mánudagur, október 09, 2006

og meira..?

ég sé að ég hef hitt e-a taug þarna í síðust færslu .. frábært... alltaf gaman að skapa smá umræðu....

en ok . . höldum áfram....
í sumar hefur bókin "he's just not that into you" verið mjöööööög svo vinsæl.... og þó að ég hafi ekki lesið hana.. reikna ég alveg vel með því að hún sé mjög skemmtileg... að því sem ég hef heyrt eru margar fyndar sögur þarna...

en talandi um að fría karlpeninginn frá ALLRi Ábyrgð!!!.... ok .... hittir e-n strák þið hafið mjög gaman ..kannski 1-2 kvöldstundir og svo bara heyrist ekkert í honum meira.... já alveg rétt... he's just not that into you.....i ...... nei í staðin er allt gott og blessað með það ...það er það bara alls ekki ..... stelpum jafnt sem strákum fíla ekki að vera dissuð... sérstakelga ef það var í alvörunni gaman.... Show some respect og segðu það við okkur...!! í alvöru .. við munum ekki fara að gráta.. við munum ekki verða hysterískar.. það er í alvörunni hægt að eiga alvarlegar samræður við kvenþjóðina án þess að við spilum inn á samviskubitið hjá strákunum....... og stelpur.... það er bara mean að spila inn á samviskubitið .... if it isn't meant to be.. then it isn't meant to be......

Mér fyndist það bara mjög þroskað ef ég væri að hitta e-n sem segði við mig... " veistu ég held að þetta sé ekki alveg að ganga, þetta samband hefur ekki það sem ég er að leita að !" ok harsh og já mér myndi líklega finnast þetta leiðinlegt... en ég myndi frekar meta hreinskilnina... frekar vita nákvmælega hvar ég stend heldur en að félaginn myndi bara gufa upp..... takið þetta til sín sem eigið það skilið!

Ég veit td. að félagi minn myndi frekar detta niður dauður en að segja við stelpu að hann bara væri ekki hrifinn af henni .... frekar skiptir hann um msn, síma, heimilisfang og nafn en að vera hreinskilin um svona .. merkilegt ha?

Come on!!! af hverju ekki að segja við dömuna.. hey.. þú ert þrælskemmtileg en mér finnst bara e-ð vanta upp á ... ég held að þetta gangi ekki...!

Af reynslu þá fíla ég betur hreinskilnina.... Strákar og stelpur .. það eru fleiri fiskar í sjónum .... og af hverju ekki bara hafa gaman af þvíað kynnast nýju fólki, nýjum aðstæðum og nýrri fræði ;) if you catch my drift.... ;):P

Ég hugsa þannig að ef ein hurð lokast opnast önnur.... og alltaf hafa gaman ;) ... ... if it's not meant to be .... you could at least have some FUN!

XXX
C

föstudagur, október 06, 2006

svona sma fyrir ykkur....

nokkrir félagar hafa kommentað hjá mér og nefnt við mig að textinn sem ég skrifaði um samskipti kynjana hafi haft smá sannleiks korn í sér. Auðvitað á þetta allt við rök að styðjast, því þetta gerist á hverjum degi.

Þegar maður kynnist e-m spennandi eða rekst á e-n þá stekkur maður ekki bara til að býður manneskjunni út eins og maður sér oft í hollívúdd myndum. Neeeei .. sko alls ekki .. hér á íslandi gilda allt aðrar reglur .. en það er auvðitað alveg löngu vitað.... enda sérlega fræg djammmenning hér á landi.

En af hverju er ekki stefnumenning,ég reyndar veit að það er e-r smá í gangi... en það lítil að maður heyrir varla af því ... þetta er allavega ekkerrt sex and the city dæmi þar sem við vinkonurnar sitjum og ræðum deiti vikunnar saman yfir brunch ...
Af hverju ekki stökkva til að breyta þessu aðeins til ... ég er allavega að spá í að fara gera það aðeins... taka mig til og kannski bjóða sætum strák upp á kaffibolla eða te.. og kynnast kannski aðeins betur... ekki bara þetta stanslausa "kannski hittumst við næstu helgi, á djamminu .. !!" so nineties-jú-nóv!!

Strákar .. hættið að vera svona feimnir..... Það er alveg hægt að brjóta niður ytri skelina og bjóða e-m út.. hvort sem maður þekkir manneskjuna eða ekki ... og það sakar ekki rabba saman aðeinsbara yfir kaffibolla .. til að sjá hvort það sé e-ð spennandi sem leynist þarna undir.. maður þarf ekki alltaf að prufukeyra áður en lengra er farið ... stundum er fólk í alvöru skemmtilegt utan rúmfræðinnar... sjáðu bara mig .. ég er æði .. og ekki stunda ég rúmfræði ... !! (skírlifi all the way!!)

og hvað er málið með 3 daga regluna!!! OMG erum við ekki alveg komin með nóg af henni ... "má ekki hafa samband of snemma, might seem too eager" .. "má ekki hafa samband of sein, virðist of áhugalaus"... sem er auðvitað mjög rétt...
en það er líka allt í lagi að hringja kannski daginn eftir ef viðkomandi aðlil veit að hinn viðkomandi aðilinn er ekkert að gera.... Um að gera bara að hringja... sýnir karakter! sýnir meiri áhuga!...enda erum við ekki feimnir unglingar lengur.. komin með smá reynslu á ýmsum sviðum... áherslur eru bryetta... maður er orðinn þroskaðri ... ..... ... á sumum sviðum allavega ;)

Sms svo sem í lagi .. allt í lagi svona þegar maður er kannski að kynnast...
kannski er ég að verað pínu gömul... en e-a hluta vegna vil ég sjálf núna að e-r hringi í mig.. bara svona til að sýna meiri áhuga... Sms eru þó góð fyrir feimna.. en maður verður samt að byggja sig upp og kannski ef til vill hringja eitt símtal.. svona til að brjóta ísinn... gerir það alltaf auðveldara fyrir næsta símtal.. það fyrsta er alltaf erfiðast!!

æj .. ég veit ekkert hvað ég er baula hérna.... hugurinn er bara annar staðar þegar maður á að vera í prófum...

en ef ykkur líst vel á þetta.. kommentið endilega og ég skal kannski bæta við fleiri pælingar sem ég hef verið með...

en forvitnin hjá mér þessa dagana liggur í hverjir eru alltaf í heimsókn á síðunni minn .... :o

whoooo aaaaaare youuuuu.... sagt eins og margfættlan í lísu í undralandi... btw.. sá sem gerði myndina hefur verið þvílíkt steiktur!!! ég hló frá mér allt vit þegar ég á verkjó... hafði ekki séð fyndnari mynd lengi .... byrjaði svo að horfa á hana um daginn ... og omg!!! sýrutripp!!!

fimmtudagur, október 05, 2006

miðönn

jáabb.. þá er þessi önn hálfnuð ..og hvað þýðir það .. jú stöðupróf, miðannapróf eða hreinlega lærdómsmadness!!!
en það þýðir líka að próftaflan er birt...
að þessu sinni byrjar jólafríið mitt 7.desember.. jeij!!aftur á móti verður það alveg svakaleg törn.. sem þýðir það að ég hef sjövikur til að verða mér vel að í 4 fögum því þau lenda eiginlega öll í röð... og 2 erfiðustu prófin eru alveg í röð og ég fæ 1 dag til að undirbúa mig undir það fyrra.. oh boy ...

en það verður bara ógó fjör.. vúhúú !! ...
en já .. miðönn ... stöðupróf...
var í prófi í gær... var með kynningu í kvöld.. lokapróf á morgun og svo próf í viðskiptalögfræði á mánudaginn .. jeij ....
já þetta rokgengur allt saman ... life is fun....

ég er búin að skrifa 2 önnur blogg.... er með þau geymd... bæði um kk og kvk og sambönd.... mín skoðun.. svona eins og mín skoðum á Xfm 9,19 nema ekki um fótbolta... heldur um stráka og stelpur.. my opinion....

á maður að birta eða bara sleppa því .. good question .. hvað finnst ykkur?!?

Annars var KF NÖRD vs. FH í gær á Laugardalsvelli!!! og ég get ekki neitað því hvað ég er ótrúlega stolt af strákunum!!! öllum saman!! þið stóðuð ykkur eins og hetjur!!! þetta var alveg fáránlega flott! Sat auðvitað í VIP stúkunni .. í áhorfenda stúkunnu ... meðal tæplega 8.000 manns.... ertu ekki að grínast!!! það verður fátt sem mun geta toppað þetta hjá strákunum .. það er allavega á hreinu!!!!!

jæja... mín ætlar að halda áfram að læra... er að spá í að bjarga vinkonu minni á morgun... hún er smá rauðvínsinfestation á morgun .. þannig að það stefnir í smá útrýmingu á rauðvíni hjá henni ... langt síðan maður hefur verið í þeirri iðju ... þeas. stúta rauðvini .. lol!!

oh well... 10 krossa lokapróf á morgun ... hvernig mun það enda....

Lot's of love..... eins og þeir segja í bretlandi ...... mig langar að fara þangað ....

kv.
Clara

laugardagur, september 30, 2006

Almodovar og fleira

ég kom heim í gær tiltölulega snemma og byrjaði að horfa á bad education eftir pedro almodar. ég verð bara að taka það fram að maðurinn er snillingur þegar kemur að bíómyndum, þetta eru ekki einu sinni bíómyndir þetta er svo mikil list sem hann gerir. ekki nóg með að hann gerir fallegar myndir, þá eru sögurnar sem hann er að segja svo átakanlegar, raunverulegar og minnistæðar. ég hef séð flestar myndir hans og ég hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum. ég átti alla vega ekki til eitt orð í morgun þegar ég kláraði að horfa á myndina. hún er falleg, en samt ljót, hún er átakanleg en samt finnur maður mikið til með persónunum. maður lifir sig svo inn í þær það er alveg ótrúlegt.....

kannski er það bara ég sem er svona næm eða e-ð ;)

annað sem hefur verið að angra mig síðustu daga er af hverju er alltaf þessi munur á kynum. af hverju geta stelpur verið svona vondar og af hverju geta strákar verið svona miklar skræfur?

ég hef líka verið að spá í því af hverju akta strákar ekki það sem þeir hugsa, svona eins og stelpur. er það vegna þess að þeir hafa svona mikla stjórn á sjálfum sér og stelpur hafa hana ekki?
eins og stelpur eru líklegri til að hringja eða hafa samband þegar þær hugsa um e-n, ég veit að ég geri það oft. af hverju gera strákar það ekki? ef þeir hugsa um e-n og langar að hafa samband af hverju gera þeir það ekki?

hmm... maybe he's just not that into you... kannski er það meiri sjálfstjórn.... kannski er það lítið sjálfsöryggi og ótti við neitun....

þess vegna er ég svo ánægð með hann gulla minn... hann er alltaf til staðar þegar mig vantar hann, hann lætur mig alltaf vita hvað hann vill og hvernig hann hefur það . og hann er alltaf ánægður að sjá mig. og ef hann fær ekki athygli mína strax þá gerir hann margt til að fá hana... það er gott að geta treyst á gulla minn að vera alltaf til staðar. þó svo að hann hrekki mig stundum og gefur mér vægt hjartáfall... þá er ég nú búin að læra á brögðin hans.... gulli þú ert yndislegur... (ég veit að hann les þetta ekki en mig langar samt að varpa þetta á veraldarvefinn) ... af hverju geta ekki allir verið eins og gulli.... ? ... reyndar er það soldið silly því þá væri lífið ekki mjög spennandi .... maður myndi víst ekki muna eftir miklu ...
en kannski gerir það hlutina bara auðveldari....
en hver vill hafa hlutina auðvelda.... verður maður ekki að hafa fyrir því sem maður vill? ef það er þess virði það er að segja.

gulli er allaveg þess virði .. hann fær mig til að hlæja... svo dansar hann fyrir mig... það fer lítið fyrir honum og ekki kostar hann mikið í uppihaldi..... kannski allir karlmenn ættu að læra af honum gulla..hann er nú anni glúrinn.... þótt að hann sé fiskur... ;)

kv.
Clara

ps. að læra undir próf

miðvikudagur, september 27, 2006

blogg siður

ég er búin að vera reyna aðsetja inn svona colage af myndum af mér frá árinu 2004.... þar fór ég í gegnum allskonar breytingar... skemmtilegar ;) hihi

já samkvæmt henni Fjólu var ég hreinlega bara barn um vorið og varð svo ég eftir sumarið .. ekki slæmt þetta.. ;) .. heheh

en allavega.. fyrst að það virkaði ekki að setja það hérna inn þá varð ég víst að skella því á myndasíðuna....
skoðið allavega 2004 .... það var annsi skemmtilegt ár ;)

kv.
clara

Ps.
Nothing

laugardagur, september 16, 2006

increased interest

það hefur vakið hjá mér áhuga af hverju síðan mín fékk allt í einu aukna umferð. það hækkaði úr 8-9 notenduum upp í 16 notendur á síðast liðnum 3 dögum.
Fólk er víst svona spennt að heyra hvað er að gerast ;)

Svona short version, það gekk allt vel, ég bókstaflega minni manneskja en ég var!
Ég kann ekki vel við vekrjalyf, make my brain mush, og e-r töflur sem ég fékk made me giddy og ég flissaði þangað til þær hættu aðivrka... en er ég ekki hvort eð er alltaf flissandi ;)

Ég er svo ánægð að eiga svona góðar vinkonur, ég veit ekki vhar ég hefði verið hefði ég ekki haft ykkur.
En þetta er spennandi... ég er ekki alveg búin að venjast þessu.... en það hlýtur að koma..svona eins og með áhrif verkjalyfjanna ;)

jæja... þið vitið hvar ég er þið viljið finna mig...
ætla að fara gera e-ð annað en að hanga inni núna....

laterz...
Clara- brainmush

mánudagur, september 04, 2006

nyr dagur nytt blogg

Skólinn er ss. byrjaður..
ég hef minni tíma fyrir vini mína.. sérstaklega síðastliðnar 2 vikur en ég lofa að bæta þeim það upp reglulega á komandi mánuðum. Fjóla yndið mitt er flutt í næsta hús .. og við erum búnar að hafa það svoo gaman, í gær í góðviðrinu sátum við úti og sötruðum kaffi á tröppunum hennar ... í náttfötunum.. það var ÆÐI!

Svo erum við búnar að vera mega duglegar að grilla og vera neighborly... *fliss* bara gaman..
Fór í vísó í KB banka og var algjör skiptnemahækja eins og það heitir víst í Hr... enda eru skiptinemarnir alveg þrælskemmtilegir í ár ... þá sérstakelga buddyinn minn :D
Hann heitir Marc og er frá Þýskalandi.. ég er svoleiðis búin aðv era þeytast með hann um bæinn.. draga hann með mér í alvöru íslendinga partý og hver veit hvað .. lol
Hann átti svo stórafmæli um helgina.. og við héldum þessa fínu surprise veislu fyrir honum.. og hann fattaði ekkert :D:D ég er svona góð í að halda pókerfeisinu .. lol.. ég nebbla dróg hann á rúntinn, í ísbíltúr og gönguferð í nauthólsvíkinni .. og svo í grill með mér of Fjólu.. voða fyndið allt saman :)

Mig langar í bústaðarferð.. ég legg til að áður en of langt líður að við drífum okkur krakkar... bara svona yfir eina nótt og höfum gaman af.. grillum og förum í pottinn og spilum.. ég er ekkert búin að fara í ALLT sumar!!

Ég og Gulli höfum það annars fínt.. hann er allur að hressast úr þunglyndinu.. held að Fjóla og ÁI (Ásta Indía dóttir hennar) séu að hafa svona góð áhrif á hann.... *fliss*

Það eru svo ótrúlega mörg efni búin að koma upp síðastliðna daga sem mig hefur langað að blogga um... en núna stend ég bara á gati og man ekki eftir neinu.. hversu týpískt er nú það! ha... ?

Litla frænka mín, Andy, fór heim fyrir rúmri viku ... baby girl I miss you the most my little angel... baby sister you are the greatest!! and you know it! mwaa!..!! ...

ég komst inn í broskalla leikinn á msn.. fann nýtt forritt svo égget leikið með líka.. :D:D jeij.. en það er ekki eins samt sem áður... now why make it easy for the competition, huh?....lol

ég er búin að segja lol mjög mikið undanfarið ... og mun örugglega fara koma því inn í daglegan talsmáta einnig... svona eins og FANTABULOUS!!! nota gott fólk.. en ég á þetta orð...bara svo við erum örugg! ... lol

Fékk allt í einu fararhug í hjarta og huga.... langar allt í einu að stinga af í smá stund.. bara e-t ... á nýjan stað... langar að fara vit ævintýranna.... ekki hanga í skólanum allan tímann... en það má víst ekki gleyma að skólinn er alveg að fara verða búinn...

Fékk samt að heyra það að ég er algjörlega rótlaus... enda hef ég verið á svo miklu flakki alla mín tíð...engin furða... uff ... held að ég hafi verið of lengi á þessu landi núna... vantar að fara í smá frí ... bara í smá flugvéla ferð..
fór bara um jólin til múttu í Cali, svo til London í vor með skólanum svo til Köben að laga íbúðina...
Cali var eina svona fríið af öllu þessu ... í London var allt skipulagt dag frá degi, vísó og ferðir og allar skvísurnar að sjoppa, í Köben fékk ég varla að sjá sólina... og var á fullu að vinna frá snemma að morgni til seint að kvöldi .. í verkamannavinnu og að túristast með stelpunum...

núna væri ég til að fara bara eitthvert fyrir mig... og bara gera það sem mig langar til að gera... hvernig væri nú það... sounds wonderful!... ég myndi líklega byrja á því að sofa... og svo týnast á vit ævintýranna.. hvert sem vindurinn blæs mig....

já það er víst kominn smá fararhugur í mér.. eflaust vegna þess að ég veit að ég er ekki að fara neitt á næstunni ... allavega ekki á þessari önn nema e-r bjóði mér út.. lol.... aha.. sé það gerast...

jæja.. það stefnir allt í allsherjar blogg hjá mér núna... í staðinn fyrir öll þessi míní blogg sem hafa veirð undanfarið... eitt klapp fyrir mig.... KLAPP...

Nína Kr. er farin til Köben í amk. 1 ár... það er nú meiri vandræðin sem maður er búinn að koma sér í .. hvert á ég núna að fara í klippingu... hmm.... ;) Nína er nebbla laaaaangbest... !


Já það má víst ekki gleyma brósa.... úff... maðurinn er KF Nörd... oh boy.. ekki það að hann var pínu nörd fyrir en
kom on .... ég er samt fengnust að hann fór í klippingu .. sjáiði manninn.. þetta er hræðilegt útlit á honum!!
En fylgist með drengnum.. og drengjunum ... þeir eru allir svo mikil yndi þessi strákar... :)

Ég er ástfangin af tvennu þessa dagana.... annar er Ray Lamontagne... hann söng rólega útgáfuna af Crazy ... en allt með hann er bara fantabulous... ! ég kemst bara ekki yfir það !!!

og ég er ástfangin af chasing cars með Snow patrol... hér er textinn

We'll do it all
Everything
On our own

We don't need
Anything
Or anyone

If I lay here
If I just lay here
Would you lie with me and just forget the world?

I don't quite know
How to say
How I feel

Those three words
Are said too much
They're not enough

If I lay here
If I just lay here
Would you lie with me and just forget the world?

Forget what we're told
Before we get too old
Show me a garden that's bursting into life

Let's waste time
Chasing cars
Around our heads

I need your grace
To remind me
To find my own

If I lay here
If I just lay here
Would you lie with me and just forget the world?

Forget what we're told
Before we get too old
Show me a garden that's bursting into life

All that I am
All that I ever was
Is here in your perfect eyes, they're all I can see

I don't know where
Confused about how as well
Just know that these things will never change for us at all

If I lay here
If I just lay here
Would you lie with me and just forget the world?

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Update..

Háskólinn byrjaður
Vala Húnbo eignaðist fallegan dreng.. TIL HAMINGJU!
Menningarnótt kom og fór...
Afmæli Halldóru var AWESOME að vanda!
Enda vorum við svoooo endalaust glæsilegar!!!

Annars er lítið að frétta.... ég er líklega að fara skella mér norður um helgina í skírn.. fæ far með yndislegri skvísu.. þarf hins vegar að redda fari tilbaka aftur.. now this will be more interesting...
svo var verið að bjóða mér í partý á Sunnudegi .. af öllu dögum .. já sunnudagur.. Amin er víst að kveðja land aftur .. og honum finnst laaaangbest að djamma á sunnudögum.. því hann er allatf að vinna um helgar..

Skiptinema Buddyinn minn er æði! ...

Það er kalt úti!

Ég ætla að vera mjöög dugleg að læra í vetur...

Ævintýrið heldur áframm með nafnlausa aðdáanda minn... frábært ;)

tíminn er búinn .. ég er farin heim ...

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Litlu stundirnar..

Siðastliðna daga hef ég verið með Andy, frænku minni, og við höfum verið að gera margt sem ég hafði hreinlega gleymt að gera...
við td. fórum í göngutúr rétt um miðnætti niður að fjörunni dáðumst að rökkrinu sem var að falla yfir okkur, fórum á eldgamlan róluvöll og róluðum heillengi og lögðumst svo í grasið til að njóta stjarnanna... mmm....
svo fórum við upp á klambratún og horfðum og þetta gífurlega tungl rísa upp yfir trén og húsin .... það er alveg ótrúlegt hvað umhverfi okkar er fallegt... og þegar félagsskapurinn er svona góður gerist það varla betra!! I love you sweety!!

í gærkvöld .. klifum við fjall, drukkum rauðvín og borðuðum morgunmat... ehm ... mjög snemma... eða mjög seint ;) fer eftir því hvrnig maður lítur á það ;) and not in that order... life is wonderful!!

Þótt að smá mótvindur komi lætur maður hann ekki fella sig.... þá gerir maður bara eins og bangsímon .. hurumph og stígur upp aftur og heldur áfram. ..

njótið litlu augnablikana.... þau eru þau dýrmætustu sem maður fær

Clara Víf

þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Verslunarmannahelgin 2006

oh my oh my ...

Eigum við að ræða næstum bestu verslunarmannahelgi sem ég hef átt?!?
við erum að tala bestu stelpurnar, mesta fjörið, náttfatapartý, kokteils, stelpudjamm, sveitaball í höfuðborginni....
Endalaust daður ;) og brekkusöngur...

það gerist ekki betra en það!

Maður veit ekki hvort maður á að segja frá því en við stelpurnar lágum og kúrðum til kl. 18 á sunnudeginum og það var svoooo notalegt!

Svo ball um kvöldið með allt gamla fólkið .... awesome bebe!

spjall.. eftirparty... meira spjall.... kúr með litlu frænku.....
hazar á bíl... og meiri hazar....

það er svo gott og gaman að vera til!

ég er ekki frá því að maður geri þetta oftar!

annars er fullt að segja frá og ef ykkur langar að vita meira you know where to find me... bebe.....

skál fyrir mér.. því ég er frábær ;)

Clara