis íþróttum þar sem keppnis andinn í þeim er alinn upp á meðan stelpurnar... já stelpurnar eru í snúsnú og parís þar sem allir vinna og allir eru jafnir... jibbí fuckin jei!

Satt?

og annað.... á bakvið karlmann er alltaf e-r kona, móðir eða kærasta, eiginkona sem styðja þá í einu og öllu og sjá um allt annað... satt? algjörlega!!

aðalástæðan fyrir því að þeir ná langt er af því að þeir hafa e-n á bakvið sig sem sjá um heimilið og og styðja þá þannig að þeir geti einbeitt sér að sínum markmiðum...
Þeir setja sér markmið og konan styður hans ákvörðun og gerir allt til þess að auðvelda fyrir hann lífið...

Satt?

Annað sem hann sagði ... konur ná ekki langt í starfi því að þær vilja alltaf hafa jafnvægi á heimili og vinnu, joggla bæði og láta það ganga upp... en virkar það? er hægt að ná frama og sjá um heimili?

M.S. sagði að til að ná frama sem kona þá yrði maður að fórna e-u .. það væri ekki hægt að ná bæði og alls ekki í einu.
jújú það væri alltaf hægt að eignast börnin en þá þyrfti e-r að vera heima með þau, amma, au-pair eða pabbinn.... mamma myndi ekki geta náð framanum og hugsað um heimilið og börnin. Imposible!

Þetta festist alveg rosalega í mér... og ég hef lítið annað hugsað um....

Strákar ná öllum sínum takmörkum af því að kærastan, konan gerir allt annað auðveldara fyrir þá...
þeim langar í nám og stelpan styður þá, fínt ekkert mál, þeim langar erlendis í nám... og stelpan styður þá og fer með .. jújú þær fara í nám svona til að hafa e-ð að gera... en þær eru að setja sín markmið á hold til þess að styðja og elta kærastann..

af hverju eru kvenmenn svona veiklyndar, af hverju eru þær tilbúnar að fórna sínum draumum til að elta strák?
af hverju fá strákarnir að ná að uppfylla sína drauma og stelpurnar sætta sig við að vera kona mannsins, móðir barna hans, en ekki manneskjan sem hún vildi vera..... kannski er það bara nóg fyrir þær....


Vá hvað það er ekki nóg fyrir mig!
ég ákvað það þegar ég var ung að ég myndi ekki fórna mínum draumum og markmiðum fyrir e-n annan...

Kannski hefði ég átt að fæðast sem strákur! það er augljóst að ég myndi allavega hafa fleiri góð spil á minni hendi en ég hef núna! Ég verð bara að spila þeim rétt út, þau spil sem ég hef.

C.V.

ps.
ég ræddi aðeins við Mr. Helgason og fékk það í mig að nokkrir vinir hans eru að elta konurnar sínar í frekara nám, sem er alveg frábæert.. en þetta eru auðvitað ekki algilt.
ég hef séð allnokkrar kunningjakonur mínar bara hverfa fyrir aftan manninn sinn...
mér finnst kominn tími á meiri breytingu!

Þó svo að það sé alltaf verið að segja manni að konan eigi að vera heima.. það var nú bara í grey's um daginn, þá var mamman svo mikil framakona og með au pair heima og barnið slasaðist og au pairið rekið en barnið vildi bara au pairið af því að mamman var aldrei heima... oh búhú! segi ég nú bara...

sunnudagur, janúar 14, 2007

Afmælis helgi!!

Fyrsta Vísó á fredag svo söplæs ammæli .. geðveikt gaman!!!! og maður gleymir alltaf e-u í fyrsta vísó annarinnar...
1. og mikilvægasta reglan er að borða e-ð áður en maður fer í vísó!!! ... very important.

Afmæli á REX á laugardaginn .. svaka fjör... og þvílik stemmning! og dansað allt kvöldið... á domo og vegamótum og það eru alveg harðsperrur í lærunum í dag ;) awesome!

Múttan er komin til landsins og það er voða gaman að fá hana heim .. ég var alveg búin að sakna hennar ..... hún gistir hjá mér þessa dagana..... sem er alveg á báðum áttum... en þröngt mega sáttir búa .. er það ekki .. hehehe..

ég hef verið að spá í einu síðan ég fór á ball með sálinni á nasa fyrir jólin .... mér fannst að íslenskt fólk á böllum og á skemmtistöðum væru ó svo oft alveg rosalega dónalegt.... þeir ryðjast framm fyrir mann á bari, í tröppum og í röðum... það er alveg munur á þessa almennu kurteisi sem er alls ráðandi allstaðar annarstaðar en í skandinavíu ... þá sérstaklega hér á landi ....

úff.. mig langar að fara aftur til útlanda. ég er að spá í að kikja til ömmu á kanarí e-n tímann bráðlega ... just for sem recharging.

skóli kl. 13 á morgun .. .niice!
ætla í sund í fyrramálið ... og líklega í ræktina... nice!

C.V. kveður að sinni .....

sunnudagur, janúar 07, 2007

nytt ar nyir möguleikar endalaust fjör!

Já árið byrjar með stæl..
og satt að segja held ég að þetta komandi ár verði enn skemmtilegra enn það síðasta... þó svo að erfitt mun vera að toppa síðastliðin ár.. það er bara búið að vera svo gaman!!

En það er að myndast plön fyrir 2007 .... og ég er ekki frá því að þetta ár toppi allt saman!

ég mun fara í útskriftarferð, ég mun útskrifast, ég mun vonandi ferðast e-ð meira... kannski profa e-ð nýtt ... og e-ð ennþá meira nýtt.. það er bara aldrei að vita hvað gerist... jeij .. ég elska óvissuna.. hún er spennandi....

Ég er með stillt á sirkus Queen live @ Wembley!!
að horfa að þessa guara... þeir eru að fíla sig svo í botn!! þetta hlýtur að hafa verið algjör draumaferð fyrir þá þegar það loksins komst á skrið.... ég gæti alveg vel trúað því að þetta sé eitt það skemmtilegasta sem maður getur gert...og upplifa þetta með sínum bestum vinum.... sem maður hefur með sér ígegnum þykkt og þunnt!! must be AWESOME!

mig langar allavega í þessa adidas skó sem þeir eru í .. ógo töff maður!

stelpan situr heima í svo fínum kjól.... bara vantar tilefnið .... þarf að finna tilefni .. ætli það verði ekki bara það næsta sem kemur upp .. ég held það nú bara.... það er svo gaman að dressa sig upp ;)

ég er allavega að njóta mín ... eina sem vantar er heitt bað ... og eða heitan líkama undir sæng... any voluntere's? ;)

ætla allavega að fara njóta Freddie boy og félaga...

latz ppl

C.V.

þriðjudagur, janúar 02, 2007

Gleðilegt nytt ar ppl!

sökum þess að síðan sem liggur yfir þessari er alltaf biluð þessa dagana getiði líklega ekki lesið bloggið mitt.. fliss ;)
ég þarf að láta kikja á það ... og kannski líka læra hvernig hún virkar.

Annars er búið aðvera alveg geggjað gaman, fórum upp í bústað gamlársdag við vorum 12 sem fórum 10 sem gistum .. og þetta var alveg brjálað gaman og alveg frá því að við mættum ....

við vorum með þvílíka dagskrá... klára að undirbúa matinn, skreyta allt fyrir ammælið og kvöldið og svo taka sig til ...
en þetta tókst allt saman og heppnaðist alveg með einsdæmum vel!!! það er alveg líklegt að þetta verði endurtekið aftur á næsta ári!!

ég kom út með mesta peningana.. lol.... 4 af 5 ávísunum skrifaðar.. lol.... ég komst af mörgum leyndarmálum.... lol ......oh boy ... ég þarf að fá myndir og setja inn .. því þetta var algjör snilld!!

núna sit ég heima að undirbúa mig fyrir prófin i lok vikunnar... merkilegt hvað tíminn er fljótur að líða... en samt ekki ...

Hlakka til að fá smá pásu áður en skólinn byrjar... spá í að taka mér smá tíma í að lesa bækur og kannski fara í sund... mmm.... sund og heiti pottur.... mmmm ...

jæja.. ég er á leið upp í skóla að læra.... það verður gaman...
alltaf gaman að vera upp í skóla.... alltaf fjör þar...

ég hef ekkert að segja...obviously .....
þannig að ég kveð ... ekki með látum....
C.V.W.

sunnudagur, desember 24, 2006

Jolin eru að koma..


Við systkynin erum heima hjá ömmu.. búin að fara með alla pakka og erum að hjálpa til við matinn.... Jeij það er kalkúnn :D:D

Tréð er ótrúlega fallegt og allir pakkarnir bíða spenntir undir því...

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla! njótið kvöldsins , fjölskyldur ykkar og vini...

Við Tandri ætlum að spila öll kvöld þessi jól.. það verður gaman!

Mig langar að benda á þetta lag, endilega náið ykkur í og njótið

O holy night með band frá New Orleans

og einnig þetta

DMB með Christmas Songtmas+Song

þriðjudagur, desember 12, 2006

Jolafri..

Ég er komin í jólafrí .. og í fyrsta skipti síðan ég var lítil lítil hef ég ekkert að gera... það er furðulegt...
það er alveg kominn 3 dagurinn í fríi... helgi ekki meðtalinn og ég er að deyja...
hvernig fara iðjuleysingjar að því að gera ekkert....
maður getur svo sem fundið sér e-ð til að stytta sér stundir... en það er skammgóður vermir...

Ég er td. ekki að fara til útlanda yfir jólin, ég er ekki að fá fólk í heimsókn yfir jólin, ég er ekki með neina sérstaka vinnu yfir jólin... *En ég er svo sniðug að finna mér e-ð að gera ... ég gæti til dæmis sett up stefnumótasíðu fyrir háskólafólk... (boring).. ég gæti örugglega fundið mér vinnu í e-u skítapleisi fyrir engin laun.... kannski ég gerist einkaspæjari yfir jólin og hjálpi fólki í samböndum að halda auga með makann... (mean).... any ideas?!.. ég gæti lagað bloggsíðuna mína og sett inn linka.. og kannski eytt smá tíma í að læra á hana... og læra undir sjúkraprófið mitt... það væri líka mjög sniðugt.
ég redda mér e-u að gera... það leynist allatf e-ð undir hverjum steini....

í kvöld er próflokadjamm hjá Hr... oh boy ... síðasta djamm hjá nokkrum kærum og góðum vinum sem síðan hverfa á sporbraut kringum jörðina í lengri eða styttri tíma... hvað á ég að gera á meðan... snöft...!

Ég er núna með gólftuskuna í heimsókn.... tuskan er actually soldið mikið krútt... fór með hana á kaffihús i dag.. og hún sofnaði bara á jakkanum mínum alveg rosalega þæg og góð......
Ég er enn með feita ævintýraþörf... kannski ég skelli mér í bústað um/eftir helgina... Iv'e got the time and öhh... the time... kannski ég geti platað e-a vini mína með mér....

ú .. kannski ég gæti fengið að hjálpa ömmu með að baka ... . það væri gaman ... úú .. kannski mömmukossa og sörur... ég vona að hún sé ekki búin að baka sörurnar...

mér leiðist... sést það nokkur? ;)

ætla að fara fá mér bjór... eins og félagi sagði: "bjór er góður! Bjór!"
bróðir minn er tuborgjólasveinn.... hann kallar sig systur mína á djamminu... hann er jólasveinn!

C.V.
Caotic Verification

fimmtudagur, desember 07, 2006

ég a næstum þvi lag ;)

bara vitlaus fyrsti stafur.... og thank cod að ég sé ekki svona mikill stalker ;)

Klara, Klara

Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Undarlegt það ýmsum þótti er þú komst í réttirnar,
að þú skyldi alltaf stöðugt elta mig á röndum þar.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Undir messu á mig jafnan ákaflega glápir þú.
Sumir telja að það eigi ekkert skylt við kristna trú.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Ef ég sting þig af á böllum, alltaf kanntu ráð við því,
þú í snatri þýtur til mín þegar kemur dömufrí.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !

Engin leið er mér að sofna, er ég heyri sönginn þinn
hljóma fagurt fram á nætur fyrir utan gluggann minn.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !

Listræn mjög og lagin ertu, leikur allt í höndum þér
þetta sýna sokkaplöggin, sem þú prónar handa mér.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Kökur þær sem frá þér fæ ég fjarskalega gómsætar
hjarta mínu alltaf ylja einkum heitu kleinurnar.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !


Brátt mun okkar brúðkaup standa brátt mun ég þér sofa hjá
Eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman þá.


Það er auðséð, Klara, Klara, Klara mín þú elskar mig;
og ég vildi bara, bara, bara, gjarnan eiga þig !

Lag og texti: Erlent lag / Jónas Árnason

þriðjudagur, desember 05, 2006

Ævintyri

það þurfa allir á ævintýrum að halda, *something to put the spark into ones life*
hversdagsleikinn verður svo ekki grár.. frekar bara einsleitur... sömu venjurnar dag eftir dag, það vantar fjölbreytileikann..

ég var búin að segja við sjálfa mig að gera e-ð nýtt á hverjum degi, taka af skarið og taka áhættu ...
af hverju gerði ég það ekki... hvað varð af af neistanum sem glóði eins og eldkúla hér áður fyrr....

hún er ekki farin ... bara orðin að litlu ljósi sem bíður eftir að láta kynda undir sér...
ég er sko aldeilis farin að kynda eldinn hjá mér...
ég er aðeins búin að trassa í próflestrinum og leita eftir nýjum ævintýrum og á nýjum vígstöðum...
ég er að nálgast einu af takmörkum mínum... þarf aðeins að klára það sem ég er í núna til að geta farið á næsta level...
það er alveg að fara koma að því .... *I have a sword* sagði maður ... hann sá glitta í framtíðina sína... af hverju get ég ekki séð framtíðina mína.... ég þarf á smá meiri eldivið á eldinn.. uppörvun til að ná næsta takmarki...

Ég gæti audda alltaf farið í heimsókn til ömmu minnar á kanarí yfir jólin ... það myndi allavega hlaða batterín vel... en ég gæti líka gert það eftir áramót.... það er orðið of langt síðan ég fór e-t ... ég þarf að fara e-t ... ég þarf að komast í burtu... bara smá vegis.... aðeins að stokka upp í tilveruna... sjá nýja hlið á borginni, sjálfri mér....
ég þarf að ögra mig... Einhverjar tillögur? allar eru vel þegnar!!

C.V. - í ævintýraleit

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Áriðandi malefni!!!

Í annað skiptið í mánuðinum kallar blóðbankinn á hjálp landsmanna, það vantar blóð í bankann...

Ég hef í gegnum tíðina verið virkur blóðgjafi, alltaf farið þegar kallað hefur verið í mig og mér finnst þetta nauðsynlegt.
Ég get ekki sagt af hverju ég byrjaði þessu, en ég hef dregið móður mína og bróður í þetta og við systkyni erum dugleg að fara reglulega.

Þar sem ég hef alltaf verið dugleg að fara hef ég aldrei spáð neitt mikið í því hvert blóðið mitt fer.. vonast alltaf til að það sé að bjarga e-m og ekki að renna út í kælinum.
Um daginn lenti ég á manneskju sem þurfti á blóðgjöf að halda aðra hverja viku í 6 mánuði eftir barnsburð, ef hún hefði ekki fengið blóð þá hefði hún líklega ekki verið hér. Að heyra frásögn hennar styrkti mig í það að halda áfram að gefa.

Núna má ég hins vegar ekki gefa blóð og því langar mig að biðja þig! góði lesandi að fara niður í blóðbanka og gefa blóð fyrir mig... þau taka vel á móti þér og þau passa upp á þig allan tímann sem þú ert þarna...

ef þú ert heilsuhraust/ur, við góða heilsu og langar að gera e-ð fyrir náungann ... þá mæli ég með því að gera þetta.

Þó svo að þú fáir ekki beinar þakkir geturðu verið viss um að þú sért að bjarga einhverjum...

áður var þörf en núna nauðsyn!

Blóðbankinn kallar á þig

C.V.

mánudagur, nóvember 20, 2006

Late Halloween partei!




Já það var heldur betur haldið upp á Halloween um helgina.. kannski 3 vikum of seint.. en soooooo worth it!!! og ég hef ekki séð svona flotta búninga og glæsilegt fólk í lengri tíma!!! bara OMG REDRUM og læti!!!
aftakan á baðinu var sjúklega flott.. og maður verður að bæta því við að snjórinn toppaði bara allt saman!!! það var ógó gaman að fá snjóinn!!! :D .... jeij!!! ég er svo mikið barn... !!!!

En já eftirtaldir búningar voru í partíinu.... Napoleon Dynamite og Deb, Ell mountain snake úr Kill Bill, Alice Cooper, BjarnarBófi, nornir og rauðhetta.... tótally tótally awesome!!

Ég var rauðhetta... ótrúlega fín og saklaus... ég var með körfu og nýbökuð möffins.... það var nú heldur betur skemmtilegt.. ;)
Það er eins gott að þetta verði endurtekið að ári liðnu!!! bara awesome!!
ég þarf augljóslega fara byrja safna í búningaskápinn minn .... komin með 2 ... nú vantar mér bara fleiri...
Helgi ég er enn að bíða eftir superhero partíinu svo ég geti komið sem... well.... það mun bara koma í ljós ;)

JEIJ snjór.. eigum við að ræða þetta... hversu awesome er það að loksins er komin snjór í reykjavík .. og ekki þessi leiðinlegi sem að hverfur strax daginn eftir.. ég vona að þessi verði í smá tíma.. þá kemst maður kannski upp á bláfjöll bráðlega :D

rúm vika í að próf byrji ... 3 ivkur þar til þeim lýkur aftur.. nú þarf að fara taka sig ...

talið við mig eftir 7. ;)

C.V.